Morgunblaðið - 04.02.2005, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 04.02.2005, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2005 55 MENNING ... og mundu eftir ostinum! Fjölþjóðadansher stígur ásvið á Nýja sviði Borgar-leikhússins í kvöld þegarverkið We are all Marlene Dietrich FOR verður frumsýnt. „Hugmyndin er að búa til skemmtun fyrir hermenn í friðargæslu. Nafnið vísar til þess að innblásturinn kom í fyrstu frá Marlene Dietrich og stöðu hennar sem skemmtikrafts í stríð- inu. Hún var ein af dáðustu skemmtikröftunum sem hermenn hittu og var dýrkuð í báðum fylk- ingum, þó að hún hafi verið á móti nasisma,“ segir Erna Ómarsdóttir, sem dansar í verkinu auk þess að vera höfundur þess og leikstjóri ásamt hinum slóvenska Emil Hrvat- in. „Þetta sýnir hvernig skemmti- kraftur getur ekki valið áhorfendur sína eða ráðið því hvernig áhorfend- urnir túlka list hans. Þetta er eitt af því sem við erum að takast á við. Við hugsum um þarfir áhorfandans, hvað vilja þeir sjá og hvað viljum við gefa þeim. Þetta snýst mikið um samskipti listamanna og áhorfenda,“ segir Erna og bætir við að ímynduðu áhorfendurnir, friðargæsluliðarnir, sé líka áhugaverður hópur. „Þetta er fólk sem er í öfgafullum aðstæðum.“ Verkið er samvinnuverkefni Ís- lenska dansflokksins og Maska Productions í Ljubljana í Slóveníu og er hluti af stóru átta þjóða evr- ópsku samstarfi sem dansflokkurinn tekur þátt um þessar mundir og er styrkt af menningaráætlun Evrópu- sambandsins Culture 2000. Til viðbótar við Íslendinga og Slóvena tekur þátt í verkefninu fólk af frönskum og belgískum uppruna. Emil útskýrir að friðargæsluliðar séu alltaf alþjóðlegur hópur og því svipar hópnum, sem setur upp þessa sýningu, til hermannanna. Tekist á við klisjurnar Emil tekur við af Ernu að útskýra umfjöllunarefni verksins og titilinn, sem vissulega er sérstakur. FOR felur í sér að minnsta kosti tvær þýðingar. „Þetta er stytting á „for- ces“. Mikið af friðargæsluverkefnum hafa þessa endingu í nafni sínu. Hitt sem er mikilvægt er að við erum að gera eitthvað fyrir fólk. List er í grunninn á móti, stríði, her, her- mönnum. Við erum að reyna að gera eitthvað fyrir einhvern. Mér finnst það klisja að listamenn séu á móti stríði. Það er líka þægilegt vegna þess að fjarlægðin er mikil. Mér finnst áhugaverðara og áhættusam- ara að fara inn í hlutinn. Við vildum takast á við þessa klisju um að list sé á móti heldur viljum að list sé með,“ segir Emil en það er ekki tilviljun að verkið er hugsað með friðargæslu- hermenn í huga. „Þetta eru her- menn sem berjast ekki heldur fara á stríðssvæði til að aðskilja. Þessir hermenn þurfa að geta meira en barist og þurfa líka að hafa dipló- matíska hæfileika og þekkingu á tungumálum og menningu.“ Emil vill bjóða hermönnunum upp á nútímalega skemmtun, ekki ódýra og einfalda. „Af hverju ætti þetta fólk ekki að fá skemmtun sem vekur upp spurningar?“ Skemmtun og meiri skemmtun „Í sýningunni notum við samt þessi hefðbundnari skemmtiatriði eins og maður sér í myndum um skemmtun fyrir hermenn. Við reyn- um að setja okkar eigin mark á þetta. Þetta byrjar eins og hefð- bundið skemmtiatriði og verður svo að einhverju öðru,“ útskýrir Erna. „Þetta er sýning í sýningu. Fólkið sem kemur sér sýninguna fyrir her- mennina,“ segir hún en bæði Erna og Emil hvetja fólk sem hefur tekið þátt í friðargæslu fyrir Ísland að mæta á sýninguna. Mikilvægt við sýninguna er að hún er blanda af dansi, leiklist og tónlist og segja þau að það sé ým- islegt á því að græða að blanda þess- um miðlum saman. „Þetta er flókn- ara en að vinna með einn miðil en að lokum fær maður meira út úr því. Tónlistarmennirnir eru líka að dansa. Allir taka þátt í sýningunni. Jafnvel hljóðmaðurinn er með í sýn- ingunni,“ segir Erna og þau eru sammála um að ein hreyfing geti oft jafngilt löngum texta. „Í þessu tilfelli vinna miðlarnir vel saman. Í öðrum tilfellum getur verið betra að notast bara við dans. En af því að við erum að leggja áherslu á skemmtiatriði þá þurfum við að blanda öllum þáttunum saman,“ seg- ir hún. Talað á ensku Talað mál í sýningunni er á ensku, sem kemur ekki á óvart í ljósi þess að hópurinn er alþjóðlegur og er að fara að sýna í átta borgum Evrópu, m.a. Avignon, Ljubljana, London, Brussel og Helsinki. „Það verður spennandi að sjá mismunandi við- brögð fólks á þessum stöðum,“ segir Erna. Verkið er ekki ákveðin gagnrýni eða felur í sér ein ákveðin skilaboð enda er þetta eins og komið hefur fram ekki hreinræktuð stríðsádeila heldur endurspeglun listamannsins á stöðu hans í samfélaginu. „Við er- um í höndum áhorfenda. Það er mik- ilvægt að áhorfendur geri sér grein fyrir því að þeir séu ábyrgir,“ segir Emil en þau vilja líka minna fólk á að aðalatriðið sé að mæta og njóta sýn- ingarinnar. Erna þekkir vel til samvinnuverk- efna af þessu tagi en þetta er í fyrsta skipti sem hún vinnur með Íslenska dansflokknum, sem útvegar meiri- hluta dansara í sýningunni. „Ég held að það sé mjög heilbrigt fyrir alla, ekki síst flokkinn, að vinna með fólki erlendis frá. Þarna eru tveir dans- arar frá Frakklandi og tónlist- armennirnir þrír eru frá Belgíu. Þetta er búið að vera bæði erfiðara og áhugaverðara en ég hélt. Ég er mjög ánægð með ferlið. Fólk kemur úr mismunandi áttum með mismun- andi reynslu en þetta er mjög góður hópur,“ segir Erna en belgíska hljómsveitin ber nafnið Poni. Áskorun og einbeiting „Þetta hefur líka verið skemmti- leg reynsla fyrir mig. Stundum er það of auðvelt að vinna í umhverfi sem er með ákveðnum hætti og mað- ur þekkir allar ástæður. Þetta er mikil áskorun. Maður verður að vera mjög einbeittur allan tímann,“ segir Emil. Þau segja að tímaskortur hafi ver- ið það erfiðasta við uppsetninguna en þau unnu í þrjár vikur saman í Ljubljana og mánuð hérlendis. „Það er ekki auðvelt þegar maður er að skapa verk frá grunni. Þegar við fór- um af stað er hugmyndin það eina sem var til en við sköpum þetta með hópnum,“ segir Erna en búið er að skera sýninguna niður úr tveimur klukkutímum eins og hún var fyrir viku í eina klukkustund og 20 mín- útur. „Svona ætti list að vera. Í hagkerfi er búin til vara og hún sett á hillu og hún seld. List ætti ekki að vera vara sem er seld eins og mjólk eða bíll. Sýning er lifandi hlutur og byggð á fólki. Það er mikilvægt,“ segir Emil. „Ferlið er mjög spennandi þó að auðvitað séu sýningarnar þær líka. Maður lærir mikið á ferlinu, prófar sig áfram og tekst á við nýjar áskor- anir,“ segir Erna og heldur áfram: „Ég vinn alltaf eins og þetta, skapa mín eigin verk og verkin eru oft mjög persónuleg. Hlutirnir þurfa ekki að þýða það sama fyrir öllum. Fólki er frjálst að túlka þetta eins og það vill. Ég vona bara að sýningin hreyfi við fólki.“ Morgunblaðið/Golli Hefðbundin hermannaskemmtun tekin skrefinu lengra svo minnir á súrrealískt kabarettatriði. Erna fer í kúrekastígvél og sýnir að dansarar geta líka rokkað. Hugsum um þarfir áhorfandans Erna Ómarsdóttir og Emil Hrvatin sköpuðu We are all Marlene Dietrich FOR frá grunni og sögðu Ingu Rún Sigurðardóttur frá þessu verki sem inniheldur kraftmikla tón-, dans- og leiklist. Verkið We are all Marlene Dietrich FOR er frumsýnt í kvöld á Nýja sviði Borgarleikhússins. Aðrar sýningar eru 6., 9., 10. og 11. febr- úar. www.borgarleikhus.is www.id.is ingarun@mbl.is Listdans | Nýtt dansverk eftir Ernu Ómarsdóttur og Emil Hrvatin frumsýnt í Borgarleikhúsinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.