Morgunblaðið - 19.03.2005, Page 14
14 LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
15
5
0
2
SMS heimasími
Panasonic KX-TCD300
Tilboð í vefverslun: 8.980 kr.
25% afsláttur
úr heimasíma
í 6 númer
Skráðu þig á siminn.is
Nú getur þú sent SMS
siminn.is/vefverslun
980
Léttkaupsútborgun:
og 750 kr. á mán. í 12 mán.
kr.
Tiboðsverð: 9.980 kr.
Hægt er að senda og taka á móti SMS. Númerabirting fyrir allt að 30 númer.
Símaskrá fyrir 200 símanúmer og nöfn. Innbyggður hátalari fyrir handfrjálsa
notkun. Dagsetning og tími og raddstýring á 20 númerum.
KOLBRÚN Svala Kristjánsdóttir varði nýlega
doktorsritgerð sína í lífefnafræði við bandaríska
háskólann Duke University í Norður-Karólínu.
Ritgerðin nefnist Dual-Specificity Kinase Myt1:
Insights into Specificity, Mechanism and Regul-
ation of Catalytic Activities. Ritgerðin byggist á
rannsóknum höfundar á lífefnafræðilegum eig-
inleikum Myt1 kínasans, sem hefur mikilvægu
starfi að gegna í stjórnun frumuhringsins.
Niðurstöðurnar sýna að Myt1 kínasinn bætir
fosfat-hópum á bæði Cdk
(cyclin dependent kinase)/
cyclins og á sjálfan sig. Líf-
efnafræðilegir eiginleikar svo
sem staðsetning fosfat-
hópanna, hraðafræði og gang-
ur efnahvarfsins voru skoð-
aðir. Að lokum voru afleið-
ingar þessarar fosfórýleringar
skoðaðar í Xenopus laevis-
froskaeggjum. Kolbrún hefur
birt greinar með niðurstöðum rannsókna sinna í
virtum tímaritum svo sem Analytical Biochem-
istry og Proceeding of National Academy of
Sciences (PNAS).
Leiðbeinandi Kolbrúnar var prófessor Jo-
hannes Rudolph. Doktorsnefnd Kolbrúnar sam-
anstóð af Michael Been, Patrick Casey, Sally
Kornbluth og Chris Raetz, allir prófessorar við
Duke-háskólann.
Kolbrún er fædd í Reykjavík 1974. Hún lauk
B.Sc.-prófi í lífefnafræði frá Háskóla Íslands árið
1997 og M.Sc.-prófi í lífefnafræði undir hand-
leiðslu prófessors Jóns Braga Bjarnasonar árið
1999, einnig frá Háskóla Íslands.
Foreldrar Kolbrúnar eru Kristján Guðmunds-
son, kennari og námsráðgjafi við Kvennaskólann
í Reykjavík, og Margrét Jóhannsdóttir, starfs-
maður á leikskóla. Systkini Kolbrúnar eru Guð-
mundur Jónatan háskólanemi og Elísabet Erla
grunnskólanemi.
Kolbrún er að hefja störf við University of
Chicago og mun vinna á tilraunastofu prófessors
Steve Kron við rannsóknir á hvarfefni Cdc28
kínasans í gersveppi.
Doktor í
lífefnafræði
Í DÓMS- og kirkjumálaráðuneytinu er verið
að undirbúa breytingar á sérlögum um pen-
ingahappdrætti, þar sem meðal annars verð-
ur tekin afstaða til þess, hvort afnema beri
einkaleyfi happdrættis Háskóla Íslands og
fella niður einkaleyfisgjald þess en bæta rík-
issjóði tekjutap vegna þess með sérstakri
gjaldtöku á þá, sem fá leyfi til að starfrækja
peningahappdrætti.
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra
kynnti á fundi ríkisstjórnarinnar á þriðjudag
nýtt frumvarp, sem felur í sér heildarend-
urskoðun á reglum um leyfisveitingu til starf-
rækslu happdrætta. Núverandi skipan happ-
drættismála hér á landi hefur sætt gagnrýni
eftirlitsstofnunar EFTA, (ESA) sem telur
(Íslenska getspá) og um söfnunarkassa.
Samkvæmt ákvæðinu er jafnframt gert ráð
fyrir að ýmis ákvæði nýrra laga gildi jafn-
framt um peningahappdrætti sem fá leyfi til
starfrækslu samkvæmt lagaheimild.
Í frumvarpinu er ákvæði um að einungis
megi veita leyfi félagi, samtökum eða stofnun,
sem staðfestu hafa á Evrópska efnahags-
svæðinu, ef þau starfa í þeim tilgangi að afla
fjár til almannaheilla hér á landi. Frumvarpið
gerir ekki ráð fyrir eftirlitskerfi með happ-
drættum heldur verði það í höndum dóms- og
kirkjumálaráðuneytisins, sem geti leitað til
sérfróðra aðila til að sinna einstökum þáttum
eftirlitsins, ef svo ber undir, og er í slíkum til-
vikum heimilt að krefja greiðslu á kostnaði.
það brjóta í bága við samninginn um Evr-
ópska efnahagssvæðið, að hér skuli happ-
drættisstarfsemi bundin við íslensk fyrirtæki.
Samkvæmt upplýsingum frá dómsmála-
ráðuneytinu er í frumvarpinu komið til móts
við þessa gagnrýni ESA, án þess að horfið sé
frá þeirri meginreglu, að starfsemin sé háð
leyfi dóms- og kirkjumálaráðuneytisins.
Við endurskoðun happdrættislaganna hef-
ur ekki verið hróflað við sérlögum um pen-
ingahappdrætti og vöruhappdrætti. Nú gilda
sérstök lög um Happdrætti Háskóla Íslands,
Happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjó-
manna, Happdrætti Sambands íslenskra
berkla- og brjóstholssjúklinga, um getraunir,
þ.e. Íslenskar getraunir, um talnagetraunir
Kannað hvort afnema eigi
einkaleyfi happdrættis HÍ
FRÁ og með 1. júlí næstkom-
andi mega þeir einir fram-
kvæma aðalskoðun á leik-
svæðum, sem hlotið hafa til
þess faggildingu. Af því tilefni
hélt Umhverfisstofnun nýlega
námskeið fyrir þá sem hyggjast
ná sér í slík réttindi.
Reglugerð um öryggi leik-
vallatækja og leiksvæða og eft-
irlit með þeim tók gildi í janúar
2003 og gildir fyrir öll leik-
svæði skipulögð fyrir leik
barna, svo sem skólalóðir,
gæsluvelli, opin leiksvæði og
lóðir fjölbýlishúsa og annarra
aðila þar sem börn eiga greiðan
aðgang að. Gerð er krafa um
að þeir sem reki leiksvæði hafi
með þeim svokallað innra eft-
irlit sem er þrískipt. Í fyrsta
lagi er um að ræða reglu-
bundna yfirlitsskoðun sem fram
fer daglega eða vikulega. Í
öðru lagi á að fara fram rekstr-
arskoðun á eins til þriggja
mánaða fresti og í þriðja lagi
skal fara fram árleg að-
alskoðun sem felst í heildar-
úttekt á leiksvæðum og ástandi
þeirra.
Að sögn Brynju Jóhanns-
dóttir hjá Umhverfisstofnun
var námskeiðið m.a. sótt af
starfsmönnum skoðunarstofa,
verkfræðistofa og sveitarfélaga
og komust færri að en vildu.
Kennarar voru John Yearley og
David Yearley en þeir komu frá
breska fyrirtækinu RoSPA sem
er með mikla reynslu í í eftirliti
á leiksvæðum.
Skoðunarmenn leiksvæða hafi réttindi
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Samkvæmt nýrri reglugerð verða öll leiksvæði, svo sem skólalóðir
og gæsluvellir, nú skoðuð árlega af faggiltum eftirlitsmönnum.