Morgunblaðið - 26.01.2005, Qupperneq 38
38 MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 stoltur, 8 læsum,
9 þjálfun, 10 grjót, 11
þyngdareining, 13 fram-
kvæmir, 15 lífs, 18 styrkir,
21 skaut, 22 furða, 23
beins, 24 dyr.
Lóðrétt | 2 hnapps, 3 lof-
um, 4 þor, 5 eyddur, 6
heilablóðfall, 7 guð, 12
fita, 14 tangi, 15 barst með
vindi, 16 hundrað árin, 17
glens, 18 æviskeiðið, 19
ósannorðu, 20 tröll.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 nötra, 4 gætin, 7 pútur, 8 næmur, 9 agg, 11 rýrt,
13 Frón, 14 ískur, 15 hörð, 17 álfa, 20 ósa, 22 púlið, 23 ugg-
ur, 24 ránar, 25 sárið.
Lóðrétt | 1 napur, 2 tetur, 3 akra, 4 göng, 5 tæmir, 6 nýrun,
10 gikks, 12 tíð, 13 frá,
15 hopar, 16 rolan, 18 logar, 19 afræð, 20 óður, 21 aurs.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði
dagsins er að finna á Staður og
stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Myndlist
Anddyri Suðurlandsbrautar 4 | Rafn Sig-
urbjörnsson – Fjölskyldan. Tíu olíumálverk.
Árbæjarsafn | Í hlutanna eðli – Stefnumót
lista og minja.
Gallerí Humar eða frægð! | Ásdís Sif Gunn-
arsdóttir sýnir vídeóverk.
Gallerí I8 | Finnur Arnar sýnir ýmis mynd-
verk.
Gallerí Sævars Karls | Hulda Vilhjálms-
dóttir – Hver er að banka á hurðina?
Kannski barnið í landslaginu?
Gerðuberg | Rosemarie Trockel sýnir ljós-
myndir, skúlptúra, teikningar og myndbönd.
Gerðuberg | Sigríður Salvarsdóttir í Vigur
sýnir listaverk úr mannshári í Boganum,
Gerðubergi frá 21. janúar til 13. mars.
www.gerduberg.is.
Hafnarborg | Rafmagn í 100 ár – sýning í til-
efni af 100 ára afmæli fyrstu almennings-
rafveitunnar. Svart á hvítu, þrívíð verk, mál-
verk, teikningar og grafík eftir íslenska og
erlenda listamenn í Sverrissal og Apóteki.
Sigrún Guðmundsdóttir er myndhöggvari
janúarmánaðar.
Hallgrímskirkja | Jón Reykdal – 6 ný olíu-
málverk í forkirkju.
Hrafnista Hafnarfirði | Tryggvi Ingvarsson,
rafvirkjameistari og heimilismaður á Hrafn-
istu, sýnir útsaum og málaða dúka í Menn-
ingarsalnum á fyrstu hæð.
Kaffi Sólon | Sigríður Valdimarsdóttir –
Snjókorn.
Kunstraum Wohnraum | Alda Sigurð-
ardóttir – Landslagsverk.
Listasafn ASÍ | Valgerður Guðlaugsdóttir –
Á skurðarborði augans.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Birgir
Snæbjörn Birgisson – verk úr tveimur
myndröðum, Snertingar og Ljóshærðar
starfsstéttir. Elías B. Halldórsson – Olíuljós.
Verk úr einkasafni Þorvaldar Guðmunds-
sonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur á
neðri hæð.
Listasafn Reykjanesbæjar | Kristín Gunn-
laugsdóttir – … mátturinn og dýrðin, að ei-
lífu …
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið – yfirlitssýning á verkum
Ásmundar Sveinssonar.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Þórð-
ur Ben Sveinsson – Borg náttúrunnar.
Bjargey Ólafsdóttir – Láttu viðkvæmt útlit
mitt ekki blekkja þig. Erró – Víðáttur. Brian
Griffin – Áhrifavaldar.
Nýlistasafnið | Hlynur Helgason – Gengið
niður Klapparstíg. Ævintýralegir feministar
– Carnal Knowledge.
Tjarnarsalur Ráðhúss Reykjavíkur | Sören
Solsker Starbird – Er sálin sýnileg? Ljós-
myndasýning.
Þjóðmenningarhúsið | Bragi Ásgeirsson (f.
1931), grafíklistamaður, listmálari, myndlist-
arkennari og listgagnrýnandi, er myndlist-
armaður mánaðarins í samstarfi Þjóð-
menningarhússins og Skólavefjarins. Í
Þjóðmenningarhúsinu er yfirlitssýning á
verkum Braga, bæði í veitingastofu og í
kjallara.
Bækur
Sögufélag | Félag íslenskra fræða Gauti
Kristmannsson og Soffía Bjarnadóttir, bók-
menntagagnrýnendur Víðsjár, spjalla um
jólabókaflóðið, bókmenntir, umræðu, verð-
laun. Nánari upplýsingar veita Sigríður Þor-
valdsdóttir, formaður FÍF, og Gauti Krist-
mannsson.
Dans
Þjóðdansafélag Reykjavíkur | Opið hús í
Álfabakka 14a kl. 20.30 og annan hvern
miðvikudag. Gömlu dansarnir. Allir vel-
komnir.
Söfn
Þjóðmenningarhúsið | Sýningaröðin Tón-
listararfur Íslendinga. Kynntar eru nýjar
rannsóknir á tónlistararfinum og útgáfa
efnis á geisladiskum. Fyrsta sýningin fjallar
um Silfurplötur Iðunnar sem Kvæðamanna-
félagið Iðunn og Smekkleysa gáfu nýlega út
á fjórum geisladiskum ásamt veglegu riti.
Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning Þjóð-
minjasafnsins, Þjóð verður til – menning og
samfélag í 1.200 ár. Opið frá kl. 11–17.
Mannfagnaður
Félagsheimilið Hvoll | Mælsku- og rök-
ræðukeppni í Hvolnum, Hvolsvelli kl. 20.
ITC Jóra á Selfossi sækir ITC Stjörnu,
Rangárþingi heim og munu deildirnar tak-
ast á.
Fréttir
Blóðbankinn | Blóðbankabíllinn verður við
Hyrnuna í Borgarnesi frá kl. 10–17. Vonumst
til að sjá sem flesta.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Matar-
og fataúthlutun kl. 14–17 á Sólvallagötu 48.
Svarað í síma 551-4349 þri.–fim. kl. 11–16.
Tekið við vörum og gjöfum þri. og mið. kl. 11–
16. Netfang: mnefnd@mi.is.
Fundir
Björgunarsveitin Dagrenning | Björg-
unarsveitin/slysavarnadeildin heldur aðal-
fund í Hlíðarenda kl. 20.30. Nýir félagar vel-
komnir.
Félagsheimilið á Flúðum | Sjálfstæð-
isflokkurinn heldur stjórnmálafund kl. 20.
Yfirskrift fundarins er: Með hækkandi sól –
lægri skattar – aukin hagsæld. Fram-
sögumenn: Sigríður Anna Þórðardóttir um-
hverfisráðherra og Kjartan Þ. Ólafsson al-
þingismaður.
Geðhjálp | Fundir fyrir félagsfælna hjá Geð-
hjálp, Túngötu 7, öll miðvikudagskvöld í vet-
ur kl. 20.
Hótel Capitano | Sjálfstæðisflokkurinn
heldur stjórnmálafund kl. 20. Yfirskrift
fundarins er: Með hækkandi sól – lægri
skattar – aukin hagsæld. Framsögumenn:
Björn Bjarnason dóms- og kirkju-
málaráðherra og alþingismennirnir Halldór
Blöndal og Gunnar I. Birgisson.
Samtökin FAS | Fundur verður hjá for-
eldrum og aðstandendum samkynhneigðra,
FAS, kl. 20.30 í félagsmiðstöð Samtakanna
’78, Laugavegi 3, 4. hæð. Umræðuefni er:
Foreldrar með foreldrum – saman erum við
sterk.
Hótel Sel, Mývatni | Sjálfstæðisflokkurinn
heldur stjórnmálafund á morgun, fimmtu-
dag, kl. 20. Yfirskrift fundarins er: Með
hækkandi sól – lægri skattar – aukin hag-
sæld. Framsögumenn: Sigríður Anna Þórð-
ardóttir umhverfisráðherra og Halldór
Blöndal, forseti Alþingis.
Fyrirlestrar
Háskóli Íslands | Donald RJ Singer, pró-
fessor í klínískri lyfjafræði og for-
stöðumaður rannsóknarstofnunar um hag-
nýtingu vísinda við læknadeild
Warwick-háskóla í Englandi, fjallar um lyfja-
erfðafræði í Odda, stofu 101, kl. 16.30, en
talið er mögulegt að lyfjaerfðafræði muni
auka mjög árangur lyfjameðferðar í fram-
tíðinni.
Kennaraháskóli Íslands | Fyrirlestur um
hljóðheim Netsins í Kennaraháskóla Íslands
kl. 16.15–18. Í fyrirlestrinum segir Stefán
Jökulsson lektor frá rannsókn sinni á út-
varpi á internetinu en í henni var meðal
annars spurt hvers eðlis slíkt útvarp væri
og hvaða tilgangi það þjónaði. Jafnframt
ræðir Stefán um einkenni hljóðrænnar tján-
ingar og þátt hennar í margmiðlun.
Raunvísindadeild HÍ | Ríkharður Fr. Frið-
riksson heldur meistaraprófsfyrirlestur við
jarð- og landfræðiskor raunvísindadeildar
Háksóla Íslands á morgun, fimmtudag, kl.
17 í Öskju Háskóla Íslands. Fyrirlestur Rík-
harðs nefnist „Úrkomuleiðréttingar byggð-
ar á snjómælingum“ og fjallar um notkun
snjómælinga til leiðréttingar á hefð-
bundnum úrkomumælingum.
Málstofur
Viðskipta- og hagfræðideild HÍ | Þorvaldur
Gylfason prófessor flytur í dag kl. 12.20 er-
indið „Frá einhæfni til hagvaxtar“ í mál-
stofu Hagfræðistofnunar og Viðskipta-
fræðistofnunar. Þar lýsir hann m.a. helstu
gangráðum hagvaxtar og sambandi hag-
vaxtar og fjölhæfni atvinnulífs. Málstofan er
haldin í Háskóla Íslands, Öskju, stofu 132.
Málþing
Askja – náttúrufræðihús HÍ | Hættur á
hafsbotni kl. 16-18. Háskóli Íslands efnir til
málþings um jarðfræðilegan ramma nátt-
úruhamfaranna í Asíu 26. desember sl. og
hættu á tsunami-flóðbylgjum við Ísland.
Ráðstefna
Hótel KEA | Kynning norrænu þróun-
arsjóðanna á möguleikum íslenskra fyr-
irtækja í þátttöku alþjóðlegra verkefna og
eigin útflutningi á ört vaxandi heimsmark-
aði, verður kl. 12.30–15.30 á Hótel KEA.
Útivist
Ferðafélagið Útivist | Útivist blótar þorr-
ann á Leirubakka í Landsveit 28.–30. jan.
Útivist fer í jeppaferð í Kerlingarfjöll 28.–
30. jan. Fararstjóri er Jón Viðar Guðmunds-
son.
STÓRSVEIT Reykjavíkur heldur sína fyrstu tónleika á árinu í
Ráðhúsi Reykjavíkur kl. 20 í kvöld. Stjórnandi á þessum tón-
leikum verður einn fremsti jazztónlistarmaður Finna um langt
árabil; Eero Koivistoinen. Á tónleikunum mun Eero einnig koma
fram sem einleikari á tenórsaxófón. Flutt verða ný og eldri verk
eftir Koivistoinen, auk útsetninga hans af verkum annarra. Meðal
annars verður frumflutt nýtt verk Koivistoinens; „Tvísöngur“,
svíta í þremur þáttum, byggð á íslenskum þjóðlögum.
Koivistoinen hefur m.a. samið mikið fyrir UMO – Stórsveit
finnska ríkisútvarpsins og margsinnis stýrt þeirri hljómsveit, en
hún telst með fremstu stórsveitum Evrópu. Þekktastur er hann
þó sem leiðandi saxófónleikari Finna síðustu áratugi. Hann er
leitandi tónlistarmaður sem hefur reynt fyrir sér í ýmsum stíl-
brigðum jazztónlistar á löngum ferli. Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir.
„Tvísöngurinn virkar mjög vel á mig. Eero kynntist þessum lög-
um í íslenska þjóðlagasafninu á nótum, en hann virðist skilja mjög
vel eðli og inntak íslenskrar þjóðlagatónlistar, enda er styttra
milli Íslendinga og Finna í þjóðarkarakter heldur en margra ann-
arra,“ segir Sigurður Flosason, saxófónleikari í Stórsveit Reykja-
víkur. „Svo vinnur hann úr þessu á sinn hátt, bæði persónulega og
skemmtilega en er samt trúr kjarna tónlistarinnar. Að minnsta
kosti hef ég ekki rekist á sambærilega útfærslu á íslenskri þjóð-
lagatónlist fyrir stórsveit áður, svo þetta er mjög forvitnilegt.“
Sigurður segir verkin á efnisskránni mjög ólík innbyrðis og því
sé hún mjög fjölbreytt. „Þetta spannar vítt svið á hans ferli með
ólíkum stíl, en hann á sér langan starfsaldur í tónlistinni, rétt að
verða sextugur.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Einn þekktasti djasstónlistarmaður Finna stýrir Stórsveit Reykjavíkur
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú elskar að vinna með höndunum, ekki
síst ef þú ert að fást við eitthvað sem þú
hefur ekki prófað áður. Byrjaðu á nýju
og listrænu verkefni í dag.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Beindu kröftum þínum að heimili og fjöl-
skyldu í dag. Einhver þarf að ræða við
þig. Hvernig væri að hringja í fjöl-
skyldumeðlim sem þú hefur ekki heyrt í
lengi?
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú hefur gaman af því að skiptast á hug-
myndum við aðra. Hugur þinn er leit-
andi og því hefur þú gaman af því að
læra nýja hluti. Keyptu bók eða tímarit
sem hugnast þér.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Notaðu daginn til þess að fara yfir fjár-
málin og tékka á bankareikningum.
Hvað skuldar þú mikið? Hvað áttu von á
miklum tekjum á næstunni? O.s.frv.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Tunglið er í þínu merki í dag, það gerir
þig ósjálfrátt tilfinningasamari, drama-
tískari og leikrænni. Þú ert að búa þig
undir miklar breytingar í lífinu.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú þarft að fá að vera í einrúmi í dag. Þó
ekki væri nema í hálftíma eða svo. Gefðu
þér tíma til þess að fá þér kaffibolla eða
fara í stutta gönguferð og hentu reiður á
hugsunum þínum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Samræður við vinkonur taka á sig
áhugaverða mynd í dag. Kannski þarftu
að ræða eitthvað sem hvílir á þér og
tengist systkini eða ættingja.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Eftir þér verður tekið á almennum vett-
vangi í dag, á einhvern hátt. Hugsaðu
vandlega áður en þú talar, það er hlustað
á þig. Kannski verður meira að segja
vitnað í þig.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þig langar til þess að gera eitthvað sem
þú ert ekki vanur í dag, bogmaður, eitt-
hvað óvenjulegt. Hvernig væri að fara á
stað sem þú hefur aldrei komið á áður?
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú þarft að læra að meta gildismat til-
tekinnar manneskju áður en þú getur
látið þér lynda við hana. Reyndu að sjá
hlutina með augum annarra.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Tunglið er beint á móti vatnsberanum í
dag. Þú þarft því að leggja meira á þig í
samskiptum en aðrir til þess að halda
friðinn. Fólk er ekki á móti þér, þótt það
virðist vera það.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Allt sem þú leggur á þig til þess að
skipuleggja þig betur og taka til í kring-
um þig ber mikinn árangur núna. Stígðu
skrefið til fulls, þú sérð ekki eftir því
seinna.
Stjörnuspá
Frances Drake
Vatnsberi
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert manneskja sem hefur trú á
sjálfri sér. Sjálfstraust þitt gerir þér
kleift að berjast fyrir því sem þú trúir.
Þú situr ekki aðgerðalaus hjá og ert
stundum umdeild. Þú hættir ekki
fyrr en þú nærð settu marki.
❖ Opið virka daga 10-18
❖ Laugardaga 10-16
Nýbýlavegi 12
Kópavogi
s. 554 4433
Útsala
aukaafsláttur