Morgunblaðið - 04.02.2005, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 04.02.2005, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2005 23 MINNSTAÐUR Útsölu lýkur 5. febrúar Klapparstíg 44 - sími 562 3614 • Innleggsnótur og gjafakort í fullu gildi á útsölunni Aukaafsláttur s íðustu dagana Verð áður Verð nú Diskamottur (6 stk. í pakka) kr. 2.900 kr. 1.350 Eldfastur leirpottur kr. 3.500 kr. 1.600 Kaffikrús kr. 1.295 kr. 450 Laugavegi 53, s. 552 1555. TÍSKUVAL Opið virka daga kl. 10-18, lau. 11-16 Úrval af nýjum vörum Útsöluvara 50-80% afsláttur Laugavegur 24, Reykjavík - Skipagata 7, Akureyri - Lagarás 8, Egilsstaðir Ný gleraugu í fríið fyrir 500,- á mánuði Útborgun aðeins 20% af verðinu og eftirstöðvar getur þú dreift á allt að 24 mánuði án vaxta eða annars aukakostnaðar Reykjavík | Öryrkjabandalag Ís- lands og Sjá – óháð ráðgjöf, hafa vottað að vefur Strætós, www.bus- .is, standist kröfur um aðgengi fyrir fatlaða, en í því felst að fatlaðir geta notað vefinn með aðstoð hjálpar- tækja á borð við skjálesara, sér- hönnuð lyklaborð og talgervil. Arn- þór Helgason, framkvæmdastjóri Öryrkjabandalagsins, prófaði af þessu tilefni Ráðgjafann svonefnda á heimasíðu Strætós í gær með að- stoð talgervils, en hann hjálpar not- endum að finna bestu leiðina milli áfangastaða. Arnþór vildi vita hvernig best væri komast frá Nes- vegi á Seltjarnarnesi upp í Mjódd og ekki stóð á svari hjá tölvunni. Annar vefurinn sem fær vottun Vottun vefjarins er í svonefndum 2. forgangsflokki af þremur, próf- aður eftir sérstökum gátlista sem byggist á alþjóðlegum staðli og lag- aður að íslenskum aðstæðum. Hefur listinn verið prófaður sérstaklega með þarfir lesblindra, heyrnar- lausra, hreyfihamlaðra, blindra og alvarlega sjónskertra, í huga. Að sögn Sirrýjar Hallgrímsdótt- ur, framkvæmdastjóra Sjá, inni- heldur 3. forgangsflokkur síðan mjög sértækar lausnir, fyrir fólk með miklar sérþarfir. Þess má geta að aðeins einn íslenskur vefur, vefur Íslandsbanka, hefur áður fengið vottun ÖBÍ og Sjá og er vefur Strætós jafnframt fyrstur til að fá vottun í 2. flokki. Stefna Öryrkja- bandalagið og Sjá að því að gera sem flesta íslenska vefi aðgengilega öllum, enda hafi víða í nágranna- löndunum verið lögfest að vefsíður opinberra stofnana og fyrirtækja skuli vera aðgengilegar öllum not- endum. Á fimmta þúsund heimsókna á viku Að sögn Ásgeirs Eiríkssonar, framkvæmdastjóra Strætós, hefur nýr vefur fyrirtækisins sem tekinn var í gagnið 2003, fengið u.þ.b. 4.000-4.500 heimsóknir á viku og er sem stendur í 35.-40. sæti á lista yfir mest heimsóttu vefina, samkvæmt samræmdri vefmælingu Modernus. Ráðgjafinn hafi t.a.m. mikið verið notaður af þeim sem heimsækja vef- inn, en búið er að betrumbæta hann frá því hann var fyrst tekinn í notk- un og upplýsingar frá honum eru nákvæmari, að sögn Ásgeirs. Að sögn Péturs Fengers, aðstoð- arframkvæmdastjóra Strætós, er jafnvel stefnt að því í framtíðinni að notendur Strætós geti smellt á til- tekinn áfangastað á korti á vefnum, t.d., hús eða verslun, og fengið ná- kvæma leiðaráætlun. Þá eru uppi hugmyndir um að sýna með aðstoð GPS tækninnar hvar vagnarnir eru staddir hverju sinni, bæði inni í vögnunum og í biðskýlum. Rafrænt miðakerfi tekið upp í vor Einnig hefur verið ákveðið að taka í notkun sérstök smartkort í vor, í samstarfi við sundstaði ÍTR og fjóra grunnskóla, en hægt verður að greiða með kortunum í strætó, í sund og fyrir máltíðir í viðkomandi skólum Að sögn Ásgeirs Eiríksson- ar verður t.d. hægt að nota kortin til að greiða fyrir tiltekið tímabil í strætó, sbr. Græna kortið, fyrir til- tekin skipti, sbr. miðakerfi, eða með „rafeyri“, þ.e. greitt fyrir hvert skipti og verður fargjaldið ódýrara þannig en ef keypt er stakt fargjald á hefðbundinn máta. Hægt verður að hlaða kortin í heimabönkum og hraðbönkum, og segir Ásgeir að kostir smartkortanna séu augljósir, þau flýti fyrir afgreiðslu og auki ör- yggi við innheimtu, auk þess sem hægt er að afla ýmiss konar töl- fræði um þá sem þau nota. Það sé þó á hendi hvers og eins hvort kort- ið er skráð á viðtakanda eða ekki. Bus.is stenst kröfur um aðgengi fatlaðra Fatlaðir jafnt sem ófatlaðir geta fundið bestu leiðina með strætó Morgunblaðið/Júlíus Arnþór Helgason, framkvæmdastjóri Öryrkjabandalags Íslands, kannar bestu leiðina milli Nesvegar og Mjóddar, með aðstoð talgervils. Ásgeir Ei- ríksson, framkvæmdastjóri Strætós, og Sirrý Hallgrímsdóttir, fram- kvæmdastjóri Sjá, fylgjast með.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.