Morgunblaðið - 17.04.2005, Side 32
32 SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MIKIL fjölbreytni í viðfangsefnum
fréttaritara og ljósmyndara Morg-
unblaðsins á landsbyggðinni endurspegl-
aðist þegar dómnefnd í ljósmynda-
samkeppni sem efnt var til meðal
fréttaritaranna vann við að velja bestu
myndirnar úr fjölda innsendra ljós-
mynda. Þar koma fyrir flestir þættir í
störfum og daglegu lífi fólksins í landinu
og sumir af stærstu fréttaatburðum
landsins. Heiti sýningar með bestu
myndum keppninnar er því nærtækt,
Fólk í fréttum, en sýningin hefur verið
sett upp í verslunarmiðstöðinni Smára-
lind.
Jónas Erlendsson, fréttaritari Morg-
unblaðsins í Mýrdal, varð hlutskarpastur
í ljósmyndasamkeppninni sem Morg-
unblaðið og Okkar menn, félag fréttarit-
ara blaðsins á landsbyggðinni, stóðu fyr-
ir. Valið var úr myndum sem
fréttaritarar tóku á árunum 2003 og
2004 og sendu í keppnina. Myndirnar
eru flokkaður í níu efnisflokka og eru
fyrstu verðlaunamyndirnar úr flokk-
unum birtar hér á opnunni.
Úrslitin voru kynnt og verðlaun afhent
á aðalfundi Okkar manna sem haldinn
var í Reykjavík gær. Allar verðlauna-
myndirnar verða til sýnis í Smáralind
fram til miðvikudagsins 27. apríl. Sýn-
ingin verður síðan sett upp á nokkrum
stöðum á landsbyggðinni, fyrst í veit-
ingahúsinu Við árbakkann á Blönduósi.
Fólk í fréttum
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Á sama tíma að ári
Haukur Pálsson, bóndi á Röðli í Austur-Húnavatnssýslu, og Guðlaug Jónsdóttir, meina-
tæknir í Reykjavík, eru í góðum hópi fólks sem tekur þátt í hrossasmölun í Laxárdal og
stóðréttum í Skrapatungu í Austur-Húnavatnssýslu. Jón Sigurðsson fréttaritari hefur
skrásett árlega endurfundi þeirra sem farið er að nefna „á sama tíma að ári“ – og þau taka
fullan þátt í leiknum. Myndin varð hlutskörpust í flokki mynda úr daglega lífinu.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Barist af krafti
Hrútarnir í Fagradal áttu greinilega eftir að útkljá einhver deilumál þegar þeim var sleppt úr fjárhúsi eftir veturlanga samveru í þröngri stíu. Dúr og Halur
runnu saman með þungum höggum en Mjöður fylgdist vel með enda í hlutverki dómara og stigavarðar. Jónas Erlendsson, bóndi í Fagradal og fréttaritari
Morgunblaðsins, var áhorfandi. Mynd hans varð efst í flokki mynda í opnum flokki og að lokum valin mynd ársins í keppninni.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Björgun á Meðallandssandi
Eftir nokkrar árangurslausar tilraunir tókst dráttarbát að ná togara Samherja, Baldvini Þorsteinssyni,
af strandstað á Meðallandssandi. Jónas Erlendsson, fréttaritari í Mýrdalnum, fylgdist með þessari um-
fangsmiklu björgunaraðgerð og mynd hans fékk fyrstu verðlaun í flokki fréttamynda.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Farið í loftköstum
Öflugir snjóbrettastrákar mættu á Skíðaviku á Ísafirði og sýndu leikni sína á palli sem gerð-
ur var á íþróttavellinum á Torfnesi. Halldór Sveinbjörnsson myndaði loftköstin og sigraði í
flokki íþróttamynda. Skíðavika hefur verið haldin í sjötíu ár og er ein elsta bæjarhátíðin.