Morgunblaðið - 04.02.2005, Síða 32

Morgunblaðið - 04.02.2005, Síða 32
32 FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. SKÓLAKLUKKUNNI SNÚIÐ AFTUR Á BAK Svo virðist sem Reykjavíkur-listanum sé hægt og rólega aðtakast það ætlunarverk sitt að ganga af einkareknum skólum í borginni dauðum. Nú eru hafnar viðræður milli Reykjavíkurborgar og Landakotsskóla um að hann verði almennur grunnskóli, nokk- urs konar hverfisskóli, gegn því að fá sömu framlög frá borginni og skólar, sem hún rekur sjálf. Borgin hyggst þó ekki eignast skólann. Af ummælum Sr. Hjalta Þorkels- sonar, skólastjóra Landakotsskóla, í blaðinu í gær verður ekki annað ráðið en kaþólska kirkjan gangi til- neydd til þessara viðræðna. Hjalti segir fjárhagsstöðuna slæma og húsnæðið vannýtt. Kirkjan hafi ekki bolmagn til að leggja mikið fé í reksturinn. Sjálfur segist hann hins vegar þeirrar skoðunar að það verði mikill skaði að því að Landakots- skóli leggist af í núverandi mynd. Fram kom hjá Stefáni Jóni Haf- stein, formanni menntaráðs borgar- innar, á borgarstjórnarfundi á þriðjudag að ennfremur kæmi til greina að Waldorf-skólinn yrði deild í einum af grunnskólum borg- arinnar. Á borgarstjórnarfundinum benti Stefán Jón ennfremur á að staða allra einkareknu skólanna í borginni væri slæm. Hvers vegna er hún slæm? Hún hefur snarversnað eftir að ábyrgð á grunnskólanum færðist yfir til sveitarfélaganna. Reykjavíkurborg hefur markvisst haft einkarekna skóla í fjársvelti og þeir, sem henni stýra, ekki talið koma til greina að þeir fengju sömu framlög á nem- anda og skólar, sem hún rekur sjálf – þrátt fyrir að foreldrar barna í einkareknu skólunum borgi, eins og aðrir, útsvarið sitt og aðra síhækk- andi skatta, sem borgin leggur á þá. Reykjavíkurlistafólk hefur talið einkareknu skólana heldur til óþurftar í skólakerfinu og talið alls- endis fráleitt að fjölga þeim. Nú stefnir í að því takist að fækka þeim. Morgunblaðið sagði sl. þriðjudag frá úttekt sænskra skólamálayfir- valda á frammistöðu einkarekinna skóla eða sjálfstæðra skóla, eins og þeir eru kallaðir í Svíþjóð, í sam- anburði við skóla sem reknir eru af sveitarfélögum. Einkareknu skól- arnir skila alla jafna betri árangri en hinir almennu skólar, rétt eins og á við um einkareknu skólana í Reykjavík, t.d. Landakotsskóla. Í niðurstöðu sænsku könnunar- innar kemur líka fram að einka- reknu skólarnir hafi jákvæð áhrif á skólakerfið í heild sinni. Skólar í eigu sveitarfélaga, þar sem einka- aðilar reka jafnframt skóla, standa sig oft betur en aðrir. Skýringin er m.a. talin sú, að samkeppnin frá einkaskólunum virki hvetjandi fyrir skóla hins opinbera. Í Svenska Dagbladet, þar sem sagt var frá nið- urstöðum könnunarinnar, segir Tomas Johansson, formaður í landssamtökum sjálfstæðra skóla: „Valfrelsið gerir það að verkum að valdið færist til foreldra og nem- enda; þegar þeir fá að velja sjálfir neyðast skólarnir til að bæta sig.“ Þetta er það, sem Morgunblaðið hefur lengi haldið fram; að auka eigi valfrelsi, fjölbreytni og samkeppni í skólakerfinu með því að auðvelda einkaaðilum, t.d. félagasamtökum, söfnuðum og hópum kennara að reka skóla. Blaðið hefur hins vegar talið að það eigi áfram að vera meginreglan að grunnskólamennt- un sé greidd af almannafé, þannig að sveitarfélögin leggi einkarekn- um skólum til sömu upphæð á hvern nemanda og þau verja til eigin skóla. Þannig virkar kerfið í hinni sósíaldemókratísku Svíþjóð og gefst vel. En íslenzkir jafnaðarmenn í Reykjavíkurlistanum virðast alveg lokaðir fyrir hugmyndum um aukna samkeppni og loka jafnframt augun- um fyrir jákvæðri reynslu nágranna- ríkjanna af því að virkja einstaklings- framtakið í menntamálum. Reykjavík er stærsta sveitarfélagið og það, sem mesta möguleika hefði á að auka sam- keppni milli skóla og bæta þannig ár- angur skólakerfisins í heild. Þess í stað virðist þeim, sem þar fara nú með völd, mikið í mun að snúa klukkunni aftur á bak í skólamálum. FRUMKVÖÐULL Í TÓNLISTARLÍFINU Heiðursverðlaun Íslensku tón-listarverðlaunanna féllu að þessu sinni í skaut Helgu Ingólfs- dóttur, semballeikara. „Framlag hennar sem listamanns, í kennslu barokktónlistar og [sem] brauð- ryðjanda í sumartónleikahátíðum á landsbyggðinni er ómetanlegt,“ sagði m.a. í umsögn dómnefndar. Óhætt mun enda að fullyrða að þá miklu uppsveiflu, sem orðið hefur í tónleikahaldi á landsbyggðinni að sumri til á undanförnum áratug, megi rekja til þess hversu mikilvæg og góð fyrirmynd tónleikahaldið í Skálholti hefur verið undir list- rænni stjórn Helgu. Sem stjórnandi Sumartónleika í Skálholtskirkju hefur hún, eins og Bergþóra Jónsdóttir, blaðamaður og tónlistarfræðingur, orðaði það í áramótauppgjöri sínu í Lesbók Morgunblaðsins, með „frum- kvöðulsstarfi sínu [skapað] hefð fyrir flutningi nýrrar íslenskrar tónlistar í bland við gamla tónlist – músíkmixtúru sem hefur virkað vel og átt miklum vinsældum að fagna. Undir hennar stjórn í Skálholti hafa mörg bestu kórverk þjóðarinnar á síðustu þrjátíu árum heyrst í fyrsta sinn“. Framlag hennar til tónlistar- lífsins verður því seint metið til fullnustu. Útvarpsréttarnefnd hefurkomist að þeirri niður-stöðu að útsendingarSkjás eins á knatt- spyrnuleikjum í ensku úrvalsdeild- inni með lýsingu á ensku samræm- ist ekki því ákvæði útvarpslaga, sem kveður á um að efni á erlendu máli, sem sýnt sé á sjónvarpsstöð, skuli jafnan fylgja íslenskt tal eða texti á íslensku. Því beinir nefndin því til Íslenska sjónvarpsfélagins að hætta útsendingu á knattspyrnu- leikjum sem ekki fylgir tal eða texti á íslensku. Þegar rætt eru um sjón- varpsstöð í þessu samhengi er átt við stöð sem hefur útvarpsleyfi hér á landi. Ákvæði laganna eiga ekki við um endurvarp frá erlendum sjónvarpsstöðvum, „enda sé um að ræða viðstöðulaust, óstytt og óbreytt endurvarp heildardagskrár sjónvarpsstöðva,“ líkt og segir í lög- unum. Lögin ná því ekki yfir endurvarp á erlendum stöðvum, s.s. Eurosport og CNN. Það var Þorsteinn Gunnarsson sem sendi útvarpsréttarnefnd er- indi vegna þess að Íslenska sjón- varpsfélagið sendi út á sjónvarps- stöðinni Skjá einum knattspyrnu- leiki í ensku úrvalsdeildinni með lýsingu þula á ensku. Niðurstaða nefndarinnar var ein- róma. Þjóðin alin upp við enska þuli Í bókun útvarpsréttarnefndar eru raktar skýringar forsvars- manna Íslenska sjónvarpsfélagsins. Þar kemur fram að eftir að félagið öðlaðist sýningarétt á þessu efni hafi verið ákveðið að sýna það end- urgjaldslaust leiktíðina 2004 til 2005. Jafnframt hafi verið ákveðið að sýna fleiri leiki en áður hafi þekkst hér á landi. Um sé að ræða kostnaðarsama útsendingu og því brugðið á það ráð að flokka leiki í tvo flokka. Í öðrum flokki, A-leikj- um, séu þeir leikir sem mest sé horft á en þeir séu ávallt með ís- lenskum þulum. Hinn flokkurinn, B-leikir, séu minniháttar leikir, sem sendir séu út með enskri lýsingu. Íslenska sjónvarpsfélagið vísi til þess að íslenska þjóðin sé alin upp við enska þuli að lýsa enskri knatt- spyrnu, enda hafi ríkissjónvarpið sýnt alla leiki í ensku deildinni með enskum þulum á tímabilinu 1967 til 1977. Þá myndi kostnaður aukast umtalsvert ef allir leikir yrðu sýndir með lýsingu á íslensku. Því væri óhjákvæmilegt að fækka leikjum. Stefna félagsins sé að nýta fjár- magn til öflugrar dagskrárgerðar og nýsköpunar frekar en að ráð- stafa fjármunum til að lýsa knatt- spyrnu á íslensku. Þá benti Íslenska sjónvarpsfélag- ið á að flest heimili hefðu aðgang að fjölda erlendra sjónvarpsrása á borð við Eurosport eða Ma United TV. Fengi félagið muninn á því hvort áhorfen að horfa á knattspyrnu á um eða öðrum sjónvarpsst Verið að vernda íslenska tungu Útvarpsréttarnefnd seg tilgangur sé að baki útvar Útsending knattspyrnuleikja með Útsendingar á ekki undanþ Það samræmist ekki útvarpslögum að láta enska þuli um að lýsa Vel kemur til greina að senda út leikifrá ensku úrvalsdeildinni á Skjáeinum án nokkurra þula, aðeins með umhverfishljóðum. Verður hugs- anlega gerð tilraun með þetta nú um helgina, að sögn Magnúsar Ragn- arssonar, framkvæmdastjóra Skjás eins. Hann segir að þulirnir séu á sérstakri rás og því sé þetta auðvelt tæknilega. „Það virðast allir vera á einu máli um það að ef við sendum út leikina án nokkurs þular þá séum við ekki að brjóta nein lög,“ segir Magnús. Hann segir að Skjár einn muni þegar hlíta úrskurði útvarpsréttarnefndar og hætta sýningu leikja með enskum þulum en að fundað verði með nefndinni í næstu viku. Verði ákvörðun nefndarinnar ekki haggað kemur til greina að fara dóm- stólaleiðina. „Við teljum okkur eiga sjón- armið sem ekki hafa verið tekin inn í þetta en það eru sjónarmið Evrópuréttar um frjálst þjónustuframboð á Evrópska efnahagssvæðinu. Ég veit ekki hvort nefndin er tilbúin að endurskoða ákvörð- un sína eða hvort við erum knúnir til þess að kæra úrskurðinn til dómstóla.“ Magnús telur útvarpslögin úrelt hvað þetta varðar. „Mér finnst þetta orðið úrelt þegar það er stöðugt endurvarp hér á fjörutíu erlendum sjónvarpsrásum án nokkurrar textunar allan sólarhringinn. Lögin eiga að vernda íslenska tungu en það er hálfgerð þversögn þegar heimilt er að útvarpa allan sólarhringinn á útlensku en ekki að gera það í tvo klukkutíma. Þannig að þetta er svolítið sérkennilegt.“ Töldu sig vera í fullum rétti Magnús segir að lögfræðingar Íslenska sjónvarpsfélagsins hafi farið yfir málið áður en útsendingar hófust sl. sumar og komist að þeirri niðurstöðu að þetta bryti ekki í bága við útvarpslög. „Við töldum okkur vera í rétti með þessar útsendingar og auðvitað skoðuðum við það í sumar.“ Aðspurður hvort mögulegt sé að senda leikina út á Breiðbandinu í samfelldri dagskrá, bendir Magnús á að það sé nú þegar gert með aukaleiki og ekki hafa verið gerðar athugasemdir við það, enda leikirnir í viðstöðulausu endurvarpi. „Lögin eiga að það er hálfger að útvarpa alla en ekki að ger ig að þetta er s framkvæmdas Leikirnir sýndir án þula?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.