Morgunblaðið - 04.02.2005, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 04.02.2005, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2005 43 MINNINGAR Fráfall ástvina kemur ávallt illa við eftirlifendur og vekja upp ljúf- ar og sárar minningar frá liðnum samverustundum. Þannig var til- finning mín við fréttina um óvænt andlát kærs vinar míns og mágs Stefáns Ólafssonar, sem varð bráð- kvaddur fimmtudaginn 22. þ.m. Að fráfall Stefáns hafi komið mér á óvart er ekki rétt því hann hafði átt við erfið veikindi að etja sem hann tókst á við af dæmalausri karlmennsku og æðruleysi. Stefán hafði til að bera glaðværð og létt- leika sem smám saman dvínaði hjá honum eftir því sem líkamlegir erf- iðleikar hans ágerðust. Áhuga á fagurri tónlist hlaut Stefán í vöggugjöf og vék hún aldrei frá honum hvað sem leið veikindum hans. Á unglingsárum stundaði Stefán nám í píanóleik við Tónlist- arskólann í Reykjavík undir hand- leiðslu Rögnvalds Sigurjónssonar, kom þar fram á tónleikum og lauk þaðan burtfararprófi. Stefán hefði auðveldlega getað lagt píanóleik- STEFÁN ÓLAFSSON ✝ Stefán Ólafssonfæddist á Bakkafirði í Norð- ur-Múlasýslu hinn 27. janúar 1929. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Grund 22. janúar síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Ólafur Stef- ánsson, organisti, f. 13. maí 1885, d. 6. nóvember 1969, og Arnbjörg Jónsdótt- ir, f. 7. des. 1900, d. 20. okt. 1961. Systir Stefáns, Áslaug Ólafsdóttir, hjúkrunarkona, er fædd 19. maí 1925. Stefán giftist 24. janúar 1959 eftirlifandi eiginkonu sinni, Þór- unni Egilson, f. 13. feb. 1926. Stefán var starfsmaður Veð- urstofu Íslands frá árinu 1950 við háloftaathuganir. Hann lauk prófi í píanóleik frá Tónlist- askóla Reykjavíkur árið 1971. Útför Stefáns var gerð í kyrr- þey. inn fyrir sig sem lífs- starf en hann valdi hins vegar að starfa við veðurfræði og réð sig til starfa hjá veð- urstofunni. Vann Stef- án þar á meðan starfs- kraftar leyfðu. Stefán var einstak- lega vandvirkur í hverju því sem hann tók sér fyrir hendur og bar handbragð hans fagurt vitni um alúðina sem hann lagði í viðfangsefnin og voru honum svo eðlislæg. Tæknileg viðfangsefni áttu hug hans allan og var hann óþreytandi í glímu við lausn slíkra mála, enda leitaði ég oft til hans með einföld- ustu vandamál sem hann leysti af sínum brennandi áhuga. Veikindi Stefáns lögðust þungt á Þórunni eiginkonu hans sem hún annaðist af einstakri alúð og kær- leika uns yfir lauk. Er henni sár söknuður einstaks ljúfmennis sem við kveðjum með þakklæti fyrir samfylgdina. Gunnar Egilson. Ég var unglingur og heimurinn stundum dálítið erfiður. Þetta vandamál kostaði gjarnan langan göngutúr. Fyrst niður í miðbæ, síðan kringum Tjörnina og að lok- um út í Örfirisey. Þá fyrst fór að svía örlítið. Þrátt fyrir enga nið- urstöðu að svo komnu máli var sjálfsagt að enda göngutúrinn hjá þeim Tótó og Stefáni og láta reyna á síðustu hugdettur. Stefán var hlýr og skemmtileg- ur, umburðarlyndur og dálítið stríðinn. Það var ekki til þægilegri maður til að hlusta með á músík. Þegar hann hlustaði þá hvarf hann einhvern veginn á vit tónlistarinn- ar. Það duldist engum að Stefán var í tengslum við sitt innra sjálf á þeim stundum. Á eftir sagði hann gjarnan: „Ansi gott.“ Eins og títt er með unglinga þá flokkaði ég fullorðið fólk í bása eft- ir afstöðu þess og lífsgildum. Það hvarflaði aldrei að mér að það skipti máli hvernig þetta fólk hefði orðið sér úti um þessi lífsviðhorf. Til þess var ég of upptekinn af minni eigin sögu sem var reyndar ekki byrjuð í alvörunni enn. Þann- ig urðu þau Tótó og Stefán að holdgervingum ákveðinna sjónar- miða sem ég frétti ekkert af ann- ars staðar. Tökum dæmi: Þau héldu því fram að það skipti engu máli hvað maður gerði, heldur hvernig. Þetta hafði ég að vísu les- ið hjá Halldóri Laxness. Þetta er góð teóría ef maður þarf ekki að fara eftir henni sjálfur. Þau voru fyrsta fólkið sem ég hitti sem lifði alfarið eftir henni. Fyrir þeim var hversdagurinn hátíðin. Þetta var annar punktur sem stóð örlítið í mér. Í hjarta mínu efaðist ég sjaldan um þau viðhorf sem ég heyrði hjá þeim Stefáni og móðursystur minni. Ég tók þau gild án þess að fara allaf eftir þeim. Skilningur á gildi þeirra kom löngu seinna. Ég vissi harla fátt um þennan mann sem ég treysti svona for- takslaust fyrir áhugamálum mín- um og áhyggjum. Hvers vegna spilaði hann aldrei á píanóið sitt? Pabbi sagði að hann hefði verið góður nemandi. Hvaðan kom hon- um öll þessi kunnátta í sagnfræði? Var maðurinn svona trúaður? Stef- án var hafsjór af fróðleik um óskylda hluti. Þannig var það bara og ég vissi heldur aldrei hvers vegna. Hann var einn af þeim sem vissu eiginlega allt um klassíska tónlist og þannig var nú bara það. Það sem mig undrar þó mest í dag er allt það umburðarlyndi sem hann hafði við málæðið og allar vangaveltur unglingsins. Ég varð fullorðinn sjálfur og fundir okkar urðu strjálli. Ég þurfti ekki eins mikið á þeim að halda. Þó var eins og tíminn hefði staðið í stað rétt á meðan, hvenær sem þráðurinn var tekinn upp að nýju. Enn áttum við sameiginlegt áhugamál sem vert var að ræða eða trúna. Enn og aftur kom þessi maður mér á óvart með þekkingu sinni og hógværð. Fyrir allt þetta er ég Stefáni þakklátur. Ómeðvitaða handleiðslu og hlýju. Hafðu heila þökk. Við Guðlaug vottum Tótó og öðr- um aðstandendum samúð okkar. Geir Rögnvaldsson. Enn hefur dauðinn höggvið skarð í hóp- inn okkar frá Dag- verðará, nú er það hún Rósa. Hún var í miðið af okk- ur alsystkinunum sjö og það var eins og hjá henni væri miðstöð ættingjanna. Milli okkar var alltaf náið samband þó lengst af byggj- um við hvor á sínu landshorninu. Hjá henni áttum ég og fjölskylda mín alltaf vísan samastað þó að heimilisfólkið væri þar margt og mikill gestagangur. Já, minningarnar, þær eru ótelj- andi. Allt frá því ég man fyrst eftir mér og til hinsta dags hennar hér á jörð þegar ég heimsótti hana í síðasta sinn. Hún fór ung að heiman og mér var það mikið ævintýri þegar hún flutti aftur heim að Dagverðará ásamt Gilla og henni Guðnýju litlu, þar bjuggu þau í nokkur ár. Það var alltaf gaman þegar þau komu í heimsókn til okkar í Reyk- hólasveitina með allan barnaskar- INGA RÓSA HALLGRÍMSDÓTTIR ✝ Inga Rósa Hall-grímsdóttir fæddist á Dagverð- ará á Snæfellsnesi 9. október 1936. Hún andaðist að heimili sínu í Kópavogi mið- vikudaginn 29. des- ember síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Kópavogs- kirkju 5. janúar. ann. Þá fórum við oft saman í ferðir um ná- grennið og svo var sungið og spilað og spjallað á kvöldin. Börnin hennar voru heldur ekki gömul þegar þau fóru að vera hjá okkur um tíma í sveitinni. Eftir að við fluttum til Reykjavíkur kom- um við okkur upp litlu húsi á Dagverðará. Þær eru margar ferð- irnar sem hún Rósa fór með okkur þang- að. Eftir að Manni dó fórum við stundum tvær einar og dvöldum í nokkra daga. Vorum bara í róleg- heitum, kíktum í kaffi til frænd- fólksins í kring og nutum þess að vera til í þessu stórkostlega um- hverfi. Það er ógleymanleg ferðin sem hún dreif mig í með sér til Kaup- mannahafnar sumarið eftir að Manni dó. Þar vorum við í mánuð í góðu yfirlæti hjá Lillu dóttur hennar. En nú verða ekki farnar fleiri ferðir saman eða sungið og spjall- að í þessu lífi. Hún greindist með krabbamein í haust sem ekkert var hægt að gera við. Rósa var hetja og lét engan bilbug á sér finna. Fólkið hennar annaðist hana af mikilli umhyggju og ástúð svo hún gat verið heima þar til yfir lauk eins og hún helst vildi, fyrir það verður aldrei fullþakkað. Það er öruggt að ég og mitt fólk munum sakna hennar sárt. Megi sá sem öllu ræður sefa sorg ástvina hennar og minning- arnar ylja um ókomna tíð. Aðalheiður Hallgrímsdóttir. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, ÞÓRA FRIÐJÓNSDÓTTIR, Sauðármýri, Sauðárkróki, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri föstu- daginn 28. janúar. Útför hennar fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 5. febrúar kl. 14.00 Friðrik Jón Jónsson, Rósa F. Eiríksdóttir, Ingi Friðbjörnsson, Jón E. Friðriksson, Linda N. Haraldsdóttir, Ólafur E. Friðriksson, Sigurjóna Skarphéðinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Faðir okkar, afi og bróðir, HANNES GESTUR SIGURBJÖRNSSON, Auðbrekku 12, Húsavík, sem lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga þriðjudaginn 25. janúar, verður jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 5. febrúar kl. 14. Særún Hannesdóttir, Júlíana Sigríður Hannesdóttir, Sesselja Karitas Óladóttir, Margrét Júlía Óladóttir og systkini hins látna. REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka GUÐBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR frá Stóru-Drageyri, Grettisgötu 26 lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli aðfaranótt 1. febrúar. Útför hennar verður gerð frá Fossvogskirkju mánudaginn 7. febrúar kl. 15,00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á líknarstofnanir. Þuríður Guðmundsdóttir, Halldóra Guðmundsdóttir, Vernharður Guðmundsson, Lydia Thjell, Kristófer Guðmundsson, Hlíf Traustadóttir, Guðmundur Kristjánsson, Helga Zoëga, Edda Alexandersdóttir og fjölskyldur. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ELÍSABETAR KRISTJÁNSDÓTTUR, Hrepphólum, Hrunamannahreppi. Elín Jónsdóttir, Ámundi Elísson, Sigurður Jónsson, Guðrún Sólveig Guðmundsdóttir, Stefán Jónsson, Katrín Ólafsdóttir, Guðjón Jónsson, Guðmunda Ólafsdóttir, Kristján Jónsson, Ásta Gottskálksdóttir, Gunnar Jónsson, Sigríður Karlsdóttir, Sólveig Jónsdóttir, Ake Jonsson, Anna Jónsdóttir, Sigurður Kristinsson, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við and- lát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, SÓLEYJAR MAGNÚSDÓTTUR, Skólastíg 9, Bolungarvík. Hávarður Olgeirsson, Erna Hávarðardóttir, Finnbogi Jakobsson, Sveinfríður Hávarðardóttir, Hildur Hávarðardóttir, Hreinn Eggertsson, Ingunn Hávarðardóttir, Olgeir Hávarðarson, Stefanía Birgisdóttir, Magnús Hávarðarson, Guðný Sóley Kristinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.