Morgunblaðið - 23.01.2005, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. JANÚAR 2005 47
AUÐLESIÐ EFNI
Reuters
Enn fleiri myndir af
pyntingum á íröskum
föngum hafa vakið óhug.
ÞRÍR breskir hermenn eru nú
fyrir her-rétti fyrir að hafa
mis-þyrmt íröskum föngum.
Ljós-myndir af pyntingunum
voru birtar í Bret-landi. Þær
vöktu mikinn óhug. Áður
hefur komið fram að
banda-rískir hermenn
mis-þyrmdu föngum í Írak.
Bresk stjórn-völd fordæmdu
það. Almenningur virtist þá
halda að breskir hermenn
hegðuðu sér betur en
banda-rískir. Þessar
ljósmyndir draga úr þeirri trú.
Hins vegar eru engar
vís-bendingar um að þarna
hafi verið um skipu-lagðar
mis-þyrmingar að ræða.
Mis-þyrmdu
íröskum föngum
Morgunblaðið/Ómar
Margir útlendingar starfa ólöglega í byggingar-vinnu hér á landi. Myndin tengist ekki fréttinni.
MARGIR útlendingar starfa
ólöglega hér á landi við
byggingar-vinnu. Þetta segir
Finnbjörn A. Hermannsson.
Hann er formaður Samiðnar,
sambands iðn-félaga.
Í síðustu viku var Finnbjörn
að spyrja 2 Letta um
atvinnu-leyfi þeirra. Þeir
brugðust við með því að
stökkva fram af svölum í 3ja
metra hæð. Síðan hlupu þeir
í burtu. Finnbjörn segir að
það sé algengt að lítil
fyrir-tæki og undir-verk-takar
ráði til sín ólöglegt vinnuafl.
Þeir starfs-menn vinni síðan
fyrir um 400 krónur á tímann.
Það er 4 sinnum minna en
Íslendingar myndu fá í laun.
Félags-mála-ráðherra og
dóms-mála-ráðherra eru að
skoða þessi mál. T.d. gæti
komið til greina að sami
aðilinn veiti bæði dvalar- og
atvinnu-leyfi. Núna koma
Útlendinga-stofnun og
Vinnu-mála-stofnun að því.
Starfa ólöglega við byggingar-vinnu
Snjó-flóða-hætta
Meira en 100 manns þurftu
að fara frá heimilum sínum á
Vest-fjörðum í síðustu viku.
Hús þeirra voru rýmd út af
hættu á snjó-flóðum. Þetta
var á Patreks-firði, í Bolung-
arvík, Hnífs-dal og á Ísa-firði
og nágrenni.
3 snjó-flóð féllu á veginn
um Óshlíð en engan sakaði.
Berjast ekki gegn fátækt
Auðug ríki hafa ekki staðið
við gefin loforð í baráttunni
gegn fátækt. Kofi Annan segir
að þau eigi að ráða við kostn-
aðinn. Það ætti að vera hægt
að minnka sára fátækt um
helming fyrir árið 2015.
Borgó vann MR
Borgar-holts-skóli sigraði
Mennta-skólann í Reykjavík í
Gettu betur síðasta miðviku-
dag. MR kemst því ekki í sjón-
varps-keppnina í ár. Þetta er
annað árið í röð sem Borgar-
holts-skóli hefur betur gegn
MR.
ESB vill ekkert rusl-fæði
Evrópu-sambandið segir
matvæla-fyrir-tækjum að
hætta að beina auglýsingum
á óhollum mat að börnum.
ESB gefur fyrir-tækjunum árs
frest. Annars verða sett lög til
að koma í veg fyrir auglýsing-
arnar.
Fischer Íslendingur?
Bobby Fischer vill fá ís-
lenskt ríkis-fang. Hann skrif-
aði bréf til Alþingis þess efn-
is. Þetta gerir hann til þess
að það séu meiri líkur á að
hann fái að flytja til Íslands.
Það flækir hins vegar málið
að Fischer er skráður banda-
rískur ríkis-borgari. Hann gæti
þó fengið tvöfalt ríkis-fang.
Stutt
ZHAO Ziyang er dáinn. Hann
var forstætis-ráðherra Kína á
9. áratugnum. Síðan varð
hann leið-togi kínverska
Kommúnista-flokksins.
Zhao hefur verið í
stofu-fangelsi síðan 1989.
Síðast kom hann fram 19.
maí það ár. Þá bað hann
kínverska náms-menn að
hætta að mót-mæla á Torgi
hins himneska friðar. Hann
var grát-klökkur líkt og hann
vissi hvað myndi gerast.
Mót-mælin höfðu staðið í 6
vikur.
Vildi ekki her-vald
Daginn eftir tóku
harð-línu-öfl öll völd í
Kommúnista-flokkinum.
Zhao var settur af. Zhao vildi
ekki að her-valdi yrði beitt
gegn mót-mælunum. Það var
hins vegar gert og hundruð ef
ekki þúsundir borgara voru
drepin á Torgi hins himneska
friðar.
REUTERS
Zhao Ziyang við kínverska
fánann.
Zhao
Ziyang
látinn
UM 110 milljónir söfnuðust í
Neyðar-hjálp úr norðri
síðustu helgi. Þetta var
lands-söfnun til að styðja
hjálpar-starf eftir
náttúru-hamfarirnar í Asíu. 5
mannúðar-stamtök fá
peningana. Þau segja að þeir
fari í að byggja upp samfélag
á flóða-svæðunum og hlúa
að íbúum þeirra. Þetta þýðir
að Íslendingar gefa samtals
375 milljónir til hjálpar-starfs
á þessum svæðum.
Nú hefur verið staðfest að
meira en 220.000 manns
dóu í ham-förunum, þar af
um 160.000 í Indónesíu. Að
minnsta kosti 1,5 milljónir
manna urðu heimilis-lausar.
110 milljónir söfnuðust
Reuters
Fjöldi fólks varð heimilis-laus vegna flóðanna við Indlands-haf.
KEFLA-VÍK er úr leik í
Evrópu-keppninni í
körfu-bolta karla. Liðið tapaði
93:85 fyrir Olympic Fribourg
frá Sviss. Kefl-víkingar voru á
heima-velli. Þeir höfðu tapað
fyrri leiknum við svissneska
liðið. Þess vegna hefðu þeir
þurft að vinna með minnst 8
stigum.
Kefl-víkingar voru frekar
mátt-lausir í leiknum og
Fribourg var yfir í hálf-leik.
Leikið var um að komast í
4 liða úrslit í vestur- og
mið-riðli keppninnar.
Víkurfréttir/Hilmar Bragi
Kefl-víkingar
úr leik
Abbas
reynir að
koma á friði
MAHMOUD Abbas vill að
uppreisnar-samtökin Hamas
hætti að gera árásir á
Ísraela. Abbas er nýi
forsetinn í Palestínu. Hann
skipaði öryggis-sveitunum
sínum að koma í veg fyrir
slíkar árásir. Frelsis-hreyfing
Palestínu-manna (PLO) segir
að árásirnar gefi Ísraelum
afsökun fyrir að tefja
friðar-ferlið.
Sharon gefur ekki langan tíma
Hamas höfnuðu þessu.
Tals-maður þeirra sagði að
Ísraelar haldi þá bara
hernáminu í Palestínu áfram.
Ariel Sharon er
forsætis-ráðherra Ísraels.
Hann hefur sagt að Abbas fái
ekki langan tíma til þess að
stöðva þessar árásir.