Morgunblaðið - 14.01.2005, Side 48
48 FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Aðstæður halda áfram að vera nokkuð
tvísýnar hvað varðar samskipti við for-
eldra, kennara, lögreglu eða annað yf-
irvald. Öruggast er að láta lítið á sér
kræla.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Ferðaáætlanir eða ráðagerðir tengdar
útgáfu vekja með þér tilhlökkun. Hugs-
anlegt er að þú eigir í viðræðum við ein-
hvern á fjarlægum slóðum. Sýndu þol-
inmæði því búast má við töfum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Mikilvægt er að þú afgreiðir mál sem
tengist einhverju sem þú deilir með öðr-
um. Það gæti tengst skuldum, veðlánum,
sameiginlegum eignum, erfðamálum eða
hverju sem er.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Samræður við foreldra eru sérstaklega
mikilvægar um þessar mundir. Hugsaðu
þig vel um áður en þú opnar munninn og
veltu fyrir þér hvaða tilgangi ummæli
þín þjóna.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Haltu áfram að reyna að skipuleggja þig
og ekki missa dampinn. Þú hefur margt
á þinni könnu þessa dagana. Ekki láta
það á þig fá og taktu lítil skref í einu.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Reyndu að finna leiðir til þess að fá útrás
fyrir sköpunarhæfileika þína. Ekki velta
fyrir þér hversu skapandi þú sért,
ánægjan er falin í því að gera.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Mikilvæg þróun er að verða innan
veggja heimilisins. Breytingar standa
fyrir dyrum og samræður við fjölskyldu-
meðlimi fái aukið vægi. Ekki reyna að
ýta á eftir.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Nú er sérstaklega mikilvægt að tjá sig
skýrt og skilmerkilega við aðra. Þér
liggur vissulega nokkuð á hjarta, vertu
viss um að fólk skilji hvað þú ert að fara.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaðurinn er upptekin við verslun og
viðskipti, kaup og sölu og fjárhagslegar
ákvarðanir. Innst inni veltir hann hins-
vegar gildismati sínu fyrir sér. Hvað
skiptir raunverulega máli?
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Um þessar mundir eru þrjár plánetur
himingeimsins í steingeit. Sú staða gefur
henni aukinn kraft og sjálfstraust. Fólk
leggur betur eyrun við því nú en endra-
nær sem þú hefur að segja.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Aðstæður eru góðar til þess að sinna
rannsóknum og leita svara við aldagöml-
um spurningum núna. Til allrar ham-
ingju kanntu vel við að grúska í einrúmi
þessa dagana.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Láttu undan þörf þinni fyrir félagslíf.
Vinsældir þínar hafa sjaldan verið meiri
og ekki er laust við að þú njótir þess að
vera samvistum við náungann.
Stjörnuspá
Frances Drake
Steingeit
Afmælisbarn dagsins:
Þú þykir óvenju hugrökk manneskja og
ert fljót að sjá heildarmyndina. Að sumu
leyti fellur þér vel að vera á ystu nöf. Þú
óttast ekki þótt flest virðist benda til að þú
gætir beðið lægri hlut. Þú ert leiðtogi frá
náttúrunnar hendi.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 matvendni, 8
hjákonan, 9 kveðskapur,
10 miskunn, 11 steinn, 13
dýrið, 15 hreyfingarlausu,
18 maður, 21 ferskur, 22
tími, 23 heiðursmerki, 24
þrotlaus.
Lóðrétt | 2 starfið, 3 rann-
saka, 4 styrkja, 5 lengd-
areining, 6 hátíðlegt lof-
orð, 7 hugboð, 12 þegar,
14 blása, 15 úrræði, 16
þvaðri, 17 snúin, 18 kulda-
straum, 19 dánu, 20 mag-
urt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 sýkna, 4 felds, 7 skolt, 8 nagli, 9 tún, 11 aðal, 13
gróa, 14 ýlfur, 15 foss, 17 ódám, 20 hró, 22 læður, 23 rollu,
24 rómur, 25 rorra.
Lóðrétt | 1 sessa, 2 krota, 3 autt, 4 fönn, 5 logar, 6 seiga, 10
útför, 12 lýs, 13 gró, 15 fúlir, 16 sóðum, 18 dulur, 19 maura,
20 hrár, 21 órór.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði
dagsins er að finna á Staður og
stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Skemmtanir
Ari í Ögri | Acoustics í kvöld.
Cafe Catalina | Addi M. spilar á Cafe Catal-
inu Hamraborg.
Café Romance | Liz Gammon leikur fyrir
gesti Café Romance í kvöld.
Classic Rock | Spilafíklarnir leika á Classic
Rock, Ármúla 5. Frítt inn.
Classic Rock | Hljómsveitin Spilafíklarnir
spila um helgina.
Gaukur á Stöng | Plötusnúðar á báðum
hæðum, Dj Maggi á efrihæðinni og ges-
tasnúður á neðrihæðinni. Frítt inn.
Hverfisbarinn | Brynjar Már verður á
Hverfisbarnum um helgina.
Kaffi Sólon | Dj Þröstur 3000 þeytir skíf-
um um helgina.
Klúbburinn við Gullinbrú | Hljómsveitin
Sólon í kvöld.
Kringlukráin | Hinn einni sanni Geirmund-
ur Valtýsson og hljómsveit mætir til höf-
uðborgarinnar í öllu sínu veldi og skemmta
gestum Kringlukrárinnar í kvöld. Skemmt-
unin hefst kl. 23.
Paddy’s | Svörtu Zapparnir rokka í kvöld.
Roadhouse | Dj le chef verður með nýjustu
dans og RnB tónlistina um helgina.
Vélsmiðjan Akureyri | Hljómsveitin Norð-
urbandalagið spilar um helgina. Frítt inn til
miðnættis.
Tónlist
Café Rosenberg | Helgi Valur, sigurvegari
trúbadorakeppni Rásar 2, leikur og syngur
um helgina frá kl. 23.
Kaffi Akureyri | Hljómsveitin Bermuda
með IDOL-stjörnu Akureyringa, Ernu
Hrönn Ólafsdóttur, heldur tónleika á Kaffi
Akureyri frá 22.30 til 00.30 en þá tekur
DJ við.
Pakkhúsið, Selfossi | Hljómsveitin Sex
Volt spilar um helgina.
Plötubúð Hljómalindar | Perculator, sem
er samstarfsverkefni þeirra Sigtryggs
Baldurssonar, Gísla Galdurs, Davíðs Þórs
Jónssonar og Helga Svavars Helgasonar,
spilar kl. 17.
Myndlist
Anddyri Suðurlandsbrautar 4 | Rafn Sig-
urbjörnsson – Fjölskyldan. Tíu olíumálverk.
Árbæjarsafn | Í hlutanna Eðli – Stefnumót
lista og minja.
Gallerí 101 | Egill Sæbjörnsson – Herra Pí-
anó & Frú Haugur.
Gallerí Banananas | Baldur Björnsson –
Hefur þú upplifað geðveiki?
Gallerí Dvergur | Sigga Björg Sigurð-
ardóttir – Lappir, línudans og fórnarlamb í
gulri peysu.
Gallerí I8 | Finnur Arnar sýnir ýmis mynd-
verk.
Gallerí Sævars Karls | Hulda Vilhjálms-
dóttir – Hver er að banka á hurðina?
Kannski barnið í landslaginu?.
Gallerí Tukt | Kristjana Rós Guðjohnsen
sýnir abstrakt olíumálverk.
Gerðuberg | Sýning Guðríðar B. Helgadótt-
ur á listsaumsmyndum í Gerðubergi er op-
in virka daga kl. 11–19 og um um helgar kl.
13–17. Guðríður mun taka á móti sýning-
argestum á laugardag og sunnudag kl. 13–
17 en sýningunni lýkur 16. janúar. Ókeypis
aðgangur.
Hafnarborg | Rafmagn í 100 ár – sýning í
tilefni af 100 ára afmæli fyrstu almenn-
ingsrafveitunnar. Svart á hvítu, þrívíð verk,
málverk, teikningar og grafík eftir íslenska
og erlenda listamenn í Sverrissal og Apó-
teki. Sigrún Guðmundsdóttir er mynd-
höggvari febrúarmánaðar.
Hallgrímskirkja | Jón Reykdal – 6 ný olíu-
málverk.
Hrafnista Hafnarfirði | Sigurbjörn Krist-
insson myndlistamaður sýnir málverk og
tússmyndir í Menningarsal.
Kaffi Espresso | Guðrún Eggertsdóttir –
skúlptúrar og myndir.
Kaffi Sólon | Sigríður Valdimarsdóttir –
Snjókorn.
Kling og Bang gallerí | Heimir Björgúlfs-
son – Alca torda vs. rest.
Kunstraum Wohnraum | Alda Sigurð-
ardóttir – Landslagsverk.
Listasafn Íslands | Ný íslensk myndlist:
um veruleikann, manninn og ímyndina.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið – yfirlitssýning á verkum
Ásmundar Sveinssonar.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Erró –
Víðáttur.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Textíllist 2004 – Alþjóðleg Textílsýning.
Kjarval í Kjarvalssal.
Nýlistasafnið | Hlynur Helgason – Gengið
niður Klapparstíg. Ævintýralegir fem-
inistar – Carnal Knowledge.
Tjarnarsalur Ráðhúss Reykjavíkur | Sör-
en Solsker Starbird – Er sálin sýnileg?
Ljósmyndasýning.
Leiklist
Borgarleikhúsið | Belgíska Kongó eftir
Braga Ólafsson. Eggert Þorleifsson hlaut
Grímuverðlaunin fyrir túlkun sína á aðal-
hlutverkinu, en hann leikur Rósalind, fjör-
gamla konu á elliheimili sem ræður því sem
hún vill ráða. Stefán Jónsson leikstýrir.
Örfáar sýningar eftir.
Héri Hérason eftir Coline Serreau er fyndin
og fjörug sýning. Mamma hans Héra trúir
því að bráðum muni allt batna: Pabbi fá
kauphækkun, Héri hætta að tala um geim-
verur, börnin hennar snúa sér að öðru en
hryðjuverkum. En alltaf má bæta við nýrri
dýnu og nýjum diski á borðið þegar nýr
gestur kemur.
Dans
Línudansarinn | Línudansæfing er í salnum
Hamraborg 7. 3 hæð, í kvöld kl 21.30. Allir
velkomnir.
Söfn
Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning
Þjóðminjasafnsins, Þjóð verður til–
menning og samfélag í 1200 ár. Opið alla
daga nema mánudaga frá kl 11–17. Fyrsta
fimmtudag hvers mánaðar er opið til kl 21.
Mannfagnaður
Félagsheimilið Hvoll | Hagyrðingaeinvígi
milli Norðlendinga og Sunnlendinga verður
í Hvoli kl. 20.30. Umsjón hefur Ísólfur Gylfi
Pálmason. Skemmtiatriði verða í hléi. Allur
ágóði af skemmtun þessari fer til uppbygg-
ingar hestamanna á Gaddstaðaflötum.
Fundir
Krabbameinsfélagið | Samhjálp kvenna
verður með opið hús þriðjudaginn 18. jan-
úar kl. 20, í húsi Krabbameinsfélagsins
Skógarhlíð 8, Reykjavík. Sigríður Eyjólfs-
dóttir og Hildur B. Hilmarsdóttir segja frá
ráðstefnu sem þær sóttu í Ósló. Sýnt verð-
ur myndband um breytingar á nánum sam-
skiptum, hjálpartæki o.fl. Allir velkomnir.
Kynning
Maður lifandi | Inga Kristjánsdóttir nemi í
næringarþerapíu DET verður með ráðgjöf í
vetur, í verslun Maður lifandi kl. 12–14 á
föstudögum.
Námskeið
Íslenska Kristskirkjan | Alfa námskeið
hefst n.k. þriðjudag kl. 19. Alfa er tíu þriðju-
dagskvöld í röð kl. 19–22. Verð kr. 6000.
Matur og kennsla innifalin. Skráning hjá Ís-
lensku kristskirkjunni, Fossaleyni 14, Graf-
arvogi. s. 567–8800, frá kl. 13–17.
Mímir – símenntun ehf | Jóhanna Krist-
jónsdóttir heldur námskeið um Menning-
arheim araba hjá Mími símennt. Þetta er
fimm kvölda námskeið sem hefst 20. jan-
úar. Rætt er um íslam, sögð saga Múham-
meðs spámanns, fjallað um stöðu, mennt-
un og klæðnað kvenna. Rætt um
menningartengd efni o.fl.
www.ljosmyndari.is | Helgarnámskeið á
stafrænar myndavélar verða 15.–16. janúar,
12.–13. febrúar, 19.–20. febrúar. Námskeiðin
eru haldin í Völuteigi 8 Mosfellsbæ, frá kl.
13–17 báða dagana og eru jafnt fyrir byrj-
endur sem og lengra komna. Skráning og
upplýsingar á www.ljosmyndari.is.
Útivist
Ferðafélagið Útivist | Útivist blótar Þorr-
ann á Leirubakka í Landsveit 28.–30. jan-
úar. Á laugardeginum verður farið í göngu-
ferð og einnig verða jeppaferðir.
Þátttakendur halda þorrahlaðborð á laug-
ardagskvöldið.
Staður og stund
http://www.mbl.is/sos
stíl. Á árunum 1944–1950 rak hann ljós-
myndastofu í húsnæði við Vesturgötu
80 ásamt Ólafi syni sínum. Ljós-
myndastofa þeirra feðga brann að
morgni 4. desember 1950 og með henni
stór hluti af ævistarfi Árna sem lést árið
1977.
Sérgrein Árna var litaðar landslags-
og náttúruljósmyndir og á sýningunni,
sem upphaflega var sett upp í Listasetr-
inu Kirkjuhvoli á Akranesi á síðasta ári,
gefur að líta margar af þekktustu mynd-
LJÓSMYNDIR Árna Böðvarssonar eru
miðpunktur sýningar sem verður opnuð í
dag í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, á
fyrstu hæð Grófarhúss í Tryggvagötu 15.
Árni Böðvarsson fæddist í Vogatungu í
Leirársveit 15. september 1888. Hann
var að mestu sjálfmenntaður ljósmynd-
ari en naut tilsagnar hjá Magnúsi Ólafs-
syni um skeið.
Árni rak ljósmyndastofu í Georgshúsi
á Akranesi frá 1916 til 1944 og tók þar
andlits- og fjölskyldumyndir í stórum
um hans af þeirri gerð. Í tengslum við
sýninguna var gefin út 96 síðna kilja um
Árna með æviágripi hans og úrvali
mynda. Barnabarn Árna, Árni Ibsen, leik-
skáld og rithöfundur, skrifaði um afa sinn
og Friðþjófur Helgason ljósmyndari sá
um val mynda og myndvinnslu í samráði
við Kristján Kristjánsson, forstöðumann
Ljósmyndasafns Akraness.
Sýningin stendur til 27. febrúar og er
hún opin alla daga á sama tíma og Borg-
arbókasafnið.
Ljósmynd/Árni Böðvarsson
Myndir Árna Böðvarssonar í Grófarhúsi
Fréttasíminn
904 1100