Morgunblaðið - 19.03.2005, Side 4
4 LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
NÝR kjarasamningur milli Kenn-
arasambands Íslands vegna fram-
haldsskóla og samninganefndar
ríkisins f.h. fjármálaráðherra var
undirritaður í gær. Samningurinn
gildir frá 1. febrúar 2005 til 30.
apríl 2008. Samningurinn er gerð-
ur með sömu útfærslu og sömu
launatöflu og samflot BHM-félaga
og var hann unninn samhliða
þeirri samningsgerð.
Áfangahækkanir samningsins
eru þær sömu og samið hefur ver-
ið um á almennum vinnumarkaði
og að teknu tilliti til sérstakra að-
stæðna í menntageiranum verða
heildaráhrifin um 21% á samnings-
tímanum. Gert er ráð fyrir fjár-
magni til launaþróunar á fyrri
hluta árs 2006 og 2007 sem kemur
að hluta í stað núgildandi lífald-
urshækkana.
Í samningnum felst sú nýbreytni
að samið er um launatöflu án líf-
aldursþrepahækkana. Til þess að
tryggja að heildarkostnaður verði
innan umsaminna marka skuld-
binda samningsaðilar sig til að
vinna sameiginlega að nauðsynleg-
um útfærslum stofnanaþáttar
kjarasamnings. Gert er ráð fyrir
því að af hálfu fjármálaráðuneyt-
isins verði sett á fót teymi til að
aðstoða stofnanir við þetta verk-
efni. Í kjarasamningi þessum er
haldið áfram á sömu braut og við
síðustu samningsgerð með sam-
tengingu áherslna menntamála-
ráðuneytis í málefnum framhalds-
skóla og útfærslu kjarasamn-
ingsins. Áfram er lögð áhersla á að
efla sjálfstæði skóla og styrkja
innra starf þeirra. Menntamála-
ráðherra ákvað að stuðla að um-
bótum í skólastarfi með því að
leggja þeim skólum til viðbótar-
fjármagn sem uppfylla kröfur um
áreiðanlegt sjálfsmat í lok samn-
ingstímans. Tilgangur sjálfsmats-
ins er að bæta markmiðssetningu
og forgangsröðun skólanna og
virkja starfsmennina í þessu skyni.
Á vef KÍ kemur fram að kynn-
ingarefni um helstu efnisatriði
samningsins verði sent trúnaðar-
mönnum og formönnum fé-
lagsdeilda eftir helgina. Síðan
verða haldnir fundir í skólunum að
loknu páskaleyfi þar sem samning-
urinn verður kynntur og hann bor-
inn undir atkvæði félagsmanna í
Félagi framhaldsskólakennara og
Félagi stjórnenda í framhaldsskól-
um.
Framhaldsskólakennarar
undirrita nýjan samning
Aðalheiður Steingrímsdóttir, nýkjörinn formaður Félags framhaldsskóla-
kennara, undirritaði samninginn ásamt Elnu Katrínu Jónsdóttur, fyrrver-
andi formanni Félags framhaldsskólakennara.
VIÐRÆÐUR standa enn milli full-
trúa D-lista Sjálfstæðisflokks og H-
lista vinstri manna og óháðra um
myndun nýs meirihluta í bæj-
arstjórn Blönduóss. Að sögn Sig-
urðar Jóhannessonar bæjarfulltrúa
(D) má búast við að lyktir viðræðn-
anna verði ljósar í kvöld eða á
morgun.
Sigurður það rangt, sem kom
fram í frétt Morgunblaðsins sl. mið-
vikudag, að meirihluti D-lista og Á-
lista hefði sprungið 2002 vegna
þess að sjálfstæðismenn hefðu kraf-
ist þess að oddviti þeirra yrði bæj-
arstjóri. Sagði Sigurður sjálfstæð-
ismenn hafa farið fram á að kannað
yrði hvaða kostir væru í boði varð-
andi bæjarstjóra, en ekki gert ófrá-
víkjanlega kröfu til bæjarstjóra-
stólsins.
Búist við niður-
stöðu um helgina
BJÖRN Bjarnason, dóms- og
kirkjumálaráðherra, situr nú fund
dóms- og innanríkisráðherra aðild-
arríkja Evrópuráðsins í Varsjá, að
því er segir í fréttatilkynningu frá
ráðuneytinu.
Ráðherrarnir ræða leiðir í barátt-
unni gegn hryðjuverkum og skipu-
lagðri glæpastarfsemi. Í umræðum
vék Björn að skýrslugjöf Íslands
fyrir mannréttindanefnd Sameinuðu
þjóðanna í New York. Þar hefði
verið fjallað um breytingar á ís-
lenskri refsilöggjöf, einkum ákvæð-
um sem beinast gegn hryðjuverk-
um. Sérfræðingar nefndarinnar
hefðu bent á að atriði í löggjöf Ís-
lands væru of
óljós og kynnu að
brjóta í bága við
mannréttindi. Í
breyttri refsilög-
gjöf urðu hryðju-
verk refsiverð að
viðlögðu ævi-
löngu fangelsi.
Samkvæmt sér-
fræðingum
mannréttindanefndarinnar væri
skilgreining of óljós á því hvað talist
gætu hryðjuverk og gæti það haml-
að fólki að njóta eðlilegra réttinda í
lýðræðislegu þjóðfélagi. Á það hefði
verið bent að þessi væri raunin í
mörgum löndum. Björn hvatti til
þess, að ríki sameinuðust um skýr
markmið og leiðbeiningar um
stefnu í forvörnum gegn hryðju-
verkum. Þjóðirnar þyrftu að finna
nauðsynlegt jafnvægi milli annars
vegar baráttunnar gegn hryðju-
verkum og hins vegar þess að verja
mannréttindi, fjölflokka lýðræði og
réttarríkið. „Við munum ekki ná því
markmiði að efla öryggi nema sam-
vinna verði milli ríkja og innan
landamæra og við þurfum að upp-
lýsa þegna landanna í því skyni að
virkja þá í þessu mikilvæga verk-
efni,“ sagði Björn meðal annars í
ræðu sinni.
Ræða baráttuna gegn
hryðjuverkum og glæpum
Björn Bjarnason
BRÚÐKAUPSSÝNINGIN Já var
opnuð í gær í Smáralind og stendur
hún fram á sunnudag. Þetta er í
fjórða sinn sem hún er haldin en
alls kynna 40 fyrirtæki starfsemi
sína á sýningunni, allt frá und-
irfötum til brúðkaupsferða. Að
sögn Elínar Maríu Björnsdóttur,
sem stendur að sýningunni ásamt
Huldu Birnu Baldursdóttur, er til-
gangur sýningarinnar að auðvelda
fólki aðgengi að öllu því sem teng-
ist brúðkaupshaldi. Ýmsar uppá-
komur verða í tengslum við sýn-
inguna um helgina s.s.
tónlistaratriði, tískusýningar o.fl.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Brúðkaupssýningin Já
bekkingarnir, sem hafa tekið út
sinn þroska, vilja að hringt sé inn
í tíma svo þeir geti haldið áfram
að læra. Yngri nemendurnir, sem
SJÖTTUBEKKINGUM í Mennta-
skólanum í Reykjavík tókst ekki
að hringja inn í tíma í gær þrátt
fyrir að hart væri tekist á í svo-
kölluðum gangaslag. Yngri nem-
endunum tókst að stöðva olíu-
borna sjöttubekkingana, en það
var þó skammgóður vermir því
skólayfirvöld hringdu inn í tíma
nokkrum mínútum síðar.
„Mér hefur liðið illa í allan
dag,“ segir Jón Bjarni Krist-
jánsson, inspector scholae, en
hann kennir skipulagsklúðri
sjöttubekkinga um þetta áfall.
„Það voru stór orð látin falla fyrir
þennan slag, og mikill sál-
fræðihernaður gegn yngri bekkj-
unum. Því meir sem maður beitti
sér gegn þeim, því meiri verður
niðurlægingin.“
Það er ekki algengt að yngri
nemendur nái að stöðva sjöttu-
bekkingana í því að hringja inn í
tíma, en hefur þó gerst nokkrum
sinnum, síðast árið 2003, segir
Yngvi Pétursson, rektor Mennta-
skólans í Reykjavík. Hefð er fyrir
því að sjöttubekkingar beri á sig
olíu til þess að sleppa frekar í
gegnum gríðarstóran hóp yngri
bekkinga, en í ár notuðu þeir sem
yngri voru hveiti til þess að vinna
gegn olíunni, svo af varð tals-
verður subbuskapur. Yngvi segir
að nemendur hafi að sjálfsögðu
fengið að þrífa það upp sjálfir.
Gangaslagurinn á sér langa
sögu, og gengur út á það að elstu
eru þreyttir á skólanum, reyna
hins vegar að koma í veg fyrir að
hringt sé inn. „Ég held að þetta
séu einu löglegu fjöldaslagsmálin
á Íslandi,“ segir Jón Bjarni, en
hann segir að um 100 sjöttubekk-
ingar hafi barist við óhemjufjölda
yngri bekkinga í gær.
Sjöttu-bekkingar stöðvaðir
Morgunblaðið/Eyþór
Tekist var á af hörku, en þrátt fyrir mikið magn af barnaolíu tókst sjöttu-bekkingum ekki að hringja inn í tíma.
STARFSMANNAFÉLAG Ríkis-
útvarpsins hefur samþykkt nýgerð-
an kjarasamning við ríkið, 87%
greiddu með samningnum en tæp
9% á móti. Auðir og ógildir seðlar
voru 4%. Þátttaka í atkvæðagreiðsl-
unni var 46%.
RÚV samþykkir
kjarasamning
TRYGGINGASTOFNUN fékk 33 m.
kr. framlag á fjárlögum til að efla
eftirlit með tryggingagreiðslum. Í
því skyni verður ráðinn for-
stöðumaður á næstu dögum sem á,
auk annars, að fylgjast með áreið-
anleika og réttmæti bóta- og samn-
ingsgreiðslna.
Tryggingastofnun mun einnig
bæta leiðbeiningar til heilbrigð-
isstétta til að tryggja betur sam-
ræmingu á úrlausnum mála.
Sigríður Lillý Baldursdóttir,
framkvæmdastjóri þróunarsviðs
hjá Tryggingastofnun, segir ástæð-
una fyrir auknu eftirliti ekki vera
vitneskju um að tryggingasvik hafi
færst í aukana heldur sé Trygg-
ingastofnun betur í stakk búin til
eftirlits en áður.
Tryggingastofn-
un eflir eftirlit
SKELJUNGUR hækkaði verð á
eldsneyti í gær. Verðinu var breytt
vegna hækkunar á heimsmark-
aðsverði, að því er fram kom á
heimasíðu félagsins.
Bensínlítrinn hækkaði um 2,70
krónur og lítrinn af skipagasolíu,
gasolíu og dísilolíu um 2,50 krónur.
Þá hækkaði svartolía um 2 krónur
lítrinn. Önnur olíufélög höfðu ekki
tilkynnt um verðhækkun í gær-
kvöldi.
Eftir hækkunina er lægsta verð á
bensíni á stöðvum Skeljungs 99,80
krónur lítrinn af bensíni og 47,10
krónur lítrinn af dísilolíu.
Skeljungur
hækkar
eldsneytisverð