Morgunblaðið - 05.03.2005, Síða 20

Morgunblaðið - 05.03.2005, Síða 20
„Það er búið að vera rosa mikið núna, sérstaklega eru stelpurnar hrifnar af kokteilkjólunum, þá eru þær öðru vísi en allar hinar fermingarstelpurnar,“ segir Hafrún Alda Karlsdóttir, verslunar- stjóri Spútniks. Hafrún Alda segir stelpurnar líka mikið sækja í létta sumar- kjóla frá öllum tímabilum, sérstaklega þær sem vilji frekar vera látlausar. „Þeir eru ofsalega sætir líka og eldri stelpur taka mikið af þeim.“ Spútnik selur einnig alls konar notaða skó, bæði hælahá kvenskó og kúrekastígvél, og það sama á við um skóna, engin tvö pör eru eins. Hafrún Alda segir að búðin í Kringlunni hafi mun meira úrval fyrir stelpur, en herradeildin sé stærri á Klapparstíg. „Þar er mikið úrval af jakkafötum og skyrtum, en einnig af leðurjökkum og gallabuxum fyrir allra mestu töffarana. En yfirleitt vilja þeir vera í jakkafötum á fermingardaginn en eru kannski til í að fara í kúrekastígvél við. Og langflestar stelpurnar vilja vera í kjólum, ekki buxum og helst ekki pilsi og bol.“ – Fermast krakkar í fermingarfötum foreldranna eða eldri systkina? „Já, en ekki mikið. Oft passar það ekki og þá koma þau og finna eitthvað í svipuðum dúr hjá okkur.“ Bára Dís og Signý Lea eru sætastar í gömlum og rómantískum sumarkjólum. Fannar Ingi er sannur fermingar- töffari í sléttflauels- jakkafötum, rokkskyrtu og kúreka- stígvélum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Bára Dís og Signý Lea eru í „eitís“-kokteilkjólum, öðru vísi en allar hinar fermingarstúlkurnar. Alveg áreiðanlega öðru vísi Fyrir fermingarnar er nóg að gera í fataverslunum Spútniks sem selur notuð föt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.