Morgunblaðið - 14.01.2005, Qupperneq 22
22 FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
Náttúrulega
leiðin til að léttast
www.islandia.is/~heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889
fæst m.a. í Lífsinslind í Hagkaupum,
Borgartúni 24
Árnesaptóteki Selfossi
Kárastíg 1
Fjarðarkaupum
Útsala Útsala
Nýtt kortatímabil
Krónunni, 2. hæð, sími 462 3505,
Hafnarstræti 97, 600 Akureyri.
Opið laugardaga kl. 10-16
AKUREYRI
AUSTURLAND
Austurbyggð | Þegar rýnt er í tölur um íbúa-
fjölda á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði, það er
að segja sveitarfélaginu Austurbyggð, vekur
sérstaka athygli hátt hlutfall barna á fyrsta ári
í sveitarfélaginu.
Íbúum fjölgaði um 20 á síðasta ári, sam-
kvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands um
mannfjölda á Íslandi 1. desember sl. Af 873
íbúum í sveitarfélaginu eru 20 á fyrsta ári eða
2,29%. Leitt er getum að því á vef Aust-
urbyggðar að þetta hlutfall sé með því hæsta á
landinu og jafnvel það hæsta. Og fæðingar voru
reyndar fleiri á síðasta ári, því tvö börn fæddust í
Austurbyggð í desember, eða eftir að bráða-
birgðatölur Hagstofunnar birtust. Eitt barn fædd-
ist 21. desember og annað 24. desember. Þetta
eru að sjálfsögðu ánægjuleg tíðindi og í takt við
þá bjartsýni sem ríkir á meðal íbúa Aust-
urbyggðar og uppbygginguna sem nú á sér stað í
sveitarfélaginu.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Barnmargt í Austurbyggð Dagný Elísdóttir hjálpar hér yngsta hásetanum á leikskólanum Kærabæ á
Fáskrúðsfirði um borð í leikskólabátinn Petru.
Barnalán í Austurbyggð
Hafnir | Það er óhætt að segja að
liðið ár hafi verið fengsælt fyrir
Hafnarsjóð Fjarðabyggðar, en sam-
anlagt fóru 395.611 tonn af afla um
hafnirnar á árinu 2004.
Norðfjarðarhöfn var með 213.552
tonn, Eskifjarðarhöfn 170.262 tonn
og Reyðarfjarðarhöfn 11.797 tonn.
Eitthvað minna fór um Mjóafjarð-
arhöfn sem er einnig innan hafn-
arsjóðs Fjarðabyggðar.
Frá þessu segir á vefnum fjarda-
byggd.is.
Fljótsdalshérað | Viðar Örn Hafsteinsson,
19 ára körfuknattleiksmaður, er íþróttamað-
ur Hattar árið 2004.
Eftirtaldir íþróttamenn voru útnefndir í
hverri íþróttagrein sem íþróttamenn Hattar
í viðkomandi greinum á liðnu ári: Högni
Helgason knattspyrnumaður, Steinar Logi
Sigurþórsson handknattleiksmaður, Védís
Hrönn Gunnlaugsdóttir fimleikamaður, Við-
ar Örn Hafsteinsson körfuknattleiksmaður
og Þorgeir Óli Þorsteinsson frjálsíþrótta-
maður.
Ljósmynd/ÁÓ
Skara framúr Íþróttamenn Hattar 2004 og
Helgi Sigurðsson (t.h.) formaður félagsins.
Viðar Örn
íþróttamaður
Hattar
Egilsstaðaflugvöllur | Umdæm-
isstjóri Flugmálastjórnar við Eg-
ilsstaðaflugvöll hefur kynnt hug-
mynd um að Fljótsdalshérað taki
við flugvallarsvæðinu og annist út-
hlutun lóða og gatnagerð, en hafi
jafnframt allar tekjur af svæðinu
aðrar en lóðarleigu og hluta frá-
veitugjalds.
Hugmyndin var kynnt bréflega
fyrir skipulags- og bygging-
arnefnd Fljótsdalshéraðs, sem fer
nú yfir tillögu að deiliskipulagi at-
hafnasvæðis við Egilsstaðaflugvöll,
sem unnin er fyrir Flugmála-
stjórn. Nefndin samþykkti að fela
settum skipulagsfulltrúa að ræða
við Flugmálastjórn um skipulag
svæðisins og í kjölfarið að láta
vinna ítarlegri skipulagsskilmála
þess.
Nefndin tók jafnframt undir
hugmyndir Flugmálastjórnar um
að sveitarfélagið taki við svæðinu
til frekari meðferðar.
Ístölt | Undirbúningur er hafinn að árlegu ís-
töltmóti hestamannafélagsins Freyfaxa, sem
halda á 19. febrúar nk. á Lagarfljóti við Egils-
staði. Í fyrra var mótið haldið í fyrsta sinn og
þótti glæsilegt. Í ár hafa þekktir knapar boðað
þátttöku eða lýst yfir áhuga á að mæta. Úr þeim
hópi má nefna Olil Amble, Vigni Siggeirsson,
Hans Kjerúlf, Berg Jónsson, Ragnheiði Sam-
úelsdóttir o.fl. Fyrsta sætið á mótinu veitir þátt-
tökurétt í Ístölti 2005 í Reykjavík. Keppt verður
um Ormsbikarinn eftirsótta, auk annarra glæsi-
legra verðlauna. Um kvöldið verður haldin
uppskeruhátíð hestamanna á Austurlandi. Frek-
ari upplýsingar um mótið má finna á vefnum frey-
faxi@freyfaxi.net.
Kröfur í þrotabú | Skiptafundur
til að fjalla um skrá um lýstar kröfur
í þrotabú Kaupfélags Vopnfirðinga
er haldinn í dag. Síðasti dagur til að
lýsa kröfum í þrotabúið var 4. janúar
sl.
NORÐURORKA hefur stofnað sér-
staka söludeild, til að annast kaup og
sölu á rafmagni en með breytingu á
raforkulögum um áramótin er fram-
leiðsla og sala raforku nú á frjáslum
markaði. Franz Árnason, forstjóri
Norðurorku, sagði á málþingi fyrir-
tækisins á dögunum, að þessi mark-
aður væri þó ekki til enn sem komið er
og að óljóst væri hvenær hann kemst
á. „Norðurorka á að minnsta kosti
ekki völ á að kaupa raforku á frjálsum
markaði, af öðrum en Landsvirkjun.“
Franz sagðist óttast að auknar kröfur
til hagræðingar hjá dreifiveitum, muni
til lengri tíma litið rýra dreifikerfin og
minnka afhendingaröryggi.
Dreifing raforku verður áfram á
hendi dreifiveitna en verðlagning á
dreifingu, þ.e. gjaldskrá, þarfnast
staðfestingar Orkustofnunar. Nú um
áramótin var Landsnet hf. stofnað en
fyrirtækið mun annast raforkuflutn-
ing um landið. Líkt og gjaldskrá
dreifiveitna, verður gjaldskrá flutn-
ingafyrirtækisins Landsnets undir
eftirliti Orkustofnunar. Franz sagði að
vegna þess að flestar háspennulínur
Rarik og Orkubús Vestfjarða verði
innan Landsnets, sem er nýskipan,
hækki flutningskostnaður raforku til
Norðurorku, sem valdi óhjákvæmi-
lega einhverri verðhækkun. Uppsetn-
ing á söludeild Norðurorku mun einn-
ig þýða einhverja hækkun.„Það er því
ljóst að raforkuverð á Akureyri mun
hækka eitthvað umfram hækkanir
sem stafa af almennum verðhækkun-
um,“ sagði Franz. Þá kom fram í máli
Franz á málþinginu, að frelsi í raf-
orkumálum væri ekki meira en svo að
Norðurorka ætti í deilum vegna raf-
strengja sem liggja frá Akureyri að
dreifikerfum Norðurorku á Lauga-
landi í Eyjafjarðarsveit og Hjalteyri í
Arnarneshreppi. „Úrskurðarnefnd
raforkumála telur að farið sé inn á
dreifiveitusvæði Rarik og að það sé
óheimilt. Jafnframt telur nefndin að
heimilt sé að fara um dreifisvæði ann-
arrar dreifiveitu með háspennulagnir
svo fremi sem ekki fari fram úttekt
raforku af strengnum innan dreifi-
svæðis viðkomandi dreifiveitu. Þar
með telur Norðurorka sig í fullum
rétti til að fæða dreifikerfi sín á
Laugalandi og Hjalteyri á þann hátt
sem nú er gert. Verði Norðurorka hins
vegar þvinguð til að breyta þessu mun
það auka kostnað hitaveitunnar og
rýra tekjur rafveitunnar og það er
með öllu óásættanlegt.“
Raforkuverð á Ak-
ureyri mun hækka
Ný raforkulög tóku gildi um áramót
Fangelsi vegna fjárdráttar | Karlmaður á sextugsaldri hefur í Héraðs-
dómi Norðurlands eystra verið dæmdur í 6 mánaða fangelsi vegna fjár-
svika. Frestað er fullnustu 5 mánaða af refsingunni og fellur hún niður
haldi hann skilorð í 3 ár.
Maðurinn var ákærður fyrir fjársvik, en á tæpu ári, frá því í febrúar árið
2002 til janúar árið 2003 var honum gefið að sök að hafa svikið út frá
vinnuveitenda sínum, fiskverkun í Eyjafirði, rúmlega eina milljón króna
með óheimilum úttektum af tékkareikningi félagsins. Hilmdi hann yfir
fjársvikin með því að henda hluta af ógreiddum reikningum sem honum
hafði verið falið að afhenda í banka til greiðslu.
Maðurinn viðurkenndi brot sín fyrir dómi. Við ákvörðun refsingar var
litið til þess að hann aflaði sér umtalsverðra fjármuna sem hann hefur ekki
endurgreitt, en sér til málsbóta hafði hann að hafa játað brot sín án und-
andráttar og þá hefur hann ekki áður hlotið refsingu.
Kristinn Halldórsson settur héraðsdómari kvað upp dóminn.
GUÐMUNDUR Jón Guð-
mundsson bóndi í Holts-
seli í Eyjafjarðarsveit
hefur nú um nokkurra
mánaða skeið flutt inn
og selt náttúruvörur fyr-
ir mjólkurkýr. Um er að
ræða fimm gerðir af
glærum vökva í eins lítra
umbúðum. Þessar vörur
eru ætlaðar gegn ýmsum
sjúkdómum í kúm, svo
sem bólgum í júgri, lið-
um og einnig gegn föst-
um hildum og stálma.
„Ég fór á Agromec
sýninguna í Danmörku í
fyrra og sá þessar vörur
og við ákváðum að reyna
þetta hjá okkur fyrst og
gerðum það reyndar.
Þar sem þetta kom ljóm-
andi vel út ákváðum við
að bjóða öðrum bændum þetta til sölu. Ef ég tek dæmi þá hefur meðalið
gegn föstum hildum reynst mjög vel hér á búinu og sömu sögu segja mér
bændur sem hafa notað meðalið, að það hafi gagnast allt að 100%,“ sagði
Guðmundur. Vörurnar hafa fengið góðar viðtökur hjá bændum og er nú
svo komið að Guðmundur selur þær á 67 bú víðsvegar um land.
„Já við erum búin að loka hringnum algjörlega, farin að selja á Vestfirð-
ina líka. Þessar vörur eru franskar og hafa verið þróaðar allt frá árinu 1936
þannig að þetta er ekkert nýtt. Þar í landi nota dýralæknar þessar vörur í
fyrstu meðhöndlun og nota ekki penicillín né önnur sterk lyf nema þessi
meðöl gagnist ekki.“
Guðmundur Jón Guðmundsson, bóndi í Holtsseli.
Morgunblaðið/Benjamín
Náttúruvörur
fyrir mjólkurkýr
Menntasmiðja unga fólksins |
Hjá Menntasmiðjunni á Akureyri er
nú í fjórða sinn boðið upp á nám í
Menntasmiðju unga fólksins. Það er
byggt upp á svipaðan hátt og nám í
lýðháskóla, þ.e. fléttað saman úr þátt-
um sem eru sjálfstyrkjandi, skapandi
og hagnýtir. Námið er ætlað öllu
ungu fólki á aldrinum 17-26 ára. Á
undanförnum árum hafa þeir nem-
endur sem sótt hafa námið e.t.v. stað-
ið á tímamótum í lífinu og/eða ekki
fundið sig innan hins hefðbundna
skólakerfis eða á vinnumarkaði.
Námið virkar í mörgum tilfellum sem
stökkpallur fyrir ný afrek í námi,
vinnu eða í einkalífi, segir í frétt frá
Menntasmiðjunni. Fjöldi nemenda í
Menntasmiðju unga fólksins er að há-
marki 12 og eru námsþættir margir
og mismunandi, s.s. enska, myndlist,
tölvur, íslenska, sjálfsstyrking, skap-
andi hreyfing, leikræn tjáning, kynn-
isferðir, umhverfisfræði, persónu-
rækt, fyrirlestrar og fl. Námið hefst
19. janúar n.k.