Morgunblaðið - 14.01.2005, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2005 21
MINNSTAÐUR
Ármúla 44,
sími 553 2035Raðgreiðslur í 36 mánuði
Fyrstir koma,
fyrstir fá!
Tegund: Áður Nú
Pegaso 3+1+1 leður 398.620 239.170
Cohiba 3+1+1 leður 394.630 236.770
Rondo 3+1+1 leður 315.980 189.590
Manchester 3+1+1 leður 259.800 155.880
Altamare 3+1+1 leður 398.620 239.170
Adriana 3+1+1 leður 439.800 263.880
Mirelle 3+1+1 áklæði 394.980 236.980
New York 3+1+1 leður 398.960 239.380
Hermitage 3+1+1 leður 391.320 234.790
Francesca 3+1+1 áklæði 189.980 113.900
TÆKIFÆRI!
Seljum í dag og næstu daga nokkur
sófasett á stórlækkuðu verði. Um er að
ræða lítillega útlitsgölluð sófasett og
sett sem hverfa munu úr úrvali okkar.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
VÉLSLEÐAMENN á höfuðborg-
arsvæðinu hafa mikinn áhuga á því
að fá aðstöðu til æfinga og keppni
á Hengilssvæðinu við gamla Vals-
skálann, og hefur Landssamband
íslenskra vélsleðamanna fengið
skálan til afnota fyrir starfsemi
sína.
Alexander Már Kárason, marg-
faldur Íslandsmeistari í snjókrossi
– betur þekktur sem Lexi – segir
að tími sé til kominn að byggja upp
hentugt æfinga- og keppnissvæði
við höfuðborgarsvæðið. Hann segir
að haft hafi verið samband við fjöl-
marga aðila; Orkuveitu Reykjavík-
ur, sem á landsvæðið sem um er
rætt; Íþrótta- og tómstundaráð
(ÍTR); forsvarsmenn skíðafélag-
anna o.fl., og hafi hugmyndum vél-
sleðamanna allstaðar verið vel tek-
ið.
Ef allt gengur að óskum og öll
leyfi fást vonast Lexi til þess að
hægt verði að leggja braut rétt
neðan við Valsskálann, til reynslu í
vetur til að byrja með, en vonandi
til frambúðar. Þar segir hann að
aðstaða geti verið hin besta, og
m.a. hægt að framleiða snjó í
brautina ef þurfa þyki með búnaði
sem ÍTR hefur á svæðinu.
Segja má að Lexi sé góðu vanur
hvað varðar aðstöðu, en hann er
nýfluttur í höfuðborgina eftir að
hafa búið lengi á Akureyri. Þar rak
hann í þrjú ár braut af því tagi
sem hann vill koma á fót fyrir
sunnan og segir hann alla sem þar
komi að hafa mjög góða reynslu af
slíkri braut.
Löglegt umhverfi
fyrir ungmenni
Lexi reiknar m.a. með því að halda
námskeið fyrir þá sem hafa áhuga
á að læra meira, og kaupa trygg-
ingar til þess að geta leyft ung-
mennum allt niður í 14 ára að
stunda vélsleðaíþróttina á æfinga-
svæðinu, enda sé betra að ung-
menni sem hafi áhuga á þessu
stundi íþróttina löglega í góðu um-
hverfi. Einnig opni slík braut fyrir
keppni sunnan heiða, sem ekki hef-
ur verið haldin í áraraðir.
„Það sem ég er að gera er að
reyna að búa til umhverfi þar sem
menn geta komið og keyrt sleðana,
sérstaklega ungir krakkar, og geta
þá haft hönd í bagga við að þjálfa
þá aðeins upp og hjálpa þeim
áfram. Það er eiginlega meg-
inástæðan fyrir því að ég er að
standa í þessu, það er uppbygg-
ingin, að fá fleiri unga krakka til
að koma í sportið og keppa í þessu.
Ég á eftir að hætta einhverntíma,
og þá vil ég nú vera búinn að gera
nógu mikið,“ segir Lexi.
Vélsleðamenn vilja útbúa æfinga- og keppnisbraut á Hengilssvæðinu í vetur
Morgunblaðið/Kristján
Æfingabraut Vélsleðamenn á Akureyri hafa æfingabraut til afnota og vilja
félagar þeirra á höfuðborgarsvæðinu gera svipaða braut.
Hefur lengi vantað braut fyrir
vélsleðamenn á SV-horninu
4# A
%
Hafnarfjörður | Óformlegar viðræð-
ur um sameiningu Hafnarfjarðar og
Voga hafa verið í gangi undanfarið,
og er hugsanlegt að íbúar í sveitar-
félögunum fái að kjósa um samein-
inguna næsta haust, þó sameining-
arnefnd félagsmálaráðuneytisins
eigi enn eftir að gefa samþykki fyrir
því.
Jón Gunnarsson, oddviti Vatns-
leysustrandarhrepps, segir að í kjöl-
far umræðu um sameiningu Voga við
önnur sveitarfélög á Suðurnesjum
hafi verið gerð könnun meðal allra
íbúa sveitarfélagsins, þar sem í ljós
kom að áberandi fleiri vildu samein-
ast Hafnarfirði en Reykjanesbæ.
Þess vegna hafi verið ákveðið að
kanna hug Hafnfirðinga til samein-
ingar og hefja óformlegar viðræður
við þá.
„Við höfum rætt þetta mál óform-
lega síðan þessi niðurstaða þeirra úr
könnuninni lá fyrir.“ segir Lúðvík
Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar.
„Við teljum að það sé full ástæða til
þess að láta reyna á þessa samein-
ingu, og það sé nokkuð skýr vilji í
báðum sveitarfélögunum að láta
reyna á þetta.“
Hann segir sameiningarnefnd fé-
lagsmálaráðuneytisins hafa viljað
kosningu um sameiningu í vor, en
sveitarfélögin tvö hafi lagt það til að
því verði frestað fram á haust til þess
að tími gæfist til að kanna hverjar af-
leiðingar sameiningar yrðu og kynna
þær vel fyrir íbúum áður en kosið
yrði.
Byggð þróist í suðurátt
Lúðvík segir að ef af sameining-
unni verði muni Hafnarfjörður líta
meira í átt að Vogum hvað varðar
uppbyggingu. „Ég tel að ef af þess-
ari sameiningu verður, sem ég tel
margt benda til, þá hafi það strax
þau áhrif að byggðaþróun hér á höf-
uðborgarsvæðinu verði með skýrari
hætti til suðurs. Það segir sig sjálft
að umræður um flutning innanlands-
flugs til Keflavíkur, tvöföldun
Reykjanesbrautarinnar, sú mikla og
hraða uppbygging sem er hér á suð-
ursvæðunum í Hafnarfirði, auk fyr-
irhugaðrar stækkunar álversins,
kalli á frekari byggðarþróun með
ströndinni hér suðureftir. Þar eigum
við ýmsa sameiginlega hagsmuni,
Vogamenn og Hafnfirðingar.“
Óformlegar viðræður í gangi við Voga
Hugsanlega
kosið um sam-
einingu í haust
Reykjavík | Aðsóknarmet var enn
einu sinni sett í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum á liðnu ári, en í des-
ember sl. heimsóttu garðinn 12.290
gestir. Er metið m.a. rakið til þess að
ókeypis var í garðinn á aðventunni.
Alls komu 203.093 gestir í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinn í fyrra,
flestir í júlí eða 48.709 gestir.
Fram kemur í fréttabréfi garðsins
að nýlega hafi brandugla bæst í hóp
villtra dýra sem dvelja í garðinum
en undanfarið hafa fálkar einnig
dvalið þar í tengslum við verkefnið
„Villt dýr í hremmingum“. Brand-
uglan fannst í Breiðholtinu og er
ekki séð hvað amar að henni en hún
á erfitt með flug og fær nokkra daga
til að jafna sig áður en eitthvað verð-
ur að gert. Brandugla er eina uglan
sem verpir hér á landi.
Brandugla úr
Breiðholtinu
Reykjavík | Stjórn Stangaveiðifélags
Reykjavíkur (SVFR) fagnar því að
taka verði sérstakt tillit til Elliðaár-
laxins við gerð landfyllinga við norð-
an- og vestanvert Gufunes vegna
fyrirhugaðrar Sundabrautar, eins
og fram kom í úrskurði Skipulags-
stofnunar frá 10. janúar sl.
„Stjórn SVFR hefur áður varað
við þeim hættum sem lagning
Sundabrautar getur haft á laxa-
stofninn í Elliðaánum og það er því
sérstakt fagnaðarefni að Skipulags-
stofnun geri það að skilyrði í úr-
skurði sínum að framkvæmdir, sem
haft geta áhrif á göngu laxins upp í
árnar, liggi niðri á tímabilinu frá 1.
maí til 30. september eða á helsta
göngutíma laxins,“ segir í ályktun
stjórnarinnar.
Fagna tillitssemi
við laxastofn
Breiðholt | Frístundaheimili láta
ekki sitt eftir liggja í landssöfnun
sem nú stendur yfir til styrktar
fórnarlömbum náttúruhamfarana í
Asíu á öðrum degi jóla. Í frístunda-
heimilinu í Seljaskóla verða bak-
aðar smákökur og hellt upp á kaffi
á fimmtudag og föstudag, og verða
foreldrum og starfsmönnum skól-
ans seldar veigarnar. Allur ágóði
mun renna til hjálparstarfsins.
Allir leggjast á eitt