Morgunblaðið - 14.01.2005, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 14.01.2005, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2005 23 MINNSTAÐUR F Y N D I Ð • F E R S K T • F J Ö R U G T • F A R S A K E N N T „Það er mikill uppgangur í Borgarleikhús- inu þessa daga og sýningin á Héra Héra- syni er dæmi um hve leikhópurinn í húsinu mætir gríðarlega sterkur til leiks.“ Valgeir Skagfjörð / Fréttablaðið „Brilljant leikhús!“ Valgeir Skagfjörð / Fréttablaðið „Stefán Jónsson hefur, ásamt Berki Jónssyni og hinum, í stuttu máli sagt, gert farsann að listrænum viðburði. Geri aðrir betur.“ María Kristjánsdóttir / Morgunblaðið „Ég hef sjaldan séð Hönnu Maríu gera betur.“ María Kristjánsdóttir / Morgunblaðið „..sýningin var ekki bara skemmtileg og gletti- lega sett saman heldur komst grafalvarlegur boðskapur hennar mjög vel til skila.“ Elísabet Brekkan / DV LÉTTBJÓR SUÐURNES NAUÐSYNLEGT er að Dalsbraut verði lögð sem fyrst. Þetta er nið- urstaða vinnuhóps umhverfisráðs um framtíðarlegu tengibrauta í og við Lundarhverfi, en greinargerð hópsins var lögð fram á fundi ráðs- ins á dögunum. Síðastliðið sumar var tekinn í notkun hluti af Dalsbraut, þe. frá Borgarbraut og upp að Þingvall- astræti. Framhald brautarinnar liggur svo til suðurs og að Miðhúsa- braut í Naustahverfi. Skiptar skoð- anir hafa verið á Akureyri um lagn- ingu þessa hluta Dalsbrautar, m.a. á þeim forsendum að hún myndi skera í sundur skólahverfi og rýra athafnasvæði KA. Miðað við væntanlega þróun byggðar samkvæmt gildandi aðal- skipulagi þarf að gera ráð fyrir Miðhúsabraut sem framtíðarmögu- leika, þe. eftir 2018, segir í nið- urstöðu hópsins. Einnig að mik- ilvægi hennar í framtíðar- gatnanetinu sé þó í beinum tengslum við áformaða uppbygg- ingu hverfa vestan Síðuhverfis samkvæmt aðalskipulaginu og gæti því minnkað síðar yrði fallið frá því að byggja þar. Fram kemur í greinargerðinni að jarðgöng milli Þórunnarstrætis og Drottningarbrautar séu ekki raun- hæfur kostur á þessu stigi, en að rétt sé að merkja legu slíkra ganga inn á aðalskipulag sem framtíðar- möguleika. Umhverfisráð er sammála þess- um niðurstöðum vinnuhópsins og leggur til við bæjarstjórn að um- hverfisdeild verði falið að gera til- lögu að breytingum á aðalskipulagi 1998-2018 í samræmi við þessar niðurstöður. Tillagan verður kynnt bæjarbúum áður en hún verður auglýst. Nauðsynlegt að leggja Dalsbraut sem fyrst Reykjanesbær | „Það hefur sýnt sig að þetta er stórsnjöll hugmynd og bráðnauðsynleg. Þetta er gleymdur hópur, krakkarnir eru vaxnir upp úr félagsmiðstöðinni en fá ekki inni á skemmtistöðunum. Við komum inn sem heilbrigður valkostur,“ segir Styrmir Bark- arson, tómstundaráðgjafi í 88 húsinu, menn- ingarmiðstöð fyrir ungt fólk í Reykjanesbæ. Ár er liðið frá því menningarmiðstöðin var opnuð en hún er fyrir ungmenni á aldrinum frá 16 til 25 ára. Styrmir og Arnar Ingi Tryggvason, formaður húsráðs, eru sammála um að vel hafi tekist til með reksturinn fyrsta árið. Þessara tímamóta var minnst í gær með ýmsum uppákomum og bæjarbúum var boðið að koma til að kynna sér starfsemina. „Mitt hlutverk er lítið öðruvísi en annarra í húsráðinu. Ég sé að vísu um fundina og hjálpa starfsfólkinu hér meira,“ segir Arnar Ingi. Hann segir að hlutverk húsráðsins sé að koma með hugmyndir að verkefnum og hrinda þeim í framkvæmd. Styrmir bætir því við að hlutverk húsráðsins sé svipað og hjá nemendaráði í skólum. „Hugmyndin er að ungmennin sjálf sjái um starfið en starfs- mennirnir séu þeim innan handar,“ segir Styrmir. Arnar Ingi segir að vel hafi gengið í vetur að sjá til þess að alltaf væri eitthvað um að vera í 88 húsinu. Haldnir séu tónleikar, borð- tennismót, fylgst með Idoli og bingói í sjón- varpinu, svo nokkuð sé nefnt. „Það er yfirleitt eitthvað um að vera aðra hverja helgi, fyrir utan föstu punktana. Það er svo mikið eirð- arleysi í fólki að ekki þýðir að vera með allar helgar undir. Krakkarnir mæta ekki,“ segir Arnar Ingi sem hefur verið fastagestur í 88 húsinu frá fyrsta degi. Hann segist koma flesta daga í húsið. Sest niður á kaffihúsinu til að lesa blöðin eða fara í spil. „Það er alltaf einhver hérna en það er misjafnt hverja maður hittir,“ segir Arnar. Hann segir að áður en 88 húsið kom til hafi krakkarnir komið saman á sjoppum bæjarins. Arnar áætlar að um fimmtíu manna kjarni komi reglulega í húsið og telur að ánægja sé í þeim hópi með starfið. „Ég held að fólk sé ekki búið að átta sig á að þessi staður sé til,“ segir hann þegar leitað er skýringa á því af hverju ekki komi stærri hópur fólks á þessum aldri í 88 húsið. Styrmir bætir því við enn komi fólk og hafi orði að þetta sé svolítið snið- ugt – og byrji síðan að nota aðstöðuna. Arnar hefur ekkert út á aðstöðuna að setja, segir að hún sé fyrsta flokks. Nefnir þó að stundum sé talað um að húsið sé svolítið stofnanalegt og það mætti vera heimilislegra. Styrmir svarar þessu þannig að hárfín lína sé á milli þess að hafa heimilislegt og stofn- analegt. Ef of mikið sé slakað á verði fljótt draslaralegt. „Við gerum það sem við getum til að hafa þetta huggulegt og notum til þess kerti, dúka, servíettur og myndir,“ segir hann. Styrmir segir að alltaf sé einhver starfs- maður á staðnum og geti krakkarnir leitað til hans með alla hluti. Þeir sjá sjálfir um að halda úti foreldraklúbbi, þar sem ungar mæð- ur og feður hittast. Krakkarnir sjálfir séu með ýmsa klúbba sem hafi aðgang að fund- arsal í 88 húsinu og annarri aðstöðu. „Við tök- um öllum opnum örmum,“ segir Styrmir. Um áramótin var lengdur sá tími sem opið er á virkum dögum. Nú er opnað klukkan þrjú á daginn en um helgar er aðeins opið á kvöldin. Ýmislegt er framundan, til dæmis tónleikarnir Kjallararokk og í febrúar verður haldið meistaramót 88 hússins í Popppunkti. Arnar Ingi segir að popppunktsspilið sé vin- sælt í 88 húsinu og Styrmir segir að eitt æðið taki við af öðru. Auk Popppunktsins er gólf- tennis afar vinsæll í 88 húsinu um þessar mundir en það er nýstárleg útgáfa af borð- tennis. Menningarmiðstöð ungs fólks í Reykjanesbæ, 88 húsið, hefur starfað í eitt ár og gengur vel Komum inn sem heilbrigður valkostur Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Afmæli Arnar Ingi Tryggvason, formaður húsráðs, og Styrmir Barkarson, tómstundaráð- gjafi í 88 húsinu, bera saman bækur sínar í kaffihúsinu. Tölvurnar eru í stöðugri notkun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.