Morgunblaðið - 04.02.2005, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2005 51
DAGBÓK
Ítilefni sýningarinnar RÚRÍ: Archive – endangered waters efnir Listasafn Íslandstil málþings um myndlistarkonuna Rúrí ogverður listferill hennar skoðaður í al-
þjóðlegu samhengi með mynddæmum.
Rúrí á um 30 ára listferil að baki en hún stund-
aði myndlistarnám í Reykjavík og í Hollandi og
hefur starfað víða; svo sem í Hollandi, Danmörku,
Finnlandi, Frakklandi, Kanada, Kína og Svíþjóð.
Frá því hún kom fyrst fram árið 1974 sem þátt-
takandi í útisýningu Myndhöggvarafélagsins í
Reykjavík í Austurstræti hefur hún átt óslitinn
feril og haldið fjölmargar einkasýningar og tekið
þátt í ótal samsýningum. Í verkum sínum hefur
Rúrí birt róttæka afstöðu til umhverfisins sem er
grunnurinn að þeirri hugmyndafræði sem hún
gengur út frá í verkum sínum, sem eru fjölbreytt
að gerð, þar sem hún hefur unnið með ólíka miðla
svo sem gjörninga; höggmyndir; stórbrotin um-
hverfisverk eða innsetningar.
„Með verkum sínum hefur hún vakið fólk til
umhugsunar um efnishyggjusamfélagið og lífs-
gæðakapphlaupið og þann veruleika sem við blas-
ir ef staðreyndir eru skoðaðar í ljósi tímans,“ seg-
ir Halldór B. Runólfsson, sem er spyrjandi á
málþinginu. „Verk hennar fjalla um tengsl manns
og náttúru í víðu samhengi eða sem hluta af al-
heiminum.“ Verk Rúríar Archive – endangered
waters var sýnt á Feneyjatvíæringnum síðasta
sumar og vakti þar mikla athygli eins og það gerði
einnig er það var sýnt í Frakklandi og Hollandi.
Hvaða áhrif hefur Rúrí haft á stefnur og
strauma hér á landi og erlendis?
„Ég tel að hún hafi til dæmis sem kona sýnt al-
veg ótrúlegt frumkvæði þegar nánast engar kon-
ur þóttu gjaldgengar í listheiminum. Hún var
brautryðjandi á sviði gjörninga og hafði ótvíræð
áhrif með kraftmiklum og afgerandi gjörningum
sínum fyrir utan það að vera mjög snemma merk-
isberi íslenskrar myndlistar, t.d. á Norðurlönd-
unum, þar sem hún er mjög vel kynnt.“
Hvaða lærdóm getum við dregið af ferli
Rúríar?
„Þann lærdóm að listin getur leyft sér að taka
afstöðu, til dæmis til þjóðfélagsins, jafnvel dálítið
hættulegra pólítískra málefna og komið fram með
upplýsandi vinkil á mál sem ekki verða krufin
með öðrum hætti. Hún hefur verið leiðarljós
mörgum listamönnum fyrir hugrekki og djörfung.
Út frá listfræðilegu sjónarmiði er það mjög
merkilegt að með þessu verki sínu, Archive –
Endangered waters, er Rúrí í raun og veru að
koma mjög sterkt fram í enn eitt skiptið, sem
myndi kallast merkilegt, því afar fáir listamenn
hafa meira en eitt líf. Reglan er sú að listamaður
kemur upp og þykir eftirtektarverður í ákveðinn
tíma, en það er mjög erfitt fyrir hann að ná aftur
athygli listheimsins. Það sýnir hæfileika Rúríar
að henni hefur tekist að koma inn aftur tvíefld.“
Myndlist | Laugardagsstefna um listferil myndlistarkonunnar Rúríar
Brautryðjandi á fjölda sviða
Halldór B. Runólfs-
son fæddist í Reykjavík
árið 1950. Hann lauk
prófi í listfræði frá Há-
skólanum í Toulouse í
S-Frakklandi. Þá stund-
aði hann framhaldsnám
við Parísarháskóla í
listfræðum. Halldór
hefur m.a. starfað sem
listgagnrýnandi við
Morgunblaðið, sem
sýningastjóri Norrænu myndlistarstöðv-
arinnar í Helsinki og sem kennari við Háskóla
Íslands. Hann er nú lektor í listfræðum við
Listaháskóla Íslands. Halldór er kvæntur Mar-
gréti Árnadóttur Auðuns myndmenntakenn-
ara og eiga þau tvö börn.
Haninn er merkilegur fugl
HANINN hann er merkilegur fugl.
Hann er eina kvikindið sem gengur á
tveimur fótum og galar. Hann er líka
morgunfuglinn sem hvetur til dáða
og samkvæmt norskri þjóðtrú fælir
hann burtu þursa eða neikvæða bú-
álfa sem annars mundu taka sér ból-
stað í úti-
húsum.
Til forna og
fram til síðustu
aldar a.m.k. var
hann notaður
til þess að finna
lík manna í sjó
eða vatni og
þessi siður var
viðhafður bæði
í Noregi og hér á Íslandi.
Ein saga varðandi þetta: Það mun
hafa verið í byrjun síðustu aldar að
tveir menn drukknuðu í Veiðivötn-
um, nálægt Tjaldvatni, og líkin fund-
ust ekki. Þá var brugðið á það ráð að
fara niður í Landsveit og sækja hana.
Róið var með hanann um allt vatnið.
Á einum stað galaði hann mjög en
horði annars þögull allt í kringum sig.
Menn höfðu með einhverjar ífærur til
að reyna að ná upp líkunum. Ekki
tókst það. Mörgum árum síðar voru
menn við veiðar þarna. Það var að
haustlagi og vatnið mjög tært. Sáu
þeir þá tvær beinagrindur í vatninu,
sennilega fastar á hraunnibbu, á
svipuðum stað og haninn hafði galað.
Mér er líka kunnugt um það að
þeir við Sognsæ í Noregi hafa leitað
eftir líkum í sjó á sama hátt.
Eyjólfur Guðmundsson,
Sólvallagötu 45, Rvík.
Fyrirmyndarþjónusta
ÉG vil koma því á framfæri hvað
strákarnir í húsgagnadeild
Rúmfatalagersins, Smáratorgi, eru
frábærir, einstaklega liprir og þjón-
ustulundaðir.
Stólar sem ég keypti hjá þeim
stóðust ekki væntingar mínar svo ég
fékk að skila þeim og velja aðra. Þeir
voru svo almennilegir strákarnir, og
þvílík þjónustulund. Takk fyrir
strákar, þið standið ykkur vel!
Heba Gísladóttir.
Lotta er týnd — Garðastræti
LÆÐAN Lotta týndist frá heimili
sínu í Garðastræti 45 um kl. 16
sunnudaginn 30. janúar. Hún er með
frekar dökkan og þykkan feld með
gulum og gráum rákum inn á milli.
Lotta er merkt með ljósblárri ól og
rauðu merkispjaldi. Hún er líka
eyrnamerkt: 1428. Lottu er sárt
saknað og ef einhver hefur orðið var
við hana er hann vinsamlegast beð-
inn um að hringja í síma 869 9785 eða
898 8115.
Nala er týnd — Garðabær
NALA er týnd, hún hefur ekki komið
heim síðan 14. janúar. Hún er eins
árs gömul kisustelpa, þrílit; hvít,
rauðgul og grá. Hún var með gráa ól
með rauðum steinum. Síminn okkar
er 897 2204 ef einhverjir vita um
hana.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
90 ÁRA afmæli. Í dag, föstudaginn4. febrúar, er níræður Björn
Jónsson, Suðurbraut 2, Hafnarfirði,
áður Tunguvegi 28, Reykjavík. Eig-
inkona hans er Guðný Brynjólfsdóttir.
Þau eru að heiman.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
60 ÁRA afmæli. Á morgun, laug-ardaginn 5. febrúar, er 60 ára
Gils Stefánsson, Vesturholti 11, Hafn-
arfirði. Hann og eiginkona hans, Rósa
Héðinsdóttir, taka á móti ættingjum
og vinum í Fjörugarðinum kl. 12–15 á
afmælisdaginn.
60 ÁRA afmæli. 7. febrúar nkverður Guðbjörg Björgvins-
dóttir 60 ára. Í tilefni þess efnir hún og
fjölskylda hennar til samverustundar
með vinum og ættingjum í golfskál-
anum Efra-Seli, laugardaginn 5. febr-
úar frá kl. 15–19.
80 ÁRA afmæli. Í dag, 4. febrúar,er áttræður Sigurður Gunn-
steinsson, Vogatungu 45, Kópavogi.
Eiginkona hans er Margrét A. Jóns-
dóttir. Þau taka á móti gestum í húsa-
kynnum Medico, Akralind 3, Kópavogi,
í kvöld frá kl. 20.
50 ÁRA afmæli. Í dag, 4. febrúar,er Níels Rask Vendelbjerg,
þýðandi og leiðsögumaður, fimmtíu
ára. Hann verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
Brúðkaup | Gefin voru saman 9. októ-
ber s.l. í Kópavogskirkju af sr. Sigfúsi
Kristjánssyni þau Hörður Páll Egg-
ertsson og Dagrún Fanný Liljarsdóttir.
Ljósmynd/Lárus Sigurðarson
Atlas barnanna
er eftir Anitu
Ganeri og Chris
Oxlade. Sig-
þrúður Gunn-
arsdóttir þýddi.
Öll börn eru
forvitin um lönd
og þjóðir. Í Atlas
barnanna eru
kort af öllum heiminum þar sem upp-
lýsingar um landslag og mannlíf eru
settar fram með skýrum og skemmti-
legum hætti.
Litrík og lífleg framsetningin hentar
börnum á aldrinum 4-10 ára og á
hverri opnu er að finna skemmtilegar
gátur, þrautir og verkefni.
Tilvalin bók fyrir fróðleiksþyrsta og
forvitna krakka.
Útgefandi er Mál og menning. Bók-
in er 128 bls. Verð: 2.690 kr.
Börn
Risk Factors for
Repeated Child
Maltreatment in
Iceland – An eco-
logical approach
er eftir Freydísi
Jónu Freysteins-
dóttur fé-
lagsráðgjafa og
lektor í fé-
lagsráðgjöf við Háskóla Íslands.
Í fyrri hluta bókarinnar er fjallað um
vistfræðilíkan um misbrest í uppeldi
barna. Líkanið dregur fram hvernig
áhættuþættir auka líkurnar en vernd-
andi þættir draga hins vegar úr þeim.
Vistfræðilíkanið felur í sér þætti
tengda einstaklingum, fjölskyldu, fé-
lagslegu umhverfi og menningu. Rakt-
ir eru þeir áhættuþættir sem fundist
hafa í rannsóknum á mismunandi
sviðum vistfræðilíkansins.
Í síðari hluta bókarinnar er greint
frá íslenskri rannsókn á ákveðnum
þáttum líkansins. Rannsóknin var
unnin upp úr gögnum barnavernd-
arstarfsmanna. Kannað var hvaða
áhættuþættir tengdust málum sem
voru tilkynnt endurtekið til barna-
verndaryfirvalda samanborið við mál
þar sem ein barnaverndartilkynning
barst. Hverju máli var fylgt eftir í 18
mánuði frá fyrstu tilkynningu. Ekki
höfðu verið barnaverndarafskipti fyrir
fyrstu barnaverndartilkynningu í mál-
unum. Helstu niðurstöður voru að
sterk tengsl reyndust vera milli
áhættuþátta tengdum móður (t.d.
þunglyndi) annars vegar og fjölskyldu
(t.d. ágreiningur milli foreldra) hins
vegar við endurtekinn misbrest í upp-
eldi barna.
Helstu styrkleikar bókarinnar eru ít-
arleg umfjöllun um vistfræðilíkan og
þá áhættuþætti sem tengjast mis-
bresti í uppeldi barna og umfjöllun um
mikilvæga rannsókn á áhættuþáttum
endurtekins misbrests í uppeldi
barna sem unnin var hér á landi. Bók-
in er því sérstaklega gagnleg fyrir
barnaverndarstarfsmenn og annað
fagfólk sem kemur að málefnum
barna.
Útgefandi er Háskólaútgáfan. Bók-
in er 129 bls. Verð er kr. 2.990.
Félagsráðgjöf
Hugmyndir sem
breyttu heiminum
er eftir Felipe
Fernández-
Armesto í þýðingu
Róberts Jacks.
Í bókinni, sem
er myndskreytt á
áhrifaríkan hátt,
fjallar hinn virti rit-
höfundur og fræðimaður Felipe Fern-
ández-Armesto um 175 lykilhug-
myndir sem hafa breytt heiminum frá
árdögum mannkyns til okkar tíma.
Hugmyndir manna um eilíft líf, heil-
agt stríð, brjálaða vísindamanninn og
hjónaband byggt á ást eru meðal
þeirra sem teknar eru til skoðunar. Í
bókinni kemur fram fersk og sannfær-
andi sýn á ýmsa grundvallarþætti
mannlífsins – allt frá dýpstu rökum til-
verunnar til hversdagslegustu fyr-
irbæra.
Felipe Fernández-Armesto er Spán-
verji að hálfu og Englendingur að
hálfu. Hann er búsettur á Englandi,
starfar sem háskólaprófessor og
kennir sögu og landafræði í Oxford og
London. Þá hefur hann starfað sem
sendikennari við ýmsa háskóla í Evr-
ópu og Bandaríkjunum, ritað blaða-
greinar í ýmis blöð og tímarit, flutt út-
varpserindi um margvísleg efni og
tekið þátt í gerð handrita fyrir sjón-
varpsmyndaflokka sem byggðir eru á
bókum hans.
Útgefandi er Almenna bókafélagið.
Bókin er 400 bls. Verð: 4.990 kr.
Fjölfræði
ER NEFIÐ STÍFLAÐ?
Fæst í apótekum
og lyfjaverslunum
STERIMAR
Skemmir ekki slímhimnu
er náttúrulegur
nefúði sem losar stíflur
og léttir öndun.
Fyrir 0-99 ára.