Morgunblaðið - 19.03.2005, Page 27

Morgunblaðið - 19.03.2005, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 27 Íslendingasögur I-III Tilboð 7.980 kr. 7.000 kr. afsláttur Tilboð 2.980 kr. 4.000 kr. afsláttur Tilboð 4.900 kr. 12.000 kr. afsláttur Tilboð 4.980 kr. 15.000 kr. afsláttur Tilboð 6.990kr. 8.000 kr. afsláttur Stórvirki á gjafverði Við bjóðum til fermingarveislu Lækjargötu 2a, sími 511 5001, opið k l . 10–22 alla daga. Með hverju tilboði fylgir þessi fallega bók* *á meðan birgðir endast Tilboð 7.980 kr. 9.000 kr. afsláttur Heimskringla I-III LIST FRIÐARINS Innri Njarðvík | Jónína Ágústs- dóttir, kennari við Salaskóla í Kópa- vogi, hefur verið ráðin skólastjóri hins nýja Akurskóla sem tekur til starfa í Tjarnahverfi í Innri- Njarðvík í haust. Sex sóttu um starfið. Bæjarráð Reykjanesbæjar ákvað á fundi í fyrradag að ráða Jónínu en þá lá fyr- ir mat á umsækjendum og sam- hljóða tillaga fræðsluráðs um að ráða Jónínu í starfið. Fjórir bæj- arráðsmenn af fimm greiddu at- kvæði með ráðningu Jónínu. Jónína hefur lokið námi við Kenn- araháskóla og Dipl. Ed. í stjórnun menntastofnana við sama skóla og stundar þar áframhaldandi nám í vetur. Jónína hefur starfað í Hjalla- skóla og Salaskóla í Kópavogi, nú síðast sem umsjónarkennari. Eiginmaður hennar er Logi Sig- urfinnsson, framkvæmdastjóri Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins, og eiga þau þrjá drengi. Ráðin skólastjóri hins nýja Akurskóla UM 90 kylfingar, þar af 30 er- lendir, hafa skráð sig til leiks í Arctic-open miðnæturgolf- mótið sem fram fer á Jað- arsvelli 22.–25. júní í sumar. Jón Birgir Guðmundsson for- maður Arctic-open nefndar Golfklúbbs Akureyrar sagði að mjög vel liti út með skráningu miðað við árstíma, því aðeins væri hægt að taka við um 150 kylfingum í mótið. „Við höfum fengið samkeppni að sunnan síðustu ár en við virðumst vera að tryggja stöðu mótsins okkar og festa það í sessi sem mið- næturgolfmót.“ Síminn og Flugfélag Íslands hafa verið aðalstyrktaraðilar mótsins og verða það einnig í ár og á dögunum var samn- ingur við Símann endurnýjaður með formlegum hætti. Þá sagði Jón Birgir að fyrirtækið Taylor Made kæmi að mótinu í ár, í gegnum verslunina Nevada BoB. Taylor Made leggur til öll verðlaun mótsins og nemur verðmæti þeirra hundruðum þúsunda króna. Að sögn Jóns Birgis munu fimm stjórnendur frá bandaríska fyrirtækinu koma til Akureyrar og taka þátt í mótinu. Hann sagði það hafa færst í vöxt að fyrirtæki keyptu þátttökurétt í mótinu fyrir starfsmenn sína eða í við- skiptalegum tilgangi. „Menn eru að koma hingað á mikla golfhátíð og margir sem koma norður nota tækifærið og leika golf á völlum í næsta nágrenni Akureyrar.“ Mjög mikill áhugi á Arctic-open golfmótinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.