Morgunblaðið - 14.01.2005, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 14.01.2005, Blaðsíða 52
52 FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ HULDA Vilhjámsdóttir er til- tölulega nýútskrifuð úr LHÍ og hef- ur verið nokkuð virk í sýningarhaldi síðastliðin ár. Hjá Sævari Karli sýn- ir hún málverk, skúlptúra, skissu- bækur og fleira smálegt og gefur það sýningu hennar innsetning- arbrag sem minnir á vinnustofu listamanns, þá eiginlega helst eins og maður hefði ímyndað sér slíkt fyrirbæri fyrir nokkrum áratugum. Hulda sækir líka töluvert til fortíðar í verkum sínum og aðferðafræði, hún aðhyllist frjálst flæði hugans, draumar eru henni innblástur og stíll málverkanna minnir ýmist á Gustave Klimt, hollenska og belg- íska samtímamálara, Hundert- wasser eða eitthvað enn annað sem einnig er gamalkunnugt. Í sjálfu sér er ekkert athugavert við að sækja innblástur til liðins tíma ef úrvinnslan nær að vera persónu- leg og í tengslum við samtímann, en nokkuð skortir á það hér. Þó er ekki um að villast að sköpunargleði Huldu er mikil og í henni er tví- mælalaust frjór jarðvegur sem spennandi er að yrkja frekar. Málverkin á sýningu hennar nú eru þó einnig dálítið misjöfn að gæð- um og ef til vill hefðu agaðri vinnu- brögð og skýrari markmið skilað heildstæðari sýningu. Það er ekki frá því að áhorfandanum finnist hann vera staddur á vinnustofu í skóla þar sem nemandinn hefur ekki gert upp við sig í hvaða átt hann ætl- ar að halda, enn standa honum flest- ar dyr opnar, það er bara að velja einhverjar þeirra og halda af stað. Eftirminnilegustu verkin á sýn- ingu Huldu að mínu mati voru td. málverkið af liggjandi barni og einn- ig málverkið með andlitsmyndum og textum, hér kemur fram að gleggri markmið myndu skila meira til áhorfandans en raunin er nú. En það er jafnan ánægjulegt að sjá sýningu þar sem vinnugleðin er jafn sterk og hjá Huldu og gaman verður að fylgj- ast með henni í framtíðinni. Draumar úr öllum áttum MYNDLIST Gallerí Sævars Karls Til 27. janúar. Sýningin er opin á verslunartíma. Málverk, Hulda Vilhjálmsdóttir Ragna Sigurðardóttir Morgunblaðið/Þorkell „Það er ánægjulegt að sjá sýningu þar sem vinnugleðin er jafn sterk.“ UPPSELT er í dýr- ustu sæti á tónleika José Carreras í Há- skólabíói en nú eru um það bil sjö vikur þangað til söngvarinn kunni kemur til lands- ins. Að sögn Einars Bárðarsonar hjá Concert, sem heldur tónleikana, eru ennþá til góðir miðar fyrir miðju og á öðrum góðum svæðum. Ódýr- ustu miðarnir sem hægt er að fá kosta 14.900 kr. Tónleikarnir eru liður í Skand- inavíuför Carreras og verður þetta í annað skipti sem hann held- ur tónleika hér á landi, en hann söng fyrir fullri Laug- ardalshöll árið 2001. Aðeins 900 miðar eru í boði á þessa tónleika. „Þar af leið- andi munu aðdáendur komast í mun meira návígi við þennan ein- staka listamann,“ segir Einar. Hægt er að kaupa miða hjá Concert ehf. í síma 511 2255 og á www.concert.is. Tónlist | Tónleikar José Carreras José Carreras Uppselt í dýrustu sætin í Háskólabíói Stóra svið Nýja svið og Litla svið HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar eftir vesturfarasögu Böðvars Guðmundssonar Lau 15/1 kl 20 - RAUÐ KORT - UPPSELT Su 16/1 kl 20 - GRÆN KORT - UPPSELT Fö 21/1 kl 20 - BLÁ KORT - UPPSELT Lau 22/1 kl 20, - UPPSELT Fim 27/1 kl 20, - AUKASÝNING Lau 29/1 kl 20, - UPPSELT Su 30/1 kl 20, Fim 3/2 kl 20 - UPPSELT, Lau 5/2 kl 20, Su 6/2 kl 20, Fö 11/2 kl 20, Lau 12/2 kl 20 Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00 Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Su 16/1 kl 14, Su 23/1 kl 14, Su 30/1 kl 14, Su 6/2 kl 14, Su 13/2 kl 14, SÍÐUSTU SÝNINGAR HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau Í kvöld kl 20, Su 23/1 kl 20, Fö 28/1 kl 20 SVIK eftir Harold Pinter Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA. Í kvöld kl 20, Fi 20/1 kl 20, Fö 4/2 kl 20 AUSA eftir Lee Hall og STÓLARNIR eftir Ionesco - Í samstarfi við LA Lau 15/1 kl 20 SÍÐASTA SÝNING Á STÓLUNUM HÉRI HÉRASON Fyndið - ferskt - fjörugt - farsakennt LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA - UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDI NÆRING FYRIR SÁL OG LÍKAMA - BÓKIÐ Í TÍMA Kl 18:00 Gleðistund í forsal - veitingasalan opin Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsið - kynning á verki kvöldsins Kl 19:00 Matseðill kvöldsins Kl 20:00 Leiksýning kvöldsins SAUMASTOFAN 30 ÁRUM SÍÐAR eftir Agnar Jón Egilsson, Í samstarfi við TÓBÍAS Frumsýning su 16/1 kl 20 - UPPSELT Lau 22/1 kl 20, Fi 27/1 kl 20, Su 30/1 kl 20 ATH: Bönnuð yngri en 12 ára ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN: FJÖLSKYLDUSÝNING The Match, Æfing í Paradís, Bolti Lau 15/1 kl 14, Lau 22/1 kl 14 BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki Í kvöld kl 20 - UPPSELT, Su 16/1 kl 20 - UPPSELT, Fi 20/1 kl 20, Su 23/1 kl 20, Su 30/1 kl 20, Lau 5/2 kl 20 - UPPSELT SÝNINGUM LÝKUR Í FEBRÚAR NÆSTU SÝNINGAR FÖSTUD. 21. JAN. KL. 20 LAUGARD. 29. JAN. KL. 20 ☎ 552 3000 ALLRA SÍÐASTA SÝNING • Laugardag 15. janúar kl 20 eftir LEE HALL Loftkastalinn ✦ Seljavegi 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18 ÖRFÁ SÆTI LAUS! í samstarfi við LEIKFÉLAG AKUREYRAR www.loftkastalinn.is Frumsýning 11. feb. kl.20.00 – UPPSELT – 2. sýning 13.feb. kl. 19.00 3. sýning 18.feb. kl 20.00 – 4. sýning 20. feb. kl. 19.00 – FÁAR SÝNINGAR Námskeið um Toscu og Puccini hjá Endurmenntun Háskóla Íslands Skráning í síma: 525 4444 – endurmenntun@hi.is Miðasala á netinu: www. opera.is Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga. Banki allra landsmanna Frumsýning 11. febrúar kl. 20 – UPPSELT 4 600 200 leikfelag.is Miðasölusími „Fjarskalega leiftrandi og skemmtileg sýning.“ H.Ö.B. RÚV Óliver! Eftir Lionel Bart Lau. 15.1 kl 14 aukasýn. UPPSELT Lau. 15.1 kl 20 UPPSELT Fös. 21.1 kl 20 Örfá sæti Lau. 22.1 kl 20 UPPSELT Fös. 28.1 kl 20 UPPSELT Sun. 30.1 kl 14 aukasýn. Fös. 04.2 kl 20 Nokkur sæti Lau. 05.2 kl 20 Nokkur sæti Ath: Ósóttar pantanir seldar daglega! Munið VISA tilboð í janúar Sýnt í Reykjavík: Eldað með Elvis, Svik og Ausa og stólarnir Leikhúsgestir munið glæsilegan matseðil S: 568 0878 Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar í kvöld Lit(leysis) þema MYNDLIST Hafnarborg Svart á hvítu – verk í eigu Hafnarborgar Safnið er opið frá kl. 11–17 alla daga nema þriðjudaga. Sýningunni lýkur 31. janúar. HAFNFIRÐINGAR minnast þess þessa dagana með sögusýningu í að- alsal Hafnarborgar að hundrað ár eru liðin frá því að fyrsta almennings- rafveita á Íslandi var gangsett í bæn- um. Myndlistin set- ur hins vegar enn svip sinn á Sverr- issal og Apótekið, auk þess sem tekið hefur verið upp á þeirri skemmtilegu nýbreytni að kynna myndhöggvara mánaðarins í kaffi- stofu safnsins og á myndhöggvari jan- úarmánaðar, Sig- rún Guðmunds- dóttir, þar fjóra skúlptúra er henta flestir þessu tak- markaða rými ágætlega. Sverrissalur og Gamla apótekið prýða hins vegar að þessu sinni verk úr eigu safnsins er hafa verið sam- valin með tilliti til litaþema líkt og heiti sýningarinnar gefur til kynna. Lýsir sýningarheitið Svart á hvítu líka vissulega vel verkunum, sem mörg hver eru áhugaverð þó ekki nái þau að njóta sín til fulls með þessari einlitu uppsetningu sem fellur engu að síður vel að okkar útlitsdýrkandi og þemaglöðu tímum. Því þó ofur- stílhrein og vel skipulögð uppsetn- ingin kunni vissulega að virka vel fyr- ir augað, greinir áhorfandinn rýmið fyrir vikið sem eina heild er verkin renna flest hver of áreynslulaust framhjá. Það er helst að verk þeirra Magda- lenu Margrétar Kjartansdóttur og Braga Ásgeirssonar nái að hrista upp í sýningargestinum. Myndefni þeirra beggja falla enda ekki alveg að lita- skemanu og vekja auk þess vissan óhug og þar af leiðandi áhuga með áhorfandanum. Þannig gerir barns- legt andlit stóreygu stúlkunnar sem stendur með tíkarspena í hárinu og barn í fangi í verki Magdalenu Mar- grétar Kjartansdóttur, Móðurást, móðurina óþægilega unga ásýndar, á meðan að sundurskornir dúkkuhaus- ar og leikfangadýr á svörtum grunni í Tímavél Braga Ásgeirssonar hafa yf- ir sér nokkuð grimmilegt yfirbragð. Verk á borð við Noctune IV Richards Vaux, ætingar Emiko Maeda og verk Karls Kvarans, sem einnig eiga vel athygli skilið, ná hins vegar ekki að fanga áhorfandann nægjanlega í þessu einlita umhverfi og hljóta þá at- hygli sem þeim ber. Anna Sigríður Einarsdóttir Móðurást eftir Magdalenu Margréti. ❖ Opið virka daga 10-18 ❖ Laugardaga 10-16 Nýbýlavegi 12 Kópavogi s. 554 4433 Útsalatsala
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.