Morgunblaðið - 04.02.2005, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 04.02.2005, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. ÓMAR Stefánsson var endurkjörinn formaður Framsóknarfélags Kópavogs en aðalfundur fé- lagsins fór fram í gærkvöldi. Haft hafði verið eftir mönnum í fjölmiðlum að búist væri við átakafundi, m.a. vegna þess að margir nýir Kópavogsbúar hefðu skráð sig í Framsóknarflokkinn síðustu daga, en enginn bauð sig fram gegn Ómari og var fundurinn átakalaus. Ómar segist sjálfur hafa átt von á átakalitlum fundi og sú varð raunin. „Fjölmiðlar voru búnir að mikla þetta fyrir sér með alls konar samsæriskenningum,“ sagði Ómar í samtali við Morgunblaðið eftir fundinn, sem stóð til kl. 22.30 í gær. Sagði hann að öll umræðan í fjöl- miðlum hefði þó skilað um 300 manna fundi. Á annað hundrað skráði sig í flokkinn Mikið fjölmenni var á fundinum og þurfti að flytja hann í húsnæði Menntaskólans í Kópavogi er ljóst varð að húsnæði flokksins við Digranesveg gat ekki rúmað allan fjöldann. Einhverjum var vís- að frá í gærkvöldi þar sem þeir höfðu ekki náð inn á félagaskrána í tæka tíð. Um kl. 17 í gær, en eftir það var ekki tekið við fleiri skráningum, höfðu á milli 150 og 200 manns úr Kópavogi skráð sig í Framsóknarflokkinn þann daginn. Félagar hafa einnig verið að bætast við síðustu daga að sögn Sigurðar Eyþórssonar, framkvæmdastjóra flokksins. Voru félagar í Framsóknarfélagi Kópa- vogs orðnir tæplega fimm hundruð í gær. Í gærkvöldi var einnig félagsfundur í Fram- sóknarfélagi Reykjavíkur suður. Fór þar fram kosning fulltrúa félagsins á flokksþingið. Ómar Stefánsson endurkjörinn formaður Framsóknarfélags Kópavogs Átti ekki von á átökum Morgunblaðið/Golli Siv Friðleifsdóttir, Páll Magnússon og Ómar Stefánsson ræddu brosandi saman fyrir fundinn. ÞESSIR ungu fisksalar úr Hafnarfirði urðu á vegi ljósmyndara og blaðamanns Morgunblaðsins í vikunni. Hjá þeim Árna Brynjari Dagssyni, Alexander Ágústi Óskarssyni og Tómasi Jónssyni var hægt að fá ilmandi fínar grásleppur og rauðmaga, sannkallaðan herramannsmat. Þar sem þeir eru of ungir til að halda sjálfir til veiða sér pabbi Árna Brynjars um að róa til fiskjar. Þetta er sjálfsagt hið hagstæðasta viðskiptalíkan. Morgunblaðið/Jim Smart Grásleppur á góðu verði BÓNUS reyndist oftast með lægsta vöruverðið þegar Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðkönnun á mjólkur- vörum og ostum síðastliðinn þriðju- dag í matvöruverslunum á höfuð- borgarsvæðinu. Alls var Bónus með lægsta verðið á 49 vörutegundum af 56 sem hafðar voru með í könn- uninni. Verslunin 10–11 reyndist hins vegar oftast með hæsta verðið í könnuninni, eða í samtals 43 til- fellum af 56. Mesti munurinn milli hæsta og lægsta verðs var á Ljóma-smjörlíki en hann nam 81%. Þá var 57% verðmunur á hæsta og lægsta verði á ostinum Hvítum kastala. Henný Hinz, verkefnisstjóri hjá ASÍ, segir ljóst að fjöldi heimila geti sparað háar upphæðir með því að kaupa mjólk og mjólkurafurðir þar sem verðið er lægst. Verðkönnun Verðlagseftirlits ASÍ 81% verð- munur á smjörlíki  Allt að 81% verðmunur/28 HÓSTASTILLANDI lyfið pektólín er uppselt hjá framleiðanda og hefur verið ófáanlegt í apó- tekum í rúma viku. Lyfið er framleitt hjá ís- lenska lyfjaframleiðandanum Actavis og er það væntanlegt aftur í umferð á næstu dögum. Á fjórða tug lyfja frá fyrirtækinu er ófáanlegt um þessar mundir en lyfin eru væntanleg aftur. Lyfjafræðingar í lyfjaverslunum sem Morg- unblaðið hafði samband við staðfestu þetta og sögðu skortinn afar bagalegan á þessum árstíma en jafnframt að þetta væri ekki í fyrsta skipti sem slíkur skortur kæmi upp á þessum tíma. Hægt er að kaupa önnur hóstastillandi lyf fyrir börn en það eina sem hefur sömu virkni er inn- flutt og kostar um helmingi meira en pektólín. Samkvæmt kröfum yfirvalda til lyfjaheildsala ber þeim að eiga tveggja til þriggja mánaða birgðir af lyfjum á lager, að sögn lyfjafræðings hjá lyfjaverslun, og á Lyfjastofnun að framfylgja því að svo sé. Hann sagði nokkur brögð að því að það væri ekki gert og nefndi sem dæmi að í dag væri á fjórða tug lyfja sem framleidd eru hjá Actavis á svokölluðum biðlista frá fyrirtækinu og þau væru því ekki til í augnablikinu en vænt- anleg aftur. Þetta mun einnig eiga við um vissar tegundir af innfluttum lyfjum, svo sem svefntöfl- ur. Dæmi um lyf á biðlista eru verkjastillandi lyf- ið parkódín í 100 töflu pakkningum, hóstamixt- úran oxeladín og geðdeyfðarlyfið amilín í 10 mg styrkleika. Til skamms tíma hefði einnig verið skortur á bólgu- og verkjaeyðandi lyfinu íbúfeni og svokölluðu hjartamagnýli, en þau lyf eru nú komin aftur í sölu. Flensan tafði Harpa Leifsdóttir, sviðsstjóri markaðssviðs hjá Actavis á Íslandi, segir að margir samverk- andi þættir stuðli að því að svo margar tegundir lyfja eru ófáanlegar um þessar mundir en segir að fyrirtækið kappkosti að koma lyfjunum aftur á markað sem fyrst. Meðal þess sem hefur áhrif á lyfjasöluna er óvenjuskæð flensa í ár, en þrátt fyrir að reiknað sé með aukinni sölu hefur það ekki dugað til, að sögn Hörpu. Hún segir það hafa verið ákveðið vandamál að birgjar hafi ekki staðið við umbeðn- ar afhendingar, auk þess sem flensan hafi ekki hlíft starfsfólki í lyfjaframleiðslu frekar en öðr- um. Harpa segir að Actavis kappkosti að eiga allt- af til birgðir af lyfjum eins og lyfjaheildsölum ber að gera, en segir að því miður hafi verið óvenjumikið um að lyf frá fyrirtækinu væru ófá- anleg. „Listinn er langur núna, það eru allir af- skaplega meðvitaðir um það og þykir það af- skaplega leitt. Við erum búin að gefa Lyfja- stofnun skriflegt svar um málið og erum að gera það sem í okkar valdi stendur til að bæta ástand- ið,“ segir Harpa. Tugir lyfjategunda frá Actavis ófáanlegir FRAMKVÆMDASTJÓRI Skjás eins segir að vel komi til greina að senda út leiki frá ensku úrvalsdeildinni án þula og aðeins með umhverfishljóðum. Þulirnir séu á sérstakri rás og því sé þetta tæknilega auðvelt. Ástæðan fyrir þessum bollaleggingum er sú að útvarpsréttarnefnd hefur beint því til Skjás eins að hætta útsendingum á knatt- spyrnuleikjum sem ekki fylgir tal eða texti á íslensku. Komst nefndin að þeirri niður- stöðu að útsendingarnar brytu í bága við ákvæði útvarpslaga sem kveður á um að efni á erlendu máli, sem sýnt sé á sjónvarps- stöð, skuli jafnan fylgja íslenskt tal eða texti. Hugsanlegt að fara dómstólaleiðina Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri Skjás eins, segir að Skjár einn muni þegar hlíta úrskurði nefndarinnar en að óskað verði eftir fundi með henni í næstu viku. Verði ákvörðuninni ekki haggað komi til greina að fara með málið fyrir dómstóla. Magnús segir útvarpslögin úrelt hvað þetta varðar. „Það er stöðugt endurvarp hér á fjörutíu erlendum sjónvarpsrásum án nokkurrar textunar allan sólarhringinn. Lögin eiga að vernda íslenska tungu en það er hálfgerð þversögn þegar heimilt er að út- varpa allan sólarhringinn á útlensku en ekki gera það í tvo klukkutíma.“ /32–33 Skjár einn hlítir niðurstöðu útvarpsréttarnefndar Íhugar að senda leikina út án þula ÍTALSKA verktakafyrirtækið Impregilo hefur fengið um 80 atvinnuleyfi fyrir erlenda starfsmenn við Kárahnjúkavirkjun. Koma þeir frá fimm löndum, flestir frá Kína. Hefur leyfunum fjölgað í þessari viku og að sögn Gissurar Péturssonar, forstjóra Vinnumála- stofnunar, er líklegt að miðað við mannafla- þörf Impregilo og innkomnar starfsumsókn- ir verði fleiri leyfi gefin út á næstu vikum. Ekki þáðu allir boð um vinnu Gissur átti á miðvikudag samráðsfund með talsmönnum Impregilo á virkjunarsvæðinu, líkt og fram kom í blaðinu í gær. Farið var yf- ir umsóknir sem fyrirtækinu hafa borist síð- ustu vikurnar og eru þær orðnar 250, þar af 44 frá Íslendingum, ekki 20 eins og sagt var í blaðinu í gær. Hefur Impregilo boðið 60 manns af Evrópska efnahagssvæðinu vinnu við virkjunina, þar af um 20 Íslendingum, en Gissur segir að ekki hafi allir þegið boðið. Segir hann mikið skorta á að fólk vandi til verka við gerð starfsumsókna. Gissur segir að eftir þennan samráðsfund sé ljóst að mannaflaþörf Impregilo sé mikil. Fyrirtækið leggi þunga áherslu á að fá reynda starfsmenn á svæðið. Það sé vel skilj- anlegt miðað við þær erfiðu aðstæður sem eru við Kárahnjúka yfir hávetur. Miðað við þessar þarfir telur Gissur ljóst að Vinnumálastofnun muni koma til móts við óskir Impregilo á næstu vikum. Þörf sé á vel á þriðja hundrað manns til vinnu nú þegar. Impregilo með um 80 atvinnuleyfi Morgunblaðið/ÞÖK ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.