Morgunblaðið - 24.02.2005, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2005 23
NEYTENDUR EldaskálinnBrautarholti 3
105 Reykjavík
Sími: 562 1420
www.invita.com
Laugavegi 54,
sími 552 5201
Kjólar
stærðir
36-46
i
-
Útsala
DÖNSK HÚSGAGNAHÖNNUN
Ef þú hefur áhuga á danskri húsgagnahönnun í hæsta gæðaflokki,
skoðaðu þá heimasíðu okkar á www.soeborg-moebler.dk og fáðu
nánari upplýsingar eða bæklinga og tilboð frá fyrirtæki okkar.
Næst þegar þú ert í Kaupmannahöfn, ertu velkomin/n að heimsækja
okkur í sýningarsal okkar (800 m2), sem er í aðeins 6 km fjarlægð
frá miðbænum.
A/S Søborg Møbelfabrik, Gladsaxevej 400, 2860 Søborg,
sími +45 39 69 42 22, www.soeborg-moebler.dk
Opnunartímar: mánudag-þriðjudag 8.30-16.30, föstudag 8.30-15
FLYÐRUGRANDI
Falleg 2ja herbergja 65,1 fm íbúð á jarð-
hæð með sérgarði og hellulagðri verönd
til suðurs. Íbúðin skiptist þannig: Stofa,
svefnherbergi, vinnukrókur, eldhús, bað-
herbergi, forstofa og geymsla.
Laus strax. Verð 13,9 millj.
sími: 566 6103
isfugl@isfugl.is • www.isfugl.is
Spurning: Lesendi blaðsins, sem
gjarnan kaupir sér salat í hádeginu
á salatbarnum í Hagkaupum í
Skeifunni, hafði samband og sagðist
hafa orðið undrandi þegar verð á
salatinu hafði hækkað á einni nóttu
um 24–32%.
Verð á litlu boxi var 299 kr. er nú
369 kr., hefur hækkað um 24%, og
verð á stóru boxi var 379 kr. en er
nú 499 kr. og hefur hækkað um
32%.
Svar: Sylvía Walthers, staðgeng-
ill verslunarstjóra í Hagkaupum,
Skeifunni, varð fyrir svörum:
„Úrvalið á salatbarnum breyttist
mjög mikið og er þetta aukna vöru-
úrval ástæða hækkunarinnar. Bætt
var við fjölmörgum vöruflokkum.
Nú eru þrjár kjöttegundir í boði,
kjúklingur, skinka og pepperoni.
Fjórar tegundir eru af káli en var
aðeins ein áður. Þær eru veislu-
salat, spínat, blandað salat auk ice-
bergssalats. Í boði eru bæði karrí-
hrísgrjón og indversk hrísgrjón,
þrjár nýjar tegundir af pasta, þist-
ilhjörtu, melónur, blandaðar ólívur
og ný tegund af hummus svo eitt-
hvað sé nefnt. Þá eru fjórar teg-
undir af salatsósum í boði og fylgja
nú með fyrir þá sem vilja, en áður
þurfti að kaupa þær sérstaklega.
Það sama á við um ýmiss konar
olíur til að setja út á salat,“ sagði
Sylvía.
Hvers vegna lækkar ekki verð
á bandarískum kiljum?
Spurning: Lesandi, sem hefur
keypt nýjar bandarískar kiljur í
hverjum mánuði í mörg ár, spyr
hver sé skýringin á því að bókabúð-
ir lækki ekki verðið þó svo að gengi
dollara hafi fallið mikið. Lesandinn
kom með kiljur sem voru verð-
merktar og keyptar á mismunandi
tíma. Í lok árs 2001 stóð dollarinn í
110 krónum og það ár hafði viðkom-
andi keypt sjö dollara bók á 1.395
krónur en nú árið 2005, þegar doll-
arinn stendur í 61 krónu, þá kaupir
hann átta dollara kilju á sama verði,
eða á 1.395 krónur.
Svar: Óttar Proppé, vörustjóri
erlendra bóka hjá Pennanum Ey-
mundsson og Máli og menningu,
var inntur eftir því hvers vegna
verð á bandarískum kiljum hefði
ekki lækkað í samræmi við lágt
gengi dollarsins. „Staðreyndin er sú
að þær bækur sem eru nýkomnar
eru á eitthvað lægra verði, því að
við verðleggjum út frá gengi doll-
arsins hverju sinni. En þetta er lítill
markaður hér á landi og vöruúr-
valið í verslunum okkar hreyfist
frekar hægt þannig að við erum
með bækur í búðinni sem voru
kannski keyptar inn þegar gengið á
dollarnum var hærra, og bækurnar
eru verðlagðar þegar þær eru
keyptar inn og þær eru ekki
endurverðlagðar í millitíð-
inni því að þetta eru
oft aðeins nokkur
eintök af hverri
bók í hillu.
Þetta þýðir að
fólk verður ekki eins
mikið vart við
sveiflur í verði,
sem væri vissu-
lega æskilegt.
Önnur ástæða
fyrir því, að lækk-
unin hefur verið
minni en fólk hefur
átt von á, er sú að þeg-
ar dollarinn var í há-
marki þá héldum við að
okkur höndum í verðlagn-
ingu, því við veðjuðum á að
hann færi fljótlega niður aftur.“
Þegar Óttar var spurður að því í
hverju verðmunurinn fælist á
bandarískri kilju sem núna kostaði
1.395 krónur í bókabúð hjá honum,
en fengist á 8 dollara í USA, sem
samsvarar um 500 krónum, sagði
hann að vissulega væri sú verðlagn-
ing í hærri kantinum. „Af þessum
1.395 krónum þá er vaskurinn 14%
sem er um 200 krónur, síðan kemur
inn í þetta flutningskostnaður og
álagningin skiptist nokkurn veginn
að jöfnu í heildsöluálagningu og
smásöluálagningu. Heildsöluálagn-
ingin dekkar innflutninginn og að
einhverju marki lagerhald sem er
erfiðara hjá okkur hér vegna smæð-
ar markaðarins. Kostnaðurinn við
lagerhaldið er því tiltölulega hár
miðað við það sem gengur og gerist.
Okkar tilfinning er að hjá okkur séu
bækur á um það bil tvöföldu verði
miðað við verð í útgáfulandi og okk-
ur hefur sýnst að á meginlandi Evr-
ópu sé þetta svipað, reyndar svolítið
lægra, en það munar ekki miklu.
Við sjáum til dæmis mjög svipað
verð hjá okkur og í Danmörku, en
þar munar helst vaskinum.“ Óttar
var spurður að því hvort þeir gætu
skilað þeim kiljum sem ekki seldust
með því að rífa forsíðuna af, rétt
eins og tíðkast með blöð. „Það kem-
ur fyrir en er ekki regla. Og það er
vissulega hluti af hárri verðlagn-
ingu bóka að hluta af þeim þarf að
afskrifa eða selja á útsölu.“
SPURT OG SVARAÐ UM NEYTENDAMÁL
Verðhækkun á salatbar
Morgunblaðið/Golli
Morgunblaðið/RAX
Fréttir á SMS