Morgunblaðið - 04.02.2005, Side 20

Morgunblaðið - 04.02.2005, Side 20
Akureyri | Höfuðborgin | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Úr bæjarlífinu Bæjarskrifstofu lokað | Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur ákveðið að bæj- arskrifstofum á Eski- firði verði lokað. Á fundi bæjarráðs 2. febr- úar sl. var farið yfir skipulag skrifstofuhalds hjá Fjarðabyggð í fram- haldi af þessu og sam- þykkt að starfsmenn á Eskifirði hafi vinnuað- stöðu sína framvegis í verslunarmiðstöð- inni Molanum sem nú er að rísa á Reyð- arfirði. 7.000 servíettur | Í anddyri Bókasafns Akraness stendur nú yfir safnarasýning. Þar sýnir Margrét Gunnardóttir, starfs- stúlka á Sjúkrahúsi Akraness, servíettur sem hún hefur safnað frá því hún var 6 ára eða í yfir fjörutíu ár. Margrét á í fórum sín- um um 7.000 servíettur af ýmsum gerðum og eru hér sýndar m.a. elstu servíetturnar úr safninu. Sýningin er opin á sama tíma og safnið og lýkur í lok febrúar. Þá sýnir Mar- grét einnig hluta af pennasafni sínu. Sextán skógarbændurí Héraðsskógaverk-efninu sóttu um að fá fjármagn til grisjunar á jörðum sínum í ár, að því er fram kemur á vefnum her- adsskogar.is. Starfsmenn Héraðsskóga hafa verið að taka út þessar jarðir og meta grisjunarþörfina og forgangsraða jörðunum eftir grisjunarþörf. Þau svæði sem verða sett í for- gang eru þar sem skógur er hæstur og þéttastur, einkum reitir þar sem þétt- leiki á lerki er um 3000 tré á hektara og þar yfir og þar sem yfirhæð trjáa er 4-5metrar. Hagkvæmt er að jafna bil trjáa í þessum reitum og fækka trjám nið- ur í 1500 til 1800 tré á hekt- ara. Þessa reiti er oft hægt að grisja með kjarrsög. Grisjun Snjóbrettafélag Íslands og Skíðadeild Tindastóls áSauðárkróki halda í sameiningu snjóbrettahelgií skíðasvæðinu í Tindastóli við Sauðárkrók. Boð- ið verður upp á kennslu fyrir vana og óvana snjó- brettamenn, brettabíó og margt fleira. Nægur snjór er í aðalbrekkunni á skíðasvæðinu í Tindastóli þrátt fyrir hláku síðustu daga. Fastar áætlunarferðir frá Króknum og á á skíða- svæðið verða þrisvar í viku í tilraunaskyni næstu tvo mánuði. Brettahelgi í Tindastóli Rangt var haft eftirhvolpnum Basilfursta, leiðréttist hér með vísa hans til katt- arins. Þess má geta að spænska orðið fácil þýðir auðveldur, meðfærilegur. Með kastilíönskum hætti verða bæði rímorðin, þ.e. fácil/Basil smámælt, u.þ.b. faþil/Baþil. Umfram allt þú ætíð skalt auðmjúk vera og fácil og víst ávalt þeim vana halt að vera góð við Basil. Pétur Þorsteinsson kom að kettinum þar sem hann hafði algjörlega gleymt sér í sjálfsdýrkun: Ýsa, lúða, eðalvín einatt hug minn seiða. Kríur, þresti, keldusvín kann ég lík’að veiða. Basil fursti svaraði: Þú hugsar um það helst og fremst að hringa þig og mala, en aldrei sá til æru kemst sem ekki kann að smala. Enn af Basil fursta pebl@mbl.is Mývatnssveit | Ívar Stefáns- son, bóndi í Haganesi í Mý- vatnssveit, hafði litið til vatns- ins á björtum sólskinsdegi í byrjun febrúar, en áhyggju- svipurinn leynir sér ekki. Að öllu eðlilegu væri hann frammi á ísnum í dag að vaka undir. En það er ekki til nokkurs hlut- ar og því gekk hann sér aðeins upp á Þinghól og leit yfir vatnið sitt. Hann hugsar til þeirra daga þegar fengust gjarnan 20 stórar og fallegar bleikjur í net eftir nóttina. Hann segir af kornátunni sem fyrrum var mikilvæg fæða bleikjunnar. Nú sést ekki kornáta enda bleikjan gul á kviðinn sem fyrrum var rauður. Þannig er nú komið fyrir lífríkinu en bændur horfa í gaupnir sér og enginn veit hvenær aftur verður vakað undir ís á Mývatni. Morgunblaðið/BFH Af veiðibónda í Mývatnssveit Íslaust Akureyri| Bæjarráð Akureyrar hefursamþykkt tillögur framkvæmdaráðs varð-andi endurbætur á Tjaldstæðinu við Þór- unnarstræti, „enda rúmist kostnaður við þær framkvæmdir sem ráðist verður í inn- an fjárhagsramma framkvæmdadeildar á árinu 2005,“ eins og segir í fundargerð bæjarráðs. Ráðið fól framkvæmdaráði að gera til- lögur um framtíð tjaldstæðisins við Þór- unnarstræti og hugsanlegar úrbætur á því. Framkvæmdaráð leggur til að enn um sinn verði rekið tjaldstæði við Þórunnarstræti. Til að svo megi verða er lagt til að áður en starfsemi hefst á svæðinu í vor verði það girt af, lokið verði fullnaðarfrágangi bif- reiðastæða norðan þess og lagfæringar gerðar á tengingum rafmagns og vatns á svæðinu. Með þessu móti telur fram- kvæmdaráð að komið sé til móts við þær athugasemdir og umkvartanir sem íbúar í næsta nágrenni svæðisins hafa komið á framfæri og einnig að öryggi gesta og starfsfólks sé betur tryggt. Endurbætur á tjaldstæði Morgunblaðið/Kristján Borgarfjörður | Nemendum Viðskiptahá- skólans á Bifröst gafst tækifæri til að ræða við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra um menntamál á fundi sem haldinn var með henni á vegum Miðgarðs, Félags ungra sjálfstæðismanna á Bifröst fyrr í vikunni. Þorgerður Katrín sagði eftir fundinn að góðar umræður hefðu skapast um öll skólastigin, allt frá leikskóla upp í háskóla. „Ég hélt stutta tölu fyrst og þegar nem- endum gafst tækifæri til að spyrja var komið víða við,“ sagði hún. „Þetta var mál- efnalegur fundur þar sem meðal annars var rætt um styttingu náms til stúdents- prófs, skólagjöld og fjölbreytni í náms- framboði háskólanna, svo eitthvað sé nefnt. Ég lagði áherslu á mikilvægi þess að ýta undir sérstöðu háskólanna í þessu sam- keppnisumhverfi sem hér er. Mér hefur fundist vel takast til í þeim efnum á Bifröst.“ Menntamálaráðherra sagðist alltaf hafa jafngaman af því að heimsækja Bifröst. „Það er alltaf gaman að sjá gróskuna sem þar er svo áberandi.“ Gaman að sjá gróskuna ♦♦♦          Íbúafundur| Bæjarstjórn Blönduósbæjar hefur samþykkt að standa fyrir almennum íbúafundi til að ræða stöðu atvinnumála og framtíðarhorfur. Kemur þetta til af því að miklar breytingar hafa orðið í atvinnumálum í bæj- arfélaginu undanfarið að því er fram kemur á vef sveitarfélagsins. Í bókun bæj- arstjórnar segir að á fundinum verði lögð áhersla á að kynna fyrir bæjarbúum þær breyt ingar sem hafa átt sér stað og hvaða tækifæri felast í þeim og nýjum atvinnutækifærum HÉÐAN OG ÞAÐAN Íbúðir ganga kaupum og sölum | Góð sala var á íbúðarhúsnæði á síðasta ári. Um 70 íbúðir gengu kaupum og sölum á Húsa- vík á árinu 2004. Þá breytti Trésmiðjan Norðurvík sínu atvinnuhúsnæði í fimm íbúðir um leið og fyrirtækið flutti starfsem- ina í annað húsnæði. Þrjár af þeim voru af- hentar nýjum eigendum í desember 2004. Hinar tvær íbúðirnar sem eru um 80 m2 hafa verið auglýstar til sölu. Þær verða til- búnar nú í febrúar en töluvert hefur verið spurt um þær að því er fram kemur á vef Stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslu þar sem greint er frá íbúðamálunum. STOFNFUNDUR félags um hálendisveg, svokallaðan Norðurveg, verður í dag, föstudaginn 4. febrúar, kl. 13.15, á La Vita e Bella á Ak- ureyri. Halldór Blöndal alþing- ismaður flytur ávarp sem og einnig Birgir Guðmundsson hjá Vegagerðinni og starfs- menn Línuhönnunar fjalla um mat á umhverfisáhrifum. Þá verður gengið frá stofn- samþykktum og skipuð stjórn. Núverandi þjóðvegur er 388 km og er þörf á verulegum endurbótum á honum, auk þess sem hann er ekki hann- aður fyrir þungaflutninga. Þá mun styttri leið spara bæði tíma og stuðla að minni meng- un. Áætlað er að Norðurvegur liggi úr Borgarfirði um Hallmund- arhraun og Stórasand til Skagafjarðar. Þessi vegur er ekki inni í nú- gildandi samgönguáætlun, en gera má ráð fyrir að félagið munu berjast fyrir því að fá veginn inn í áætlunina. Vegurinn myndi stytta leiðina milli Akureyrar og Reykjavíkur um allt að 80 kílómetra, þannig að leiðin yrði í heild rétt rúmlega 300 km. Vegagerðin setti síðastliðið haust upp tvo mæla á fyrirhuguðu vegstæði Norðurvegar. Stofnfundur um hálendisveg              1G  !%%           

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.