Morgunblaðið - 23.01.2005, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. JANÚAR 2005 53
DAGBÓK
Jeppar
Toyota Rav4,
Suzuki Grand Vitara
Hyundai Santa Fe
Mitsubishi Pajero Sport,
Kia Sonento EX
Dodge Ram Pickup
Toyota Land Cruiser, sjálfskiptur
Buget bílaleiga, Sími 562 6060, Dugguvogi 10, 104 Reykjavík, www.budget.is
Budgetbílaleigaer á eftirfarandi stöðumá landinu: Reykjavík, Keflavík,Akureyri,
Egilsstöðum, Reyðarfirði, Vestmannaeyjum, Þórshöfn, Þorlákshöfn og Bakka.
Áhelgarnámskeiðunum „Innri friður – Innri styrkur“sem geðhjúkrunarfyrirtækið Liljan heldur að Fögru-hlíð í Fljótshlíð er unnið að sjálfsrækt kvenna. Nám-skeiðin eru sniðin að þörfum nútímakvenna þar sem
jákvæð hugsun og lausnarmiðuð sýn á verkefni, bæði í einkalífi
og á vinnustað, eru áhersluþættir. Þátttakendum er kennt að lifa
í núinu og gleyma áhyggjum.
„Það sem efst var í huga kvennanna sem tekið hafa þátt í nám-
skeiðinu var að eitthvað stórkostlegt gerist þegar konur taka að
deila reynslu sinni og þekkingu sem þær hafa öðlast í eldlínu
átaka bæði í einkalífi og starfi,“ segir Bergþóra Reynisdóttir,
skipuleggjandi og leiðbeinandi á námskeiðinu. „Eftir námskeiðið
er konunum boðið á fund mánaðarlega í þrjá mánuði í þeim til-
gangi að fylgja þeim eftir og hvetja til áframhaldandi vinnu. Þeir
tveir hópar sem lokið hafa þessu ferli hafa nú stofnað félagsskap
um áframhald sem byggist á þekkingunni sem þær öðluðust.“
Hvað þarf til að viðhalda andlegu jafnvægi?
„Hreyfing, hvíld, hollt mataræði og áreitastjórnun eru grund-
vallarþættir í andlegri vellíðan. Til að ná og viðhalda andlegu
jafnvægi þarf fólk að rækta „sjálfið“ daglega og vera sér með-
vitað um öll þau ytri áreiti sem hafa mikil áhrif á sálarlífið, meðal
annars samskipti við aðra. Jákvæð hugsun, gleði og bjartsýni
eru besta vítamínsprautan.“
Hvernig hjálpar þetta námskeið þátttakendum?
„Það sem konunum sjálfum fannst hjálpa sér hvað mest var að
uppgötva ótrúlegan kraft innra með sér til framsækni, í bæði
einkalífi og í starfi. Að þær sjálfar bæru ábyrgð á heilsu sinni og
hamingju. Ein kvennanna lýsti upplifun sinni af námskeiðinu
þannig að hún gerði sér ljóst hversu mikilvægt er að rækta sjálf-
an sig og komast að því hver maður er. Að undirstrika styrkleika
í stað þess að vera alltaf að reyna að bæla niður gallana sem eru
jú hluti af manni. Sjálfstraustið er ein af mikilvægustu for-
sendum hamingju og þetta námskeið hjálpaði henni til að
styrkja það meir og meir. Annað sem hún nefndi var að henni
var sýnt fram á hvernig hægt er að brynja sig fyrir andlegum
árásum sem eru aðeins til þess fallnar að brjóta mann niður and-
lega.“
Hvernig getum við bætt sjálfstraust okkar?
„Margir þættir hjálpast að við uppbyggingu sjálfstraustsins.
Þar má nefna jákvætt hugarfar, að treysta og trúa á sjálfan sig
og eiga jákvæð samskipti við annað fólk þar sem kærleikurinn
og fyrirgefningin eru heimsins bestu hugarverkfæri. Ennfremur
legg ég áherslu á það að lifa lífinu lifandi með því að taka einn
dag fyrir í einu eða að vera til „núna“ og koma auga á allt það
góða í kringum okkur. Konur eru sérfræðingar í að gera alla
hluti að áhyggjuefni. Það tekur frá manni ómælda hugarorku
sem betur væri nýtt sjálfum okkur til framdráttar.“
Sjálfsstyrking | Helgarnámskeið um uppbyggingu sjálfstrausts og andlegs jafnvægis
Jákvæðni, gleði og bjartsýni bæta lífið
Bergþóra Reynisdóttir fæddist í
Reykjavík. Hún lauk námi frá Hjúkr-
unarskóla Íslands 1973 og tveggja ára
sérnámi í geðhjúkrun 1977. Þá lauk
hún BSc-námi við Háskólann á Ak-
ureyri vorið 1993 og MSc-námi í geð-
hjúkrunarfræðum frá HÍ vorið 2003.
Bergþóra hefur unnið við geðhjúkrun
frá 1977. Frá 1993 hefur hún starfað
sjálfstætt við heimageðhjúkrun og
stofnaði hún Liljuna ehf. árið 1998.
NÍTJÁNDA öldin verður samnefnari
fjórðu tónleika Kammermúsík-
klúbbsins á þessu starfsári, en þeir
eru haldnir að vanda í Bústaðakirkju
í kvöld kl. 20. Þar verða leikin verk
eftir Ludwig Van Beethoven, Gia-
como Puccini og Johannes Brahms,
en öll þessi tónskáld stöldruðu við á
19. öldinni, þar sem þau sömdu verkin
sem leikin verða, en þetta tímabil er
iðulega nefnt klassíska öldin.
Fyrsta verk tónleikanna verður
Strengjakvintett í C-dúr, op. 20 eftir
Beethoven. Þá verður leikið Elegie
fyrir strengjakvartett Puccinis „I
crisantemi“ og að lokum verður leik-
inn strengjakvintett í G-dúr, op. 111
eftir Brahms.
Flytjendur eru Gréta Guðnadóttir,
og Zbigniew Dubik fiðluleikarar, Þór-
unn Ósk Marinósdóttir og Jónína
Auður Hilmarsdóttir víóluleikarar og
Hrafnkell Orri Egilsson sellóleikari.
„Öll verkin eru mjög ólík,“ segir
Gréta Guðnadóttir. „Beethoven er
vissulega lang-klassískastur. Það eru
mjög snemmklassísk áhrif sem daðra
við barokk. Beethoven er þarna að
vinna með þetta klassíska og hefð-
bundna form. Þetta verk er samið
mjög snemma á ferli Beethovens og
hann er enn að leita fyrir sér, en síðar
fer hann sínar eigin leiðir. Síðasti
kafli kvintettsins er mjög kómískur
og Beethoven er á vissan hátt að leika
sér að þessu hefðbundna klassíska
formi.“
Bæði Brahms og Puccini eru afar
tilfinningaríkir, en á afar ólíkan hátt,
að sögn Grétu. Elegía Puccinis er inn-
ræn og tregafull en kvintett Brahms
nær óendanlega rómantískur og lyft-
ir jafnt hlustendum sem flytjendum
upp í sjöunda himin. „Þessi kvintett
er þvílíkur söngur og maður þarf
næstum því að passa sig á því að
gleyma sér ekki í tilfinningaflæðinu,
því það er svo gaman að spila þetta.
Þetta eru svo dásamlegar melódíur
að það getur enginn nema Brahms
skrifað svona. Tilfinningarnar sem
hann túlkar eru svo djúpar og laglín-
urnar svo óendanlega fagrar. Hann
hefur líka greinilega mikið hjarta fyr-
ir víólu, þessari innilegu, stóru og
djúpu fiðlu og hún fær svo sannarlega
að njóta sín í nokkrum af fallegustu
melódíum sem samdar hafa verið í
kammermúsík.“
Klassískur kammer í Bústaðakirkju
Morgunblaðið/Jim Smart
MÁLVERKASÝNING Kristínar
Gunnlaugsdóttur myndlist-
armanns, „… mátturinn og dýrð-
in, að eilífu …“
var opnuð í gær
í Listasafni
Reykjanesbæjar
í Duushúsum.
Verkin eru flest
unnin á árunum
2001–2004 og
hafa aldrei verið
sýnd áður.
Kristín út-
skrifaðist úr
Myndlista- og
handíðaskóla Íslands árið 1987 og
fór þá beint í framhaldsnám til
Ítalíu. Þar lærði hún m.a. íkona-
gerð í Róm og stundaði nám í Rík-
isakademíunni í Flórens árin
1988–1993. Kristín hefur síðustu
15 árin tekið þátt í mörgum sýn-
ingum, hér heima og erlendis, og
er þetta 10. einkasýning hennar.
Kristín hefur hlotið ýmsa styrki
og viðurkenningar og hlotið
nokkrum sinnum listamannalaun
frá menntamálaráðuneytinu, síð-
ast árið 2002–3. Verk hennar eru í
eigu fjölda opinberra safna,
kirkna, fyrirtækja og ein-
staklinga.
Í sýningarskrá sýningarinnar
segir Auður Ólafsdóttir listfræð-
ingur m.a. um listamanninn. „Í
þeim persónulega reiti sem Krist-
ín hefur helgað sér í listasögunni
hefur stundum verið að finna sér-
kennilegar mannverur sem hver
guðdómur og hver eilífð myndi
vera fullsæmd af: fagureyga, tog-
inleita öldunga með hárskúfa og í
skóm með uppbrettri tá, standa
þar tveir og tveir gegnt hvor öðr-
um, mitt í ómældu
af bláu. Líkt og
einsemd mannsins
sem hefur þörf
fyrir speglun eða
samveru.“ Þá seg-
ir Auður enn-
fremur: „Í nýrri
verkum Kristínar
hafa öldungarnir
ójarðnesku vikið
fyrir rótföstum
voldugum trjám,
með trausta, sam-
fléttaða boli. Tré
finnast líka í eldri
verkum Kristínar,
en þau eru af öðr-
um toga, eru mjó
og spíruleg, and-
leg tré. Nýju trén
eru hins vegar
gömul tré, með
rætur djúpt í jörðu, krónan teygir
sig hins vegar ekkert sérstaklega
hátt til himins.“
Í tilefni 90 ára vígsluafmælis
Keflavíkurkirkju eru 4 verk eftir
Kristínu til sýnis í safnaðarheimili
kirkjunnar, Kirkjulundi.
Kristín Gunnlaugsdóttir sýnir máttinn og dýrðina
Sýningin er opin alla daga frá kl.
13– 17.30 og stendur til 6. mars.
Kristín
Gunnlaugsdóttir
Eitt verka á sýningu Kristínar.
SÝNINGUM Birg-
is Andréssonar og
Yun-Fei Ji lýkur í
dag og því er nú
síðasta tækifæri
til að berja þær
augum. Sýning
Birgis er á öllum
hæðum og spann-
ar hans feril enda
er um viðamikla
kynningu á lista-
manninum að
ræða. En verk
kínverska mál-
arans Yun-Fei Ji
heitir „Boxers“ og
er athyglisverð
blanda fornra
hefða og nútíma-
legrar nálgunar.
Að auki eru til
sýnis verk úr
safneigninni á öll-
um þremur hæð-
um SAFNS. Bóka-
safnið er öllum
opið ásamt að-
gangi að net-
tengdri tölvu.
Safn er til húsa
á Laugavegi 37.
Sýningarsalir eru
opnir frá kl. 14–
17 í dag.
Sýningum í Safni lýkur