Morgunblaðið - 19.03.2005, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 19.03.2005, Qupperneq 30
30 LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ MENNING VELKOMIN Í GALLERÍ FOLD Í DAG Vi› ver›um me› opi› hús í Gallerí Fold vi› Rau›arárstíg í dag og bjó›um alla unnendur listaverka velkomna. Listamenn koma í heimsókn og kynna verk sín og starfsmenn frá KB banka og VÍS veita uppl‡singar um vaxtalaus listmunalán og listmunatryggingar. fieir sem ganga frá umsóknum um listamunalán í dag fá grafíkverk eftir Kristján Daví›sson a› gjöf. Sjáumst í Gallerí Fold! Mynd eftir Harold Bison Öll börn sem komame› foreldrum sínumfá páskaegg frá Mónume›an birg›ir endast. Gallerí Fold • Rau›arárstíg 14-16 • sími 551 0400 Opi› laugardag, kl. 11.00-17.00 BJÖRK trúir á töfra eins og fram kom í nýlegu viðtali, en hversu magnaðir töfrarnir voru á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands undir yfirskriftinni galdrar og goðsagnir skal ósagt látið. Tónleikarnir voru haldnir á fimmtudags- kvöldið í Háskólabíói og á efnisskránni voru tónsmíðar sem allar eiga það sameiginlegt að vera ættaðar úr heimi hins yfirnáttúrulega. Hljómsveitarstjórinn Owain Arwel Hughes náði prýðilega að magna upp ævintýrakennt andrúmsloft í forleiknum að óperunni Hans og Grétu eftir Humperdinck; maður gat nánast séð fyrir sér umkomulaus börn á gangi í myrk- um skógi og vondu nornina í sælgætishúsinu. Sömuleiðis voru tveir þættir úr ball- ettsvítunni Þyrnirós glæsilega fluttir; hljómsveitarhljómurinn var skemmtilega safaríkur og töfra- kenndur; jafnvægið á milli ólíkra hljóðfærahópa var eins og best verð- ur á kosið og önnur tæknileg atriði voru prýðilega útfærð. Síst á efnisskránni voru tvö tóna- ljóð eftir Liadov (kennara Proko- fievs), einstaklega hugmyndasnauðar tónsmíðar sem markviss leikur hljómsveit- arinnar náði ekki að lappa upp á. Engir galdrar þar á ferð! Hins vegar var verulega gaman að The Perfect Fool Ballet eftir Gustav Holst, en hann er unninn upp úr samnefndri óperu tón- skáldsins, einhvers konar grínútgáfu af Parsifal eftir Wagner. Ópera Holst þótti misheppnuð en um ballettónlistina sem hann byggði á rústum hennar gegnir öðru máli; þetta er litrík, allt að því galgopakennd fantasía er naut sín til fulls í snilldarlegum leik hljómsveitarinnar. Ungur píanisti, Liene Circene, var ein- leikari kvöldsins og spilaði hún fyrst Dauðadans eftir Franz Liszt í upp- runalegri mynd verksins. Sú útgáfa er eiginlega aldrei flutt, enda talsvert sund- urlausari, ef ekki billegri, en þekkta út- gáfan. Þrátt fyrir það voru engin billegheit í túlkun Circene; strax í byrjun kallaði hún fram áhrifaríka mynd af miskunnarlausum dauð- anum sem dansaði tryllingslega á dómsdegi, hröð hlaup voru afburðaglæsileg og hvassir bassahljómarnir allt að því stingandi. Innhverf- ari þættir tónlistarinnar voru einnig hrífandi og miðaldastemningin, sem er eitt megineinkenni verksins, komst ágætlega til skila í ljóðrænum píanóleiknum. Helst mátti finna að skorti á krafti í mestu hápunktunum, enda ekki fyrir hvern sem er að láta píanó hljóma almennilega í vonlausri endurómun Háskólabíós. Í það heila var þetta þó sannfærandi túlkun á tónsmíð Liszts. Svipaða sögu er að segja um sjaldheyrt tóna- ljóð eftir Cesar Franck, Les Djinn, sem lýsir viðureign einmana vegfaranda við fljúgandi ill- vættir. Túlkun Circene var markviss og lífleg og náði hún prýðilega að skapa viðeigandi and- rúmsloft í tónlistinni. Ég hef það eftir áreiðanlegum heimildum að flygillinn sem Circene lék á sé nýlega kominn til landsins eftir að hafa gengið í gegnum mikl- ar endurbætur. Því miður sat ég það aftarlega að ég treysti mér ekki til að dæma um hvernig til hefur tekist. Vonandi fær maður ákjós- anlegra sæti næst. TÓNLIST Háskólabíó Sinfóníuhljómsveit Íslands flutti tónsmíðar eftir Humperdinck, Tchaikovsky, Liszt, Franck, Liadov og Holst. Einleikari: Liene Circene; hljómsveitarstjóri: Owain Arwel Hughes. Fimmtudagur 17. mars. Sinfóníutónleikar Liene Circene Dansað á dómsdegi Jónas Sen Myndlistin var í brenni-depli New York-borgarum síðustu helgi. Þástóð yfir árleg mynd- listarkaupstefna, The Armory Show, með þátttöku hundraða gallería frá Bandaríkjunum og Evrópu. Þar gekkst Listahátíð í Reykjavík fyrir vel sóttum blaðamannafundi að morgni fyrsta sýningardags en það var ekki í eina skiptið sem Ísland og myndlist bar á góma þessa daga því í tengslum við hina risastóru list- messu Armory voru tvær minni kaupstefnur haldnar á hótelum í borginni og á annarri þeirra, DiVA art fair, kynnti Tumi Magnússon myndlistarmaður verk sín. Ljótt blóm í sætu rými DiVA er skammstöfun fyrir Digit- al &Video Art, og er fyrsta al- þjóðlega listakaupstefnan sem kynn- ir eingöngu verk sem unnin eru í stafræna miðla, myndbönd og ljós- myndir. Kynningin fór fram á Em- bassy Suites Hotels, nýju hóteli á neðanverðri Manhattan, skammt frá þeim stað þar sem Tvíburaturnarnir stóðu áður. Galleríin, sem voru bæði frá New York og víðsvegar frá Evr- ópu, röðuðu sér í herbergi á fyrstu tveimur hæðum hótelsins. Voru verk Tuma Magnússonar sýnd á vegum Boreas gallerís í Williamsburg, Brooklyn. Verk Tuma á DiVA voru bæði myndbands- og ljósmyndaverk, hluti verka af einkasýningu hans í Lista- safni Árnesinga sl. sumar. Hér tóku verkin að einhverju leyti mið af um- gjörð hótelherbergisins. Sem dæmi hafði litprent af einum einstökum blómknúppi tekið yfir heilan veggflöt eins og afbökuð uppstækkun af ein- hverju hallæris hótelveggfóðri. Sagðist Tumi hafa haft það í huga við val á blómamynd fyrir þessar að- stæður að blómið yrði að vera ljótt til að skapa jafnvægi við sætleika rým- isins, en bætti þó við að hann hafi einnig áhuga á ákveðnum núningi við kitschið. Samruni myndar og rýmis Myndbandsverk voru sýnd á tveimur sjónvarpsskjám og á öðrum vegg hengu verk úr sjávarseríu Tuma, tölvuunnar ljósmyndir af fisk- um sem hafa verið þvingaðir í fer- kantað form. Með ferhyrningslaga formi ljósmyndaverkanna segist Tumi vera að afmarka rými verksins í líkingu við rými umgjarðarinnar, sýningarstaðarins. Verkin séu því eingöngu ferköntuð vegna þess að slíkt sé form rýmisins. „Þannig næ ég fram samruna myndar og rýmis með skýrum hætti, sem er nokkuð sem skiptir mig miklu máli við myndsköpun,“ útskýrir Tumi. Teng- ir hann síðan þessa nálgun við notk- un sína á vökvum og öðrum form- lausum efnum sem viðfangsefni í málverkum. Efni er sett fram sem litur á tví- víðum ferhyrningi – „Kaffi og hland,“ eða „Coca-Cola, djúpt og grunnt,“ eru verk sem kunna að virð- ast einfaldar litaabstraktsjónir en reynast búa yfir margslungnum hug- lægum tengingum við bæði lykt og bragð og hlutverk efnisins. Breytir eigindum rýmisins „Formleysi vökvans leyfir að hann taki á sig hvaða form sem er,“ segir Tumi. „Um leið og efnið heldur ein- hverju af einkennum sínum þá breytist það að öðru leyti, og breytir þar með eigindum rýmisins sem það er sett fram í.“ Myndbandainnsetning Tuma heit- ir Mix. Mislitir vökvar af ólíkum toga drúpa hver ofan í annan á skjánum. Allt frá bláum orkudrykkjum, mjólk og appelsínusafa til gluggahreinsi- efnis. Kaffið gruggar tæran rauðan berjasafann og mjólkin hleypur í kekki. Efnisnotkun og tilvísanir verkanna er alltaf að finna í því hversdagslega. Teknir úr sínu eðli- lega samhengi fara hlutirnir hins vegar að vísa út fyrir sjálfa sig og kveikja ólíkar tengingar með áhorf- andanum. Þannig vekur þetta verk að einhverju leyti hugrenningatengsl við náttúruna; setlög og kísilgúr en æpandi sterkir litirnir vísa um leið til hins andstæða, umhverfismengandi eiturefna. Á þessum sýningarstað inni á herbergi Embassy-hótelsins vakti hljómfall dropanna síðan sterka kennd fyrir andvöku á hrip- lekum næturstað í ókunnri borg. Myndlistarmaðurinn Tumi Magnússon kynnti verk sín á listakaupstefn- unni Digital &Video Art sem haldin var í New York-borg um síðustu helgi. Hulda Stefánsdóttir skoðaði verkin og ræddi við Tuma. Hversdagslegir hlutir teknir úr samhengi Tumi Magnússon myndlistarmaður við blómamynd sína í New York.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.