Morgunblaðið - 19.03.2005, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 29
MINNSTAÐUR
Þórshöfn | Það voru blómlegar kon-
ur sem hittust á veitingastaðnum
Eyrinni og báru saman bumbur sín-
ar yfir kaffi og franskri súkku-
laðiköku. Þrjár þeirra eiga von á
fyrsta barni sínu en hinar eiga barn
eða börn fyrir.
Þær hafa áður komið saman og
spjallað um lífið og tilveruna en
ófrískar konur eiga margt sameig-
inlegt og tilhlökkunin yfir ófædda
barninu gefur þeim öllum þann
ljóma sem svo oft einkennir konur á
meðgöngutímanum.
Það eru því um 7% kvenna á
Þórshöfn sem eignast barn á þessu
ári ef miðað er við aldurinn 15 til 45
ára og „bumbulínurnar“ telja ekki
ólíklegt að sú tala eigi eftir að
hækka.
Gott þykir að ala upp börn í
frjálsræði og öryggi í litlu sjáv-
arplássi, samgangur milli þeirra er
oftast mikill og börnin jafnan vel-
komin jafnt á sínum heimilum sem
annarra, „því aldrei er böl að
barni“.
Morgunblaðið/Líney
Daufur er barnlaus bær
LANDIÐ
Vestmannaeyjar | Leikfélag Vest-
mannaeyja frumsýndi sl. laugardag
leikritið Makalaus sambúð, í leik-
stjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar, sem
einnig þýðir verkið.
Leikritið er eftir hinn vinsæla
bandaríska leikritahöfund, Neil Sim-
on. Eftir leikritinu var gerð gaman-
myndin The Odd Couple með þeim
Walter Matthau og Jack Lemmon
1968. Hlaut hún óskarsverðlaun fyr-
ir handrit. Upp úr 1980 bjó höfund-
urinn kvennaútgáfu af þessu vinsæla
leikriti og gekk það í endurnýjun líf-
daga í kjölfarið. Það er útgáfan sem
LV býður upp á. Hún hefur ekki ver-
ið sýnd hér á landi áður enda var það
leikstjórinn, Ásgeir Sigurvaldason,
sem þýddi verkið og fengu leikendur
handritið í hendur jafnóðum og þýð-
ingin lá fyrir.
Makalaus sambúð fjallar, eins og
nafnið bendir til, um skringilega
sambúð sem í þessu tilfelli eru tvær
makalausar konur sem deila sömu
íbúð. Þær eru báðar hinar indælustu
manneskjur en á meðan önnur kipp-
ir sér ekki upp við smámuni er hin
að drekkja sér og sambýliskonunni í
smáatriðum. Inn í þetta koma vin-
konurnar fjórar og tveir sætir Spán-
verjar sem búa í sama húsi.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Blómarósir Aðalleikkonur sýningarinnar hjá Leikfélagi Vestmannaeyja,
Ásta Steinunn Ástþórsdóttir og Erla Ásmundsdóttir, að lokinni sýningu.
Makalaus sambúð
í Vestmannaeyjum