Morgunblaðið - 04.02.2005, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 04.02.2005, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR LAGERSALA dagana 4.-12. febrúar Gengið inn hægra megin ÞEGAR Guðfinna Ein- arsdóttir, elsti núlif- andi Íslendingurinn fæddist árið 1897 var enginn sími, ekkert rafmagn, engir bílar óku um götur, konur höfðu ekki kosninga- rétt og Íslendingar voru undir vald Dana settir. Það var ekki fyrr en sjö árum síðar, árið 1904, sem hér komst á heimastjórn og ekki fyrr en árið 1915, þegar Guðfinna er átján ára, að konur, 40 ára og eldri, fengu kosningarétt og kjör- gengi til Alþingis til jafns við karl- menn. Ásýnd sveita landsins sem og Reykjavíkur var með allt öðrum hætti fyrir aldamótin 1900 en nú er, t.d. bjuggu flestir í torfbæjum. Óhætt er því að segja að Guðfinna, sem fædd er í Dölunum og fagnaði 108 ára afmæli 2. febrúar sl., hafi lif- að tímana tvenna. Önnur íslensk kona er fædd sama ár og Guðfinna. Ein íslensk kona til viðbótar er fædd fyrir aldamótaárið 1900. Árið 1897 fóru 55 Ís- lendingar til Vest- urheims en á næstu ár- um fór þeim fjölgandi sem þangað fluttu og höfðu þessir miklu fólksflutningar mikil áhrif á samfélagið sem Guðfinna ólst upp í. Það ár gáfu Þorsteinn Erlingsson og Einar Benediktsson út sínar fyrstu bækur. Búskaparhættir voru með allt öðrum hætti en nú tíðkast. Það er ekki fyrr en á þriðja áratug 20. aldar sem hingað koma fyrstu dráttarvélarnar. Ekki var þó eining um ágæti þeirra. Árið 1937, þegar Guðfinna er fertug, er ritað í Aldarminningu Búnaðarsambands Íslands að margir líti svo á að drátt- arvélar séu „örþrifaúrræði manna sem orðnir eru óralangt aftur úr með framkvæmdir sínar.“ Það er því ekkert nýtt að um tækninýjungar eins og farsímann nú, séu skiptar skoðanir. Ritsíminn, forfaðir farsím- ans, hélt innreið sína eftir 1904 en það ár kom fyrsti bíllinn til landsins. Sama ár var vatnsafl notað í fyrsta sinn til raflýsingar, nánar tiltekið í Hafnarfirði. Bið varð þó á því að raf- lýsing yrði almenn. Konur settust í fyrsta sinn í bæj- arstjórn árið 1908 en á því ári varð Guðfinna 11 ára. Fjórtán árum síð- ar, eða árið 1922, var fyrsta konan, Ingibjörg H. Bjarnason, kosin á þing. Guðfinna var unglingur eða sautján ára þegar heimsstyrjöldin fyrri braust út í Evrópu og 42 ára þegar síðari heimsstyrjöldin skall á, árið 1939. 21 ár leið frá fæðingu Guðfinnu þar til Ísland varð fullvalda og nær hálf öld þar við fengum sjálfstæði með stofnun lýðveldis. Reykjavík var fámennt þorp um aldarmótin 1900, sem taldi vel innan við tíu þúsund íbúa. Ásýnd höfuð- borgar nútímans var með allt öðrum hætti en nú er, ekkert malbik, engin háhýsi og engir bílar. Skellireið vakti athygli Fyrsti bíllinn kom líka mörgum íbúanum spánskt fyrir sjónir og var hann m.a. kallaður sjálfrenningur eða skellireið áður en almenningur sættist á orðin bifreið og bíll. Hraði bílanna var eins og gefur að skilja ekki ýkja mikill fyrst í stað, göt- urnar voru slæmar og afl bílanna lít- ið. Þó urðu tvö bílslys árið 1914 þó að í Reykjavík væru aðeins tíu bílar. Þá um sumarið voru fyrstu bifreiða- lögin sett og hámarkshraði bíla ákveðinn 10 km á klukkustund. Guðfinna hefur lifað á þremur öldum, á tímum gríðarlegra breyt- inga. Aðeins tveir aðrir núlifandi Ís- lendingar búa yfir þeirri reynslu. Ísland í aldanna rás eftir Illuga Jökulsson Öldin okkar, 1861–1900 Saga Reykjavíkur – bærinn vaknar, eftir Guðjón Friðriksson Miðbær Reykjavíkur frá Hólavelli, árið 1899, ári eftir að Guðfinna Einars- dóttir fæddist. Farið var að fylla upp í Tjörnina nyrst, Góðtemplarahúsið fyrir nokkru risið og Iðnaðarmannahúsið. Alþingishúsið og Dómkirkjan settu þá, sem og nú, mikinn svip á miðbæ Reykjavíkur. Ljósmyndasafn Reykjavíkur Úr hlóðaeldhúsi. Þessi mynd, sem enski læknirinn Tempest Anderson tók hér á landi á síðustu árum 19. aldar, sýnir dæmigert eldhús í sveitabæ. Elsti Íslendingurinn sem fæddur er 1897 hefur lifað tímana tvenna Án rafmagns, bíls og kosningaréttar Guðfinna var glæsileg á 108. afmælisdeginum nú í vikunni. Ljósmynd/Sigfús Eymundsson MEÐ dómi í gær var dæmd ógild sú ákvörðun varnarliðsins að segja upp greiðslu daglegs rútugjalds til slökkviliðsmanna á Keflavíkurflug- velli. Rútugjaldið var fyrst greitt árið 1955 og var þá 30 krónur en var 1.600 krónur þegar varnarliðið hætti greiðslum tæplega 50 árum síðar, ár- ið 2003. Greiði varnarliðið ekki gjald- ið verður ríkið krafið um greiðslur. Starfsmannahald varnarliðsins sagði upp rútugjaldinu með þriggja mánaða fyrirvara og var uppsögnin liður í sparnaðaraðgerðum á Kefla- víkurflugvelli. Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna taldi uppsögnina ólöglega og stefndi því málinu fyrir dóm. Hinn stefndi var íslenska ríkið þar sem dómafor- dæmi gera ráð fyrir því að íslensk lög gildi ekki um varnarliðið heldur hef- ur ríkið verið talið bera ábyrgð á því að íslenskir starfsmenn varnarliðsins fái þau kaup og kjör sem kaupskrár- nefnd ákveður hverju sinni, að sögn Guðna Á. Haraldssonar hrl., lög- manns slökkviliðsmanna. Af hálfu varnarliðsins var því hald- ið fram að kaupskrárnefnd hefði ein- ungis heimilað varnarliðinu að greiða rútugjald og engin skylda væri á varnarliðinu að inna gjaldið af hendi. Var bent á að gjaldið kom í stað ferða sem varnarliðið sá um fyrir starfs- menn sem búsettir voru nær varn- arsvæðinu. Ígildi kjarasamnings Í niðurstöðu dómsins segir að kaupskrárnefnd hafi í apríl árið 1955 ákveðið að greiða skyldi þeim starfs- mönnum varnarliðsins á Keflavíkur- flugvelli sem áttu heima í Reykjavík eða á leiðinni frá Njarðvíkum til Reykjavíkur, 30 krónur á dag í ferða- dagpeninga. Eftir þessari ákvörðun hafi verið farið í áratugi eða þar til varnarliðið sagði greiðslunum upp í október 2003. Í niðurstöðu dómsins segir að líta verði á ákvörðun kaup- skrárnefndar sem ígildi kjarasamn- ings og því hafi starfsmannahald var- naliðsins ekki getað fellt greiðslurnar niður einhliða. Var fallist á það með lögmanni slökkviliðsmanna að ákvörðunin um að fella greiðslurnar niður væri ógild. Þá var ríkið dæmt til að greiða 300.000 krónur í máls- kostnað. Guðni Á. Haraldsson segir að næsta skref verði að reikna út hversu háar greiðslur slökkviliðsmenn á Keflavíkurflugvelli eigi inni hjá varn- arliðinu frá því rútugjaldinu var sagt upp og síðan verði varnarliðið krafið um þær greiðslur. Sjái varnarliðið sér ekki fært að greiða gjaldið verði ríkið krafið um greiðslur. „Hluti af þessum vanda er að fjárveitingar bandaríska þingsins duga ekki til að varnarliðið geti farið eftir íslenskum kjarasamningum. Bandaríkjaþing er að skera niður og svo lendir vandinn á íslenska ríkinu,“ segir hann. Telur dóminn fordæmisgefandi Aðspurður segir Guðni að dómur- inn hljóti að vera fordæmisgefandi fyrir aðra starfsmenn á Keflavíkur- flugvelli sem fengu greidd rútugjöld fyrir uppsögn. Þá séu a.m.k. tvö önn- ur dómsmál í uppsiglingu vegna upp- sagna á kjörum starfsmanna varnar- liðsins, vegna ferðapeninga og vegna rútugjalds. Allan V. Magnússon kvað upp dóminn. Óskar Thorarensen hrl. var til varnar fyrir ríkið. Varnarliðinu óheimilt að segja upp rútugjaldi Bandaríkjaþing sker niður og vand- inn lendir á ríkinu, segir lögmaður BORGARRÁÐ Reykjavíkur sam- þykkti í gær tillögu Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur borgar- stjóra um að fela Vilhjálmi H. Vil- hjálmssyni lögmanni að útbúa kröfugerð á hendur olíufélögunum fyrir hönd Reykjavíkurborgar. Er í tillögunni vísað til minn- isblaðs Vilhjálms að Reykjavíkur- borg og fyrirtæki hennar eigi rétt til skaðabóta frá olíufélögunum. Í minnisblaði Vilhjálms, sem lagt var fram á borgarráðsfundinum, segir að það sé álit hans að Reykja- víkurborg og fyrirtæki borgarinn- ar eigi rétt til skaðabóta frá olíufé- lögunum vegna samráðs þeirra í útboði á olíu- og bensínkaupum fyrirtækja Reykjavíkurborgar árið 1996. Ákváðu að Skeljungur fengi viðskiptin Vitnað er til þess að í úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála, sem birtist á mánudag, komi fram að í útboðinu 1996 hafi félögin haft samráð um hvaða verð þau buðu hvert fyrir sig, tekið sameiginlega ákvörðun um að Skeljungur ætti að fá viðskiptin og skipt síðan á milli sín hagnaði af viðskiptunum. Vilhjálmur segir að aðgerðir ol- íufélaganna hafi verið ætlaðar til þess að draga úr áhrifum útboðsins og leitt til þess að verð á bensíni, olíu og olíuvörum til Reykjavíkur- borgar varð hærra en ella. Sanna þurfi fjártjón Reykjavíkurborgar vegna þessara aðgerða en góðar líkur séu á að það takist enda séu traust sönnunargögn fyrir hendi vegna viðskiptanna frá 1996 til 2001. Óvíst um skaðabótaskyldu vegna útboðs 2001 Vilhjálmur segist hins vegar ekki treysta sér til að meta hvort olíufélögin séu skaðabótaskyld vegna útboðs sem fór fram árið 2001 og viðskipta síðan þá. Áfrýj- unarnefndin taldi að olíufélögin hefðu einnig haft með sér samráð við það útboð. Kröfur undirbúnar á hendur olíufélögum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.