Morgunblaðið - 04.02.2005, Side 56
56 FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
mbl.is Föstudagur 7. janúar 2005
Forsíða Viðskipti Íþróttir Afþreying Fólkið AtvinnaFasteignir Gagnasafn Myndasafn MorgunblaðiðSmáauglýsingar
Panta auglýsingu Upplýsingar um pantanir Spurt og svaraðBreyta netfangi Breyta lykilorði
...ódýrasta
300 kr.
birtist í 7 daga
mbl.is
smáauglýsingin
Frábært verð ódýrasta auglýsingin kostar 300 kr.
Auðvelt að bóka þú getur pantað auglýsingu þegar þér hentar
Auðvelt að leita tekur örskot að finna það sem leitað er að
Vöktun þú færð tölvupóst eða SMS þegar rétti hluturinn finnst
Vaktmappan geymir auglýsingar til frekari skoðunar
mbl.isá
TIL þess að lifa af nóttina þurfa lög-
reglumenn og glæpamenn að taka
höndum saman á gamlárskvöldi.
Ethan Hawke og Laurence Fish-
burne leika aðalhlutverkin í þessari
spennumynd, sem er endurgerð á
samnefndri mynd frá árinu 1976.
Hawke leikur heiðarlegan lög-
reglumann, Jake Roenick, sem þar
að kljást við minningar um mis-
heppnaða aðgerð. Fishburne er í
hlutverki glæpahöfðingjans Marion
Bishop. Lögreglan nær Bishop á
þessum síðasta degi ársins og er
hann fluttur í fangabíl ásamt fleiri
föngum leiknum af John Leguizamo,
Jeffrey „Ja Rule“ Atkins og Aisha
Hinds.
Bíllinn kemst hins vegar aldrei
alla leið vegna snjókomu og stöðvast
við Stöð 13, þar sem Roenick ræður
ríkjum. Fangarnir eru fluttir í hús
en grímuklæddir menn ráðast inn til
að reyna að frelsa Bishop. Liðs-
styrkur er á leiðinni frá glæpageng-
inu og verður Roenick að fá alla til
að taka höndum saman. Hópurinn
berst fyrir lífi sínu og línan milli
góðu aflanna og þeirra vondu verður
sífellt óskýrari.
Ethan Hawke leikur lögreglumanninn Jake Roenick.
Frumsýning | Assault on Precinct 13
Upp á líf og dauða
ERLENDIR DÓMAR
Metacritic.com 54/100
Roger Ebert Hollywood Reporter 70/100
New York Times 40/100
Variety 70/100 (metacritic)
NÝJASTA mynd leikstjórans
Alejandro Amenábar (Abre
los ojos, The Others) er með
Javier Bardem í aðal-
hlutverki. Bardem er í hlut-
verki Ramón, sem hefur ver-
ið lamaður og meira og minna
rúmfastur í þrjátíu ár. Svefn-
herbergisgluggi hans er eina
tenging hans við umheiminn
og horfir Ramón yfir hafið,
sem hann sigldi áður um.
Hafið er líka staðurinn þar
sem hann lenti í slysinu, sem
breytti lífi hans. Allt frá því
hefur eina ósk Ramóns verið
að geta bundið enda á líf sitt
og tapa ekki virðingu sinni.
Heimur hans breytist þeg-
ar tvær konur koma í líf hans.
Julia er lögfræðingur sem
styður hann í baráttunni fyrir
líknardrápum og Rosa er
kona úr þorpinu, sem reynir
að sannfæra hann um að lífið
sé þess virði að lifa því.
Ramón veit að aðeins sú
sem raunverulega elskar
hann getur hjálpað honum að
halda í síðasta ferðalagið.
Frumsýning | The Sea Inside
Hafið leikur stórt hlutverk í lífi aðal-
söguhetjunnar.
Hafið og lífið
ERLENDIR DÓMAR
Metacritic.com 74/100
Roger Ebert Hollywood Reporter 90/100
New York Times 50/100
Variety 100/100 (metacritic)
BARNAMYNDIN Sjóræningjar á
Saltkráku er upprunalega frá
árinu 1966.
Hún byggist á ævintýri Astrid
Lindgren en tvær fyrri myndirnar
um Saltkráku hafa notið fádæma
vinsælda hjá íslenskum bíógestum
í yngsta kantinum
Sjóræningjar á Saltkráku kall-
ast á frummálinu Tjorven och
Mysak og við fylgjumst með
Melker frænda þar sem hann fer
með barnaskarann út í eyjuna
fögru en dulúðugu, Saltkráku.
Hópurinn stenst að sjálfsögðu
ekki mátið og fer í sjóræningjaleik
þar sem allir sigla yfir til eyj-
unnar á gömlum ryðdalli.
Með aðalhlutverk fara Maria
Johansson, Louise Edlind,
Kristina Jämtmark, Torsten
Lilliecrona, Kajsa Dandenell og
Eva Stiberg.
Myndin er með íslensku tali.
Frumsýning | Sjóræningjar á Saltkráku
Fjör í eyjum
ERLENDIR DÓMAR
Engir dómar lágu fyrir.
ÞAÐ ER skammt stórra högga á
milli hjá leikstjóranum Clint
Eastwood. Million Dollar Baby kem-
ur rúmu ári eftir Óskarsverðlauna-
myndina Mystic River og hefur ekki
notið minni hylli gagnrýnenda og
kvikmyndahúsagesta. Eastwood
hlaut á dögunum verðlaun Leik-
stjórasambands Bandaríkjanna fyr-
ir leikstjórn þessarar nýjustu mynd-
ar sinnar og er sterklega orðaður við
Óskarinn, annað árið í röð.
Eastwood leikur einnig í þessari
mynd, er í hlutverki Frankies
Dunns, fyrrum hnefaleikaumboðs-
manns sem rekur lítinn hnefa-
leikaæfingasal í miðborg Los Angel-
es.
Umboðsmannsferli Frankies lauk
með því að einn af bestu umbjóðend-
um hans, Scrap (Morgan Freeman),
missti sjónina á hægra auga í harka-
legum bardaga. Scrap vinnur nú við
ræstingar í hnefaleikasal Frankies.
Frankie óttast að aðrir umbjóð-
endur hans lendi í svipuðu slysi og
lætur því marga hæfileikaríka
hnefaleikara sér úr greipum renna.
Líf hans breytist hins vegar þegar á
vegi hans verður framhleypin og
sjálfsörugg hnefaleikakona, Maggie
Fitzgerald (Hilary Swank).
Frankie tekur til að byrja með
ekki í mál að þjálfa hana, vegna þess
hversu ung hún er og vegna þess að
hún er stúlka, en lætur undan þegar
hann sér hversu einörð og metn-
aðarfull hún er.
Hæfileikar Maggie og handleiðsla
Frankies leiða hana hægt og örugg-
lega nær toppnum og á milli þeirra
myndast afar sérstakt samband.
Clint Eastwood þykir hafa gert
hnefaleikamynd sem standi sígildum
myndum úr þeim geira, eins og Rag-
ing Bull og Rocky, síst á sporði.
Samleikur Eastwoods og Freemans
þykir vera magnaður, enda eru þar
tvær reyndar kvikmyndakempur á
ferð. Þeir þykja túlka tvo menn sem
farið hafa halloka í lífinu á meist-
aralegan og látlausan hátt. Þá þykir
Hilary Swank sýna kröftugan leik í
hlutverki Maggie og jafnvel gera
enn betur en í hlutverki Teenu
Brandon í Boys Don’t Cry, en fyrir
þá frammistöðu hlaut hún Óskars-
verðlaunin á sínum tíma.
Reuters
Clint Eastwood er tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir leikstjórn og Hilary Swank fyrir leik í Million Dollar Baby.
Frumsýning | Million Dollar Baby
Ung og einörð hnefaleikakona
ERLENDIR DÓMAR
Metacritic.com 86/100
Roger Ebert Hollywood Reporter 100/100
New York Times 100/100
Variety 100/100 (metacritic)