Morgunblaðið - 26.01.2005, Qupperneq 39
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Ba4 Rf6 5. 0-0 Rxe4 6. d4 b5 7.
Bb3 d5 8. dxe5 Be6 9. Rbd2 Rc5
10. c3 d4 11. Bxe6 Rxe6 12. cxd4
Rcxd4 13. a4 Bc5 14. Re4 Bb6 15.
He1 0-0 16. Rfg5 h6 17. Rxe6 fxe6
18. a5 Ba7 19. Ha3 Dd5 20. Rf6+
gxf6 21. Bxh6 Kf7 22. Dh5+ Ke7
23. exf6+ Kxf6 24. He5 Dxe5 25.
Bg7+ Kxg7 26. Dxe5+ Kf7 27.
Hh3 Rf5 28. g4 Hg8 29. Hh7+ Rg7
30. h4 Kg6
Staðan kom upp í B-flokki Cor-
us-skákhátíðarinnar sem fram fer
þessa dagana í Wijk aan Zee í Hol-
landi. Daniel Stellwagen (2.524)
hafði hvítt gegn Sipke Ernst
(2.509). 31. Hxg7+! Hxg7 32.
De4+ Kf7 33. Dxa8 Hxg4+ 34.
Kf1 og svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2005 39
DAGBÓK
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 9, postu-
línsmálning kl. 9 og 13, bókaormar les-
hringurinn kl. 13.30, vinnustofan opin
alla daga. Allir velkomnir.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, glerlist, spil-
að bridge/vist, fótaaðgerð.
Breiðfirðingafélagið | Félagsvist í
Breiðfirðingabúð sunnudaginn 30. jan-
úar kl. 14, fyrsti dagur í fjögurra daga
keppni. Kaffiveitingar, allir velkomnir.
Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og
blöðin, kl. 9–14 baðþjónusta, kl. 9–
16.45 hárgreiðslustofan opin, kl. 11.15–
12.15 matur, kl. 14.40 ferð í Bónus, kl.
14.30–15.30 kaffi.
FEBÁ, Álftanesi | Haukshúsið mið-
vikudaginn 26. janúar, kl. 13–16. Bingó-
fjör, skemmtilegir vinningar. Kaffiveit-
ingar að hætti Gróu.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Félag
eldri borgara í Kópavogi, félagsvist
spiluð í dag kl. 13 í Gjábakka.
Félag eldri borgara Reykjavík | Sam-
félagið í nærmynd kl. 11, þáttur um
málefni eldri borgara á RÚV. Síðdeg-
isdans kl. 14.30–16.30. (Hús opnað kl.
14). Guðmundur Haukur leikur. Kaffi og
terta. Dansstjórar Matthildur Guð-
mundsd. og Jón Freyr Þórarinsson.
Söngfélag FEB kóræfing kl. 17.
Félag kennara á eftirlaunum | Tölvu-
starfið í Ármúlaskóla er kl. 16.20 í
stofu V24.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Um-
ræðan um Laxdælu heldur áfram mið-
vikudaginn 26. janúar frá kl. 16–17.
Arngrímur Ísberg leiðir áfram í sög-
unni. Allir velkomnir.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Kvennaleikfimi kl. 9.15, 10 og 11 gler-
skurður kl. 13 og postulínsmálun kl. 16,
í Garðabergi er handavinnuhorn og
bridge kl. 12.30, Hrafnkell Helgason er
með fyrirlestur kl. 16. FEBG. Opið hús í
Holtsbúð.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 8.45
sund og leikfimiæfingar í Breiðholts-
laug, kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, kl.
10.30 gamlir leikir og dansar, frá há-
degi spilasalur opinn, kl. 14 koma börn
frá leikskólanum Suðurborg í heim-
sókn, með leik og söng, kl. 14.30 kór-
æfing.
Hraunbær 105 | Kl. 9 almenn handa-
vinna, bútasaumur, útskurður, hár-
greiðsla, kl. 10 fótaaðgerð, kl. 11 banki,
kl. 12 hádegismatur, kl. 13 bridge, kl. 15
kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi frá kl.
9, myndmennt kl. 10, línudans kl. 11,
myndmennt kl. 13 og pílukast kl. 13.30.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
kl. 9–15 klippimyndir, keramik o.fl. jóga
kl. 9–12, samverustund kl. 10.30, lesin
framhaldssaga o.fl., námskeið í mynd-
list, kl. 14. bingó, kaffi og nýbakaðar
vöfflur, kl. 15–18. Böðun virka daga fyr-
ir hádegi. Fótaaðgerðir–hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er op-
ið öllum. Betri stofa og listasmiðja.
Handavinna, glerlist o.fl. Skráning í
morgunverðarboð Göngu-Hrólfa 29.
janúar. Hafin sala á miðum á þorra-
blótið 4. febrúar. Morgunkaffi, hádeg-
isverður og síðdegiskaffi. Upplýsingar
í síma 568–3132.
Korpúlfar Grafarvogi | Keila í Mjódd á
morgun fimmtudag kl. 10.
Krabbameinsfélagið | Styrkur, samtök
krabbameinssjúklinga og aðstand-
enda þeirra, halda þorrablót laug-
ardaginn 29. janúar kl. 19 í Skógarhlíð
8, 4. hæð. Jóhannes Kristjánsson
skemmtir, happdrætti og fleira. Hljóm-
sveitin Capri leikur fyrir dansi. Veislu-
stjóri Margrét Sigurðardóttir. Miðasala
í s. 896 5808. Allir velkomnir.
Laugardalshópurinn í Þróttarheim-
ilinu | Jóga, teygjur slökun fyrir eldri
borgara í dag kl. 12.10.
Norðurbrún 1, | Kl. 9 fótaaðgerð, kl. 9
opinvinnustofa, kl. 14 félagsvist –kaffi–
verðlaun.
Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höf-
uðborgarsvæðinu | Félagsvist í kvöld
kl. 19.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, kl. 9.15–16 myndmennt,
kl. 10–12 sund (Hrafnistulaug), kl.
10.15–11.45 spænska, kl. 11.45–12.45
hádegisverður, kl. 12.15–14 versl-
unarferð í Bónus, Holtagörðum, kl. 13–
14 spurt og spjallað, kl. 13–16 tréskurð-
ur, kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja,
bókband, morgunstund, handmennt
fyrir hádegi, handmennt, kóræfing og
verslunarferð eftir hádegi. Hárgreiðsla
og fótaagerðir.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Mömmumorgunn
kl. 10–12. Allir foreldrar velkomnir með
börn sín. Kirkjuprakkarar (1.–4. bekkur)
kl. 15.30–16.30.
Árbæjarkirkja | Kyrrðar- og bæna-
stund kl. 12. Fyrirbænir, hugleiðing og
tónlist. Hádegishressing á eftir.
Áskirkja | Samverustund í neðri safn-
aðarsal, milli kl. 11 og 12 í dag. Hreyfing
og bæn. Allir velkomnir.
Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl. 12.
Tónlist–altarisganga–fyrirbænir. Léttur
málsverður eftir stundina. Kirkju-
prakkarar 7–9 ára kl. 16.30. TTT, 10–12
ára kl. 17.30. Æskulýðsfélag KFUM&K
og kirkjunnar kl. 20.
Bústaðakirkja | Starf aldraðra í Bú-
staðakirkju. Samvera er á mið-
vikudögum frá kl. 13. Við spilum, föndr-
um og erum með handavinnu. Gestur
dagsins er Anna Sigríður Ólafsdóttir
næringarfræðingur. Öllum er velkomið
að taka þátt í þessu starfi. Nánari uppl.
www.kirkja.is.
Digraneskirkja | Barnastarf 6–9 ára
kl. 17.15–18 á neðri hæð. www. digra-
neskirkja.is
Garðasókn | Foreldramorgnar hvern
miðvikudag kl. 10 til 12. Fyrirlestur
mánaðarlega. Gott tækifæri fyrir
mömmur og börn að hittast og kynn-
ast. Allir velkomnir, pabbar og
mömmur, afar og ömmur. Alltaf heitt á
könnunni.
Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund í há-
degi kl. 12. Altarisganga og fyrirbænir.
Boðið upp á léttan hádegisverð á
vægu verði að lokinni stundinni. Prest-
ar safnaðarins þjóna fyrir altari, org-
elleikari Hörður Bragason. Allir vel-
komnir.
Hallgrímskirkja | Morgunmessur mið-
vikudagsmorgna kl. 8 árdegis. Hug-
leiðing, altarisganga. Einfaldur morg-
unverður í safnaðarsal eftir stundina.
Háteigskirkja | Við komum saman í
kirkjunni alla miðvikudagsmorgna
klukkan 11. Gott mannlíf, söngur og fyr-
irbænir. Allir velkomnir.
Hjallakirkja | Fjölskyldumorgnar eru í
Hjallakirkju á miðvikudögum kl. 10–12.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Fjöl-
skyldusamveran hefst kl. 18 með léttri
máltíð á vægu verði. kl. 19. Biblíulestur
fyrir alla fjölskylduna. Barnastarfið er
fyrir 1–2 ára, 3–4 ára, 5–7 ára, 8–9 ára,
10–12 ára og 13–17 ára. Allir velkomnir.
Kapella Fríkirkjunnar í Reykjavík |
Miðvikudag kl. 12.15. Bæna- og kyrrð-
arstund verður í Kapellu Fríkirkjunnar í
Reykjavík sem er í Safnaðarheimilinu
að Laufásvegi 13. Hægt er að koma
bænarefnum til safnaðarprests. Kaffi-
sopi í lok samveru. Allir velkomnir.
Kálfatjarnarkirkja | ALFA námskeið
er um grundvallaratriði kristinnar trú-
ar. Miðvikudaga kl. 19–22 í Kálfatjarn-
arkirkju frá 19. janúar til 23. mars.
Keflavíkurkirkja | Biskupsstofa, Adda
Steina, Halldór Reynis, Þorvaldur Karl
o.fl. funda í Kirkjulundi með prestum
af Suðurnesjum. Heitt á könnunni.
Kirkjan opnuð kl. 12. Kyrrðar- og fyr-
irbænastund kl. 12.10. Samverustund í
Kirkjulundi kl. 12.25, súpa, salat og
brauð á vægu verði, allir aldurshópar.
Kristniboðssalurinn | Samkoma í
Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58,
kl. 20. „Varist súrdeig faríseanna“
Lúk. 12, 1–3. ræðumaður Kjartan Jóns-
son. Kjartan segir jafnframt frá fagn-
aðarerindinu á forsendum Pokot-
manna. Kaffiveitingar eftir
samkomuna. Allir velkomnir.
Kristniboðssambandið | Biblíuskólinn
við Holtaveg býður til fræðslukvölds
fyrir almenning um Opinberunarbók
Jóhannesar, fimmtudaginn 27. janúar
kl. 20 í húsi KFUM og KFUK við Holta-
veg, gegnt Langholtsskóla. Fræðsla
kvöldsins verður í umsjá Ragnars
Gunnarssonar skólaprests. Aðgangur
er ókeypis og öllum opinn.
Langholtskirkja | Kl. 12.10 hádeg-
isbænagjörð með orgelleik – fyr-
irbænir, kl. 12.30 súpa og brauð (kr.
300). Starf eldri borgara kl. 13–16. Fjöl-
breytt dagskrá. Leitið upplýsinga í
síma 520 1300.
Laugarneskirkja | Kl. 10 Mömmu-
morgunn í umsjá Aðalbjargar Helga-
dóttur. Kl. 10.30 Gönguhópurinn Sólar-
megin leggur af stað frá kirkjudyrum
alla miðvikudagsmorgna. Kl. 14.10–
15.30 Kirkjuprakkarar. (1.–4. bekkur)
Kl. 19 Fermingar–Alfa. Kl. 20.30 Ung-
lingakvöld Laugarneskirkju. Sjá:
www.laugarneskirkja.is.
Neskirkja | Foreldramorgnar kl. 10–12.
Kaffi og spjall. Umsjón Elínborg Lár-
usdóttir. Fyrirbænamessa kl. 12.15.
Prestur dr. Sigurður Árni Þórðarson. 7
ára starf kl. 14.30. Umsjón Guðmunda
og Elsa. Uppl. í s. 511 1560. Kór Nes-
kirkju, æfing kl. 19. Stjórnandi Stein-
grímur Þórhallsson. Uppl. í 896 8192.
HÁSKÓLI Íslands efnir í dag kl. 16
til málþings um jarðfræðilegan
ramma náttúruhamfaranna í Asíu
26. desember sl. og hættu á tsun-
ami-flóðbylgjum við Ísland, en nú er
mánuður liðinn síðan atburðirnir við
Indlandshaf áttu sér stað.
Á málþinginu munu starfsmenn
Jarðvísindastofnunar Háskólans og
Veðurstofu Íslands fjalla um eðli og
orsakir atburðanna, viðvaranir við
náttúruvá og hættu á slíkum atburð-
um hér við land.
Málþingið fer fram í Öskju, nátt-
úrufræðahúsi HÍ, en fundarstjóri er
Ágúst Gunnar Gylfason hjá al-
mannavarnadeild Ríkislögreglu-
stjóra.
Fyrirlesarar á málþinginu verða
Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur,
sem fjallar um eðli og orsakir
skjálftans mikla, Bryndís Brands-
dóttir, jarðeðlisfræðingur á Jarðvís-
indastofnun HÍ, sem skýrir orsakir,
eðli og afleiðingar tsunami-
flóðbylgjunnar, og Steinunn Jak-
obsdóttir, jarðeðlisfræðingur á Veð-
urstofu Íslands, sem fjallar um við-
varanir við slíkum flóðbylgjum og
náttúruvá. Þá mun Páll Einarsson,
jarðeðlisfræðingur á Jarðvís-
indastofnun HÍ, flytja yfirlit um
jarðskjálfta og skriðuföll í samhengi
við hættu á slíkum hamförum á
N-Atlantshafi auk þess sem Frey-
steinn Sigmundsson, jarðeðlisfræð-
ingur á Norræna eldfjallasetrinu,
Jarðvísindastofnun Háskóla Ís-
lands, fjallar um eldfjallahrun í Atl-
antshafi og Ármann Höskuldsson
jarðfræðingur veltir fyrir sér flóð-
bylgjum í kjölfar Kötluhlaupa. Þá
verður erindunum fylgt eftir með
umræðum um stöðu mála og fram-
tíðarhorfur.
„Málþingið verður tvískipt. Ann-
ars vegar yfirförum við atburða-
rásina í Indónesíu fyrir mánuði,
þ.e.a.s. í fyrsta lagi jarðskjálftann
sjálfan, sem er sérstakur vegna
gríðarlegrar stærðar sinnar. Síðan
gefum við yfirlit yfir flóðbylgjuna
sjálfa og reynum að veita fólki skiln-
ing um það hvernig hún ferðast og
síðan hvernig hún magnast upp þeg-
ar hún kemur að strönd,“ segir
Freysteinn Sigmundsson. „Síðan
munum við fara yfir viðvaranir við
svona flóðbylgjum og almennt um
viðvaranir við náttúruhamförum.
Seinni hluta málþingsins mun síðan
sjónum beint að Norður-Atlants-
hafi.“
Ná hraða farþegaþota
Tsunami er japanskt orð sem
þýðir í beinni þýðingu hafnarbylgja,
þ.e.a.s. bylgja sem kemur í höfn.
Orðið er komið af því að við strend-
ur Japans, þar sem jarðskjálftar eru
tíðir, kom það fyrir þegar sjómenn
komu til baka af veiðum að þeir
fyndu þorp sín í rúst eftir risaflóð-
bylgjur. Þeir höfðu þá verið að veið-
um undan ströndinni og ekki orðið
varir við neitt óeðlilegt. „Þetta er
eðli þessara bylgna; þær geta verið
litlar úti á rúmsjó, þar getur öldu-
hæðin verið aðeins hálfur metri, en
síðan magnast þær upp við strönd-
ina þegar hafdýpi minnkar,“ segir
Freysteinn. „Þannig getur risastór
flóðbylgja skollið á strönd án þess
að menn verði varir við hana á hafi
úti.
Það sem mér finnst áhugavert er
hraðinn, hvernig þær geta ferðast
yfir heilu heimshöfin á svipuðum
hraða og farþega þotur, allt að 7–
800 km hraða á klst. Það fer eftir
vatnsdýpi, þær fara hraðar eftir því
sem dýpið er meira. Síðan þegar
þær koma að ströndum hægir á
þeim, vatnsmassinn þjappast saman
og bylgjan rís.“
Freysteinn segir jarðfræðilegar
aðstæður fyrir hendi til að tsunami-
flóðbylgjur geti myndast á Norður-
Atlantshafi, en tíðni slíkra atburða
sé mjög lág. „E.t.v. má búast við
einum slíkum stórum atburði á tíu
til hundrað þúsund ára fresti,“ segir
Freysteinn. „Orsakir slíkra atburða
geta verið skriðuföll neðansjávar,
stórir fjarlægir jarðskjálftar og
hrun eldfjalla í Atlantshafi eins og
t.d. á Grænhöfða-, Kanarí- og Azor-
eyjum. Áætlaður endurkomutími
slíkra atburða er eins og áður segir
tíu til hundrað þúsund ár, en í ljósi
atburðanna í Indlandshafi verðum
við að endurmeta hættur af slíkum
atburðum.
Við fáum þó oft minni tsunami-
bylgjur, sem myndast við jarð-
skjálfta undan ströndum Íslands og
eldgos. Þannig er þekkt að í kjölfar
sumra Kötluhlaupa hefur myndast
flóðbylgja við suðurströnd Íslands.
Tvær tilgátur eru uppi um orsök
þeirra. Annars vegar sú að þegar
hlaupvatnið sjálft skellur á sjónum
ryðji það honum til og myndi bylgju,
sökum þess hversu eðlisþungt það
er. Hin tilgátan er sú að skriðuföll
verði á landgrunnsbrún suður af
landi þegar hlaupvatn nær þangað.“
Jarðvísindi | Málþing HÍ í Öskju um hættur á hafsbotni
Eðli, orsakir og viðbrögð könnuð
Morgunblaðið/Sverrir
Líkur á stórkostlegum hamförum eins og urðu við Indlandshaf eru litlar á
Norður-Atlantshafi, enda eru jarðfræðilegar aðstæður hér nokkuð aðrar.
RANNSÓKNASÝNING um þverfag-
legar rannsóknir í Reykholti verður
opnuð í Þjóðminjasafni Íslands í dag,
miðvikudag kl. 12.10. Reykholts-
verkefnið er samstarfsverkefni fjöl-
margra stofnana innanlands og utan
um sögu, náttúru, búskap, fornleifar
og bókmenntir í Reykholti.
Sýningin verður kynnt með fyrir-
lestrum tveggja fræðimanna og að
loknum erindum mun Margrét Hall-
grímsdóttir opna sýninguna og gest-
um verður boðið að skoða hana und-
ir leiðsögn sýningarhöfunda.
Fyrirlesarar eru Guðrún Gísla-
dóttir, dósent í landfræði við Há-
skóla Íslands, og Ian Simpson, pró-
fessor í jarðvegsfræðum við
háskólann í Sterling á Skotlandi.
Allir eru velkomnir. Gengið er inn
um aðalinngang Þjóðminjasafnsins.
Morgunblaðið/Golli
Reykholt,
búskapur
og umhverfi
Hlutavelta | Þessar ungu stúlkur
söfnuðu peningum fyrir Rauða kross
Íslands með því að vera með uppá-
komu fyrir utan Glerártorg á Akur-
eyri. Stelpurnar í fremstu röð; Klara
Margrét Gestsdóttir og Helena Hall-
dórsdóttir, sungu og dönsuðu fyrir
gesti verslunarmiðstöðvarinnar en hin-
ar tvær, Dagmey Björk Kristjáns-
dóttir og Katla Mjöll Gestsdóttir, leit-
uðu til fólks eftir fjárstuðningi. Alls
söfnuðu stelpurnar 3.061 krónu með
þessu uppátæki sínu.
Morgunblaðið/Kristján