Morgunblaðið - 14.01.2005, Page 39
Amma var mjög góð við
mig, ég vona að henni líði vel
hjá Guði. Ég mun sakna
hennar mjög mikið.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mér veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
Kveðja
Birta.
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
(Hallgrímur Pétursson.)
Amma mín var mjög góð
við alla. Hún hlustaði ef mað-
ur átti í vanda. Ég gat talað
við hana um allt milli himins
og jarðar. En svo fór hún
upp til Guðs, henni líður
örugglega mjög vel hjá Guði.
Elsku amma, ég mun allt-
af muna þig. Kveðja,
Elín Sól.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Amma Þuríður var góð
kona. Ég vona að henni líði
vel á himnum og að Guð
muni taka vel á móti henni.
Kveðja,
Þórdís.
HINSTA KVEÐJA
er ferðin á Lónsöræfi eftir brúðkaup
Herborgar. Þuríður hélt reisn sinni
og gestrisni allt til þess síðasta.
Hversu veik sem hún var orðin síð-
ustu mánuðina heima lagði hún allt-
af fallega á borð og átti eitthvað gott
með kaffinu.
Þegar við vorum allar sestar að
sunnan heiða og börnin uppkomin
gafst meiri tími til samfunda. Þó að
sitthvað sé ógert sem ráðgert var
skipta gæði samverustundanna
mestu máli og þar bar ekki skugga
á. Eftir að Þuríður greindist með
meinið sem dró hana til dauða fjölg-
aði heimsóknum og símtölum til
muna en vissulega hefðu samveru-
stundirnar mátt vera fleiri. Hún
barðist eins og hetja, gekk í gegnum
margar erfiðar meðferðir og var
heima svo lengi sem nokkur kostur
var. Það er dýrmætt að hafa verið
nálægt henni síðustu stundirnar.
Þuríður átti um margt gott líf þótt
stundum blési á móti. Hún naut þess
að fara aftur út á vinnumarkaðinn og
vann meðan heilsan leyfði. Hún las
mikið og fylgdist með gangi mála og
hafði ákveðnar skoðanir. Hún lét sér
mjög annt um velferð dætra sinna
og fjölskyldna þeirra, barnabörnin
hennar sex nutu ástar og umhyggju
ömmu sinnar. Eitt barnabarnið
sagði um hana látna að hún hefði
verið besta amma í heimi, það er
ekki slæmt að fá slík eftirmæli. Auð-
vitað var Þuríður ekki sátt við að fá
ekki að fylgjast lengur með barna-
börnunum vaxa úr grasi, fá ekki not-
ið lífsins með ástvinum sínum og
samferðamönnum, hver væri sáttur
við það? En hún tók örlögum sínum
af æðruleysi, kvartaði aldrei yfir
hlutskipti sínu og nýtti vel þann tíma
sem gafst. Sæl var hún að geta, þrátt
fyrir að veikindin ágerðust sífellt,
notið jólagleðinnar á heimili Matt-
hildar dóttur sinnar á nýliðnum jól-
um og að Herborg og hennar fjöl-
skylda náðu að heimsækja hana um
áramótin. Matthildur heimsótti
mömmu sína nær daglega á líknar-
deildina og Herborg var meira og
minna í Reykjavík í allt haust til að
geta verið nærri henni. Þær viku
ekki frá rúmi hennar síðasta sólar-
hringinn. Það er þeim áreiðanlega
dýrmætt nú hversu vel þær studdu
móður sína í veikindum hennar.
Blessuð sé minning Þuríðar systur
okkar.
Björk og Þyri.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2005 39
MINNINGAR
KRISTRÚN
SIGURVINSDÓTTIR
GEORGES
✝ Kristrún Sigur-vinsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 6.
ágúst 1948. Hún and-
aðist á Gjörgæslu-
deild Landspítalans í
Fossvogi 9. janúar
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar eru Jó-
hanna Karlsdóttir, f.
21. nóvember 1925,
og Sigurvin Sveins-
son, f. 9. júní 1925, d.
27. desember 2004.
Systkini Kristrúnar
eru Kristín, f. 1945,
Hafsteinn, f. 1951,
Jóhanna Svanlaug, f. 1954, Sigur-
vin Ægir, f. 1956, Ólöf, f. 1958,
Dröfn, f. 1961 og Karitas, f. 1963.
Kristrún giftist Leo George 13.
desember 1969. Sonur þeirra er
Christopher, f. 24. september
1978.
Kristrún og Leo hófu búskap í
Ohio árið 1969 og hafa þau verið
búsett þar síðan. Þau ráku efna-
laug og störfuðu þar saman við
fyrirtæki sitt.
Útför Kristrúnar fer fram frá
Keflavíkurkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 11.
hvort tunglið væri fullt,
og hvort við sæjum
norðurljósin. Að sjálf-
sögðu hlýddum við því
og litum út um
gluggann til að athuga
það fyrir þig. Sennilega
hefur þú þá verið með
heimþrá án þess að
minnast á það. Þegar
þið Leo komuð hingað
fyrir þremur árum
skemmtum við okkur
vel saman, þvældumst
út um allt og skoðuðum
landið. Þetta voru ynd-
islegar stundir, og virt-
ist sem þú værir að ná heilsu aftur.
Við erum viss um að ykkur pabba líð-
ur vel saman í himnaríki. Megi al-
góður Guð styrkja hana mömmu og
vaka yfir henni sem hefur misst svo
mikið á svo stuttum tíma. Einnig bið
ég fyrir Leo og Christopher, systk-
inum mínum og fjölskyldum þeirra.
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
(Hallgrímur Pétursson.)
Að endingu viljum við þakka
starfsfólki bráðamóttöku, deild A-7,
starfsfólki gjörgæslu og séra Gunn-
ari R. Mattíassyni fyrir alúð og hug-
ulsemi í störfum þeirra, ekki síst í
garð okkar ættingjanna.
Jóhanna Svanlaug Sigurvins-
dóttir og fjölskylda.
Dúddý mín, þér var ætlað stærra
og mikilvægara verkefni þegar þú
komst til þess að vera viðstödd jarð-
arförina hans pabba. Þú hafðir lagt á
þig langt og strangt ferðalag frá
Bandaríkjunum til þess. En stuttu
eftir komu þína hingað heim til Ís-
lands veiktist þú alvarlega og þrátt
fyrir mikla baráttu við þessi veikindi
voru önnur máttarvöld sem höfðu
sigur að lokum. Þér hafði nefnilega
verið falið það mikilvæga verkefni að
fylgja honum pabba alla leið. Síðustu
vikur hafa verið erfiðar allri fjöl-
skyldunni, en eins og yngsta dóttirin
sagði hefur þetta kennnt okkur að
Elsku Dúddý mín, ekki hefði okk-
ur grunað að þú myndir yfirgefa
okkur svo skömmu eftir andlát föður
okkar sem lést 27. desember síðast-
liðinn.
Þú komst heim til að vera við útför
hans, en náðir bara að vera við kistu-
lagninguna. Daginn eftir fórum við
með þig fársjúka á Landspítalann í
Fossvogi.
Þú skipaðir mjög sérstakan sess í
hjarta okkar allra, þrátt fyrir að vera
búsett svo langt í burtu. Við höfðum
samband símleiðis og hittumst á
nokkurra ára fresti. Alltaf var eins
og við hefðum hist í gær. Þú sendir
börnum okkar jólagjafir og var beðið
í ofvæni eftir þeim. Þú mundir alla
afmælisdaga og fylgdist vel með öll-
um viðburðum í lífi okkar. Þú áttir
það jafnvel til að hringja í okkur um
miðja nótt til þess eins að spyrja
lífið er stutt og okkur ber að fara vel
með það og njóta samvistar við okk-
ar nánustu hverja þá stund sem við
komum saman. Við viljum þakka
þér, Dúddý mín, fyrir allar góðu
minningarnar sem við fjölskyldurn-
ar okkar áttum saman bæði hér
heima og heima hjá ykkur Leo og
Christopher í Ohio, enda var Hótel
Ísland eins og þú kallaðir þitt heimili
stundum, alltaf opið fyrir hvern þann
sem kom í heimsókn. Sérstaklega er
okkur minnisstæð ferðin þegar við
komum í heimsókn til ykkar þegar
Anna og Sveinn voru lítil. Það verður
söknuður af öllum þínum uppátækj-
um enda varstu einstaklega hress og
kát, og sást alltaf broslegu hliðarnar
á öllu.
Með þessum orðum kveðjum við
þig, Dúddý, og við vitum að þið pabbi
munið hugsa vel um hvort annað þar
sem þið eruð.
Leó, Christopher og öðrum að-
standendum sendum við okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Ólöf, Rúnar og fjölskyldur.
Elsku Dúddý, hér sit ég og hugsa
hvernig megi vera að þú sért farin
frá okkur aðeins nokkrum dögum á
eftir pabba. Þú komst frá Bandaríkj-
unum til að kveðja hann, en veiktist
alvarlega daginn eftir kistulagn-
inguna. Eftir sitjum við ættingjarnir
harmi slegnir og veltum fyrir okkur
hver tilgangurinn sé að missa ykkur
bæði á svona stuttum tíma. Þú varst
svo veik, við vöktum yfir þér og báð-
um fyrir þér. Christopher sonur þinn
kom til að vera hjá þér og virtist þú
þá vera á bataleið. Tveimur dögum
seinna komum við Christopher til
þín, þú varst svo ánægð búin að fara
aðeins á fætur og borða sjálf. Við
spjölluðum saman smá stund svo á
einu augabliki misstir þú meðvitund.
Við sáum þarna hve örstutt er á milli
lífs og dauða. Leo þinn elskulegi eig-
inmaður kom með fyrstu vél og fékk
hann að vera hjá þér síðustu klukku-
stundirnar.
Þið hjónin áttuð yndislegt heimili í
Ohio og unnuð saman í efnalauginni
ykkar. Það stóð okkur alltaf opið og
nýttu sér það margir. Þú hafðir ótrú-
lega gott minni og einstakan húmor.
Frásagnir þínar voru skemmtilegar
þú sást spaugilegu hliðarnar á öllu,
gerðir jafnvel grín að veikindum þín-
um. Þú fylgdist svo vel með ættingj-
um þínum hér heima á Íslandi og
hringdir oft. Ef við vorum að fara í
ferðalög eða í sumarbústaði þá gerð-
ir þú grín að því hver myndi elta
hvern, því fjölskyldan er stór og yf-
irleitt margir að ferðast saman.
Ég, mamma og Kristín systir vor-
um hjá þér í nóvember sl. og áttum
góðar stundir saman. Minningarnar
frá þessari ferð eiga eftir að ylja mér
um hjartarætur um ókomna framtíð.
Láttu nú ljósið þitt
loga við rúmið mitt.
Hafðu þar sess og sæti,
signaði Jesús mæti.
(Höf. ók.)
Ég veit að pabbi tekur á móti þér í
faðm sinn og þið munuð vaka yfir
okkur. Elsku Leo, Christopher,
mamma og fjölskylda, ég bið góðan
Guð um að veita okkur styrk á erfiðri
stund.
Elsku Dúddý, það er svo sárt að
kveðja, þú reyndist mér svo góð.
Takk fyrir samfylgdina, ég mun
aldrei gleyma þér, hvíl í friði, elsku
systir.
Karitas og fjölskylda
Karitas Sigurvinsdóttir.
Nú sefur jörðin sumargræn.
Nú sér hún rætast hverja bæn
og dregur andann djúpt og rótt
um draumabláa júlínótt.
Við ystu hafsbrún sefur sól,
og sofið er í hverjum hól.
Í sefi blunda svanabörn
og silungur í læk og tjörn.
Á túni sefur bóndabær,
og bjarma á þil og glugga slær.
Við móðurbrjóstin börnin fá
þá bestu gjöf, sem lífið á.
Nú sofa menn og saklaus dýr.
Nú sofa dagsins ævintýr.
Nú ríkir þögn að ysta ós,
svo ekkert vekur Þyrnirós.
Og áin líður lygn og tær,
og lindin sefur perluskær.
Í dvala hníga djúpin hljóð
og dreymir öll sín týndu ljóð.
Í hafi speglast himinn blár.
Sinn himin á hvert daggartár.
Í hverju blómi sefur sál,
hvert sandkorn á sitt leyndamál.
Nú dreymir allt um dýrð og frið
við dagsins þögla sálarhlið,
og allt er kyrrt um fjöll og fjörð
og friður drottins yfir jörð.
(Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.)
Þetta ljóð snerti mig mjög djúpt
en það var sungið yfir honum Venna
pabba Dúddýar frænku minnar 4.
janúar 2005. Hanna sagði mér að
hún amma Kristín hefði svo oft sung-
ið það. Við Dúddý erum systradætur
og jafnöldrur. Við hittumst oft þegar
við vorum börn og unglingar en allt-
af var mikill vinskapur milli foreldra
okkar, það eru Hanna og Venni, Olla
og Lúlli. Einnig vorum við Dúddý
saman á Húsmæðraskólanum á
Laugarvatni, þar var margt brallað
og alltaf mikið líf og fjör í kringum
hana.
Dúddý hefur búið í Ameríku í
rúma þrjá áratugi, hún kom heim til
þess að kveðja pabba sinn. Ég hitti
Dúddý við kistulagninguna 30. des-
ember 2004. Við spjölluðum saman
um gamla daga, það var alltaf gaman
að tala við hana hún var svo létt og
gamansöm. Daginn eftir var Dúddý
flutt fárveik á sjúkrahús og lést hún
þar 9. janúar 2005. Ég er viss um að
pabbi hennar hefur tekið á móti
henni og þau svifið saman á engla-
vængjum inn í eilífðina. Elsku
Dúddý mín, far þú í friði. Guð geymi
þig og pabba þinn.
Kæra frændfólk, missir ykkar er
mikill megi Guð gefa ykkur styrk og
kraft og vaka yfir ykkur.
Magnea Inga Víglundsdóttir.
Elsku afi minn.
Ég trúi varla að þú
sért farinn frá okkur,
en ég veit að þú ert
örugglega ánægður og
sáttur þar sem þú ert núna.
Afi var alveg yndislegur og góð-
hjartaður maður. Ég gleymi aldrei
hversu stoltur hann var af mér.
Hann spurði alltaf: Hvernig hefur
svo fimleikastjarnan mín það? Eða
þegar ég var yngri þá kallaði hann
mig alltaf skottu. Þegar ég hitti afa
sagði hann alltaf: Passaðu þig á bíl-
unum, – meira að segja þótt ég væri
orðin tvítug.
Afi var rosalega aktívur maður,
alltaf að vesenast, hvort sem það var
að bóna bílinn, mála eða gera við eitt-
hvað.
Afi ég elska þig og mun alltaf
minnast þín og ég mun alltaf muna
minningarnar okkar saman. Þú varst
besti afi sem hægt var að hugsa sér.
Elsku amma og fjölskylda, guð
gefi okkur styrk á þessari sorg-
SIGURVIN
SVEINSSON
✝ Sigurvin Sveins-son fæddist í
Reykjavík 9. júní
1925. Hann andaðist
á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja mánu-
daginn 27. desember
síðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Keflavíkurkirkju 4.
janúar.
astundu og vonandi
mun tíminn lækna sár-
in okkar og við sem
fjölskylda standa sam-
an.
Ásta Sigurlaug.
Elsku afi, því miður
ert þú farinn frá okkur.
Þú varst besti afi sem
hægt var að eiga, alltaf
svo góður og um-
hyggjusamur. Minn-
ingarnar um þig munu
alltaf lifa í hjörtum
okkar. Núna ert þú hjá
Guði og ert örugglega besti engillinn
þar.
Ó, Jesú bróðir besti
og barnavinur mesti,
æ, breið þú blessun þína
á barnæskuna mína.
(Páll Jónsson.)
Alltaf þegar við komum til þín
varstu svo glaður að sjá okkur,
klappaðir okkur á kollinn og
straukst vanga okkar. Núna vitum
við að þú ert í himnaríki þar sem þú
finnur ekki fyrir veikindum. Það eru
búin að vera erfið jól og áramót hjá
okkur en minningarnar um þig veita
okkur styrk.
Elsku amma, Guð gefi þér styrk á
erfiðum tímum.
Ykkar barnabörn
Kara, Hrafn og Konráð.
Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is
(smellt á reitinn Morgunblaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda
inn minningar/afmæli“ ásamt frekari upplýsingum).
Skilafrestur Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyr-
ir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna
skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er tak-
markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur renn-
ur út.
Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum -
mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að
senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvadd-
ur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að
tengja viðhengi við síðuna.
Formáli Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda
inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um,
fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn
og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til
að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minn-
ingargreinunum.
Undirskrift Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en
ekki stuttnefni undir greinunum.
Myndir Ef mynd hefur birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minning-
argrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda
hana á myndamóttöku: pix@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina
vita.
Minningargreinar