Morgunblaðið - 04.02.2005, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 04.02.2005, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2005 15 ÚR VERINU DJÚPAVOGSHREPPUR hefur keypt þrotabú fiskimjölsverksmiðj- unnar Gautavíkur af Íslandsbanka. Stefnt er að því að koma verksmiðj- unni í gang á næstu dögum og hefja loðnubræðslu. Gert er ráð fyrir því að hreppurinn stofni einkahlutafélag um rekstur verksmiðjunnar. Rætt hefur verið við hugsanlega sam- starfsaðila, en ekkert liggur fyrir í þeim efnum. Björn Hafþór Guðmundsson sveit- arstjóri segir að nauðsynlegt hafi verið að grípa til aðgerða til að hreppurinn kæmist í þá aðstöðu að geta ráðið því hver framvindan yrði, enda skipti verksmiðjan miklu máli fyrir atvinnulífið á staðnum og af- komu hreppsins. Takist að koma verksmiðjunni í gang á næstu dögum og hefja bræðslu á vöktum, geti um 10 manns fengið þar vinnu. Verksmiðjunni var lokað síðastlið- ið vor og leiddi það til töluverðs tekjutaps fyrir hreppinn, einkum í formi hafnargjalda, sölu vatns og fleiri þátta. Björn Hafþór segir að nú sé lag til að endurheimta þessar tekjur og styrkja hreppinn. „Við ætlum okkur að ná í sporðinn á loðnunni og svo kemur til greina að taka þátt í loðnufrystingu og hrogna- töku þegar þar að kemur. Við erum hæfilega bjartsýnir, tökum eitt skref í einu, en ætlum okkur samt að vinna hratt,“ segir Björn Hafþór Guð- mundsson. Fjárhagsleg áhætta ekki umtalsverð Sveitarstjórn Djúpavogshrepps fundaði um þetta mál annan febrúar og kemur fram í fundargerð að frest- ur til aðgerða hafi verið að renna út og hætta á að eignirnar lentu í hönd- um aðila með önnur markmið en að reka þær áfram, a.m.k. til lengri tíma litið. Því hefði orðið að láta á það reyna til þrautar með frumkvæði sveitarfélagsins að skapa aðstæður fyrir áframhaldandi rekstur fiski- mjölsverksmiðju á Djúpavogi, enda væri hún landfræðilega séð sú bezt staðsetta á landinu, auk t.d. nálægð- ar við veiðisvæði erlendra skipa í uppsjávarfiski. Af þessum sökum hefði Íslandsbanka verið gert tilboð í eignirnar þriðjudaginn 1. feb. 2005 í nafni óstofnaðs félags. Því tilboði, bæði fjárhæð og greiðslufyrirkomu- lagi, hefði nú verið tekið. Fjárhags- leg áhætta ætti ekki að vera umtals- verð, því leiða mætti traust rök að því að verðmæti eignanna gæti stað- ið undir kaupverði, auk þess sem aukin umsvif í verksmiðjunni og við höfnina myndu bæta bæði hag hafn- arsjóðs og sveitarsjóðs. Var í fram- haldi af þessu óskað eftir því að sveitarstjórn samþykkti eins stóra aðild og með þyrfti að félaginu og jafnframt að sveitarstjóri fengi heimild til að vinna að fjármögnun vegna kaupanna, meðan gengið væri frá stofnun félags um eignaraðild og rekstur hinna keyptu eigna. Var það samþykkt samhljóða. Fram kom að í gang hefur verið sett vinna við undirbúning að stofn- un einkahlutafélags, auk þess sem brýnt er að gangsetja verksmiðjuna sem fyrst. Í ljósi þess var einróma samþykkt að veita oddvita, form. AFU og sveitarstjóra heimild til að vinna að ráðningu verksmiðjustjóra fyrir loðnuvertíð þá sem nú stendur sem hæst, auk þess að tryggja verk- smiðjunni laust hráefni. Hinum sömu var einnig veitt heimild til að vinna að öflun veiðiheimilda/hráefnis fyrir verksmiðjuna til lengri tíma lit- ið, þ.m.t. að taka þátt í undirbúningi að þátttöku sveitarfélagsins í útgerð, sem yfir ræður veiðiheimildum ef svo ber undir. Ná í sporðinn á loðnunni Morgunblaðið/Sólný Pálsdóttir Bræðsla Djúpavogshreppur hefur keypt þrotabú fiskimjölsverksmiðj- unnar Gautavíkur og er stefnt að því að hefja bræðslu sem fyrst. ODDEYRI, dótturfélag Samherja sem sér um laxeldi í eigu félagsins er nú að kanna möguleika á því að láta vinna fyrir sig ferskan lax í Færeyjum. Hafa 18 tonn verið unn- in í laxaverksmiðju í Fuglafirði og er verið að skoða mögulegt fram- hald. Jón Kjartan Jónsson, fram- kvæmdastjóri Oddeyrar, segir að um sé að ræða útlitsgallaðan lax sem sé verðminni en fyrsta flokks lax. Verið sá að reyna að hámarka verðmætin með þessu og því sé far- in sú leið að fullvinna laxinn í neyt- endaumbúðir og koma honum þannig á markað í Evrópu. Til þess að fullvinna hann þurfi mikla fjár- festingu. Nú sé hins vegar verið að kanna möguleikana á samstarfi við Færeyingana. Enginn samningur hafi verið gerður en verið sé að skoða flöt á samstarfi. Mest af þeim laxi sem slátrað er á vegum félagsins fer heilt út á mark- að í Evrópu, eitthvað fer heilt til Bandaríkjanna og nokkuð af laxi er flakað fyrir Bandaríkjamarkað í Grindavík. Jón Kjartan segir hins vegar að útflutningur til Bandaríkj- anna sé lítt fýsilegur um þessar mundir vegna lágs gengis dollars- ins og þýði í raun 20% afurðaverðs- lækkun. Því fari lítið vestur um haf. Samherji lætur vinna lax í Færeyjum Morgunblaðið/Hjörtur Fiskeldi Laxi dælt í kvíar Sæsilfurs í Mjóafirði. Úrslitin í spænska boltanum beint í símann þinn Canada's fastest growing franchise is now expanding into Iceland. See us at www.fibrenew.com Nýtt - Superdefense Triple Action Moisturizer - Hér kemur framtíðin Ef húð þín á erfitt með að laga sig að breytingum í umhverfinu getur Clinique bjargað því. Meira en rakagjafi, meiri vernd en í SPF25. Þessi efnablanda, sem sótt hefur verið um einkaleyfi á, hjálpar húðinni að efla eðlilegar varnir og eyða skaðlegum áhrifum UVA/UVB-geisla. Hún dregur úr áreiti umhverfisins með nýrri og öflugri andoxunarefnum og leggur sinn skerf til þess að fyrirbyggja sýnileg merki um ótímabæra öldrun. Um leið er hún eins og rakahlíf sem verndar húðina gegn uppgufun. Í samanburði við Superdefense er SPF-vörn ein og sér barn síns tíma. 3ja þrepa pakki fylgir öllum keyptum Clinique-vörum. Ofnæmisprófað. 100% án ilmefna. w w w .c lin iq ue .c om Borgartún 35 • 105 Reykjavík • sími 511 4000 • fax 511 4040 • utflutningsrad@utflutningsrad.is • www.utflutningsrad.is Vi›skiptasendinefnd er hagkvæm og ód‡r lausn fyrir flá sem vilja koma vörum og fljónustu á framfæri erlendis. Megináherslan í slíkum fer›um er a› skipuleggja vi›skiptafundi milli íslenskra flátttakenda og erlendra vi›skiptaa›ila. Undirbúningur fer›anna er í höndum Útflutningsrá›s. Viðskiptasendinefndir á vegum Útflutningsráðs Sóknarfæri á erlendum mörkuðum Vi›skiptasendinefndir framundan: • Vi›skiptasendinefnd til Úganda (Viktoríuvatn) 15.-20. mars. • Vi›skiptasendinefnd til Tékklands og Slóvakíu, me› umhverfisrá›herra. 11.-16. apríl. • Vi›skiptasendinefnd til Danmerkur 25.-31. maí. • Vi›skiptasendinefnd til Póllands, me› i›na›ar- og vi›skiptará›herra. 6.-10. júní. • Vi›skiptasendinefnd til Mexíkó 20.-27. júní. fieir sem hafa áhuga á a› tengjast umræddum vi›skiptasendinefndum vinsamlega hafi samband sem allra fyrst vi› Vilhjálm Gu›mundsson í síma 511 4000 e›a sendi› tölvupóst til vilhjalmur@utflutningsrad.is. Sendinefndir í haust eru í undirbúningi. Frekari uppl‡singar um flær ver›a á vefsí›u Útflutningsrá›s, www.utflutningsrad.is. • 04 58 5 Markmi› vi›skiptasendinefndar: • A› ö›last betri skilning á marka›ssvæ›inu og flannig meta marka›smöguleika fyrir vörur og fljónustu á tilteknum marka›i. • Framkvæma hagn‡tar marka›srannsóknir og fá flannig mikilvægar marka›suppl‡singar. • Skilgreina og hefja n‡ja marka›ssókn á tiltekinn marka›, sem gæti í framtí›inni leitt til varanlegra vi›skiptatengsla.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.