Morgunblaðið - 14.01.2005, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2005 53
Á KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI í
Gautaborg, sem haldin verður 28.
janúar til 7. febrúar nk., verða alls
sýndar 450 kvikmyndir víðs vegar
að úr heiminum, að því er m.a. kom
fram í máli Jannike Åhlund, list-
ræns stjórnanda hátíðarinnar, á
blaðamannafundi í fyrradag. Kvik-
myndahátíðin í Gautaborg er sú
stærsta sem haldin er á Norð-
urlöndunum og er nú haldin í 28.
skipti.
Íslenska heimildarmyndin Garg-
andi snilld eftir Ara Alexander er
framlag Íslands í aðalkeppni
hátíðarinnar þar sem átta norrænar
myndir keppa um Drekann og 100
þúsund sænskar krónur. Tvær
þeirra eru sænskar, þ. á m. opn-
unarmynd hátíðarinnar, sjálfs-
ævisögulega kvikmyndin Kocken
eftir Mats Arehns. Í fyrra var opn-
unarmyndin íslensk, þ.e. Kaldaljós
eftir Hilmar Oddsson, og í hitteð-
fyrra vann íslensk kvikmynd til að-
alverðlaunanna, Nói albínói eftir
Dag Kára Pétursson.
Í takt við tímann sýnd
á söngvamyndadagskrá
Kvikmyndahátíðin er í senn mark-
aðstorg og menningarviðburður þar
sem áhugafólk og atvinnumenn
koma saman og njóta kvikmynda-
listarinnar eða kaupa og selja. Kvik-
myndunum, sem sýndar verða á há-
tíðinni, hefur verið skipt í 21 flokk,
t.d. myndir sem lýsa ástandinu eftir
11. september 2001, kvikmyndavor í
Þýskalandi, glæpamyndir, myndir
frá Afríku og dans- og söngvamynd-
ir sem er sá flokkur sem mynd
Ágústs Guðmundssonar og Stuð-
manna, Í takt við tímann, fellur.
Fleiri íslenskar myndir verða
sýndar á hátíðinni, þ.e. heimild-
armyndin Mjóddin eftir Robert
Douglas og á undan henni stutt-
myndin Með mann á bakinu eftir
Jón Gnarr. Einnig á kvikmynda-
gerðarmaðurinn Ólafur Sveinsson
mynd á hátíðinni, heimildarmyndina
On the Edge sem reyndar er á
þýsku og heitir á frummálinu
Schräge Zeit.
Valdís miðlar af reynslu sinni
Valdís Óskarsdóttir klippari verður
meðal gesta hátíðarinnar en hún er
hvað þekktust fyrir klippingu mynd-
arinnar Eternal Sunshine of the
Spotless Mind. Á sérstöku nám-
skeiði mun Valdís miðla af reynslu
sinni og útskýra leyndardóma kvik-
myndaklippingar.
Þá má geta þess að þýski brúðu-
leiklistarmaðurinn Bernd Ogrodnik,
sem búsettur hefur verið norður í
Skíðadal í Dalvíkurbyggð og er gift-
ur íslenskri konu, kemur einnig að
mynd í aðalkeppninni. Um er að
ræða dönsku strengjabrúðumyndina
Strings sem leikstýrt var af Anders
Rønnow Klarlund. Ogrodnik var í
Danmörku allt árið 2003 að vinna að
myndinni sem er eingöngu gerð með
strengjabrúðum. Ogrodnik hannaði
brúðurnar, vann að gerð þeirra og
stjórnaði þeim í myndinni ásamt 15
öðrum brúðuleikurum. Bernd vinn-
ur nú að uppsetningu í Þjóðleikhús-
inu á leiksýningunni Klaufar og
Kóngsdætur þar sem hann hefur
hannað brúður sem munu gegna
veigamiklu atriði í sýningunni og
mun hann fara með stjórn þeirra.
Spike Lee og Mike Leigh
Ýmsir þekktir leikstjórar eiga
myndir á hátíðinni, t.d. Spike Lee
með myndina She Hate Me frá síð-
asta ári, Mike Leigh með myndina
Vera Drake sem hlotið hefur mikið
lof gagnrýnenda og verið orðuð við
Óskarinn og Wim Wenders með
myndina Land of Plenty sem fjallar
um stúlku sem kemur til baka til
Bandaríkjanna frá Ísrael og leitar
uppi frænda sinn sem barðist í
Víetnam.
Kvikmyndir | Dagskrá Gautaborgarhátíðar
Það er náttúrlega gargandi snilld að boðið verði upp á tvær íslenskar tón-
listarmyndir í Gautaborg: Ragnhildur Gísladóttir gargar Í takt við tímann.
Fjórar íslensk-
ar myndir
koma við sögu
Gautaborg. Morgunblaðið.
ÚTSALA
38
ÞREP
Laugavegi 49 / sími 561 5813