Morgunblaðið - 04.02.2005, Side 31

Morgunblaðið - 04.02.2005, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2005 31 UMRÆÐAN FÖSTUDAGINN 4. febrúar 2005 er merkur dagur í sögu Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, en í dag verður félagið 70 ára. Vaka var stofnuð á um- brotatímum í íslensku samfélagi til höfuðs uppgangi róttækra þjóð- ernissinna og rót- tækra sósíalista í Háskóla Íslands. Hún hefur jafnan verið stærsta stúdenta- fylkingin í stúd- entaráði og hefur lengst af leitt hags- munabaráttuna. Fyrst og fremst hefur Vaka þó alltaf staðið vörð um þá hugmynda- fræði að Stúdentaráð Háskóla Íslands eigi fyrst og fremst að hafa það hlutverk að gæta hagsmuna stúd- enta. Í stjórnartíð Vöku hafa nokkur af stærstu hagsmunamálum í sögu stúdentabaráttunnar fengist í gegn. Þannig var Félagsstofnun stúdenta stofnuð árið 1968 og þökk sé baráttu Vökuliða voru fyrstu hjónagarðarnir byggðir en félagið hafði lengi barist fyrir því að hjónafólk fengi sérstakt húsnæði. Þá var Lánasjóður ís- lenskra námsmanna stofnaður árið 1961 þegar Vaka stýrði stúd- entaráði. Gamli garður hertekinn Vaka hefur ávallt verið á móti fjöldatakmörkunum en á það reyndi fyrst á stríðsárunum þegar hugmyndir voru uppi meðal kenn- ara um að takmarka aðgang að Háskólanum og þar á meðal að verkfræðináminu sem þá var nýbúið að setja á laggirnar. Vöku- menn voru andvígir öllum tak- mörkunum og mótmæltu hug- myndunum harðlega. Gamli Garður var vígður árið 1934 og átti að leysa sárasta hús- næðisvanda stúdenta. Það var svo árið 1940 að breski herinn kom hér til lands og hertók í kjölfarið Garðinn og notaði hann sem sjúkrahús. Vökumenn ásamt öðrum stúdentum brugðust illa við hertökunni og mótmæltu því við Bretana sem lofuðu að rýma hann hið fyrsta. Þegar þeir voru ekkert á þeim buxunum að fara sáu menn ekki aðra leið færa út úr vand- anum en að hefja byggingu nýs garðs. Við byggingarframkvæmdir unnu margir stúdentar sjálfboða- vinnu og var hinn nýi Garður vígð- ur árið 1942 og hefur æ síðan ver- ið kallaður Nýi Garður. Árið 1981 fóru Vökumenn í viðræður við ráðherra með nýtt atriði í lánasjóðsmálum. Vaka vildi að tekjur námsmanna drægjust ekki frá láninu. Þeir vildu með öðrum orðum að námslánakerfið væri ekki vinnuletjandi. Með málefnalegri baráttu náði Vaka því fram að frádráttturinn yrði minnkaður í áföngum. Í dag er skerðingarhlutfallið komið niður í 33% sem áður var 100%. Á seinni hluta 9. áratugarins var Vaka mun stærri en önnur hagsmunafélög en árið 1991 tapaði Vaka óvænt með sex atkvæða mun. Eftir það hófst ellefu ára vera í minnihluta stúdentaráðs sem lauk með fjögurra atkvæða sigri í febrúar 2002. Barátta Vöku ber árangur Með sigrinum 2002 kom nýtt blóð og nýr kraftur í hagsmuna- baráttuna. Eitt af fyrstu verkum nýs stúdentaráðs var að skanna inn ógrynni af gömlum prófum og búa þannig til prófasafn skólans auk þess sem stúdentaráðsliðar Vöku vöktuðu sjálfir byggingar í prófatíð til að sýna fram á að vel væri framkvæmanlegt að hafa op- ið allan sólarhringinn í byggingum Háskólans. Hörð barátta ráðsins undanfarin ár hefur einnig tryggt stúdentum sigra á borð við end- urheimtan kvöldafgreiðslutíma Þjóðarbókhlöðunnar og yfirlýsingu menntamálaráðherra um að ekki yrðu tekin upp skólagjöld við HÍ. Vaka hefur látið verkin tala og mun halda ótrauð áfram í hags- munabaráttu fyrir stúdenta um ókomin ár. Stúdentaráð á fyrst og fremst að gæta hags- muna stúdenta Ingunn Guðbrandsdóttir og Jarþrúður Ásmundsdóttir fjalla um Vöku 70 ára ’Með sigrinum 2002kom nýtt blóð og nýr kraftur í hagsmunabar- áttuna.‘ Jarþrúður Ásmundsdóttir Ingunn er formaður Vöku, Jarþrúður er formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands fyrir hönd Vöku. Ingunn Guðbrandsdóttir ÓALGENGT er að hugað sé sér- staklega að skaðlegum áhrifum tób- aks á munnholið þrátt fyrir að tób- aksnotkun hafi nánast undantekningarlaust bein skaðleg áhrif á munnslímhúð- ina. En hvernig má þekkja sjúkdóms- einkennin eða „fingra- för“ tóbaks í munn- holi? Fyrst koma oftast í ljós brúnir blettir í slímhúð vegna fjölg- unar á melanocytes (sortufrumum) sem eru húðfrumur er lita húðina og þessum húð- frumum fjölgar vegna áhrifa tóbaks. Þessar meinlausu breytingar eru sérstaklega aug- ljósar á meðal Norð- urlandabúa en eru skilj- anlega ekki eins áberandi á meðal þel- dökkra. Erting frá hita tób- aksreyksins ásamt rúmlega 60 ertandi efnasamböndum sem fundist hafa í tóbaksreyk leiða til þess að slímhúðin þykknar og verður hvítari. Þó að þykknun af þessu tagi sé oftast meinlaus eru nokkur svæði í munninum sem eru mjög viðkvæm fyrir þessu og þar getur skapast hætta. Þannig getur frumubreyting og jafnvel myndun krabbameinsæxla átt sér stað innan slíkra hvítra bletta, til dæmis á munnbotni eða í kinnslímhúð. Notk- un áfengis ásamt tóbaksneyslu getur aukið þessa hættu enn frekar. Ef blettir af þessu tagi koma fram á munnslímhúðinni er nauðsynlegt að rannsaka þá nánar, til dæmis með vefjasýnatöku. Algengt er að slíkir slímhúðarblettir séu sýktir með ger- sveppum og eykur það hættu á krabbameini enn frekar. Tóbaksnotkun er að auki einn meginorsakaþáttur tannholdsbólgu og verður sá vandi efni umfjöllunar væntanlegrar greinar frá samkenn- ara mínum við Tannlæknadeild Há- skóla Íslands. Notkun munntóbaks hefur aukist hér á landi síðustu misseri þrátt fyrir að sala þess og dreifing hafi verið bönnuð með lögum árið 2002. Um er að ræða fínmalað munntóbak sem er ann- ars eðlis en sú tegund munntóbaks sem al- geng var á árum áður. Tóbaksform þetta er sérstaklega vinsælt í Svíþjóð og er stundum kallað „snus“. Þar hefur notkun efna af þessu tagi mikið verið rann- sökuð með áherslu á samspil snus og munn- krabbameins. Í ljós hefur komið að sú hætta virðist ekki eins mikil og talið var í upphafi. Helsti vand- inn varðandi snus er þó hversu ávanabind- andi efnið reynist vera. Ein- staklingur sem hættir neyslu munn- tóbaks af þessu tagi, þarf iðulega að reykja mikið til að fá sömu nikótín- áhrif. Hlutverk tannlækna í baráttunni gegn reykingum hlýtur sífellt meiri viðurkenningu (sjá m.a. European Journal of Dental Education 8. tbl. viðauki 4, September 2004) og eru varnir gegn reykingum nú í auknum mæli hluti af námskrám tannlækna- skóla. Einnig er unnið að því mark- miði, að minnsta kosti í Evrópu, að auka þekkingu almennings á þeim skaða sem tóbak getur valdið á munnholi. Tóbak og munnslímhúð Peter Holbrook skrifar í tilefni af tannverndarviku Peter Hoolbrug ’Notkun munn-tóbaks hefur aukist hér á landi síðustu misseri …‘ Höfundur er prófessor við Tann- læknadeild Háskóla Íslands. AÐALFUNDUR Hvammi, Grand Hóteli, í dag föstudaginn 4. febrúar 2005 kl. 13:00 13:00 Hádegisverður í Setrinu, Grand Hóteli. Ávarp: Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, vinnumarkaðsfræðingur og lektor við HÍ. Gildi mannauðsstjórnunar. SKRÁNING 14:15 Skráning við Hvamm, Grand Hóteli. FUNDARSETNING 14:30 Ræða formanns FÍS, Péturs Björnssonar. RÆÐUMENN 14:50 Ávarp: Valgerður Sverrisdóttir, viðskiptaráðherra. 15:10 Ted Henneberry, framkvæmdastjóri hjá írsku samkeppnisstofnuninni: The Return of the Celts! Spreading the Competition message from island to island. Umræður og fyrirspurnir. Kaffihlé 16:15 Almenn aðalfundarstörf skv. samþykktum félagsins. Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síma 588 8910 eða á netfang: lindabara@fis.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.