Morgunblaðið - 04.02.2005, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2005 53
MENNING
Frumsýning 11. febrúar – UPPSELT
2. sýning 13. febrúar kl. 19.00 – ÖRFÁ SÆTI LAUS
3. sýning 18. febrúar kl. 20.00 – ÖRFÁ SÆTI LAUS
4. sýning 20. febrúar kl. 19.00 – NOKKUR SÆTI LAUS
5. sýning 25. febrúar kl. 20.00
Miðasala á netinu: www.opera.is
og í síma: 511 4200
- Tilfinningarík og töfrandi
Slæmt er gott.
Norður
♠ÁD6
♥ÁD9 A/Allir
♦974
♣Á643
Vestur Austur
♠2 ♠KG108753
♥G1082 ♥75
♦D108 ♦G632
♣G9875 ♣--
Suður
♠94
♥K643
♦ÁK5
♣KD102
Vestur Norður Austur Suður
-- -- 3 spaðar Dobl
Pass 4 spaðar Pass 5 lauf
Pass 6 lauf Allir pass
Hindrunaropnun austurs á þremur
spöðum hálfpartinn ýtir NS upp í af-
leita slemmu. Vestur kemur út með
einspilið í spaða og við sagnhafa blasir
heldur dökk mynd, því hann býst við að
gefa slag á spaða og sennilega annan á
tígul. En lengi getur vont versnað –
hann drepur á spaðaás, spilar laufþristi
úr borði og þá hendir austur spaða.
Það var og. Er einhver von?
Fyrstu viðbrögðin eru þau að nú sé
allt glatað. En ekkert er sjálfgefið við
spilaborðið og stundum er það gott að
legan sé „vond“. Kannski má gera sér
mat úr hinni slæmu tromplegu. Suður
tekur á laufkónginn og íhugar málið.
Sjáum til. Ef vestur á G10xx í hjarta,
má fá þar fjóra slagi með djúpsvíningu,
henda tígli niður í hjartakóng, taka ÁK
í tígli og trompa tígul. Ef vestur fylgir
þrisvar í tígli, er hægt að berhátta
hann til hliðar og spila spaða. Vestur
verður að trompa spaðaslaginn af
makker sínum og spila laufi upp í gaff-
alinn. Þetta gæti gengið.
Og þá er að láta á það reyna. Fara
heim á tígulás, spila hjarta á níuna,
taka ÁD í hjarta, heim á tígulkóng,
henda tígli í hjartakóng, trompa tígul,
halla sér aftur í sætinu og spila spaða.
Yndislegt.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Bingó kl. 14, ýmsar
uppákomur eru á föstudögum, bað-
stofan er opin alla morgna frá kl. 9.
Árskógar 4 | Handavinna kl. 9–12.
Smíðar/útskurður kl. 13–16.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, böðun, fótaaðgerð, frjálst að
spila í sal.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé-
lagsvist er spiluð kl. 20.30 í Gjábakka.
Brids í Gjábakka kl. 13.15.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Gleði-
gjafarnir syngja í Gullsmára kl. 14–15.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Slök-
unarjóga og teygjur kl. 10.30 og 11.30.
Félagsvist í Garðabergi kl. 13 FEBG.
Garðaberg er opið alla daga kl. 12.30–
16.30 nema þriðjudaga þá er lokað.
Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustofan
kl. 9–16, létt ganga kl. 10.30, spilasalur
opinn frá hádegi. Skráning í leikhúsferð
11.2. á Híbýli vindanna í Borgarleikhús-
inu stendur yfir. Uppl. í s. 575 7720, á
staðnum og www gerduberg.is.
Hraunbær 105 | Kl. 9 almenn handa-
vinna, útskurður og hárgreiðsla, kl. 10
fótaaðgerð, kl. 12 hádegismatur, kl. 14
bingó, kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb, prjónastund og
kaffi frá kl. 9, brids kl. 13, boccia kl.
13.30. Greiða verður staðfesting-
argjaldið á Örkina í dag kl. 13–16.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa –
frjáls aðgangur, postulínsmálning. Böð-
un virka daga f. hádegi. Fótaaðgerðir –
hárnsyrting. Minnum á þorrablótið,
húsið opnað kl. 18. matur, söngur, glens
og gaman.
Hæðargarður 31 | Listasmiðja og Betri
stofa kl. 9–16. Myndlist og frjálst hand-
verk. Gönuhlaup kl. 9.30, brids kl. 13.30.
Þorrablótið hefst með fordrykkju og
opnun myndlistarsýningar úr Lista-
smiðju kl. 17. M.a. annarra skemmti-
atriða Sigrún Hjálmtýsdóttir og Guðný
Anna Guðmundsdóttir. S. 568 3132.
Norðurbrún 1, | Kl. 9–12 myndlist, kl. 9
opin hárgreiðlustofa kl. 10 boccia, kl. 14
leikfimi.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, kl. 9.15–14.30 hannyrðir,
kl. 13.30 sungið við flygilinn við undir-
leik Sigurbjargar, kl. 14.30–16 dansað
við lagaval Sigvalda. Rjómabollur í
kaffitímanum. Uppselt er á þorrablótið
11. febrúar, vinsamlegast sækið frá-
tekna miða fyrir þriðjudaginn 8. febr-
úar. Upplýsingar í síma 535–2740.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.45, leirmótun og hárgreiðsla kl. 9,
morgunstund og fótaaðgerð kl. 9.30,
leikfimi kl. 10, bingó kl. 13.30. Skráning
hafin í námskeiðin upplýsingar í síma
561 0300. Allir aldurshópar velkomnir.
Kirkjustarf
Hallgrímskirkja | Starf með öldruðum
alla þriðjudaga og föstudaga kl. 11–15.
Leikfimi, súpa, kaffi og spjall.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Sam-
koma kl. 19.30. Bænastund kl. 19. Kári
Óskar Sverrisson talar, Þóra Gísladóttir
leiðir lofgjörð. Allir velkomnir.
Kirkjuskólinn í Mýrdal | Samvera
kirkjuskólans n.k. laugardag í Vík-
urskóla kl. 11.15–12. Nýjar bækur og
myndir. Rebbi refur og fleiri brúður
heimsækja brúðuleikhúsið. Biblíusögur,
söngur og litastund.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
TVENNIR tónleikar
verða á Myrkum mús-
íkdögum í dag.
Á fyrri tónleikunum,
sem haldnir verða í
Salnum kl. 20, verða
flutt þrjú víðóma raf-
verk sem eru pöntuð af
NOMUS í samvinnu við
VICC sem er alþjóðlega
tónskáldasetrið á Got-
landi í Svíþjóð.
Á seinni tónleikum,
sem hefjast kl. 22 í Saln-
um, mun Áshildur Har-
aldsdóttir flautuleikari
flytja verk fyrir einleiks-
flautu eftir Atla Heimi
Sveinsson, Magnús Blöndal Jóhanns-
son og Kaare Dyvik Husby frá Nor-
egi. Anna Guðný Guðmundsdóttir
leikur með á píanó.
Verk Atla Heimis, Sónata fyrir
flautu og píanó, var samið á síðasta
ári og er nú frumflutt. Um verkið seg-
ir Atli Heimir:
„Þetta verk er samið fyrir snilling-
inn Áshildi Haraldsdóttur. Sónatan
er í sjö þáttum og eftirmáli fylgir. Ég
hef alltaf reynt að semja nútíma-
tónlist sem hljómar ekki eins og nú-
tíma-tónlist. Ég vil ekki fara alfara-
leiðir. Fyrsti þáttur er kröftug
framsaga. Ég vinn ekki úr neinu
tónaefni, sennilega sem
ég heldur ekki vel.
(Hvað er annars „vel
samin“ músík? Fágað
andleysi eða rudda-
skapur í sellófan-
umbúðum?) En annar
þátturinn er einhæft
lag, leikið tjáning-
arlaust, samt þónokkur
stígandi. Þriðji þátt-
urinn er tilvilj-
anatónlist í samspili.
Flauta og píanó byrja
saman en spila sjálf-
stætt til enda. Fjórði
þáttur er hægur: eins
konar þjóðlag-tríó-
þjóðlag. Það eru ekki til mörg þjóðlög
í þessum heimi; kannski fimm!
Fimmti þáttur er vélrænn dansþáttur
einhvers konar bræðingur. Kannski
er aðeins til einn danstaktur í öllum
heiminum. Og sá sjötti er aftur tilvilj-
anamúsík eins og sá þriðji. Sjöundi
þátturinn er mjög hröð síbylja. Þar er
sífellt vitnað í etýðu Skríjbíns ópus 56
númer 4, villst út út henni, dottið inn í
hana aftur. Svo birtist allt í einu ein-
hvers konar tríó og svo etýðan aftur.
Í lokin kemur svo efirmáli, der Dicht-
er spricht eða Skáldið talar að hætti
Schumanns. Ég er með fleiri sónötur
í takinu, fyrir fiðlu, selló og klarinett.“
Tónlist | Tvennir tónleikar á Myrkum
músíkdögum í Salnum í Kópavogi
„Vil ekki fara
alfaraleiðir“
Atli Heimir Sveinsson
Áshildur Haraldsdóttir, flauta, og Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó.
DAGBÓK
SÝNING á verkum Óla G. Jóhannssonar myndlist-
armanns, verður opnuð á Kaffi Sóloni á morgun kl.
17 og stendur til 5. mars.
Verk Óla G. eru óhlutbundin, vísa í nánasta um-
hverfi listamannsins og eru unnin á liðnu ári. „Ég
hef sótt síðustu misserin töluvert mikið í birtu og
gróður, í landið,“ segir Óli. „Eins gamaldags eins og
hægt er að hafa það. Það er ekki að bögglast neitt í
hausnum á mér eitthvað svona nútímalegt og ung-
æðislegt, heldur vinn ég bara í strangri hefð af-
straktmálverksins með þá von og vissu að þar séu
persónulegir hlutir á ferðinni.“
Óli hélt sína fyrstu sýningu 1973 og hefur síðan
sýnt reglulega, jafnt hér á landi og í Danmörku,
Sviss og Hollandi hin síðari ár. Stíll Óla hefur þróast
jafnt og þétt á löngum ferli. „Síðustu tólf árin hef ég
eingöngu unnið við málverk,“ segir Óli. „Á þessu
tímabili hefur þetta þróast mikið. Myndmálið er annað, því þetta hefur slegist frá raunsæismálverki alveg yfir í af-
strakt expressjónísk málverk. Þar sem ég hef komið við í Danmörku, Hollandi og Sviss hefur málverkið fundið mér
stað í hópi manna sem eru að mála á þennan hátt. Þar má telja Færeyingana og COBRA hópinn, meðal annarra.“
Aðspurður um ástæður þess að hann sýnir á Sóloni segir Óli mikilvægt að listamenn minni á sig og komi til fólksins
þar sem það er á ferð.
Óli G. Jóhannsson sýnir á Sóloni
Óli G. Jóhannsson myndlistarmaður við nokkur verka sinna.
Morgunblaðið/Kristján
þessu námskeiði. Þeir mæta báðir öll
kvöldin og skipta með sér verkum.
Arkitektúr og hönnun – Frá seinni
heimsstyrjöld til samtímans er í um-
sjón Tinnu Gunnarsdóttur iðnhönn-
uðar.
Fyrirlesarar á námskeiðinu verða
m.a. auk Tinnu Pétur H. Ármannsson
arkitekt, Elísabet V. Ingvarsdóttir
innanhúshönnuður, Steinunn Sigurð-
ardóttir textílhönnuður, Guðmundur
Oddur Magnússon, grafískur hönn-
uður og prófessor við LHÍ, og Guja
Dögg Hauksdóttir arkitekt.
Námskeiðið hefst miðvikudaginn 9.
febrúar og síðan alla miðvikudaga til
30. mars. Kennsla fer fram milli kl.
20.15 og 22.00 í stofu 024 á Laug-
arnesvegi 91.
Þátttökugjald í námskeiðin er kr.
14.000. Hægt er að skrá sig og fá allar
nánari upplýsingar um bæði nám-
skeiðin í síma 552 4000. Einnig er
hægt að skrá sig á netfangi: lhi@lhi.is
LISTAHÁSKÓLI Íslands heldur tvö
námskeið í vor undir merkjum Opna
listaháskólans. Annars vegar nám-
skeiðið „Tíðarandi í hönnun og tísku,“
og hins vegar námskeiðið „Arkitektúr
og hönnun – Frá seinni heimsstyrjöld
til samtímans.“
„Tíðarandi í hönnun og tísku“ verð-
ur haldið á mánudagskvöldum 21.
febrúar – 21. mars. kl. 20.15–22.00 í
stofu 105 í Skipholti 1. Þar verður
fjallað um sögu myndmáls í hönnun,
auglýsingum, markaði, arkitektúr,
tísku og húsgögnum á seinni hluta 20.
aldar. Hver áratugur er tekinn fyrir
og skoðað hvaðan hlutirnir koma,
hvernig þeir hafa áhrif hver á annan.
Myndmál, hönnun og tíska skoðuð í
samhengi við þróun rokktónlistar o.fl.
Halldór Gíslason, arkitekt og deild-
arforseti hönnunardeildar LHÍ, og
Guðmundur Oddur Magnússon, graf-
ískur hönnuður og prófessor við LHÍ,
eru umsjónarmenn og fyrirlesarar á
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Námskeið í Opna
listaháskólanum