Morgunblaðið - 14.01.2005, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2005 51
MENNING
Ívinnustofu Elíasar B. Hall-dórssonar í Kópavoginumstendur málverk á trönum – litaglöð afstraktmynd sem
hann er að glíma við. Staflar af verk-
um hallast upp að veggjum sem á
sitja glaðhlakkalegir skúlptúrar. Ég
hef á orði að hún sé alltaf jafnvinaleg
þessi vinnustofulykt; olíulitir í bland
við vindlareyk.
„Ég finn hana ekki,“ segir Elías.
„Ekki nema þegar ég er búinn að
vera burtu um tíma.
Fyrir austan kölluðu strákar þetta
Kjarvalslykt. Og hann gaf strákunum
vindla.“
Við tyllum okkur innst í vinnustof-
unni enda Elías lúinn eftir glímuna
við strigann og svo er skrokkurinn
eitthvað að stríða honum. Þessi kröft-
ugu vinnubrögð með penslum og
spöðum taka sinn toll.
– Var Kjarval helsta fyrirmyndin
þegar þú varst að vaxa úr grasi á
Borgarfirði eystri, farinn að hugsa
um myndlist?
„Jájá. Ég hugsaði voða mikið um
hann. Hann var svo oft fyrir austan á
sumrin. Mér finnst hann vera hluti af
Borgarfirði. Hann ólst upp þar og það
mótaði hann alveg örugglega. Ættin
hans er hlaðin af snilld.
En bakgrunnurinn á Borgarfirði
hafði mikil áhrif á mig. Og hann sækir
alltaf á mig.“
Elías segir skrýtið hvernig það
kom til að hann fór að mála.
„Ég var voðalega tvístígandi, vildi
alls ekki vera í skóla, taldi allt algjöra
lygi sem kennt væri þar. Hafði hreina
skömm á því öllu saman.“ Og Elías
hristir höfuðið og hlær. „Svo dreymdi
mig alltaf um þetta. Að geta málað.
Ég var kominn um tvítugt þegar ég
fór eitthvað að reyna. Svo tók nokkur
ár að hafa sig í það að fara í Hand-
íðaskólann. Þetta sótti alltaf meira og
meira á og eftir fyrsta árið var ég al-
veg orðinn ákveðinn í því að þetta
væri það sem ég vildi gera.
En svo fór tíminn, eftir að ég var
búinn með námið, út í bara ekki neitt.
Í aðra vinnu sem hver sem er gat
unnið. Það er ekkert hlaupið að því
fyrir ungt fólk að selja myndir. Ann-
ars finnst mér að það hafi gengið al-
veg ótrúlega vel hjá mér. Ég hef
svona skrimt – og ég þarf ekkert
meira. Auðævi gera menn bara að fá-
vitum. Og græðgi gerir menn að
kjánum. Það er best að halda öllu
slíku hæfilega frá sér. “
Í Gerðarsafni sýnir Elías hátt í
fimmtíu málverk; þau stærri eru
óhlutbundin en hópur minni verka er
blæbrigðaríkar stemningar byggðar
á húsum og landslagi.
„Ég er mjög tengdur náttúrunni –
og ég veit eiginlega ekki hvert ég ætti
að fara ef ekki væri út í náttúruna að
sækja mér efni. Ég mála sjaldan
ákveðin mótíf heldur vil ég bara láta
hugmyndaflugið ráða, og vita hvað
kemur út úr því. En stóru málverkin
eru öll tengd landinu.
Málverk gefur
umhverfinu þokka
Þetta er alltaf sótt í landið; náttúran
er undirstaðan. Svo náttúrlega mál-
verkið sjálft, þetta blandast saman í
undirstöðunni – maður verður að
kunna skil á henni.
Litur, ljós og form, þetta er allt
óaðskiljanlegt. Það breytir engu
hvort ég er með abstrakt eða hlut-
bundið. Breyti maður formi þarf yf-
irleitt að breyta lit og öfugt. Maður
þarf að berja saman einhverja heild –
það tekur mig alveg óskaplegan tíma
að koma saman myndum.
Það er nú svo að málverkið verður,
að mínum dómi, að byggjast á
ákveðnum undirstöðuatriðum sem
hafa þróast í gegnum aldirnar og er
ætlað að læða myndinni í hugskot
manna, án þess að skoðandinn búi
endilega yfir þekkingu á myndlist.
Með öðrum orðum: að læðast inn bak-
dyramegin.
Ég er búinn að halda margar sýn-
ingar og mér hefur oft þótt gaman að
fylgjast með fólki og sjá hversu mis-
jafnlega áhrif frá myndunum hreiðra
um sig í því. Sumir sjá ekkert nema
leiðindi, en aðrir hafa með sér með-
fædda hæfileika og gleypa í sig áhrif-
in frá myndunum. Ég hef oft kynnst
fólki sem kemur jafnvel í fyrsta sinn á
sýningu og býr yfir ótrúlegri næmi og
jákvæðri hugsun. Svo eru líka aðrir
sem koma með fullan poka af merki-
legheitum, leiðindum og fordómum,
en það er sem betur fer frekar sjald-
gæft.
Ég hef það á tilfinningunni að hús
séu ekki fullkomnir mannabústaðir
fyrr en góð málverk eru komin á
veggina. Fólk kaupir sér vönduð hús-
gögn, en veggirnir eru eins og eyði-
mörk. Það er með ólíkindum hvað
gott málverk getur gefið umhverfi
sínu góðan þokka.“
– Þú átt þér ákveðna einkennisliti,
dökkgrænan, dumbbláan og allt upp í
skærgult; eru þetta litir úr minning-
unni, frá Borgarfirði eystri?
„Ég held að töluvert af því komi
þaðan. Þar eru þessir rauðu og bleiku
litir, sem ég nota mjög í hófi. En svo
eru einmitt þessir dumbgrænu og
hafið opið og grenjandi við ströndina,
og gróðurinn við sjóinn sem hefur al-
veg sérstakan lit. Svo er að láta litina
harmónera saman. Málverkið verður
að ráða.“
Eins og naut á bás
Elías segist aðeins hafa prófað að
mála úti hér áður fyrr, með past-
ellitum, en finnst hann nú hvergi get-
að unnið nema á vinnustofunni.
„Ég finn mig hvergi nema hérna.
Hérna er ég með allt draslið, eins og
þú sérð er öllum andskotanum safnað
saman hér, maður verður bara eins
og naut sem er bundið á bás. Andinn
er hérna.
Og ég hef alltaf meira og meira
gaman af að mála. Fyrst voru þetta
eiginlega tómir erfiðleikar, það er
orðið öðruvísi núna. En erfiðleikarnir
eru ekki alltaf slæmir, það kemur oft
gott út úr þeim. Lífið er ekki eitt sól-
skinsbros hjá neinum.“
Talið berst að gömlum kollegum
Elíasar úr málarastétt.
„Á undanförnum árum hafa margir
góðir málarar fallið í valinn. Má þar
nefna Sigurð Sigurðsson, Hrólf Sig-
urðsson, Jóhannes Jóhannesson,
Svein Björnsson, Jóhannes Geir og
Hring Jóhannesson. Þetta voru allt
menn sem stóðu vel undir sínum
böggum og skiluðu dagsverkum góð-
um að kveldi. Mér finnst dauðinn hafa
farið ógætilega í grisjun stofnsins, því
allir áttu þeir margt ósagt. Þeim
verður seint fullþakkað dagsverkið.
Gildi málverka er ansi margþætt,
en eitt er ég viss um; að þau geta haft
mikið uppeldislegt gildi. Ég hef veitt
því athygli að börn sem alast upp í
húsum sem geyma málverk verða
skyggn á gildi lista í samfélaginu,
dragast að tónlist og bókmenntum og
mörgu fleiru. Listir eru einhver besta
næring sem sálir manna geta fengið
til uppbyggingar og velfarnaðar. Þeg-
ar hárin rísa á hausnum og sálin verð-
ur gagntekin við snertingu við gott
listaverk þá skilja menn tilganginn.
List skapar menn. Menn skapa list.“
Málverkið verður að ráða
Í Gerðarsafni verða opnaðar á morgun, laug-
ardag, sýningar listamanna tveggja kynslóða.
Elías B. Halldórsson sýnir blæbrigðarík mál-
verk sem hann sækir til náttúrunnar og Birgir
Snæbjörn Birgisson röð nær eintóna verka sem
byggjast á myndum úr lækningabókum. Einar
Falur Ingólfsson ræddi við þá Elías og Birgi.
Morgunblaðið/Einar Falur
„Þetta er alltaf sótt í landið,“ segir Elías B. Halldórsson um verk sín.
FYRIR miðjum Austursal Gerð-
arsafns standa fínlegar postulíns-
styttur á hillum, fulltrúar Ljós-
hærðra starfsstétta, og á veggjunum
eru stór málverk, máluð í þeim
daufu og fínlegu litbrigðum sem
Birgir Snæbjörn Birgisson er kunn-
ur fyrir. Málverkin eru úr röð verka
sem Birgir kallar Snertingar. Í rauð-
gulum tónum birtast í hverju verki
einangraðir hlutir: þetta eru líffæri
sem rist eru opin, minna á kálhöfuð
eða kynfæri, og svo er þarna fingra-
far og á öðrum strigum hendur sem
snertast og óljóst hvort verið er að
hugga eða kvelja.
Birgir hélt síðast einkasýningar
snemma árs 2001, þegar hann sýndi
málverkaröðina Ljóshærða hjúkr-
unarfræðinga í Gerðarsafni og
teikningar í Gallerí Hlemmi. Hann
hefur síðan verið virkur í sýning-
arverkefnum hópa listamanna á
Englandi, sýndi með Then-hópnum
á Kjarvalsstöðum og í Listasafni
ASÍ, og þá á hann nú tvær seríur
málverka á sýningunni Ný íslensk
myndlist í Listasafni Íslands.
„Þessi málverk sæki ég að mestu
leyti í gamlar lækningabækur,“ seg-
ir Birgir Snæbjörn þar sem hann er
önnum kafinn við að koma Snert-
ingum sínum fyrir í salnum. „Ég
færi þetta töluvert í stílinn. Það væri
auðveld leið og greiðfarin að mála
óhugnanleg og blóðug líffæri, en ég
kýs að gera upphafnar myndir þess í
stað, þar sem óhugnaðurinn er tek-
inn burtu og það er stutt í að líffærin
verði að hlutum í sjálfu sér. Og verk-
in standa á eigin forsendum sem
málverk, þar sem öllum fag-
urfræðilegum kröfum er svarað. En
um leið og ég segi það er ég kominn í
öngstræti, því þessi verk geta varla
staðist þær fagurfræðilegu kröfur
sem fólk gerir venjulega til mál-
verka; þetta er svo ljóst og ég vinn
með svo takmarkaðan litaskala að
maður þarf eiginlega að skilgreina
málverkið uppá nýtt. En ég er alltaf
að spila með þessa nánd, sem felst í
Snertingunum. Myndirnar krefjast
þess að maður sé svolítinn tíma með
þeim, þær stíga fram þegar augað
venst þeim.“
Leitin að ídealinu
Birgir talar um þá þörf mannsins að
afmá allt holdlegt með upphafinni
mynd af hreinleikanum. Hann hefur
unnið með þær hugmyndir síðustu
árin, ein birtingarmyndin var angi af
seríunni Ljóshærðir hjúkrunarfræð-
ingar, þar sem fjallað var um athöfn-
ina að búa um rúm. „Það er mjög
skír athöfn og snýst um að byrja
alltaf á hreinum núllpunkti. Hreint
lak er eins og nýtt upphaf.
Verkin sem ég er með á Listasafn-
inu – Ljós höfuð, Norrænn kynstofn
og Lýtaaðgerðir: fyrir og eftir –
hefðu alveg getað staðið með þess-
um verkum hér. Ég er að einhverju
leyti að fjalla um leitina að ídealinu,
hversu langt maðurinn er til í að
ganga til að ná fullkomnu útliti.“
Yfirborð verka Birgis Snæbjörns
er sakleysislegt en er verið að hugga
fólk eða pína með þessum snert-
ingum? Og undir brosandi bláeygum
andlitum hans í Listasafninu lúrir
óhugnaðurinn. Birgir segir umfjöll-
unarefnið tilraun mannsins til að fela
ógnir heimsins bakvið upphafnar
myndir af hreinleikanum. „Ég er
ekki að mála hluti heldur ímynd
þeirra og sú ímynd er upphafin. Það
er síðan áhorfandinn sem lendir í því
að búa verkið til,“ segir hann.
„Áhorfandinn fer þá leið sem hann
vill, hvort sem hann fer beint í
óhugnaðinn eða tekur þátt í ein-
hverskonar allegórískri upphefð. Ég
hef lent í að vera ásakaður um ras-
isma. Ég vísa því náttúrlega til föð-
urhúsanna, því slíkt segir meira um
það hvað áhorfandinn er að hugsa.
Ég tel mig vera að vekja máls á ein-
hverju frekar en segja það beint.
Eins er það með þessar Ljós-
hærðu starfsstéttir hér; það er hægt
að lesa þetta verk á rasískum nótum,
ef vilji er fyrir hendi. Að ég sé að
segja til um hvaða starfsstéttir séu
ljóshærðar. Þetta er náttúrlega fun-
heitt efni, það þarf ekki annað en líta
á deilurnar um Kínverjana sem eiga
kannski að fá að vinna austur við
Kárahnjúka. Eru það þessi göfugu
störf Íslendinga – okkar ljóshærðu
þjóðar? Það er hægt að túlka þetta á
alla vegu.“
Upphafin mynd af hreinleikanum
Morgunblaðið/Einar Falur
Birgir Snæbjörn með eina
postulínsstyttuna úr myndröðinni
Ljóshærðar starfsstéttir.