Morgunblaðið - 19.03.2005, Síða 67
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 67
MENNING
Leikendur:
Aðalbjörg Þóra Árnadóttir
Atli Þór Albertsson
Björn Ingi Hilmarsson
Guðjón Davíð Karlsson
Guðmundur Ólafsson
Guðrún Ásmundsdóttir
Halldór Gylfason
Halldóra Geirharðsdóttir
Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir
Jóhannes Haukur Jóhannesson
Oddný Helgadóttir
Ólafur Steinn Ingunnarson
Orri Huginn Ágústsson
Pétur Einarsson
Sara Dögg Ásgeirsdóttir
Theodór Júlíusson
„Algjör draumur“
MK Mbl
„ ..ein skemmtilegasta
leiksýning sem ég hef séð“
KHH Kistan.is
Draumleikur
SÝNINGAR LAUGARDAGS- OG SUNNUDAGSKVÖLD • ATHUGIÐ AÐ SÝNINGAFJÖLDI ER TAKMARKAÐUR
eftir August Strindberg
Leikstjóri: Benedikt Erlingsson Leikmynd: Gretar Reynisson
N
æ
st
Sigrún Eðvaldsdóttir konsertmeistariheldur einleikstónleika í Salnum kl. 16í dag ásamt James Lisney píanóleik-
ara. Efnisskrá tónleikanna er sérstök, því öll
verkin, eru samin af þekktum tónskáldum,
fyrir þekkta fiðlusnillinga: Rondó í b-moll op.
70 eftir Schubert, tileinkað Slavik,
Tango, song and dance, eftir André Prèvin,
samið fyrir Anne Sophie Mutter, Sónata nr. 1,
op. 75 eftir Camille Saint-Saëns, tileinkuð
Marsick, og loks Sónata op. 134 eftir Sjost-
akovitsj, tileinkuð Davíð Oistrakh.
„Okkur James finnst mjög gaman að leika
verk sem eru ekki
spiluð of oft,“ segir
Sigrún um áhuga
þeirra James Lisn-
eys á verkunum á
efnisskránni. „Hann hefur spilað Schubert
mikið, en þetta er fyrsta Schubertverkið sem
við spilum saman. Seinna langar okkur að
spila Fantasíu Schuberts.
Í fyrra var ég á tónleikum úti í Englandi og
heyrði Midori spila sónötuna eftir Saint-
Saëns. Ég hafði aldrei heyrt verkið áður, en
fannst það alveg æðislega flott og fallegt. Það
var alveg pottþétt að ég vildi spila það sjálf.
Það var aldrei nein spurning í mínum
huga, að mig langaði að spila Sjostakovitsj
sónötuna – þannig að það var sjálfgefið að
taka hana með á þessa tónleika.“
Með þessi þrjú verk á blaði fóru þau Sigrún
og James Lisney að velta fyrir sér þema tón-
leikanna og spá í hvað verkin ættu sameig-
inlegt. James Lisney fór að grúska og þemað
var auðfundið. „Hann komst að því að tón-
skáldin höfðu öll tileinkað verkin fiðlusnill-
ingum síns tíma. Þá hafði ég fundið verk eftir
André Prévin, sem hann hafði samið fyrir
Ann Sophie Mutter – og veistu hvað, það er
svo flott. Þetta er mjög orginal verk. Hann
samdi þetta fyrir hana og hefur greinilega
viljað hafa það skemmtilegt virtúósaverk í
djassstíl. Hæga kaflann semur hann al-
gjörlega frá hjartanu. Ann Sophie Mutter er
konan hans – og kaflinn er algjört æði – svo
rómantískur og fallegur.“
Sigrún segir að þótt öll verkin séu samin
fyrir snillinga sé hlutverk fiðluleikarans í
hverju einu þeirra ólíkt hinum. „Prévin sem-
ur mjög vel fyrir fiðluleikarann. Verkið er
erfitt en ótrúlega flott. Schubert er auðvitað
klassískur, en líka mjög erfiður. Sónata Sa-
int-Saëns er afar virtúósísk, ekki bara fyrir
fiðluleikarann, heldur píanóleikarann líka.
Sjálfur var hann víst æðisgenginn píanisti og
James sagði mér að hann hefði sjaldan spilað
annað eins verk því það er erfitt á svo allt
annan hátt en önnur slík verk. Sjostakovitsj
samdi sitt verk fyrir Oistrakh og gefur hon-
um alls konar fallegar laglínur. Oistrakh gat
spilað hvað sem var og ég held að Sjostakov-
itsj hafi þess vegna ekkert verið að spá í
tæknileg atriði.“
Tengsl James Lisney við Ísland hófust ámjög sérstakan hátt. Hann bjó í sömu
götu ytra og Björg Árnadóttir, dóttir Árna
Björnssonar tónskálds. Björg fór með nótur
að nokkrum verkum föður síns til hans og
áhugi hans kviknaði strax og hann æfði Róm-
önsur Árna með enskum fiðluleikara og
hljóðritaði. Tengslin við Ísland treystust þeg-
ar hann kynntist svo fleiri íslenskum tónlist-
armönnum í gegnum Björgu, meðal annars
Gunnar Guðbjörnssyni og Sigrúnu sem líka
hafði hljóðritað Rómönsurnar en í hljómsveit-
arútgáfu með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Oft er sagt að flytjendur geti glætt tónlist-
ina lífi en til þess að svo megi verða þurfa
verkin sjálf að hafa verið samin af andagift,
snilligáfu og innblæstri. Þess vegna tileinka
þau Sigrún og James tónleikana öllum þeim
snillingum sem hafa snert hjörtu þeirra.
Snilld tileinkuð snillingum
’Hæga kaflann semur hann al-gjörlega frá hjartanu. Ann
Sophie Mutter er konan hans –
og kaflinn er algjört æði – svo
rómantískur og fallegur.‘
AF LISTUM
Bergþóra Jónsdóttir
begga@mbl.is
Morgunblaðið/Jim Smart
James Lisney og Sigrún Eðvaldsdóttir á æfingu fyrir tónleikana í Salnum.