Morgunblaðið - 04.02.2005, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
„ÞETTA fær alltaf meiri og meiri at-
hygli. Ísland er mjög spennandi
áfangastaður og kokkunum þykir
mjög gaman að koma hingað og taka
þátt í þessu,“ segir Sigurður L. Hall
um matar- og menningarhátíðina
„Food and Fun“. Hann bætir því við
að hátíðin stækki ár frá ári og sífellt
stærri nöfn í matreiðsluheiminum
sýni hátíðinni og landinu áhuga. Sig-
urður heldur utan um hátíðina og er
framkvæmdastjóri hennar ásamt
þeim Baldvini Jónssyni og Steini
Lárussyni. Hátíðin er haldin í sam-
starfi við Reykjavíkurborg og er lið-
ur í markaðsstarfi Icelandair í sam-
starfi við íslenskan landbúnað og
Iceland Naturally, sem er sameig-
inlegur kynningarvettvangur ís-
lenskra stjórnvalda og fyrirtækja í
Bandaríkjunum.
Alls taka 12 veitingastaðir í
Reykjavík þátt í hátíðinni og sömu-
leiðis koma hingað 12 matreiðslu-
menn sem eru í heimsklassa að sögn
Sigurðar, sex eru frá Bandaríkjunum
og sex frá Evrópu. Þeir munu útbúa
matseðla með íslenskum kokkum
sem verða svo kynntir á hátíðinni.
Um er að ræða sérstakan fjögurra
rétta matseðil sem standi svo til boða
á öllum veitingastöðunum á 4.900 kr.
Sigurður segir margvíslegar uppá-
komur verða í bænum þessa daga.
Fleiri komi til landsins fyrir utan
kokkana sem munu láta ljós sitt
skína á veitingastöðunum. M.a. komi
hingað um 25 matreiðslumeistarar
og margir heimsþekktir. Þeir koma
til með að dæma í matreiðslukeppn-
inni en hún er einn af hápunktum há-
tíðarinnar. Auk þess mun fjöldi er-
lendra gesta og blaðamanna koma
hingað til þess að taka þátt í hátíð-
arhöldunum. Sigurður segir hátíðina
einkennast af miklu lífi, fjölbreyti-
leika og sé eins og vítamínsprauta í
íslenska matreiðslu.
„List mætir list“
Matreiðslukeppnin verður haldin
að þessu sinni í Listasafni Reykjavík-
ur en undanfarin ár hefur hún verið
haldin í Smáralind. Sigurður segir
hugmyndina að flutningnum í lista-
safnið vera þá að tengja saman mat
og menningu. „List mætir lyst. Mat-
reiðslan verður að menningu og
menningin að matreiðslu,“ segir Sig-
urður og bætir því við að á meðan há-
tíðinni standi verða ýmsar mat-
artengdar uppákomur í gangi í
listasafninu. Fólk geti t.a.m. fengið
að bragða á góðgæti, farið á kynn-
ingar og fyrirlestra um mat auk þess
verði kokkakennsla fyrir áhugasama.
Aðspurður hvað lokki heimsfræga
kokka til landsins segir Sigurður Ís-
land vera spennandi land og síðast en
ekki síst sé hér að finna afburða hrá-
efni. Hér sé besti fiskur í heimi, besta
lambakjötið og margt fleira. „Gæði
íslenskrar matvælaframleiðslu hefur
svo mikið að segja,“ segir Sigurður.
Íslensk matreiðsla í fyrirrúmi
Á hátíðinni verður frumsýndur
bandarískur matreiðsluþáttur, sem
ber heitið „Chefs A’ Field“, á vegum
PBS sjónvarpsstöðvarinnar. Þátt-
urinn var tekinn upp hérlendis sl.
september og fjallar um íslenskan
mat og matreiðslu. Þátturinn kemur
til með að verða sýndur síðar í
Bandaríkjunum en hann er einn vin-
sælasti og verðlaunaðasti mat-
reiðsluþáttur í Bandaríkjunum að
sögn Sigurðar. Hann segir þetta vera
í fyrsta sinn sem „Chefs A’ Field“
þáttur sé tekin upp annars staðar en
í Bandaríkjunum og komi til með að
vekja mikla athygli og verða mikil
landkynning.
Allar nánari upplýsingar um hátíð-
ina er að finna á vefsíðunni www.-
foodandfun.is.
„Matreiðslan verður að menningu“
Matar- og menningar-
hátíðin „Food and
Fun“ verður haldin í
fjórða sinn á Íslandi
dagana 16.–20. febr-
úar nk. Sigurður L.
Hall fræddi Jón Pétur
Jónsson um sælkera-
hátíðina sem er farin
að vekja mikla athygli
víða um heim.
Morgunblaðið/ÞÖK
Bestu matreiðslumenn Food and Fun-hátíðarinnar í fyrra, f.v. þeir Hans
Horberth, sem átti besta eftirréttinn, John Besh, sem hlaut aðalverðlaunin,
Gerrard Thompson átti besta kjötréttinn og Per Thostesen besta fiskréttinn.
Morgunblaðið/Jim Smart
Sigurður L. Hall segir áhuga á há-
tíðinni alltaf að aukast.
jonpetur@mbl.is
ALCOA, móðurfyrirtæki Alcoa-
Fjarðaáls í Reyðarfirði, er meðal
þriggja fremstu fyrirtækja í heimi á
sviði sjálfbærrar þróunar, samkvæmt
lista 100 fyrirtækja sem birtur var á
ársfundi Heimsviðskiptaráðstefnunn-
ar í Davos í Sviss (World Economic
Forum). Annað álfyrirtæki sem starf-
ar hér á landi, Alcan í Straumsvík,
komst einnig á listann. Voru fyrirtæk-
in 100 valin úr meira en tvö þúsund
stórfyrirtækjum um allan heim.
Mun þetta vera í fyrsta sinn sem
svona listi er settur saman og stendur
til að birta hann árlega héðan í frá. Til
að komast á listann þurfa fyrirtækin
að hafa í heild jákvæð áhrif á sam-
félag sitt og umhverfi.
Auk Alcoa þóttu Toyota og BP
einnig skara fram úr á þessu sviði.
Toyota var getið vegna þróunar á
Prius-bílnum og Alcoa vegna áforma
um að draga úr losun gróðurhúsaloft-
tegunda. Einnig vegna áherslu fyrir-
tækisins á að hvetja til notkunar áls í
samgöngutækjum svo minnka megi
orkunotkun. BP komst meðal annars
þetta ofarlega á listann vegna að-
gerða til betri nýtingar auðlinda og
þátttöku í nýtingu á sólarorku.
Í umsögn um Alcoa kemur fram að
fyrirtækið hafi skipað sér í leiðandi
stöðu með viðleitni sinni til að skil-
greina og stýra þeirri áhættu sem fyr-
irtækið standi frammi fyrir að því er
varðar sjálfbærni. Fyrirtækinu hafi
tekist vel að samræma markmið um
arðsemi annars vegar og áherslu á
umhverfisvernd, verðmætasköpun og
félagslegan stöðugleika hins vegar.
Dæmi um þetta séu samskipti Alcoa
við hagsmunahópa í tengslum við um-
deildar vatnsaflsvirkjanir.
Listi stórfyrirtækja um árangur á sviði sjálfbærrar þróunar í heiminum
Alcoa og Alcan meðal
100 fremstu fyrirtækja
Meira á mbl.is/ítarefni
Afmæli | Í upphafi fundar borg-
arstjórnar á þriðjudag óskaði Stefán
Jón Hafstein, forseti borgarstjórnar,
Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur, D-lista,
og Katrínu Jakobsdóttur, R-lista, til
hamingju með afmælið. Fengu þær
rauðar rósir í tilefni dagsins.
Kerfisflokkur | Deilt var hart um
stöðu einkarekinna grunnskóla í
borginni. „R-listinn er kerfisflokkur
þar sem þarfir yfirvalda og kerfisins
sitja í fyrirrúmi, en við viljum raun-
verulegt frelsi og setjum þarfir nem-
enda í fyrsta sæti,“ sagði afmæl-
isbarnið Guðrún Ebba.
Þjónustutrygging | Stefán Jón
sagðist ekki vilja stuðla að tvöföldu
skólakerfi í borginni. „Nemandanum
fylgir ekki viss peningaupphæð.
Nemanda fylgir viss þjónustutrygg-
ing. Þannig viljum við hafa það.“
Sjálfstæði | Stefán Jón sagðist vilja
efla sjálfstæði skólanna en Guðrún
Ebba sagði það ekki hafa neina
merkingu ef allir væru bundnir í
sama klafa. Ekki væri um valfrelsi að
ræða ef nemendum væri mismunað á
grundvelli fjárframlaga.
Trúarbrögð | „Við þurfum að ræða
það ýtarlega hver staða borgarinnar
er núna í samhengi við það að styðja
sérstaklega skóla sem reknir eru á
trúarlegum forsendum. Hvert er
svar okkar komi til þess að félög
múslima óski eftir að reka skóla á
sínum forsendum í Reykjavík eða
skólar annarra trúarhópa?“ spurði
Stefán Jón.
Svíþjóð | „Viljum við að börnin
lendi í trúarlegum eða hug-
myndafræðilegum smáhólfum eins
og reyndar hefur orðið raunin í Sví-
þjóð?“ bætti hann við. Skólastefnan
þar hefði unnið gegn því og vakið
með því miklar umræður.
Kómískt | Guðlaugur Þór Þórð-
arson, D-lista, sagði það þá liggja fyr-
ir að Samfylkingin væri á móti tvö-
földu skólakerfi, eins og Stefán Jón
hefði kallað það. Þetta væri „kóm-
ískt“ því framtíðarhópur sama flokks
hefði lagt fram tillögu að æskilegt
væri að hafa „aukna fjölbreytni í
rekstrarfyrirkomulagi á skólastigi.“
Ánægja | Katrín Jakobsdóttir,
R-lista, greindi frá könnun meðal
4.000 foreldra á viðhorfi þeirra til
grunnskóla í borginni. „Eru 83% for-
eldra mjög ánægð eða frekar ánægð
með skólana sem börn þeirra eru í.“
Þeir leggðu mesta áherslu á for-
varnir gegn einelti, góða sérkennslu,
máltíð í hádegi og tölvukost.
Strætó | Björk Vilhelmsdóttir,
R-lista, var kosin í stjórn Strætó bs.
Aðkoma borgarfulltrúa að stjórnun
fyrirtækisins verður greiðari fyrir
vikið, en áður var stjórnarmaður
borgarinnar ekki úr þeirra hópi.
Milljónir | Kjartan Magnússon, D-
lista, sagði eðlilegt að fulltrúi minni-
hlutans í borgarstjórn fengi að sitja
stjórnarfundi Strætó bs. Af 1.300
milljónum sem sveitarfélög greiddu
með rekstrinum næmi framlag
Reykjavíkurborgar 900 milljónum.
Fulltrúar | Björk sagði heppilegt ef
fleiri úr þeirra hópi kæmu að stjórn
Strætó. „Ég myndi ekki syrgja það ef
þarna væri fulltrúi fleiri afla í borg-
arstjórn Reykjavíkur.“
Mistök | Mistök hefðu verið gerð við
nýjan stofnsamning Strætó bs. Þar
segði að formennska ætti að skiptast
á milli aðildarsveitarfélaganna. Áður
átti fulltrúi fjölmennasta sveitarfé-
lagsins að vera formaður.
Óeining | „Það virðist ekki vera ein-
ing um það í stjórn Strætó að
Reykjavík hafi forystu í þessari
stjórn. Mér þykir það mjög miður,“
sagði Björk því Reykjavík hefði verið
í forystu fyrir eflingu almennings-
samgangna.
segir að Stúdentaráð telji ekki rétt að
ræða þennan áherslumun í fjölmiðl-
um. Einnig segir að fréttatilkynningu
um meint samstarfsslit verði að
skoða í því ljósi að kosningar til Stúd-
entaráðs og Háskólafundar séu í
næstu viku. Þá segir í tilkynningunni:
„Samstarfi námsmannahreyfinganna
er ekki lokið af hálfu SHÍ. Hins vegar
er ljóst að ekki er vænlegt þegar slík
skilaboð eru send til fjölmiðla án þess
að reynt sé að ræða málin fyrst við
SHÍ.“
Deilt um vinnu við
nýjar úthlutunarreglur
Í fréttatilkynningu Röskvu segir
að málið sé alvarlegt í ljósi þess að
framundan sé endurskoðun á úthlut-
unarreglum Lánasjóðsins. „Baráttan
fyrir betri lánum hefur grundvallast
anna við Stúdentaráð sé lokið. „Þykir
okkur það miður því í heilt ár hefur
verið reynt að viðhalda samstarfi og
samstarfsgrundvelli og hefur það
gengið brösuglega, en því miður hef-
ur SHÍ ekki sýnt vilja til frekara
samstarfs,“ segir í frétt frá hreyfing-
unum. Stúdentaráði er þakkað sam-
starfið og vonast er eftir því að flötur
finnist á ný fyrir endurnýjuðu sam-
starfi.
Segja samstarfið
hafa gengið vel
Í fréttatilkynningu Stúdentaráðs í
fyrradag segir að samstarfs náms-
mannahreyfinganna sé mikilvægt og
hafi gengið vel í vetur. Ákveðinn
áherslumunur sé meðal fylkinganna
sem skapað hafi spennu en samstarf-
ið í flestum tilfellum gengið vel og
ÞRJÁR hreyfingar námsmanna,
Bandalag íslenskra námsmanna, Iðn-
nemasamband Íslands og Samband
íslenskra námsmanna erlendis, hafa
lýst því yfir að Stúdentaráð Háskóla
Íslands hafi undir forystu Vöku slitið
samstarfi við hreyfingarnar þrjár.
Forysta Stúdentaráðs Háskóla Ís-
lands segir þetta ekki rétt, samstarf-
inu hafi ekki verið slitið og það standi
ekki til, tilkynning námsmannahreyf-
inganna hafi komið mjög á óvart. Þá
segir í tilkynningu frá Röskvu að
málið sé alvarlegt enda sé samstaða
grundvöllur hagsmunabaráttunnar.
Í tilkynningu frá áðurnefndum
þremur námsmannahreyfingunum
segir að eftir fund í Lánasjóði ísl.
námsmanna í síðustu viku hafi Stúd-
entaráð ekki sýnt vilja til samstarfs
og því sé ljóst að samstarfi hreyfing-
á samstarfi hreyfinganna og er því
miður að Stúdentaráð hafi ekki sýnt
vilja til samstarfs,“ segir þar einnig.
Í nýrri fréttatilkynningu frá náms-
mannahreyfingunum þremur í gær
kemur fram að það komi þeim á óvart
Stúdentaráð telji samstarfið hafa
gengið vel. Upp úr hafi soðið á þegar
SHÍ hafi óskað eftir frestun á und-
irbúningsvinnu við nýjar úthlutunar-
reglur Lánasjóðs íslenskra náms-
manna á fundi 28. janúar. Náms-
mannahreyfingarnar hafi ekki getað
fallist á það þar sem það hefði í för
með sér að námsmenn yrðu lengur í
óvissu um fjárhagsstöðu sína næsta
vetur. Þess vegna telji námsmanna-
hreyfingarnar þrjár að SHÍ hafi slitið
samstarfinu því með beiðni um frest-
un hafi hagsmunir námsmanna verið
virtir að vettugi.
Telja að Stúdentaráð HÍ hafi
slitið við sig öllu samstarfi
ALCOA undirritaði nýlega vilja-
yfirlýsingu ásamt stjórnvöldum í
Afríkuríkinu Gana um uppbygg-
ingu og þróun áliðnaðar þar í
landi auk endurbóta á járn-
brautakerfinu. Um svipað leyti
gekk fyrirtækið frá kaupum á
tveimur verksmiðjum í Rússlandi,
sem áður voru í eigu RUSAL, fyr-
ir 16 milljarða króna. Framleiða
verksmiðjurnar ýmsar vörur úr áli
og eru í Samara og Belaya
Kalitva. Til viðbótar hyggst Alcoa
verja 80 milljón dollurum, um
fimm milljörðum króna, til upp-
byggingar og endurbóta á verk-
smiðjunum.
Alcoa fjárfestir
í Rússlandi
og Gana