Morgunblaðið - 04.02.2005, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 04.02.2005, Blaðsíða 49
Jónatan Arnar Örlygsson og Hólmfríður Björnsdóttir unnu í báðum greinum ungmenna.Max Perov og Elísabet Sif Haraldsdóttir unnu í s-amerískum dönsum í flokki fullorðinna. Ádögunum fór fram bikarmót í línudönsum og samkvæm-isdönsum í Laugardalshöllinni og var keppt í línudöns-um og samkvæmisdönsum með frjálsri aðferð. Mótið hófst með keppni í línudönsum. Því miður voru einungis þrír hópar mættir til leiks og voru þeir af Akranesi. Að sögn Svan- hildar Sigurðardóttur danskennara „tókst sú keppni mjög vel og voru allir hóparnir mjög góðir“. Það er miður þegar boðið er upp á keppni að svo fáir sjái sér fært að vera með í mótinu. Von- andi rætist úr því á næsta móti línudansara. Þegar keppni í línudansinum var lokið var innmars keppenda og setti Birna Bjarnadóttir, formaður Dansíþróttasambands Íslands, mótið. Í samkvæmisdönsum var eins og fyrr er greint frá einungis keppt í dansi með frjálsri aðferð. Í keppni Unglinga I (12–13 ára) sigruðu þau Alex Freyr Gunnarsson og Ragna Björg Bernburg frá Dansdeild ÍR í s-amerísku dönsunum. Þau eru með mjög hreinar línur í dans- inum og góðan rytma í skrokknum. Í standarddönsunum höfðu Sigurður Már Atlason og Sara Rós Jakobsdóttir frá Dans- íþróttafélagi Hafnarfjarðar sigur. Þau voru eftir fyrstu úrslit með jafnmörg stig og Alex Freyr og Ragna en eftir að pörin voru látin keppa aftur sín á milli höfðu Sigurður Már og Sara Rós vinninginn. Þau mættu ákveðin til leiks og dönsuðu þann besta dans sem ég hef séð hjá þeim til þessa. Í flokki Unglinga II (14–15 ára) urðu bikarmeistarar í s-amerískum dönsum þau Aðalsteinn Kjartansson og Rakel Guðmundsdóttir frá Dansdeild ÍR. Þau eru nýlega farin að dansa saman og eiga örugglega eftir að láta að sér kveða í fram- tíðinni. Aðalsteinn hefur líkamsburði fram yfir hina drengina í hópnum og hefur þroskaðri hreyfingar. Í standarddönsum sigr- uðu þau Haukur Freyr Hafsteinsson og Denise Margrét Yaghi frá Dansíþróttafélaginu Hvönn. Mér fannst þau vera öruggir sigurvegarar í þessari keppni. Þau þurfa að vísu stundum að passa stöðuna og að losna ekki frá hvort öðru. Í flokki Ungmenna (16–18 ára) voru sigurvegarar í báðum greinum þau Jónatan Arnar Örlygsson og Hólmfríður Björns- dóttir frá Dansíþróttafélaginu Gulltoppi. Mér fannst þau vera nokkuð öruggir sigurvegarar í báðum greinum. Staðan hefur verið að batna og Jónatan hallar ekki eins mikið aftur og hann hefur gert í standarddönsunum. Í s-amerísku dönsunum sýndu þau mikið öryggi og þroska í hreyfingum. Í flokki Fullorðinna geta allir keppt sem eru orðnir 16 ára og kepptu sum pörin í tveimur aldursflokkum. Í s-amerísku döns- unum sigruðu örugglega þau Max Pedrov og Elísabet Sif Har- aldsdóttir frá Dansíþróttafélaginu Hvönn. Hann er frá Rúss- landi, nánar tiltekið frá Síberíu, og hafa þau dansað saman í tæpt ár. Þau eru okkar fremsta par í flokki Fullorðinna í s-amerískum dönsum og sýndu það og sönnuðu í þessari keppni. Í standarddönsum sigruðu þau Jónatan Arnar og Hólmfríður frá Gulltoppi. Í flokki Seniora (35 ára og eldri) keppti einungis eitt par í standarddönsum og það voru þau Björn Sveinsson og Bergþóra María Bergþórsdóttir frá Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar. Þau skiluðu sínu ágætlega en mér fannst aðeins vanta upp á yf- irferðina hjá þeim. Í s-amerísku dönsunum sigruðu þau Hauk- ur Eiríksson og Lizý Steinsdóttir, einnig frá Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar. Þau dönsuðu ljómandi vel og er komin meiri hreyfing í þau en ég hef séð áður. Það voru fjórir erlendir dómarar sem dæmdu mótið. Það voru þau Dorthe Sidenius frá Danmörku, Robert Bellinger frá Englandi, Jan-Andur Foss frá Noregi og Heinz Riehn frá Þýskalandi. Einnig dæmdu tveir íslenskir dómarar á mótinu, þeir Hinrik Norðfjörð Valsson sem dæmdi s-amerísku dansana og Jóhann Gunnar Arnarsson sem dæmdi standarddansana. Mótið gekk vel en því miður var þetta mjög fámenn keppni og þ.a.l. fáir áhorfendur. Þetta orsakaði það að ekki var mikil stemning í húsinu sem hefði verið skemmtilegra fyrir alla. Næsta mót verður næstkomandi helgi, þ.e. sunnudaginn 6. febrúar. Þá verður haldið í Laugardalshöllinni Íslandsmeist- aramót í dansi með frjálsri aðferð og keppni í grunnsporum. Ég hvet alla sem áhuga hafa á dansi að mæta í höllina og sjá dans- arana okkar. Úrslit keppninnar Unglingar I, standarddansar Sigurður Már Atlason og Sara Rós Jakobsdóttir, DÍH Alex Freyr Gunnarsson og Ragna Björg Bernburg, ÍR Sigtryggur Hauksson og Eyrún Stefánsdóttir,Gulltoppi Unglingar I, s-amerískir dansar Alex Freyr Gunnarsson og Ragna Björg Bernburg, ÍR Sigurður Már Atlason og Sara Rós Jakobsdóttir, DÍH Sigtryggur Hauksson og Eyrún Stefánsdóttir,Gulltoppi Unglingar II, standarddansar Haukur Freyr Hafsteinsson og Denise Margrét Yaghi, Hvönn Júlí Heiðar Halldórsson og Telma Rut Sigurðardóttir, DÍK Arnar Már Einarsson og Þórunn Anna Ólafsdóttir, DÍK Alexander Mateev og Erla Björg Kristjánsdóttir, ÍR Sigurður Brynjólfsson og Rakel Magnúsdóttir, DÍK Unglingar II, s-amerískir dansar Aðalsteinn Kjartansson og Rakel Guðmundsdóttir, ÍR Haukur Freyr Hafsteinsson og Denise Margrét Yaghi, Hvönn Alexander Mateev og Erla Björg Kristjánsdóttir, ÍR Magnús Arnar Kjartansson og Vala Björk Birgisdóttir, DÍK Júlí Heiðar Halldórsson og Telma Rut Sigurðardóttir, DÍK Arnar Már Einarsson og Þórunn Anna Ólafsdóttir, DÍK Gísli Bergur Sigurðsson og Elísa Rut Hallgrímsdóttir, Gulltoppi Ungmenni, standarddansar Jónatan Arnar Örlygsson og Hólmfríður Björnsdóttir, Gulltoppi Björn Ingi Pálsson og Ásta Björg Magnúsdóttir, DÍH Baldur Kári Eyjólfsson og Anna Kristín Vilbergsdóttir, ÍR Jón Eyþór Gottskálksson og Helga Soffía Guðjónsdóttir, ÍR Fannar Helgi Rúnarsson og Lilja Guðmundsdóttir, Gulltoppi Lárus Þór Jóhannsson og Sigrún Tinna Gunnarsdóttir, ÍR Ungmenni, s-amerískir dansar Jónatan Arnar Örlygsson og Hólmfríður Björnsdóttir, Gulltoppi Þorleifur Einarsson og Hanna Rún Óladóttir, Hvönn Björn Ingi Pálsson og Ásta Björg Magnúsdóttir, DÍH Jón Eyþór Gottskálksson og Helga Soffía Guðjónsdóttir, ÍR Baldur Kári Eyjólfsson og Anna Kristín Vilbergsdóttir, ÍR Fannar Helgi Rúnarsson og Lilja Guðmundsdóttir, Gulltoppi Fullorðnir, standarddansar Jónatan Arnar Örlygsson og Hólmfríður Björnsdóttir, Gulltoppi Fannar Helgi Rúnarsson og Lilja Guðmundsdóttir, Gulltoppi Fullorðnir, s-amerískir dansar Max Pedrov og Elísabet Sif Haraldsdóttir, Hvönn Jónatan Arnar Örlygsson og Hólmfríður Björnsdóttir, Gulltoppi Björn Ingi Pálsson og Ásta Björg Magnúsdóttir, DÍH Fannar Helgi Rúnarsson og Lilja Guðmundsdóttir, Gulltoppi Sigurður Þór Sigurðsson og Þóra Björg Sigurðardóttir, Gulltoppi Haukur Eiríksson og Lizý Steinsdóttir, DÍH Björn Sveinsson og Bergþóra María Bergþórsdóttir, DÍH Eggert Classen og Sigrún Kjartansdóttir, ÍR Seniorar, standarddansar Björn Sveinsson og Bergþóra María Bergþórsdóttir, DÍH Seniorar, s-amerískir dansar Haukur Eiríksson og Lizý Steinsdóttir, DÍH Björn Sveinsson og Bergþóra María Bergþórsdóttir, DÍH Eggert Classen og Sigrún Kjartansdóttir, ÍR Dansað með tilþrifum í Höllinni DANS Laugardalshöll BIKARMÓT DANSÍÞRÓTTASAMBANDS ÍSLANDS Kara Arngrímsdóttir Morgunblaðið/Jón Svavarsson MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2005 49
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.