Morgunblaðið - 04.02.2005, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2005 41
MINNINGAR
✝ Ingibjörg Örn-ólfsdóttir fædd-
ist í Viðfirði í Norð-
ur-Múlasýslu 27.
mars 1918. Hún lést
á heimili sínu hinn
30. janúar síðastlið-
inn. Foreldar henn-
ar voru Örnólfur
Sveinsson skipa-
smiður, f. 26. maí
1985, d. 9. febrúar
1978, og Guðrún
Anna Björnsdóttir
húsfreyja, f. 6.
ágúst 1896, d. 15.
september 1962.
Systkini Ingibjargar eru: Ólöf
Sveinbjörg, Hjalti Sigurður,
Snorri, d. 1925, Gyða, Björg, d.
1980, og Sigrún.
Ingibjörg giftist í ágúst 1942
Hákoni Jörundssyni sjómanni, f.
22. október 1903, d. 18. sept-
ember 1969. Börn þeirra eru: 1)
Halldóra, f. 14. mars 1943, börn
hennar eru Loftur, Ingvar Há-
kon og Bergþór. 2) Grettir Ás-
mundur, f. 6. sept-
ember 1944, sam-
býliskona hans er
Kristín Ragnars-
dóttir. 3) Gunnar
Örnólfur, f. 17.
ágúst 1946. 4) Sig-
urrós, f. 7. ágúst
1948, maki Sigurð-
ur H. Guðmunds-
son. Dóttir Sigurð-
ar er Þórunn
Sigurðardóttir. 5)
Jörundur, f. 31.
ágúst 1950, maki
Hugrún Heiðdal
Hjartardóttir. Börn
þeirra eru Sigríður Hjördís, Að-
alsteinn Rúnar, Hákon Ingi og
Hjörtur Vífill. Langömmubörnin
eru níu talsins. Ingibjörg bjó á
Norðfirði á sínum uppvaxtarár-
um. Árið 1941 flutti hún á Akra-
nes þar sem hún bjó alla tíð síð-
an.
Útför Ingibjargar verður gerð
frá Akraneskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Mamma var rúmlega tvítug þeg-
ar hún hleypti heimdraganum.
Eins og algengt var meðal ungra
kvenna á þeim tíma réð hún sig í
vist og fluttist þá frá Norðfirði til
Akraness.
Þetta var á miðjum stríðsárun-
um og fljótt kynntist hún pabba og
fyrr en varði vorum við orðin fimm
systkinin.
Fyrstu minningar mínar um
mömmu eru þar sem hún er að
hugsa um barnahópinn í mjög
þröngum húsakynnum. Fáum
þægindum var fyrir að fara og
þegar horft er um öxl skilur maður
tæplega hvernig þetta var hægt.
Pabbi stundaði lengst af sjó-
mennsku og uppeldið var því á
herðum mömmu, sem þóttu ekki
tíðindi í þá daga.
Það var nóg um að vera fyrir
börn á Skaganum og leikir og úti-
vera voru í fyrirrúmi hjá okkur
krökkunum. Ég reyndi að leggja
mitt af mörkum til að aðstoða
mömmu við uppeldi okkar systk-
inanna en þar voru verkefnin næg
eins og nærri má geta. Efnin voru
alla tíð frekar lítil en nægjusemin
mikil og aldrei var kvartað. Pabbi
lést fyrir 35 árum en síðasta ára-
tug ævi sinnar vann hann hjá Sem-
entsverksmiðjunni.
Mamma var einstaklega geðgóð
kona og ljúf. Hún hafði mikið yndi
af handavinnu, bæði að sauma út
og hekla. Ekki var að sjá að hand-
bragðið breyttist mikið þó að ald-
urinn færðist yfir. Sýnin af
mömmu sitjandi í stólnum í stof-
unni með handavinnuna sína mun
lifa í minningunni. Æskustöðvarn-
ar voru mömmu alla tíð hugleiknar
og talaði hún oft um árin sín á
Norðfirði.
Síðustu ár hefur Gunnar bróðir
hugsað um mömmu af mikilli alúð
og ósérhlífni og á hann miklar
þakkir skilið.
Nú er komið að leiðarlokum.
Hvíl í friði, elsku mamma mín.
Þín dóttir,
Halldóra.
Í gegnum tíðina hefur verið
reynt að ýta undir þá hugmynd að
krökkum þyki frekar lítið til
mjúkra pakka koma. Það átti ekki
alveg við í mínu tilviki.
Í málefnum mjúkra jólapakka
var alltaf hægt að treysta á ömmu
á Akranesi. Yfirleitt sokkar eða
vettlingar þar sem greinilegt var
að hvergi hafði verið kastað til
höndunum við prjónaskapinn. Svo
ekki sé minnst á hekluð dúkku-
teppi til dætra minna, sem eru svo
sannarlega fyrir augað í þeim
skilningi að litasamsetningin er
aðdáunarverð.
Stundum hvarflar að mér að
amma hljóti einhvern tíma að hafa
rekist á orð gríska heimspekingins
Epicuros um að auður felist ekki í
því að eiga miklar eignir heldur að
hafa fáar þarfir.
Nægjusemin var leiðarljósið og
sú hugsun víðsfjarri að hrifsa eitt-
hvað til sín í kapphlaupi sem
margir taka þátt í en miklu færri
skilja í raun. Það er líklega rétt að
segja að það hafi ekki farið mikið
fyrir ömmu.
Það er óravegur á milli lífstóna
hennar og holra nútímahljóða sem
bíða eftir að verða séð eða heyrð.
En hún var hún sjálf, frá upphafi
til enda. Blessuð sé minning henn-
ar.
Loftur Ólafsson.
INGIBJÖRG
ÖRNÓLFSDÓTTIR
✝ Ólafur Guð-mundsson fædd-
ist á Stóru-Borg í
V-Hún. 29. apríl
1928. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun-
inni á Hvamms-
tanga 26. janúar
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Guðmundur Jóns-
son, f. 28.7. 1892, d.
6.4. 1936, og Ólöf
Helgadóttir, f. 6.4.
1898, d. 11.2. 1945.
Hálfbræður Ólafs
samfeðra, börn
Guðmundar og Helgu Gísladótt-
ur, eru tvíburarnir Björn
Tryggvi (látinn) og Hjörtur Frí-
mann, f. 15.7. 1918. Alsystkini
eldrar hennar voru Eðvald Hall-
dórsson, f. 15.1. 1903, d. 24.9.
1994, og Sesilía Guðmundsdóttir,
f. 31.12. 1905, d. 21.1. 1994. Börn
Ólafs og Maríu Erlu eru: 1)
Svala Björk, f. 1961, maki Ragn-
ar Sigurjónsson, f. 1947. Börn
þeirra eru: A) Hulda Ósk, f.
1979, dætur hennar og Örlygs
Eggertssonar, f. 1975, eru Hekla
Ýr, f. 1996, og Hera Rán, f. 2001.
B) Ólafur Már, f. 1981, maki
Petra Maria Hultberg, f. 1983.
C) Bjarki Sigurpáll, f. 1987. 2)
Freyja, f. 1967. Dóttir hennar er
Björt Jónsdóttir, f. 1990.
Börn Maríu Erlu af fyrra
hjónabandi eru: Brynjólfur, f.
1949, Eðvald, f. 1951, maki Þóra
Jónsdóttir, f. 1952, Ársæll Geir,
f. 1954, maki Þorbjörg Rut
Guðnadóttir, f. 1967, og Sesilía
Helga, f. 1955, maki Kristinn
Björnsson, f. 1954.
Ólafur verður jarðsunginn frá
Hvammstangakirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
Ólafs eru: Njáll, f.
15.3. 1920, d. 24.5.
1998, tvíburar mey-
börn, f. 11.11. 1921,
d. sama dag, Jóhann
Helgi, f. 5.11. 1922,
d. 28.12. 1988, Guð-
rún Jóhanna, f. 10.2.
1924, Auður, f. 16.3.
1926, Anna, f. 6.2.
1930, Ásborg, f.
25.3. 1931, d. 19.3.
1948, Reynir Líndal,
f. 18.6. 1932, d. 14.7.
1984, Þórður, f.
28.1. 1934, Rannveig
Sigríður, f. 7.5.
1935, og Guðmundur, f. 22.9.
1936.
Kona Ólafs er María Erla Eð-
valdsdóttir, f. 10.10. 1928. For-
Elsku pabbi, þá er þrautum þín-
um lokið. Mikið varstu nú búinn að
vera seigur, berjast áfram með bil-
uð lungu og hjarta. Þrautseigjan
fylgdi þér alltaf. Ungur þurftir þú
að fara að heiman, og vistin misgóð.
Og mörgum þurftir þú að sjá á bak.
En svo birti til, og eignaðistu
marga góða vini. Fórst síðan sem
ungur maður að vinna við jarð-
vinnslu, í Borgarfirði og Húna-
vatnssýslu.
Síðan var það ævistarfið, bygg-
ingarvinnan. Þær eru æði margar
byggingarnar hér um slóðir, sem
þú lagðir hönd á, stórar sem smáar.
Líka byggðir þú þér þitt eigið
tveggja hæða hús. Og alltaf varstu
tilbúinn við mitt hús, að leggja
hjálparhönd. Ekki man ég eftir þér
öðruvísi en við smíðar, meðan heils-
an leyfði. Enda voruð þið mamma
með smíðahús, bæði sífellt að
smíða. Gaman hafðirðu af ferðalög-
um um landið þitt, og voru nokkrar
ferðirnar farnar. Og seinni árin vor-
uð þið mamma dugleg að skreppa,
þó væri ekki nema sunnudagsbíl-
túra. Elsku pabbi, ég veit þú barst
hag fjölskyldunnar fyrir brjósti. Og
hugur þinn mikið hjá barnabörn-
unum öllum, svo og litlu langafa-
stelpunum. Nú líður þér betur,
pabbi minn, og þarft ekki að dragn-
ast með þessar vélar. Þér líkaði
ekki að liggja á sjúkrahúsi og vildir
heim. Nú ertu kominn heim.
Sjáumst síðar, pabbi minn. Minning
þín lifir.
Svala Björk.
ÓLAFUR
GUÐMUNDSSON
Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, s: 587 1960, www.mosaik.is
MOSAIK
af legsteinum
gegn staðgreiðslu
í janúar og febrúar
Sendum myndalista
15% afsláttur
Elskulegur faðir okkar,
VIGGÓ EMIL MAGNÚSSON
slökkviliðsmaður
og húsasmíðameistari,
Heiðarási 4,
lést á heimili sínu mánudaginn 24. janúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Fyrir hönd aðstandenda,
Berglind Fríða Viggósdóttir,
Sæunn Svanhvít Viggósdóttir.
Bróðir minn,
STEFÁN ÁSBJARNARSON
frá Guðmundarstöðum,
Vopnafirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Sundabúð, Vopna-
firði, mánudaginn 31. janúar.
Jarðsett verður að Hofi, Vopnafirði, laugar-
daginn 5. febrúar kl. 14.00.
Sólveig Ásbjarnardóttir.
Ástkær eiginmaður minn,
STEFÁN ÓLAFSSON
háloftaathugunarmaður,
Vesturgötu 50a,
lést á hjúkrunarheimilinu Grund laugardaginn
22. janúar sl.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
Þórunn Egilson.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
INGIBJÖRG GUÐJÓNSDÓTTIR,
Hrafnistu,
Hafnarfirði,
lést þriðjudaginn 1. febrúar.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánu-
daginn 7. febrúar kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Minningarsjóð Hrafnistu í
Hafnarfirði.
Elínborg Margrét Sigurbjörnsdóttir, Reynir Kristjánsson,
Elías Már Sigurbjörnsson, Jónína Gyða Ólafsdóttir,
Anna Björg Sigurbjörnsdóttir, Björn Þ. Björgvinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar,
BJÖRG EBENESERSDÓTTIR
frá Harrastöðum,
lést á Hrafnistu Reykjavík
miðvikudaginn 2. febrúar.
Útförin verður auglýst síðar.
Valgerður Þorbjarnardóttir,
Guðmundur Þorbjarnarson,
Jóel Þorbjarnarson,
Elínbjörg Þorbjarnardóttir
og fjölskyldur.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
HÓLMFRÍÐUR ÞORLÁKSDÓTTIR,
Lindasíðu 47,
Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Skjaldarvík miðvikudag-
inn 2. febrúar.
Eiríkur Stefánsson,
Ingibjörg Eiríksdóttir, Sævar Gunnarsson,
Anna Eiríksdóttir, Magnús Sigurðsson,
Þorsteinn Eiríksson,
Reynir Eiríksson, Rannveig Kristinsdóttir,
ömmu- og langömmubörn.