Morgunblaðið - 19.03.2005, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 33
DAGLEGT LÍF
Kirkjulundi 13 - Garðabæ - s: 565 6900 - taeknisalan@simnet.is
Efnalaug og fataleiga Garðabæjar
Garðatorgi 3 • 565 6680 • www.fataleiga.is
ÚTSALA
á glæsilegum
brúðarkjólum.
Verð frá kr 10.000
Þ
etta er ekki hægt,“ full-
yrtu Frakkarnir hver
við annan og fórnuðu
höndum þegar þeir
fyrri part vetrar höfðu
kynnst veðravíti því sem stundum
ríkir á efstu tindum Bláfjalla. Þarna
var þeim ætlað að setja upp skíða-
lyftu og þeir höfðu aldrei kynnst
annarri eins bjartsýni. Varla var
stætt fyrir hávaðaroki og ofankom-
an og frostið ætluðu allt og alla að
kæfa. En seiglan hafði betur í bar-
áttunni við vetur konung og allt
hafðist þetta að lokum eins og
landsmönnum er nú orðið ljóst og
lyftan sem fékk nafnið Kóngurinn,
var opnuð fyrir skömmu. Hún er
fyrsta stóra Poma-stólalyftan á Ís-
landi og sú allra fullkomnasta á
landinu.
En það hefur ekki verið þrauta-
laust að koma þessu ferlíki á legg
og frá því í október hefur um tugur
Frakka búið í Bláfjöllum um lengri
eða skemmri tíma til að fylgja verk-
inu eftir og hópur íslenskra starfs-
manna unnið undir þeirra stjórn.
Berja klakann á hverjum morgni
Á lokasprettinum í febrúar voru að-
eins þeir Thierry Merino-Rodriguez
og David Hotellier eftir í fjöllunum.
Thierry hafði yfirumsjón með verk-
inu og hann hafði komið til landsins
um miðjan desember. David var ný-
kominn en hann er rafmagnsverk-
fræðingur og annaðist allar prófanir
á lyftunni. Þeir félagarnir voru
heldur betur veðurbarðir þegar
blaðamaður hitti þá við efri stjórn-
stöðina uppi á fjalli í um 700 metr-
um yfir sjó. En það var stutt í bros-
ið og þeir sögðust vera orðnir vanir
þessum erfiðu aðstæðum og því að
byrja daginn á að berja klaka utan
af öllu. Verkið hafði óneitanlega
tekið lengri tíma en til stóð, en
marga daga var alls ekkert hægt að
vinna fyrir veðurofsa.
Skíðalyfta í Indlandi
Fransmennirnir áttu kost á því að
dvelja á hótelum Reykjavík-
urborgar meðan á dvöl þeirra stóð
hérlendis en þeir kusu undantekn-
ingarlaust að hafa næturstað í Blá-
fjallaskálanum. „Hér er mjög gott
að vera, okkur skortir ekkert og
sambúðin með Pétri Guðmundssyni
sem líka heldur til hér, gengur
mjög vel,“ segja fjallabúarnir
Thierry og David. Thierry ferðast
um víða veröld til að hafa umsjón
með uppsetningu skíðalyftna frá
Poma, meðal annars til Japan. En
eftirminnilegasta segir hann vera
uppsetningu skíðalyftu í Indlandi.
„Við byrjuðum á að setja hana upp
fyrir 17 árum og verkinu er ekki
enn lokið. Indverjar vinna ekki á
sama hraða og annað fólk og að-
stæðurnar eru mjög frumstæðar,“
segir Thierry og hlær að öllu sam-
an.
Kóngurinn er fyrsta fjögurra
sæta lyftan í Bláfjöllum og auk þess
eru fjórir lokaðir klefar á henni.
Lyfta þessi tengir Suðurgilið og
Kóngsgilið saman og auk þess er
hugmyndin að nýta hana yfir sum-
artímann fyrir ferðamenn til útsýn-
isferða. Einnig eru festingar fyrir
reiðhjól aftan á stólunum þannig að
hjólreiðamenn geta tekið sér far
með lyftunni upp á fjall og hjólað
þar eftir fjallinu og inn til heiða.
Margir hellar eru í nágrenni Blá-
fjalla og í fyrra sumar var gerð til-
raun með að bjóða upp á hell-
askoðunarferðir með viðkomu í
skíðaskálanum þar sem boðið var
upp á íslenska kjötsúpu og aldrei að
vita nema framhald verði á þeirri
þjónustu.
HEIMSÓKN | Voru fengnir til að setja upp nýju skíðalyftuna í Bláfjöllum
Frakkar í
fjöllunum
Um tugur Fransmanna hefur að undanförnu búið í
Bláfjöllum í tengslum við uppsetningu á nýju lyft-
unni þar sem nýlega var opnuð. Kristín Heiða
Kristinsdóttir barðist upp á fjallstind í fimbulkulda
og ofsaroki með Ragnari Axelssyni til að hitta þá
tvo Frakka sem eftir standa.
Morgunblaðið/RAX
David og Thierry vildu ekki gista á hótelum í borginni heldur kusu að vera í Bláfjallaskálanum.
khk@mbl.is
Einnig eru festingar fyrir
reiðhjól aftan á stólunum
þannig að hjólreiðamenn
geta tekið sér far með
lyftunni upp á fjall og
hjólað þar eftir fjallinu og
inn til heiða.