Morgunblaðið - 04.02.2005, Blaðsíða 28
Fjörutíu og níu vöru-
tegundir af fimmtíu og
sex reyndust ódýrastar
í Bónusi þegar verð-
lagseftirlit ASÍ gerði
verðkönnun á mjólk-
urvörum og ostum í vik-
unni. Verslunin 10–11 var oftast með hæsta
vöruverðið eða í fjörutíu og þremur tilfellum
af fimmtíu og sex.
Þ
egar Verðlagseftirlit
ASÍ gerði verðkönnun
á mjólkurvörum og
ostum í matvöruversl-
unum á höfuðborg-
arsvæðinu síðastliðinn þriðjudag
kom í ljós mikill verðmunur milli
einstakra verslana.
Mesti munurinn milli hæsta og
lægsta verð var að sögn Hennýj-
ar Hinz, verkefnisstjóra hjá ASÍ,
81% verðmunur á 500 gramma
stykki af Ljóma smjörlíki.
Þá reyndist mesti munur milli
hæsta og lægsta verðs mjólk-
urvara vera 44% en sá verðmun-
ur var á ¼ l af kókómjólk.
Þegar ostar voru skoðaðir þá
var munur á hæsta og lægsta
verði mestur á Hvítum kastala,
eða tæp 57 %. Munur á hæsta og
lægsta verði flestra vörutegunda,
sem kannaðar voru, var yfir 20%
og í mörgum tilvikum mun meiri.
Hægt að spara
háar upphæðir
Mjólkurvörur og ostar eru stór
hluti af matarinnkaupum flestra,
ekki síst hjá barnafólki þar sem
mikils er neytt af mjólk og
mjólkurafurðum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Hagstofu Íslands eru mjólk og
mjólkurafurðir tæplega 10% af
dagvöruútgjöldum heimilanna og
ostar tæp 5%. Henný segir því
ljóst að fjöldi heimila geti sparað
háar upphæðir með því að kaupa
þessar vörur þar sem verðið er
lægst. Munurinn á hæsta og
lægsta verði af mjólkurlítranum
var 25% þ.e.a.s. í þeim verslunum
sem skoðaðar voru.
„Fjölskylda sem kaupir tólf
lítra af mjólk á viku getur því
sparað rúmlega ellefu þúsund
krónur á ári með því að kaupa
alla mjólk þar sem hún er ódýr-
ust. Þar sem keypt er stoðmjólk
handa ungum börnum má spara
rúmar fimm þúsund krónur á ári
miðað við að keyptur sé ½ lítri á
dag, sem er ráðlagður dag-
skammtur Manneldisráðs fyrir
ung börn.“
Eftirtaldar verslanir tóku þátt
í könnuninni. Krónan Bíldshöfða
20, Reykjavík Hagkaup Smára-
lind, Kópavogi, Europris Skútu-
vogi 2, Reykjavík, Fjarðarkaup
Hólshrauni 1b, Hafnarfirði, Ell-
efu-ellefu Grensásvegi 46,
Reykjavík, Bónus Spönginni,
Reykjavík, Tíu-ellefu Hjarð-
arhaga 47, Reykjavík, Samkaup
Miðvangi 47, Hafnarfirði og Háa-
leitisbraut 68 í Reykjavík og
Sparverslun Bæjarlind 1 í Kópa-
vogi.
Vegna mistaka við framkvæmd
könnunarinnar var því miður
ekki unnt að birta gögn frá versl-
uninni Nettó í Mjódd að þessu
sinni og vill ASÍ biðjast velvirð-
ingar á þeim mistökum.
Í könnuninni, sem gerð var á
þriðjudag, var fjöldi annarra
vöruflokka skoðaður og Henný
segir að á næstu dögum verði
frekari niðurstöður kynntar.
Allt að 81% verðmunur á smjörlíki
'
("%&
)
$ !(G *%&
9:.4% 9:.4% *
9:.4% P *
*;.4% .4% *
Q"'"!"" *
-.4% P *
M! %% P *
-G.4% *
*; 5 .4% < 5 #% 5 (! .P. % #$
R4. P *
+! %4. P *
) 4. P *
)44.4% P *
-4%4#G ("" #$
*; 4#G 77 #$
I 4#G (! #$
*7 8" 4#G .$ .G %7 #$
1G 7 %; 4#G .$($ # $ P *
32.4% ! # !% P *
.4% 5 (! P *
-..% G% .%$
+- -2 /! " #$
)> (! 2 #$
)> (! 2 #$
-2$ (%(! #$
-2$ (%(! #$
M24#G 4#(!P. % .%$
-2'2 / "'(!P !
.%$
* S !P!% T .%$
'
-. 7 %!" #$
-.
#$
*; # %## #$
)%7
#$
-4%(%4.
#$
*4. .%7 #$
+
' C #$
' C #$
I% C #$
-4% C #$
) 8% #$
) 8% #$
%% #$
@.!.(! #$
#$
) % 5/7 #$
! 7 2''%7 #$
L #$
-! #$
*; .$ ;. #$
- ".2 #$
R4. .$ 4%F$ 4.$ #$
R4. /$ % .#$ #$
+UU!%% "" #$
L UU "" #$
!
"
#$
%
&
'
$
(
$
*
'
%'
)
%'
+
"
,
%
!
"!
#
$
!
!
! H ! %
VERÐKÖNNUN | Verðlagseftirlit ASÍ skoðar verð á mjólkurvörum og ostum
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Verð á ostum var skoðað og kom í ljós að mestur munur á hæsta og lægsta verði var á Hvítum kastala eða tæp 57%.
28 FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF