Morgunblaðið - 24.02.2005, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 24.02.2005, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2005 33 MINNINGAR ✝ Jón Eiríkssonfæddist á Þrasa- stöðum í Fljótum 30. apríl 1937. Hann lést á líknardeild Land- spítalans – háskóla- sjúkrahúss í Kópa- vogi 15. febrúar síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru hjónin Eiríkur Guðmunds- son, f. 28. júní 1908, d. 9. maí 1980, og Herdís Ólöf Jónsdóttir, f. 11. ágúst 1912, d. 1. sept- ember 1996. Systkini Jóns eru: 1) Sigurlína, f. 1932, maki Þorvaldur Gísli Óskarsson, f. 1933, 2) Friðrik, f. 1934, maki Halla Kristrún Jakobsdóttir, f. 1931, 3) Leifur, f. 1939, maki Alda Jóns- dóttir, f. 1942, 4) Gylfi, f. 1945, maki Stefanía Kristín Jónsdóttir, f. 1947, 5) Jóhanna Sigríður, f. 1946, maki Páll Helgason, f. 1941, 6) Bergur, f. 1949, d. 16. maí 2004, 7) Guðný, f. 1951, maki Svavar Jóns- son, f. 1950, 8) Ása, f. 1954 og 9) Kristín, f. 1955, maki Bragi Bene- diktsson, f. 1949. Hinn 17. ágúst 1968 kvæntist Jón Inger Marie Arnholtz, f. 10. maí 1944. Foreldrar hennar eru Axel Arnholtz, f. 20. apríl 1899, d. 24. júní 1968, og Elín Jóhannes- dóttir Arnholtz, f. 16. október 1912. Synir Jóns og Ing- erar eru: 1) Axel, f. 10. febrúar 1969, maki Inga Dóra Hrólfsdóttir, f. 28. maí 1968. Dætur þeirra eru Arna Guð- laug, f. 9. febrúar 2002 og Agnes Inger, f. 17. ágúst 2003. Dætur hans og fyrr- verandi sambýlis- konu, Önnu Maríu Birgisdóttur, f. 19. september 1967, eru Elín Ösp, f. 31. maí 1992, og Guðbjörg Inga, f. 17. októ- ber 1997. 2) Hilmar, f. 25. febrúar 1975, sambýliskona María Helga Hróarsdóttir, f. 26. júní 1981. Sonur Jóns frá fyrra sambandi: 3) Gísli Sigurjón, f. 9. júlí 1958. Sonur hans Bjarni Þór, f. 18. apríl 1980, sambýliskona Guðrún Ólafs- dóttir, f. 6. apríl 1982. Jón var húsasmíðameistari. Hann lauk sveinsprófi í húsasmíði frá Iðnskólanum á Siglufirði 1958 og hlaut meistararéttindi 1961. Hann starfaði við iðn sína á ýmsum stöðum, aðallega sem verktaki og byggði hann fjölda mannvirkja. Frá árinu 1988 vann hann við smíð- ar og viðhald hjá LSH í Kópavogi. Útför Jóns fer fram frá Grafar- vogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Elsku pabbi. Í dag er u.þ.b. mánuður frá því að þú greindist með krabbamein. En að þú skyldir fara svona fljótt datt eng- um í hug. Þú sem hefur alltaf verið svo hraustur og sterkur. Þú varst góður, hjálpsamur og skemmtilegur pabbi. Þegar ég hugsa til þín með söknuði koma Fljótin upp í huga mér, þessi stórkostlega grösuga og fallega sveit sem þú varst svo hrifinn af. Þú varst talinn ævintýramaður þegar þú fórst að hugsa um að byggja sumarhús þar og töluðu menn um Tunguævintýrið. Í júlí 1978 hófst svo ævintýrið með byggingu sumarbústaðar í landi Tungu í Fljótum. Þetta var bara byrj- unin, síðan hafa verið byggð tvö önn- ur hús. Í Tungu leið þér alltaf vel við veiðar og berjatínslu sem þú stund- aðir af kappi og gaman var að vera með þér niður við vatn eða úti á báti. Þessa síðustu daga þína sem ég naut mikið við að aðstoða þig, töluð- um við heilmikið saman og alltaf end- uðum við fyrir norðan í draumaland- inu. Þú varst orðinn mikið veikur og sást hvert stefndi en þú þurftir að drífa þig, það var reyndar þinn stíll. Eftir stöndum við fjölskyldan án þín en við höldum ævintýrinu áfram. Ég veit að þú rærð nú á ný mið og kannski smíðar þú einn og einn glugga þar, en mundu bara, pabbi minn, að við eigum sama drauma- landið. Axel Jónsson. Jón Eiríksson, tengdafaðir minn, hefur verið kvaddur á brott. Stórt skarð er höggvið í fjölskylduna sem aldrei verður fyllt. Jonni var yndis- legur maður, með eindæmum hjálp- samur, hlýr og með mikla kímnigáfu. Jonni var hjartagóður og hugsaði alltaf um alla aðra fram yfir sjálfan sig. Hann var laghentur smiður og oft höfum við Axel notið þess hve hjálp- samur hann var. Alltaf var hann tilbúinn að rétta fram hjálparhönd og veit ég að aðrir hafa sömu sögu að segja um hann. Það var gaman að spjalla við Jonna og við áttum nokkra hluti sameigin- lega eins og til dæmis að finnast há- karl og skata besti matur í heimi. Alltaf var hann með hákarl í krukku þegar við komum til þeirra Ingerar og fyrir barnabörnin var alltaf eitt- hvað gott til. Ég setti miklar afakröf- ur á Jonna þar sem ég sjálf missti föð- ur minn fyrir þremur árum og skynjaði hann hversu mikilvægt mér fannst að dætur mínar ættu góðan afa. Hann stóð vel undir þeim kröfum og gott betur en það, hann var hinn fullkomni afi. Það er ekki hægt að skrifa um Jonna án þess að hugsa norður í Fljót þar sem sterkar rætur hans lágu. Mikil framsýni og eldmóður ein- kenndi þá framkvæmd að byggja sumarbústað í landi Tungu í Fljótum á áttunda áratugnum. Þangað var ekki fært nema á jeppum en það aftr- aði honum ekki frá að koma upp þess- ari paradís sem nú er orðin þar. Ég átti mér sýn. Umhverfið er Fljótin, Tunga. Dætur mínar leiða afa sinn með hvítar fötur í hinni hendinni, á leiðinni upp í dal í berjamó. Eða með veiðistangir á leiðinni niður að vatni að veiða. Þessi sýn verður ekki að veruleika en við fáum þó að njóta þess umhverfis sem hann hefur mótað á sælustaðnum fyrir norðan. Þar mun andi Jonna svífa yfir vötnum áfram. Samvistum við Jonna fáum við ekki notið aftur en við getur yljað okkur við minningarnar um hann, þær verða aldrei teknar frá okkur. Hans lífssýn og styrkur hefur kennt okkur margt sem við þurfum að varðveita og miðla áfram. Elsku Inger, Hilmar og Axel minn. Megi minning hans verða ljós í lífi ykkar. Inga Dóra Hrólfsdóttir. Þótt sólin skini skært á Kúbu fannst okkur hún bregða birtu þegar við fréttum þangað að Jonni væri dá- inn. Við vissum að skæður sjúkdómur hafði læðst að honum svo engum vörnum varð við komið þegar rann- sóknir leiddu í ljós eðli og framgang hans. Að þessi sterki og kjarkmikli maður félli svo skjótt grunaði okkur ekki, því kom andlátsfregnin eins og reiðarslag. Við hittum Jonna í síðasta sinn í lok janúar. Þá var hann ennþá heima, sjúkur maður í umsjá ástkærrar eig- inkonu. Hann gerði sér þá þegar ljóst að tvísýnt væri um batahorfur og feigðarboðar margir, en hann tók því sem að höndum bar með æðruleysi. Að sjálfsögðu vonaðist hann eftir að læknavísindin gætu unnið bug á hin- um illvíga sjúkdómi, sem ekki varð raunin. Nú er Jonni fallinn frá langt um aldur fram og sár harmur kveðinn að eiginkonu hans, börnum, ættingj- um og vinum. Jonni bjó yfir mörgum mannkost- um. Hann var afkastamikill og af- bragðsgóður smiður og nutu fjöl- margir starfskrafta hans á því sviði. Hann var til að mynda Elínu tengda- móður sinni jafnan innan handar við endurbætur og viðhald húseignar hennar á Laugavegi 54 B, sem hún mat mikils og þakkar af alhug. Gestrisni var mikil á heimili Inger og Jonna. Þar var gott að koma og dvelja. Jonni undi sér vel innan veggja heimilisins og þau hjónin voru samtaka um að byggja það upp og gera það aðlaðandi og glæsilegt. Þarna mátti hvarvetna greina hand- bragð listasmiðsins. Þau Inger og Jonni voru nýlega búin að koma sér upp glæsilegu heimili í nýrri íbúð og litu björtum augum til framtíðar þeg- ar kallið hinsta kom. Jonni var lengst af hraustmenni, glaðsinna og hress í framgöngu, skemmtilegur í viðræðum og sagna- maður góður. Okkur undirrituðum var Jonni sannur og kær vinur, svili og mágur, og hjálplegur á marga vegu. Iðulega vorum við gestir á heimili þeirra hjóna og nutum veit- inga og skemmtunar af glaðværum samræðum þar sem Jonni var hrókur alls fagnaðar. Við erum þakklát fyrir kynni okkar af Jonna. Það var uppörvandi og mannbætandi að vera í návist hans. Inger, sonum, barnabörnum, öðrum ættingjum og venslafólki færum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Edda og Valdimar. Fyrir nokkrum árum kom ég sem umsjónarmaður fasteigna til Land- spítalans í Kópavogi. Þar var fyrir góður kjarni iðnaðarmanna og einn af þeim var Jón Eiríksson trésmiður sem er kvaddur hinstu kveðju í dag. Iðnaðarmenn sem vinna á sjúkra- stofnunum innan um veikt fólk þurfa að hafa til að bera sérstaka nærgætni og tillitssemi en þar reyndist Jón sér- staklega góður þar sem hann hafði góða skapgerð og var þægilegur í allri umgengni. Þau verkefni sem honum voru falin voru ávallt leyst af kostgæfni því þarna var mikill fag- maður á ferð. Jón var ættaður norðan úr Fljótum og hann unni sveit sinni mikið enda byggði hann sér sumarbústað í landi Tungu í Stíflu. Þar leið honum vel enda mikill sveitamaður í sér og gegnheill framsóknarmaður. Jón var mikill búmaður en dæmi um það er að hann var ekki í rónni á haustin fyrr en frystikistan á heimilinu var orðin full af matvælum. Þegar vinnufélagarnir stóðu í ein- hverjum framkvæmdum var Jón ávallt reiðubúinn að rétta hjálpar- hönd enda var hann einstaklega greiðvikinn og fóru margar af frí- stundum hans í að hjálpa félögum sín- um. Um leið og kveð góðan vin sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur til fjölskyldu hans. Vilhjálmur Ólafsson. Genginn er góður maður, sam- starfsfélagi í áratugi. Hann lést eftir stutt en erfið veikindi. Í breytingum undangenginna ára hjá okkur í Kópavogi reyndi mjög á hæfni hans, svo margþætt voru verk- efnin sem hann þurfti að taka sér fyr- ir hendur. Sífellt var verið að breyta og bæta og við misvitrar kvenstýr- urnar kvöbbuðum um hina ótrúleg- ustu hluti sem okkur fannst þurfa að gera strax eða helst í gær. Oft gat maður séð á svip skipulagða smiðsins að ekki voru nú allar hugmyndir okk- ar viturlegar eða vel undirbúnar, en á sinn hægláta hátt gaf hann góð ráð og framkvæmdi umbeðið verk af sinni alkunnu hæfni og vandvirkni. Varla fór hann svo í sumarfrí að ekki heyrð- ist víða á deildum „hvenær kemur Jón úr fríi“. Þessi orð sýna best hversu erfitt verður að fylla skarð hans hér. Það eru margar byggingar og sum- arhús sem bera handbragði Jóns merki og þar var á ferð sannur fag- maður á sínu sviði. Það verk sem átti hug hans allan hin síðari ár var sumarparadísin fyrir norðan. Þar naut sveitamaðurinn Jón sín, ræktaði bæði land og vötn og var hreint ótrúlegt hversu mikið hann var búinn að framkvæma þar í stop- ulum frítíma. Þar hafa ekki verið slegin nein vindhögg og tíminn nýttur vel. Fyrir hönd samstarfsmanna á hæf- ingardeildum LSH í Kópavogi, kveðj- um við Jón með virðingu og þakklæti fyrir vegferðina sem við áttum með honum. Fjölskyldunni sendum við hug- heilar samúðarkveðjur og biðjum Guð að styrkja þau í sorg sinni. Sigríður Harðardóttir, Kristjana Sigurðardóttir. JÓN EIRÍKSSON haf út leggur birtu“. Með virðingu og söknuði kveðjum við kæran vin sem ávallt veitti sérstakri birtu og yl í hjörtu okkar með jákvæðri og hress- andi nærveru sinni. Friðgeir var sannkallaður lífskúnstner, leikari, söngvari, málari, skáld, ferðagarpur, fjölskyldufaðir, ríkisstarfsmaður traustur, öryggismálastjórinn sjálf- ur, félagsmálajöfur, hæfileikamaður. Friðgeir hefur ætíð skipað sérstakan sess í hugum okkar systkinanna frá Holti í Hafnarfirði. Ungur kvæntist hann föðursystur okkar, Eyrúnu, sem dó úr berklum 28 ára gömul frá sjö ára dóttur þeirra, Lillý. Lillý fæddist degi fyrir níu ára afmælisdag Friðleifs föður okkar. Þótt aldurs- munur væri nokkur mynduðust al- veg sérstök tengsl á milli þeirra mág- anna, tengsl sem höfðu yfir sér ævintýraljóma í hugum okkar systk- inanna. Ferðamennska Friðgeirs hafði áreiðanlega varanleg áhrif á viðhorf mágsins unga, sem og já- kvæð lífsviðhorf og manngæska Friðgeirs öll. Og ávallt var kátt í kotinu er Friðgeir bar að garði og þeir mágar brugðu á leik. Friðgeir var einstaklega lánsamur þegar hann kynntist síðari konu sinni, Guðrúnu Soffíu Gísladóttur, sem alla tíð sýndi fjölskyldunni í Holti mikla vináttu, hlýju og ræktarsemi. Í hugum okkar barnanna í Holti voru Friðgeir og Soffía skemmtilega „frændfólkið“ úr Reykjavík sem ávallt var gaman að hitta, og alltaf var þeirra getið í sömu andránni. Kveðja okkar verður stutt í dag, en minningin um góðan dreng og góð hjón mun lifa meðan hjörtu hrærum. Hlýhug og samúðarkveðjur sendum við niðjum öllum. Strönd er fyrir stafni. Stýrt er í Drottins nafni. Haf og hauður er tær. Brokið er allt að baki. Bátnum sem var á hraki koman í höfn er kær. (Friðgeir Grímsson.) Rúna og systkinin frá Holti. Lífshlaup Friðgeirs Grímssonar var litríkt, ævintýralegt og víst er um það að ævisögur hafa verið ritaðar um ómerkari menn en hann, en hér verða aðeins settar fram nokkrar lín- ur um persónuleg kynni okkar. Ég hélt að Friðgeir Grímsson myndi leika sér að ná a.m.k. tíræð- isaldri, því þegar ég hitti hann fyrir nokkrum vikum fór hann allra sinna ferða úti sem inni óstuddur. Kynni mín af Friðgeiri eru orðin löng. Hann kenndi mér fagteikningu þegar ég var við nám í vélvirkjun við Iðnskól- ann veturna 1950–1951 og var hann einstaklega góður, þolinmóður og ná- kvæmur kennari. Teiknitímarnir þóttu mér einna skemmtilegustu tímarnir í Iðnskólanum. Við nemarn- ir höfðum töluvert sjálfræði um hvað við glímdum við. Fæstir teiknuðu sömu hlutina. Fyrst voru það einfald- ir hlutir, síðan samsettir hlutir, sem við tókum með okkur í skólann beint frá hinum daglega vettvangi í smiðj- unni, mældum upp og teiknuðum frá ýmsum hliðum með tilheyrandi skurðum. Kynni okkar Friðgeirs áttu eftir að verða nánari síðar. Haustið 1973 réðst ég til starfa við Öryggiseftirlit ríkisins, sem seinna varð Vinnueftirlit ríkisins, en þá var Friðgeir forstjóri þeirrar stofnunar, og lét ekki af störfum fyrr en árið 1979 þegar hann hætti fyrir aldurs sakir. Starfsferill Friðgeirs var farsæll en síður en svo vandalaus. Stofnun- inni var falið að framfylgja lögum og reglum um öryggi og hollustu á vinnustöðum sem og að annast eft- irlit á tæknisviði: Vinnuvélaskoðun, gufukatlaskoðun, lyftuskoðun ofl. Ekki voru vinnuveitendur alltaf sáttir við afskipti Öryggiseftirlitsins, enda málaflokkurinn vandmeðfarinn og við starfsmenn ekki óskeikulir, enda oft unnið undir álagi og ákvarð- anir oft teknar við nauman tíma á vettvangi. Ef vandamál komu upp, t.d. óánægja með störf stofnunarinn- ar og okkar starfsmanna hennar, eða þegar þurfti að beita þvingunarað- gerðum vegna brota á vinnuvernd- arlögum, setti Friðgeir sig ávallt vel inn í öll mál, hélt fundi með ein- stökum starfsmönnum eða fleirum. Að niðurstöðu fenginni var endanleg ákvörðun tekin og þar var Friðgeir ávallt í forsvari fyrir stofnunina, hvort heldur var við hlutaðeigendur eða í fjölmiðlum. Það var ekki stíll Friðgeirs að bjarga stofnuninni á flótta, eða ,,sópa vandamálunum und- ir teppið“ ef svo má að orði komast, enda sagði hann ávallt: ,,Förum að- eins eftir gildandi lögum og reglum og komum fram af heiðarleika og festu. Það er besta lausn allra mála.“ Stundum finnst mér að frumherjun- um í vinnuverndarmálum hér á landi hafi ekki verið þakkað nægjanlega og að verðleikum fyrir þeirra framlag. Til Friðgeirs Grímssonar var gott að leita hvort heldur var í starfi eða vegna persónulegra mála. Hann var góður, virtur og farsæll stjórnandi og ekki feiminn við að deila geði með okkur starfmönnum á skemmti- kvöldum, ásamt Guðrúnu konu sinni, en á slíkum stundum voru þau hjónin hrókar alls fagnaðar. Friðgeir hafði einstaklega góða nærveru, og var margt til lista lagt. Hann var skemmtilegur sögumaður, góður frí- stundamálari og gamanvísur söng hann manna best á gleðistundum. Ég held að ekki sé á neinn hallað þó ég segi að Friðgeir hafi verið einn sá besti yfirmaður, sem hef haft. Ég og Jóna, kona mín sendum ástvinum Friðgeirs okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Blessuð sé minning Frið- geirs Grímssonar. Guðmundur E. Eiríksson. Góður vinur og félagi, Friðgeir Grímsson, fyrrverandi öryggismála- stjóri, er í dag borinn til grafar. Í október síðastliðnum bauð hann ætt- ingjum og vinum til fagnaðar í Odd- fellowhúsinu í tilefni af 95 ára afmæli sínu. Í þeim góða hópi var hann hrók- ur alls fagnaðar og flutti þar, með þeim þrótti og tilþrifum sem ein- kenndu hann, stórbrotið, frumsamið ljóð um fjallið Snæfell, sem hann kleif ungur að árum og bar mikla virðingu fyrir. Á þessari heiðursstundu mátti þó sjá á honum fyrstu merki þess að hann gengi ekki heill til skógar. Ef til vill renndi hann í grun að um leið og hann var að fagna merkum tímamót- um ævi sinnar væru önnur tímamót ekki langt undan og að hann væri ekki aðeins að fagna heldur einnig að kveðja. Sú varð raunin og nú, aðeins nokkrum mánuðum síðar, fylgjum við þessum aldna höfðingja og vini okkar síðasta spölinn með söknuð og trega í hjarta. Svo skammt er milli lífs og dauða. Fyrir liðlega fimmtíu árum gekk Friðgeir til liðs við Oddfellowregluna og vann alla tíð mikið og gott starf að mannúðarmálum hennar. Hann var einn af stofnendum stúkunnar okkar, nr. 11 Þorgeirs, og gegndi þar fjöl- mörgum trúnaðarstörfum, m.a. sem yfirmeistari hennar. Friðgeir var mikill atorkumaður og öllum verk- efnum sem hann tók að sér að vinna fyrir stúkuna sinnti hann af miklum dugnaði og samviskusemi. Fyrir það var hann kjörinn heiðursfélagi henn- ar árið 1999. Friðgeir var afar litríkur og skemmtilegur persónuleiki, heil- steyptur, orðvar, heiðarlegur og hvers manns hugljúfi. Hann var gæddur góðum listrænum hæfileik- um, var ljóðskáld gott og prýðilegur listmálari, og kom miklu í verk á því sviði þrátt fyrir ábyrgðarmikið og er- ilsamt ævistarf. Í tilefni af 95 ára afmælinu gáfum við stúkubræður Friðgeirs út ljóða- bók með safni af kvæðum hans. Vild- um við með þeim hætti votta honum virðingu og þakkir fyrir mikið og óeigingjarnt starf hans og fyrir ógleymanlegar og skemmtilegar samverustundir. Kvæðin eru lýsandi fyrir skaphöfn og áhugamál Frið- geirs; þau eru ort af einlægni, trúar- hita og mikilli og djúpri ást til nátt- úru Íslands. Ljóðabókina prýðir mynd af einu fallegasta málverki Friðgeirs sem hann nefndi Sigldu seglum þöndum. Þau orð voru í samræmi við líf og við- horf þessa atorkumanns, og á þessari skilnaðarstundu gerum við þau að kveðjuorðum okkar. Farðu heill, góði vinur. Ættingjum Friðgeirs vottum við dýpstu samúð. Þorgeirsbræður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.