Morgunblaðið - 04.02.2005, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 04.02.2005, Qupperneq 40
40 FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Halldór Steinsenfæddist í Ólafs- vík 5. nóvember 1931. Hann lést á Vífilsstöðum 30. jan- úar síðastliðinn. For- eldar hans voru Ragnheiður Lilja Einarsdóttir frá Hringsdal, f. 14. des- ember 1909, d. 12. september 2001, og Halldór Steinsson, læknir og alþingis- maður, f. 31. ágúst 1873, d. 25. desem- ber 1961. Halldór kvæntist 8. desember 1956 eftirlifandi eiginkonu sinni Steinunni Lárusdóttur, f. 18. maí 1935. Foreldar hennar voru Óskar Lárus Steinsson, kennari í Hafn- arfirði, f. 21. maí 1903, d. 12. apríl 1954, og Kristín Kristjánsdóttir, f. 10. apríl 1904, d. 6. júní 1999. Börn þeirra Halldórs og Steinunnar eru: 1) Kristín Lilja, viðskiptafræðing- ur, MBA, f. 25. maí 1957, maður og var við framhaldsnám í Dan- mörku 1960–1967. Hann starfaði sem sérfræðingur í lyflækningum og gigtsjúkdómum á Landakots- spítala, lyflækningadeild 1968– 1995 (1977–1980 sem yfirlæknir). Hann starfaði jafnframt sem ráð- gefandi sérfræðingur í gigtsjúk- dómum á Sjúkrahúsi Reykjavíkur og var ráðinn sérfræðingur á end- urhæfingardeild frá október 1995 til september 1996. Einnig starfaði hann sem trúnaðarlæknir Sjúkra- húss Reykjavíkur frá september 1996 til ársins 2000. Jafnframt rak Halldór sem sérfræðingur eigin stofu frá janúar 1968 til ársins 2000. Halldór var í stjórn Lækna- félags Reykjavíkur 1969–1971 og varafulltrúi í borgarstjórn Reykja- víkur fyrir Alþýðuflokkinn 1970– 1974. Í heilbrigðisráði Reykjavík- urborgar var Halldór 1970–1974, ritari Gigtsjúkdómafélags ís- lenskra lækna 1974–1975, formað- ur Félags íslenskra lyflækna 1976–1978, varaformaður Gigt- sjúkdómafélags Íslands 1976–1978 og ritari Sérfræðingafélags lækna 1980–1984. Útför Halldórs verður gerð frá Garðakirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 11. Helmut Schuehlen læknir, f. 15. febrúar 1958. 2) Vera Ósk, kennari, f. 14. október 1961. 3) Halldór Steinn, verslunarmað- ur, MBA, f. 16. janúar 1969, sambýliskona hans er Þóra Brynj- úlfsdóttir, verslunar- kona, f. 17. júlí 1959, sonur þeirra er Steinn Torfi, f. 5. desember 2000. 4) Rut, við- skiptafræðingur, f. 14. maí 1977, maður, Ingvar Guðmundsson, MSC verkfræði, f. 3. desember 1968. Sonur þeirra er Alex Orri, f. 25. ágúst 2003. Halldór átti heima í Ólafsvík fyrstu fjögur ár ævinnar. Hann fluttist til Reykjavíkur með for- eldrum sínum 1935. Hann varð stúdent frá Verslunarskóla Íslands 1951 og lauk læknanámi frá Há- skóla Íslands 1959. Halldór var héraðslæknir í Færeyjum í eitt ár Elsku pabbi, loksins, loksins ertu frjáls. Síðastliðin ár máttum við fylgjast með því hvernig Alz- heimersjúkdómurinn rændi þig persónuleika þínum. Hvar skal byrja, ótal minningar brjótast fram. Aldursmunur okkar er nokkur, áratugur skilur okkur flest að í aldri. Minningar okkar mótast af því hvar þið mamma vor- uð stödd á ykkar lífsferli. Þegar eitt okkar var farið að heiman var annað á uppvaxtarárum. Þó var þinn kjarni alltaf óbreyttur. Skarpgreindur, launfyndinn, ag- aður, víðlesinn og einstaklega traustur. Þú settir ákveðið viðmið sem höfum gert að okkar. Öll eig- um við það sameiginlegt að álit þitt var okkur mikils virði. Við reynd- um að gera þig stoltan af okkur og þú varst örlátur á hrós þegar vel tókst til. Þú varst klettur í hafinu, alltaf gátum við leitað til þín þegar eitt- hvað bjátaði á. Sérstaklega minnisstæðar eru allar þjóðmálaumræðurnar við kvöldverðarborðið. Mörg heimsins vandamál voru leyst eftir matinn á Tjarnarflötinni. Þú hafðir gaman af því að þjálfa rökhugsun okkar og hvattir til sjálfstæðrar hugsunar. Sjálfsagi þinn varð reyndar að umtalsefni á Flötunum í Garðabæ. Í tíðaranda þar sem fáir hreyfðu sig umfram það sem bráðnauðsyn- legt var, tókst þú upp á því að sippa á afgirtri veröndinni heima. Þetta gerðir þú af trúarlegri ná- kvæmni fimm sinnum í viku. Marg- ir sem áttu leið hjá ráku upp stór augu, þar sem hausinn á virðu- legum lækninum birtist reglulega yfir grindverkið. Einhverjir tóku upp á því að telja og við systkinin vorum iðulega spurð um þessa iðju. Ekki var laust við stolt. Menntun okkar var þér kapps- mál. Þú studdir okkur með ráðum og dáð. Óteljandi eru þær ritgerðir sem fóru í gegnum ritskoðunina á kontórnum heima. Alltaf tókst þér að koma með gagnlegar ábending- ar á uppbyggjandi hátt. Helst hefðum við viljað, elsku pabbi, að þessi fáu orð færu í gegnum nál- arauga þitt. Elsku pabbi, takk fyrir allan stuðninginn, umhyggjuna og ást- ina. Þú lifir áfram í okkur. Rut, Halldór Steinn, Vera Ósk og Kristín Lilja. Jæja, núna er þetta búið og við sem ætluðum að verða a.m.k. 80 ára. Þessi síðastliðnu ár hafa verið alveg ómetanleg í lífi mínu og hef ég kynnst þér mun betur en ég þekkti þig í raun áður. Hlutirnir gerðust allt of hratt, vinnan hefur átt hug þinn lungann af ævi þinni og þegar þú hættir í vinnunni 2000 eftir sjúkdómsgreininguna þá urð- um við að finna nýtt líf svo aftur væri gaman að lifa. Það reyndist auðvelt því að maður varð alltaf fyrir ákveðnum hughrifum þegar maður hugsaði hvað væri hægt að gera fyrir pabba. Pabbi uppfyllti alveg mínar hugmyndir um hvern- ig pabbar eiga að vera. Hann hafði ætíð lausnir á reiðum höndum, dýptina til að lækna sálarangist, breiddina til að gera kröfur til lífs- ins og forvitni hins hugsandi manns til að prófa nýjungar. Það var auðvelt að líta upp til hans því hann uppfyllti allar gæðakröfur, vel menntaður, hélt sér ungum með líkamsrækt og skammaði aldr- ei. Það var kannski af því að ég var alltaf svo þæg. Mamma sagði alltaf að þegar ég fæddist, þá hefði pabbi fyrst verið tilbúinn að verða pabbi, kominn í stöðu og búinn með há- skólalesturinn. Svo að ég fékk upp- eldi sem var engu líkt, fjögur prinsessuár í Danmörku, eitt í Sví- þjóð og þó að ég að engu leyti upp- fyllti þær kröfur sem gerðar eru til prinsessu, bæði „ljót og feit“, þá féll það nú fljótt í skuggann af ný- móðins uppeldishugsun hans að ala upp pabbastelpur og að fegurð kæmi innan frá. Honum blöskraði ósjálfstæði stúlkna og manni var kennt frá upphafi að hugsa rökrétt, ekki láta tilfinningar leiða sig í gönur og ekkert væri þess virði að fórna heilsunni fyrir það. Þegar ég sá Papermoon með Ryan og Tatum ÓNeal minnti það mig á þegar ég fékk fyrstu galla- buxurnar mínar sérsendar frá Am- eríku aðeins fimm ára gömul og var alveg eins „cool“ og pabbi: Hvað hann hneykslaði nunnurnar í Landakoti með buxnaklæddu dótt- urinni. En þarna strax í upphafi beygðist braut mín inn á svið sem mér finnst spennandi í dag, tískuna eða hvernig sjálfstæði kvenna end- urspeglast í fatnaðinum sem þær klæðast. Hans „mottó“ var að eiga góðan hvunndag, hvers mikilvægi ég skildi ekki fyrr en í listanámi síðar meir í Bandaríkjunum, að hafa tíma til að njóta dagsins, finna tíðarandann í kaffihúsunum og andardráttinn í samfélaginu með lestri fagtímarita og dagblaða. Að afköst næsta dags felast í góðu stundum fyrri dags og hve tíminn er í raun afstæður. Ófáar voru stundirnar þar sem hann las fyrir okkur úr dagblöðum texta sem hafði misfarist eða komu ekki hugsun höfundar til skila, gagn- rýndi og útskýrði fyrir okkur á kaldhæðinn hátt hvernig myndi fara fyrir þjóðfélaginu ef allir hugsuðu svona. Svo að við pöss- uðum okkar að hugsa aldrei eins og hinir. Samt vorum við frekar hefðbundin en frumleg hugsun var gulls ígildi. Þegar eldri systir mín og ég ákváðum að taka sumarvinnu í fiskvinnu á Vestfjörðum ’76 (heimaslóðir móður hans) gaf hann okkur langan fyrirlestur um nyt- semi þess að kynnast undirstöðu- atvinnuvegi íslenska hagkerfisins og þegar systir mín hætti við, gátu tíu villtir hestar ekki haldið aftur af mér að fara samt eftir þennan innblásna fyrirlestur. Svona var pabbi, alltaf fullur hugmynda og hugsjóna um betra líf, stjórnaði og stofnaði Lækna- miðstöð sem komst næst því að fullnægja hans hugmyndum um sjálfstæðan rekstur í heilbrigðis- kerfinu. Alltaf örlátur, þegar mað- ur bað um 1000 krónur fékk maður fimm sinnum meira og alltaf reikn- að ríflega þegar maður fékk pen- ing fyrir utanlandsferðir enda var ég líka alltaf sjálfsöruggasta stúlk- an í hópnum. Hann var sem kletturinn í haf- inu, lét aldrei stjórnast af ódýrum gildismötum samtímans, heldur hafði sín eigin viðmið sem við í fjölskyldunni nutum góðs af. Elsku pabbi minn, ég vona að þín hugsun dreifist yfir alla jörð og hvetji alla menn til betra og mann- úðlegra lífs því að góð hugsun mun svo sannarlega lifa. Þín dóttir Vera. Allt hefur sinn tíma, upphaf og endi. Það kom okkur ekki á óvart, sem til þekktum, að mágur og svili okkar Halldór hefði kvatt þennan heim. Hann hafði í nokkur ár átt við erfiðan sjúkdóm að stríða. Upphaflega leyndi sjúdómurinn á sér en með tímanum rændi hann líkamlegu og andlegu þreki hans. Halldór hefur um hálfrar aldar skeið tilheyrt fjölskyldu okkar. Ung að árum kynntust þau Unna (Steinunn) og Halldór og gengu í hjónaband 1956. Þá var Halldór langt kominn í læknisfræði og Unna var við nám í lyfjafræði. Halldór var glæsilegur á velli og góðum gáfum gæddur. Mikið jafn- ræði var með þeim hjónum. Allt frá upphafi kynna okkar fór vel á með okkur og var mikið og gott samband milli fjölskyldna okkar. Við heimsóttum þau til Danmerk- ur þegar Halldór var í framhalds- námi og áttum með þeim yndisleg- ar stundir. Eftir að Halldór lauk námi kom fjölskyldan heim. Þá lá leiðin vestur á Þingeyri, en þar starfaði Halldór tímabundið. Börn- in okkar rifja oft upp ánægjulega dvöl sína í læknabústaðnum en þangað buðu þau þeim að koma og dvelja. Fljótlega eftir heimkomuna reistu þau sér heimili á Tjarnarflöt í Garðabæ, þar sem börn þeirra nutu ástríkis og skjóls og síðar barnabörn og tengdabörn á þeirra glæsilega heimili. Halldór var traustur og vand- aður maður sem átti auðvelt með að hlusta. Það kom sér einkar vel í því vandasama starfi sem hann valdi sér. Við fjölskyldan nutum þess að hafa lækni í fjölskyldunni. Það var sama hvort það var á nóttu eða degi, alltaf var Halldór til reiðu. Fyrir allt þetta erum við innilega þakklát. Í einu vetfangi breyttist allt. Halldór sem áður hafði verið stoð og stytta svo margra, þurfti nú á stuðningi að halda sjálfur. Unna hætti þá að vinna utan heimilis til þess að geta verið sem mest með honum og stutt hann. Hún vissi að sá tími var naumur sem þau gátu lifað saman nokkurn veginn eðli- legu lífi. Þetta gerði hún með svo glöðu geði til síðustu stundar að aðdáunarvert er. Aldrei æðruorð. Nú við fráfall Halldórs verða af- mælis- og jólaboð svipminni, því alltaf gat Halldór laumað ein- hverju skemmtilegu inn í umræð- urnar. Þar naut hann sín, innan um fjölskyldu og vini. Við hjónin og fjölskylda okkar sendum elsku Unnu, börnum, tengdabörnum og barnabörnum innilegustu samúð- arkveðjur okkar. Með þakklæti og virðingu kveðjum við góðan vin. Guð blessi minningu hans. Elín og Trausti. HALLDÓR STEINSEN Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgun- blaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minning- ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs- ingum). Skilafrestur Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðju- degi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áð- ur en skilafrestur rennur út. Myndir Ef mynd hefur birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda hana á mynda- móttöku: pix@mbl.is og láta um- sjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar ✝ Svava Skúladótt-ir fæddist á Ísa- firði 30. nóvember 1909. Hún lést á Dvalar- og hjúkrun- arheimilinu Grund í Reykjavík 23. janúar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Sigrún Tóm- asdóttir húsmóðir, f. 27. júní 1868 á Ísa- firði, og Skúli Ein- arsson útgerðarmað- ur, f. 17. okt. 1874 á Sandi í Aðaldal. Þau skildu. Alsystkini Svövu voru: Amalía, f. 1889, d. 1891, Amalía Hallfríður, f. 1891, d. 1972, Tómasína, f. 1893, d. 1981, Guðrún, f. 1896, d. 1950, Einar Geirtryggur, f. 1899, d. 1980, Helgi, f. 1901, d. 1928, Dómhildur, f. 1903, d. 1992, og Hulda, f. 1907, d. 1962. Hálf- systkini Svövu, börn Skúla Einarssonar og Helgu Þórodds- dóttur, eru: Magn- ús, f. 1930, d. sama ár, Halla Þórey, f. 1932, Skúli, f. 1934, og Sigurfljóð, f. 1936. Svava ólst upp í foreldrahúsum á Ísafirði og síðar í Reykjavík. Eftir lát móður sinnar, 1937, bjó hún lengst af hjá systur sinni, Amal- íu, og manni hennar Halli Hallssyni tannlækni í Reykjavík. Frá 1972 var hún til heimilis í Hátúni 10a en síðustu árin á Dvalar- og hjúkrunar- heimilinu Grund í Reykjavík. Útför Svövu verður gerð frá Fossvogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Svava móðursystir mín er látin. Frá því að ég man eftir mér hefur hún tilheyrt okkur. Hún fæddist á Ísafirði en flutti ung til Reykjavík- ur. Hún bjó í mörg ár hjá systur sinni Amalíu og manni hennar Halli Hallssyni tannlækni og hjálpaði til á heimilinu þar til Amalía dó. Hún fékk sína eigin íbúð í Há- túni 10a hjá Öryrkjabandalaginu og þar leið henni vel. Hún hafði alltaf sterkar taugar til Ísafjarðar. Hún fór þangað á hverju sumri og bjó hjá Láru og Gunnlaugi. Hún fór oft inn í skóg að tína ber og heimsótti einnig skyldfólk sitt bæði á Ísafirði og á Núpi í Dýra- firði. Svava var mjög frændrækin, kát og létt í lund. Það var alltaf gaman þegar hún kom í heimsókn á Sunnuhvol, mikið hlegið og skraf- að. Hún þurfti alltaf að hafa nóg að gera og komst hún í tómstunda- starf aldraðra á Norðurbrún þar sem hún bjó til styttur úr leir og tré og málaði einnig vatnslita- myndir. Þessir hlutir hafa verið á samsýningum naivista, t.d. í Ný- listasafninu, í Gerðubergi og norð- ur á Svalbarðsströnd og hefur Níels Hafstein haft umsjón með þessum sýningum. Hún fór inn á Norðurbrún alla daga sem unnið var á meðan heilsan leyfði. Síðustu árin hefur hún verið á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund í Reykjavík. Nú hefur Svava fengið hvíldina og ég og mín fjölskylda eigum góð- ar minningar um frænku okkar. Hvíl í friði. Herdís. Ömmusystir okkar hún Svava er nú látin, 95 ára gömul. Svava var óneitanlega stór hluti af lífi okkar systra, órjúfanlegur þáttur æsku okkar, náfrænka. Við munum ætíð minnast hennar á þönum við að hjálpa mömmu með heimilið, að ráðskast með okkur litlar, bakandi hálfmána með sultu, spjallandi og hlæjandi með rótsterkt kaffi í bolla. Hvert haust hlaðin berjum eftir árlega för vestur á æskuslóð- irnar; bláber með rjóma og mikl- um sykri. Svava frænka var góð við okkur og hjálpsöm, kát og kvik, skapheit stundum. Hún var alltaf að, féll ekki verk úr hendi og við ættingjarnir eigum öll gripi úr þessum sístarfandi höndum; hekluð, máluð, úr leir eða útskorin. Hún var listakona og tók þátt í samsýningum naívista, það voru stórar stundir og minningar um þær eru fjölskyldunni kærar. Svava var hjá mömmu og okkur á jólunum. Hvern aðfangadag mætti hún með bílfarm af gjöfum til að opna svo við urðum grænar af öfund; hún átti marga ættingja og var í góðu sambandi við þá. Það voru skrítin jól fyrir fáeinum árum þegar hún hætti að koma, hún var gömul og þreytt, allt breytist. Svava var fulltrúi sinnar kyn- slóðar í lífi okkar systra, ómet- anleg tenging við fyrri tíma sem við hefðum annars orðið af. Það er notalegt að hafa þekkt hana, konu sem lifði á fyrri hluta síðustu aldar og talaði með dönskuslettum. Nú er hún farin og við kveðjum með söknuði og hlýju. Hildur og Eyrún. SVAVA SKÚLADÓTTIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.