Morgunblaðið - 04.02.2005, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 04.02.2005, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR MIKILVÆGT er fyrir stjórnvöld og þjóðfélagið í heild sinni að setja geð- heilbrigðisþjónustu við börn í algjör- an forgang. Sé það gert fæst nægt fjármagn til þjónustu færustu sérfræðinga og þannig tekst að koma í veg fyrir að börn með geðraskanir komist til fullorðinsára án nokkurrar með- ferðar eða hjálpar. Þetta var sá meg- inboðskapur sem norskur barna- og ung- lingageðlæknir, Lars Hammer, hafði fram að færa í erindi sem hann flutti í gær á fjöl- sóttri ráðstefnu um hegðunarvanda og geðraskanir barna og unglinga. Var ráð- stefnan haldin á Grand hóteli í Reykjavík á vegum Barnavernd- arstofu, BUGL, Miðstöðvar heilsu- verndar barna og Landlæknisemb- ættisins. Lars Hammer segir í samtali við Morgunblaðið að árið 2002 hafi norsk stjórnvöld tekið þá ákvörðun að bæta geðheilbrigðisþjónustu við börn og stórauka fjármagn til henn- ar árlega til ársins 2008, bæði frá ríki og sveitarfélögum. Fram að þessu hafi þessi fyrirætlan staðist og skilað verulegum árangri í þjónustu og meðferð á börnum með geðrask- anir og hegðunarvanda. Fleiri börn eru að fá greiningu og meðferð sér- fræðinga og mark- miðið hjá stjórnvöldum er að árið 2008 hafi 5% allra norskra barna fengið meðferð við hæfi.Hammer segir að þörfin fyrir þetta átak hafi verið gríðarleg. Talið sé að 10–15% barna í Noregi eigi við geðraskanir að stríða. Um miðjan síðasta ára- tug hafi tekist að með- höndla um 1,5% barna en á síðasta ári hafi hlutfallið verið komið í rúm 3%. Fimm pró- senta markinu verði vonandi náð árið 2008. Hann segir það hafa skipt sköpum að geð- heilbrigðisþjónustan í Noregi sé ókeypis, foreldrar og for- ráðamenn barna þurfi ekkert að greiða fyrir þjónustuna sem í boði er. Þannig takist að ná til barna frá fátækum heimilum, sem annars hlytu meiri skaða af ef fjárhagur heimilisins leyfði ekki læknisaðstoð. Hammer segir að þetta eigi íslensk stjórnvöld að taka til rækilegrar at- hugunar. Þetta sé í höndum stjórn- málamanna að ákveða, öðruvísi tak- ist ekki að hjálpa öllum börnum í þessum vanda. Grípa inn í sem fyrst Miðað við aukna lyfjaneyslu og fleiri greiningar hefur börnum með geðraskanir verið að fjölga hér á landi. Hammer segir svipaða þróun eiga sér stað í hinum vestræna heimi. Ástæður fyrir því séu margar og flóknar en örar þjóðfélagsbreyt- ingar, breyttir lífshættir og breytt fjölskyldumynstur ráði þar miklu. Víðast sé þróunin hins vegar sú sama, æ yngra og fleira fólk greinist með geðraskanir og geðsjúkdóma. Lars Hammer segir afar mik- ilvægt að grípa inn í aðstæður barnanna sem fyrst, áður en í óefni er komið hjá þeim sjálfum og kostn- aður samfélagsins eykst. Börnum með geðraskanir sé hættara við námserfiðleikum, þau séu líklegri til að neyta áfengis og fíkniefna á ung- lingsárum og leiðast út í glæpi. „Ef heilbrigðiskerfið grípur strax inn í með rétta meðferð getum við komið í veg fyrir mikinn skaða. Það er góð fjárfesting fyrir þjóðfélagið að leggja fjármagn í geðheilbrigð- isþjónustu við börn,“ segir Lars Hammer, sem telur sömuleiðis afar brýnt að verja auknu fé til rann- sókna í barnageðlækningum og hvernig bæta megi greiningu sjúk- dómanna, hvort sem það er í Noregi, á Íslandi eða víðar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Fullt hús var á ráðstefnunni í gær þar sem Lars Hammer ræddi stöðu barna með geðraskanir. Geðheilbrigðisþjónusta við börn fái forgang Aukið fé og ókeypis þjónusta skilar árangri í Noregi Lars Hammer hefur mikla reynslu af barna- geðlækningum og kennslu í þeim fræðum. EITT af hverjum tíu 5 ára börnum, eða 10,4%, er með einhvers konar geðraskanir ef marka má frumniður- stöður nýrrar rannsóknar sem kynnt var á ráðstefnu í gær um hegðunar- vanda og geðraskanir barna og ung- linga. Ólafur Ó. Guðmundsson, yfir- læknir á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans, BUGL, kynnti rann- sóknina sem hefur verið í gangi und- anfarin fimm ár á geðheilsu og þroska 5 ára barna. Ólafur lagði áherslu á að hér væri um frumniðurstöður að ræða úr af- mörkuðum hluta rannsóknarinnar og eftir væri að vinna betur úr henni, m.a. með tilliti til þroskaraskana barnanna, sem ætti eftir að vinna úr. Rannsóknin var unnin af tíu sér- fræðingum sem stofnuðu sjálfseign- arstofnunina Barnarannsóknir. Úr- takið var 318 börn sem tekin voru til fimm ára skoðunar í þremur heilsu- gæslustöðvum á höfuðborgarsvæð- inu. Af úrtakinu voru sem sagt 33 börn greind með geðraskanir af ýmsu tagi, m.a. með athyglisbrest, kvíða- raskanir, mótþróa, þunglyndi og áfallastreitu. Greindust allt að 27 teg- undir geðraskana. Ólafur sagði þessa niðurstöðu vera svipaða og nýleg rannsókn í Dan- mörku sýndi en tók dæmi af mun eldri rannsóknum á Íslandi, sem gerðar voru með öðrum aðferðum, en sýndu að allt að 20% íslenskra barna sýndu einkenni geðraskana. Algengt væri að erlendar rannsóknir á börn- um sýndu að 10-20% þeirra greindust með geðsjúkdóma af einhverju tagi. Úrtakið ekki stórt Tilgangur íslensku rannsóknarinn- ar var að auka þekkingu á heilsu og þroska 5 ára barna, þróa matstæki og aðferðir og kanna skilvirkni rann- sóknaraðferða. Ólafur sagði að taka bæri niðurstöðunum með þeim fyrir- vörum að úrtakið væri ekki stórt, börnin væru ung, þroskaraskanir væru ekki teknar með í reikninginn og líklegt að þau börn hefðu ekki tekið þátt í rannsókninni sem þegar hefðu verið greind með geðraskanir. Hér væri mikilvæg þekking sem þyrfti að nýta til frekari rannsókna. Frumniðurstöður nýrrar rannsóknar kynntar á ráðstefnu í gær 10,4% fimm ára barna með geðraskanir SAKBORNINGARNIR í Lands- símamálinu svokallaða, sem fengu fangelsisdóma á síðasta ári fyrir fjárdrátt, hlutdeildir og hylmingu, hafa verið ákærðir á nýjan leik fyrir skattsvik ásamt einum sakborningi sem ekki var ákærður í Landssíma- málinu. Þeir neituðu að mestu sök þegar ákæra á hendur þeim var þingfest fyrir Héraðsdómi Reykja- víkur í gær. Ákært er fyrir undanskot upp á rúmar 55 milljónir króna í tengslum við starfsemi fimm fyrirtækja sem öll voru úrskurðuð gjaldþrota á ár- unum 2002 og 2003. Eru það eign- arhaldsfélögin Lífstíll, Planet Reykjavík, Kaffi Le, Ísafoldarhúsið og Japis Stærstu sakirnar varða meint brot á lögum um virðisaukaskatt, en um er að ræða 10 milljóna króna vanskil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í nafni Japis á árunum 2000 og 2001. Ennfremur eru þeir sem voru ábyrgir fyrir rekstrinum ákærðir fyrir brot gegn lögum um stað- greiðslu opinberra gjalda með því að skjóta undan 12,5 milljónum króna. Sakaður um undanskot vegna reksturs Ísafoldarhússins Árni Þór Vigfússon og Kristján Ra. Kristjánsson eru ákærðir fyrir brot á lögum um virðisaukaskatt með því að skjóta undan 2,4 millj- ónum króna í rekstri Ísafoldarhúss- ins. Þá er Ragnar Orri Benediktsson ákærður fyrir sömu lagabrot ásamt Kristjáni Ra. og Árna Þór í tengslum við rekstur Kaffi Le og varða meint undanskot 6,2 milljónun kr. Þeim er einnig gefið að sök brot á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda upp á 2,8 milljónir kr. Þá er Kristján Ra. einn ákærður fyrir virðisaukaskattsvik vegna Líf- stíls upp á 6,6 milljónir kr. og 9,5 milljóna kr. undanskot í opinber gjöld. Er hann einnig ákærður fyrir sömu brot vegna reksturs Planet Reykjavík þar sem meint undanskot varða 3,4 milljónir kr. Við þingfestingu málsins tók Árni Þór sér frest til að tjá sig um sak- arefnið, en Kristján Ra. neitaði öllu nema virðisaukaskattsbroti upp á 6,6 milljónir kr. vegna Lífstíls. Hann lét þó bóka að skuldin hefði verið greidd að mestu eftir gjalddaga. Ragnar Orri neitaði öllum sökum og Sveinbjörn Kristjánsson, aðalsak- borningurinn í Landssímamálinu, neitaði einnig sök og lét bóka að greiðsla 6,2 milljóna kr. sem hann ásamt öðrum ákærðu sem tengjast Landssímamálinu, er sakaður um að stungið undan, hefði verið innt af hendi. Efnahagsbrotadeild ríkislögreglu- stjóra sækir málið og verður það næst tekið fyrir 2. mars. Neita sök í skatt- svikamáli upp á 55 milljónir kr. HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær konu seka um ákæru ríkissaksóknara, að hafa banað 11 ára gamalli dóttur sinni á heimili þeirra mæðgna á Hagamel í lok maí 2004 og veitt 15 ára syni sínum áverka með hnífi. Skal hún greiða honum 1,5 milljónir króna í skaða- bætur. Ákærða var metin ósakhæf og skal vistast á viðeigandi hæli sam- kvæmt 62. grein almennra hegning- arlaga. Áfrýjun dómsins til Hæsta- réttar frestar ekki framkvæmd hans. Ingveldur Einarsdóttir dæmdi málið, verjandi var Guðrún Sesselja Arnardóttir. Sækjandi var Kolbrún Sævarsdóttir frá ríkissaksóknara. Sakfelld fyrir að bana dóttur sinni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.