Morgunblaðið - 19.03.2005, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 31
MENNING
LEIKRIT austurríska Nóbels-
verðlaunahafans Elfriede Jelinek,
Babel eða Babýlon, var frumsýnt í
Akademietheater í Vínarborg í gær-
kvöldi í leikstjórn Nicolas Sted-
manns. Leikararnir Philipp
Hochmair, Sachiko Hara, Markus
Hering, Myriam Schroeder og Phil-
ipp Hauss sjást hér í hlutverkum
sínum á aðalæfingunni í vikunni.
Jelinek fékk Nóbelsverðlaunin í
bókmenntum í fyrra en hún er jafn-
víg á skáldsagnagerð og leikritun.
Babýlon
Jelineks í
Vínarborg
Reuters
ÞAÐ VAR dálítið gaman að heyra
kynslóðirnar mætast í Steinunum.
Jón Páll og Alfreð frá hinum
gullnu dögum djassins á Íslandi –
báðir í Jazzmiðlum með Ormslev,
Scheving og
Rúnari
Georgssyni.
Ólafur og Óskar
allnokkru yngri
og Tómas R.
mitt á milli. Tón-
listin var klass-
ískt bopp, oft í
harðari kant-
inum byrjað á
Monk og endað
á Davis. Svo fengu menn að
spreyta sig á söngdönsunum. Ólaf-
ur blés I hear a rhapsody einsog
oft áður, Jón Páll lék einn Easy
living og Ellingtonmeistaraverkið
Sophisticated lady af miklum eleg-
ans og Óskar Guðjónsson fór í
saumana á All of me sem Seymor
Simmons samdi árið 1931 og Arm-
strong gerði ódauðlegt – að vísu
var ég að hlusta á verk eftir Jelly
Roll Morton frá 1929 og er þar að-
alstefið All of me. Sweet Peter
nefnist það.
Það er kannski ekki saga til
næsta bæjar þegar færir mús-
íkantar leika klassískt efni og
spinna næsta hefðbundið. Þessa
pilta má líka heyra af og til á tón-
leikum – alla utan einn, tromm-
arann Alfreð Alfreðsson. Alfreð
hefur lítið leikið opinberlega und-
anfarinn áratug og vel það, en
hann var um langt skeið einn
helsti djasstrommari Íslands. Þó
heyra megi að Alfreð hafi ekki
leikið að staðaldri er hann óhemju
öruggur trommari og haggast ekki
í taktinum. Hann sló mjög
skemmtilegan sóló í Cecilíu Bud
Powels þarsem heyra mátti þessi
sérstæðu augnablik þegar sólóinn
er einsog í hægagangi þótt allt sé
á fullu – þetta heyrir maður líka
oft hjá Östlund. Þarna blésu sax-
arnir stundum saman í Chon/Zims
stílnum einsog oftar þetta kvöld
t.d. Í Booker Little ópusnum
Rounder mood. Tómas átti góða
spretti að vanda og samstiga
leikur hans og Jóns Páls í
Rhythm-a-ning var sérlega
skemmtilegur og átti maður von á
að heyra Monk hljóma í þögn-
unum. Göngubassinn í sólónum
átti vel við og þar fór ekki á milli
mála að Tómas skilur tónamál
Monks. Saxarnir hljómuðu vel
saman í Stable mable Benny
Golsons og sóló Jóns Páls í Star
eyes var agaður og skipti hann úr
latíntaktinum í ekta sveiflu.
Ekta klúbbkvöld einsog best
verður á kosið í Reykjavík án þess
að nokkuð kæmi á óvart enda leik-
urinn ekki til þess gerður.
Boppað af
lífi og sál
DJASS
Múlinn á Hótel Borg
Ólafur Jónsson og Óskar Guðjónsson,
tenórsaxófóna, Jón Páll Bjarnason gítar,
Tómas R. Einarsson bassa og Alfreð Al-
freðsson trommur. Fimmtudagskvöldið
17.3. 2005.
Steinarnir
Jón Páll Bjarnason
Vernharður Linnet
Klapparstíg 44
Sími 562 3614
Páskaeggjamót
Verð 450 og 795 • 5 stærðir