Morgunblaðið - 04.02.2005, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2005 17
ERLENT
ENGINN SYKUR
ALVÖRU BRAGÐ
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
14
8
8
6
EKKI ÉG!
HVER ER
SÆTUR?
Hátt í hæðinni við Klapparholt, innan um holtagróður, steina og klappir, stendur fallegt einbýli á frábærum
útsýnisstað, þaðan sem horft er yfir Hafnarjarðarhöfn og yfir Flóann og Sundin til fjalla. Húsið er teiknað af
Albínu Thordarson og er öðruvísi útfært en flest önnur. Það er ca 220 fm á tveimur hæðum. Niðri eru stofur,
eldhús, eitt herbergi og innbyggður bílskúr og uppi er gert ráð fyrir þremur herbergjum en tvö herbergin hafa
verið sameinuð í stóra stofu. Allar innréttingar eru sérteiknaðar af arkitekt hússins. Óhreyft land með náttúru-
minjum í kringum húsið. Einstakt tækifæri.
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033 - Ægir Breiðfjörð löggiltur fasteignasali
Opið mán.-fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9-17
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 17-19
KLAPPARHOLT 7 - ÚTSÝNI YFIR ALLT
Martin McGuinness, samninga-
maður Sinn Fein, stjórnmálaarms
IRA, sagði, að yfirlýsingin væri svar
við fjandsamlegri afstöðu bresku og
írsku stjórnarinnar en talsmaður
Blairs sagði í gær, að það væri síður
en svo, að breska stjórnin vildi ögra
Sinn Fein. Hún stæði hins vegar
frammi fyrir þeirri staðreynd, að
„það var IRA, sem stóð að banka-
ráninu“.
Í yfirlýsingu IRA sagði ekki, að
samtökin myndu grípa aftur til vopna
en vegna þessa máls hafa deiluaðilar
forherst í afstöðu sinni. Ian Paisley,
leiðtogi Lýðræðislega sambands-
flokksins, stærsta stjórnmálaflokks
mótmælenda, sagði í gær, að yfirlýs-
ingin sýndi, að IRA hefði aldrei ætlað
að afsala sér vopnunum.
„Það vakti aldrei fyrir þeim að
hætta sinni víðtæku glæpastarf-
semi,“ sagði Paisley.
Allmargir stjórnmálaleiðtogar á
N-Írlandi og Írlandi, jafnt kaþólskir
sem mótmælendur, fordæmdu í gær
yfirlýsingu IRA og skoruðu á leið-
toga samtakanna að játa þátt sinni í
bankaráninu í Belfast og öðrum
glæpum.
Nýjar blikur á
lofti á N-Írlandi
IRA dregur til
baka tilboð um að
eyða vopnum
vegna ásakana
um bankarán
AP
Tvær konur ganga framhjá vegg í hverfi kaþólikka í Vestur-Belfast í gær.
Á vegginn hefur heiti Írska lýðveldishersins verið ritað.
Dyflinni. AP, AFP.
ILLA horfir nú með friðarferlið á
Norður-Írlandi eftir að IRA, Írski
lýðveldisherinn, dró í gær til baka til-
boð um að eyðileggja vopnabirgðir
sínar. Er ástæðan sú, að samtökin
hafa verið sökuð um að bera ábyrgð á
miklu bankaráni í Belfast í desember
en þau neita því harðlega.
Í yfirlýsingu, sem IRA birti í gær í
Dyflinnar-blaðinu An Phoblacht, er
ásökununum lýst sem „upplognum
og illgjörnum“ og þar segir einnig, að
öll tilboð IRA séu „úr sögunni“ um
sinn.
Þetta þýðir, að tilraunir bresku og
írsku stjórnarinnar til að fá IRA til að
eyðileggja vopnabirgðir sínar undir
eftirliti eru farnar út um þúfur, að
minnsta kosti í bili.
Yfirlýsinguna birti IRA eftir að
þeir Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, og Berie Ahern, forsætis-
ráðherra Írlands, lýstu yfir, að
glæpastarfsemi IRA væri helsti
þröskuldurinn í vegi friðar á N-Ír-
landi. Minntu þeir á, að í desember
hefði lítið vantað upp á samkomulag
við IRA um að eyða vopnabirgðum en
þær viðræður hefðu að engu orðið er
rúmlega þremur milljörðum ísl. kr.
var rænt úr Northern Bank í Belfast.
SÆNSKI auðmaðurinn Fabian
Bengtsson, sem hvarf 17. janúar
sl. og fullvíst sýnist að hafi verið
rænt, er fundinn. Bengtsson
fannst í gærmorgun á bekk í
Slottsskogen í miðborg Gauta-
borgar.
Bengtsson, sem er 32 ára, er
annar framkvæmdastjóra Siba,
leiðandi fyrirtækis á sviði raf-
magnstækja í Svíþjóð. Siba er fjöl-
skyldufyrirtæki og er auður eig-
endanna sagður margir milljarðar
króna.
Hann hvarf 17. janúar þegar
hann var á leið til vinnu. Faðir
hans, Bengt Bengtsson, sem er
forstjóri Siba, fékk SMS-skilaboð
frá syni sínum en þau gáfu til
kynna „að hann væri ekki fjarver-
andi af fúsum og frjálsum vilja“.
Sænsk lögreglan sagði í gær að
ástand Bengsstons væri gott mið-
að við aðstæður. Fullyrti tals-
maður lögreglu að lausnargjald
hefði ekki verið greitt fyrir
Bengtsson. Sagði hann jafnframt
að mannanna sem rændu honum
væri nú ákaft leitað.
Fjölskylda Bengtssons hafði
gefið til kynna á netsíðu fyrirtæk-
isins að hún væri tilbúin að greiða
ræningjunum lausnargjald. Bar
talsmaður lögreglunnar lof á fjöl-
skylduna og sagði hana hafa sýnt
mikið hugrekki og yfirvegun.
Staðfesti hann að krafa um lausn-
argjald hefði komið fram en tjáði
sig ekki nánar um hvað hugs-
anlega hefði búið að baki þeirri
ákvörðun ræningjanna að sleppa
Bengtsson.
Svenska Dagbladet hafði heim-
ildir fyrir því að Bengtsson hefði
hugsanlega sloppið frá ræningjum
sínum. Hann hefði kastað mæðinni
á bekknum í Slottsskogen er
kennsl voru borin á hann og lög-
regla var send á staðinn.
Segja 90 milljónir
hafa verið greiddar
Sænska dagblaðið Expressen
hafði eftir vitni sem kom að
Bengtsson í Slottsskogen um
klukkan hálfátta að staðartíma í
gærmorgun að hann hefði verið
afar ringlaður og vart vitað hvar
hann var niðurkominn. Expressen
kvaðst og hafa heimildir fyrir því
að ræningjarnir hefðu kastað
Bengtsson út úr ökutæki nærri
Slottsskogen.
Þá hafði blaðið eftir heimild-
armönnum sínum að Bengt
Bengtsson, faðir Fabians Bengts-
sons, hefði greitt ræningjunum tíu
milljónir sænskra króna, tæpar 90
milljónir íslenskra, í lausnargjald.
Peningunum hefði verið komið til
ræningjanna í þessari viku, senni-
lega á miðvikudag.
Auðmaðurinn
Fabian Bengtsson
fannst í Gautaborg
Sænska dagblaðið Expressen segir
að lausnargjald hafi verið greitt
ZURAB Zhvania, forsætisráð-
herra Georgíu, lést í gær af slys-
förum á heimili vinar síns í Tbil-
isi, höfuðborg landsins. Kom upp
gasleki í íbúðinni og varð hann
þeim báðum að bana.
Vano Merabishvili, innanríkis-
ráðherra Georgíu, sagði í gær, að
enginn grunur væri um neitt
misjafnt. Sagði hann, að Zhvania
hefði komið í íbúðina um mið-
nætti í fyrrinótt en á fimmta tím-
anum hefði varðmenn verið farið
að gruna, að ekki væri allt með
felldu og hefðu þeir þá brotist
inn. Komu þeir
að Zhvania og
gestgjafa hans,
Zurab Usupov,
aðstoðarríkis-
stjóra Kvemo-
Kartli-héraðs,
látnum.
Í stærsta
herbergi íbúð-
arinnar var ír-
anskur gasofn og er slysið rakið
til leka úr honum. Fannst
Zhvania sitjandi í stól en Usupov
í eldhúsinu. Báru tilraunir til að
lífga þá við engan árangur.
Mikhail Saakashvili, forseti
Georgíu, minntist Zhvania í gær
sem góðs vinar en hann tók virk-
an þátt í mótmælunum, sem
steyptu Eduard Shevardnadze
forseta af stóli í nóvember 2003.
Var hann mjög hófsamur og
lagði ávallt áherslu á að leysa all-
ar deilur, til dæmis við aðskiln-
aðarsinna í Abkhazíu og Suður-
Ossetíu, með samningum.
Zhvania var líffræðingur að
mennt, 41 árs að aldri, og lætur
eftir sig konu og þrjú börn.
Zurab Zhvania
Zhvania lést vegna gasleka
Tbilisi. AP.