Morgunblaðið - 19.03.2005, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 27
Íslendingasögur I-III
Tilboð
7.980 kr.
7.000 kr.
afsláttur
Tilboð
2.980 kr.
4.000 kr.
afsláttur
Tilboð
4.900 kr.
12.000 kr.
afsláttur
Tilboð
4.980 kr.
15.000 kr.
afsláttur
Tilboð
6.990kr.
8.000 kr.
afsláttur
Stórvirki á gjafverði
Við bjóðum til
fermingarveislu
Lækjargötu 2a, sími 511 5001, opið k l . 10–22 alla daga.
Með hverju
tilboði fylgir
þessi fallega
bók*
*á meðan birgðir endast
Tilboð
7.980 kr.
9.000 kr.
afsláttur
Heimskringla I-III
LIST
FRIÐARINS
Innri Njarðvík | Jónína Ágústs-
dóttir, kennari við Salaskóla í Kópa-
vogi, hefur verið ráðin skólastjóri
hins nýja Akurskóla sem tekur til
starfa í Tjarnahverfi í Innri-
Njarðvík í haust.
Sex sóttu um starfið. Bæjarráð
Reykjanesbæjar ákvað á fundi í
fyrradag að ráða Jónínu en þá lá fyr-
ir mat á umsækjendum og sam-
hljóða tillaga fræðsluráðs um að
ráða Jónínu í starfið. Fjórir bæj-
arráðsmenn af fimm greiddu at-
kvæði með ráðningu Jónínu.
Jónína hefur lokið námi við Kenn-
araháskóla og Dipl. Ed. í stjórnun
menntastofnana við sama skóla og
stundar þar áframhaldandi nám í
vetur. Jónína hefur starfað í Hjalla-
skóla og Salaskóla í Kópavogi, nú
síðast sem umsjónarkennari.
Eiginmaður hennar er Logi Sig-
urfinnsson, framkvæmdastjóri
Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins,
og eiga þau þrjá drengi.
Ráðin skólastjóri
hins nýja Akurskóla
UM 90 kylfingar, þar af 30 er-
lendir, hafa skráð sig til leiks í
Arctic-open miðnæturgolf-
mótið sem fram fer á Jað-
arsvelli 22.–25. júní í sumar.
Jón Birgir Guðmundsson for-
maður Arctic-open nefndar
Golfklúbbs Akureyrar sagði að
mjög vel liti út með skráningu
miðað við árstíma, því aðeins
væri hægt að taka við um 150
kylfingum í mótið. „Við höfum
fengið samkeppni að sunnan
síðustu ár en við virðumst vera
að tryggja stöðu mótsins okkar
og festa það í sessi sem mið-
næturgolfmót.“
Síminn og Flugfélag Íslands
hafa verið aðalstyrktaraðilar
mótsins og verða það einnig í
ár og á dögunum var samn-
ingur við Símann endurnýjaður
með formlegum hætti. Þá sagði
Jón Birgir að fyrirtækið Taylor
Made kæmi að mótinu í ár, í
gegnum verslunina Nevada
BoB. Taylor Made leggur til öll
verðlaun mótsins og nemur
verðmæti þeirra hundruðum
þúsunda króna. Að sögn Jóns
Birgis munu fimm stjórnendur
frá bandaríska fyrirtækinu
koma til Akureyrar og taka
þátt í mótinu. Hann sagði það
hafa færst í vöxt að fyrirtæki
keyptu þátttökurétt í mótinu
fyrir starfsmenn sína eða í við-
skiptalegum tilgangi. „Menn
eru að koma hingað á mikla
golfhátíð og margir sem koma
norður nota tækifærið og leika
golf á völlum í næsta nágrenni
Akureyrar.“
Mjög mikill
áhugi á
Arctic-open
golfmótinu