Morgunblaðið - 10.05.2005, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SVAVAR Tryggvason,
fyrrverandi skipstjóri,
er látinn í Barnaby, út-
borg Vancouver á vest-
urströnd Kanada, 89
ára að aldri, en hann
hefur búið vestra síð-
astliðna hálfa öld.
Svavar bjó í Reykja-
vík fyrstu æviárin, en
hann fæddist 24. apríl
árið 1916. Hann fluttist
sjö ára til Dalvíkur þar
sem hann ólst upp til 17
ára aldurs. Hann var
einn vetur á Laugum í
Reykjadal, en fór eftir
það í Verzlunarskólann og útskrifað-
ist þaðan áður en hann lauk fiski-
mannaprófi frá Stýrimannaskólan-
um.
Svavar vann fyrir náminu einkum
með sjómennsku, en þegar hann var
37 ára gamall árið 1953
fluttist hann til Kanada
með fjölskyldu sína.
Hann var fyrst eitt og
hálft ár í Halifax á aust-
urströnd Kanada þar
sem hann vann við sjó-
mennsku, en fluttist síð-
an til vesturstrandar
Kanada þar sem hann
vann í landi og stundaði
fiskveiðar jöfnum hönd-
um þar til hann settist í
helgan stein fyrir um
tuttugu árum síðan.
Kona Svavars var
Sveinbjörg Haralds-
dóttir. Þau eignuðust sjö börn og voru
sex þeirra fædd þegar þau fluttust til
Kanada. Meðal barna þeirra er
Bjarni Tryggvason geimfari, en hann
var sjö ára þegar fjölskyldan fluttist
til Kanada.
Andlát
SVAVAR TRYGGVASON
HALDIN verður á morgun í Reykja-
vík ráðstefna um umhverfisvottun í
ferðaþjónustu en markmið hennar er
að hvetja til umræðu um efnið og
vekja athygli á mikilvægi markvissr-
ar umhverfisstefnu sem samræmist
ímynd landsins og hefur á sér við-
urkenndan stimpil á alþjóðavísu, seg-
ir m.a. í frétt frá fundarboðendum.
Ráðstefnan hefst kl. 9 á Grand hót-
eli í Reykjavík. Einar K. Guðfinns-
son, formaður Ferðamálaráðs, setur
ráðstefnuna en aðalfyrirlesari er
Eugenio Yunis, yfirmaður málefna
um sjálfbæra þróun í ferðaþjónustu
hjá Alþjóðaferðamálaráðinu. Meðal
annarra fyrirlesara eru Stefán Gísla-
son umhverfisstjórnunarfræðingur,
Kristinn Jónsson sveitarstjóri,
Magnús Oddsson ferðamálastjóri,
Finnur Sveinsson, umhverfis- og við-
skiptafræðingur, og Þorleifur Þór
Jónsson hagfræðingur.
Ferðamálaráð stendur að ráð-
stefnunni ásamt samgönguráðuneyt-
inu í samvinnu við Hólaskóla, háskól-
ann að Hólum, Landvernd, Samtök
ferðaþjónustunnar, Ferðamálasam-
tök Íslands og Ferðamálasetur Ís-
lands.
Umhverfisvottun
í ferðaþjónustu
Daglegt
líf
á morgun
„Það er í raun eitt
dress frá hverju
tímabili. Það elsta er
heklaður bolur frá
því um 1934, svo er
æðislegur kjóll frá
því um 1940 og
prjónaður hippakjóll
frá um 1970 og auð-
vitað er margt fleira
frá seinustu sjötíu
árum,“ segir Birta
Ísólfsdóttir sem var
svo heppin að fá gef-
ins fullt af gömlum
fötum frá aldraðri
frænku sinni. Morgunblaðið/Eyþór
ALLS 2.527 tilskipanir, reglugerðir
og ákvarðanir Evrópusambandsins
hafa verið teknar inn í EES-samn-
inginn á árunum 1994 til 2004 eða
um 6,5% af heildarfjölda ESB-
gerða á tímabilinu. Íslendingar hafa
innleitt um 2.227 gerðir á grundvelli
EES-samningsins, en Ísland er
m.a. undanþegið þeim ákvæðum
sem snúa að heilbrigðiseftirliti
dýra.
Þetta er meðal þess sem fram
kemur í skriflegu svari utanríkis-
ráðherra, Davíðs Oddssonar, við
fyrirspurn Sigurðar Kára Krist-
jánssonar, þingmanns Sjálfstæðis-
flokks. Svarið er byggt á upplýs-
ingum frá skrifstofu EFTA í
Brussel. Í því kemur einnig fram að
af þeim gerðum sem Íslendingar
hafa innleitt á tíu ára tímabili hafi
101 gerð kallað á lagabreytingar
hér á landi.
Merkilegar upplýsingar
Sigurður Kári gerði svarið að
umtalsefni í upphafi þingfundar í
gær. Hann sagði meðal annars að
því hefði lengi verið haldið fram, án
nokkurs fyrirvara, að Íslendingar
innleiddu 80% af öllu regluverki
Evrópusambandsins. Nú væri hins
vegar ljóst að það væri ekki rétt;
Íslendingar stimpluðu ekki
ESB-gerðir í þeim mæli sem haldið
hefði verið fram, meðal annars af
þingmönnum Samfylkingarinnar.
Davíð Oddsson tók einnig til máls
og sagði að þetta væru merkilegar
upplýsingar, sem fram kæmu frá
skrifstofu EFTA. Þær sýndu að það
væri algjörlega úr lausu lofti gripið
að Íslendingar þyrftu að taka upp
allar gerðir ESB. „Fullyrðingar um
að við tökum þetta allt saman upp
hvort sem er – án þess að hafa áhrif
á gerðirnar – eru auðvitað algerlega
úr lausu lofti gripnar,“ sagði hann.
Steingrímur J. Sigfússon, þing-
maður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, sagði að sá mál-
flutningur, sem talsvert hefði vaðið
uppi, að löggjafarstarf í EES-lönd-
unum væri fyrst og fremst ljósritun
af gerðum ESB hryndi til grunna
með umræddum upplýsingum.
Björgvin G. Sigurðsson, þing-
maður Samfylkingar-
innar, sagði að hann
væri, þrátt fyrir þess-
ar upplýsingar, sann-
færður um að Ísland
ætti að sækja um að-
ild að ESB. Fjölda-
margt annað en lýð-
ræðisleg aðkoma að
lagasetningarferlinu
þrýsti á um aðildar-
umsókn. Spurði hann
m.a. hver viðbrögð Ís-
lendinga yrðu þegar
Norðmenn sæktu um
aðild í þriðja sinn og
EES-samningurinn
liði þar með undir lok.
Guðlaugur Þór Þórð-
arson, þingmaður Sjálfstæðisflokks,
sagði hins vegar engar líkur á því
að Noregur væri á leið inn í ESB,
hvað þá að EES-samningurinn væri
að líða undir lok.
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra sagði að upplýsingarnar stað-
festu það sem nefndarmenn Evr-
ópustefnunefndarinnar hefðu orðið
áskynja að undanförnu; tölur um að
Íslendingar innleiddu 80% af reglu-
verki ESB væru rangar.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, sagði
m.a. að nú ættu þingmenn að geta
látið af þrasi í nefndum þingsins um
að Alþingi gerði ekkert annað en að
innleiða gerðir frá ESB. Nú hlytu
þingmenn Sjálfstæðisflokks einnig
að taka glaðir við því litla sem
kæmi frá Evrópusambandinu.
Íslendingar innleiða innan
við 6,5% af ESB-gerðum
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
Davíð
Oddsson
Sigurður Kári
Kristjánsson
FRUMVARP um Ríkisútvarpið
sf., frumvarp til nýrra vatnalaga
og frumvarp um rannsóknir og
nýtingu á jarðrænum auðlindum
verða ekki afgreidd á þessu vor-
þingi samkvæmt samkomulagi,
sem náðist milli stjórnar og stjórn-
arandstöðu í gær. Á móti er stefnt
að því að afgreiða önnur frumvörp
ríkisstjórnarinnar, s.s. frumvarp
viðskiptaráðherra til nýrra sam-
keppnislaga.
Halldór Blöndal, forseti Alþing-
is, segir að gengið hafi verið frá
þessu samkomulagi á fundi þing-
flokksformanna og forseta þings-
ins í gær. Hann segir stefnt að því
að vorþinginu ljúki á morgun, mið-
vikudag. Eldhúsdagsumræður
verða í kvöld, en fyrir hádegi fara
fram fyrirspurnir til ráðherra.
Önnur umræða fór fram um fjöl-
mörg þingmál á Alþingi í gær.
Meðal annars lauk annarri um-
ræðu um samkeppnislagafrum-
varpið. Útlit var fyrir að umræður
myndu standa fram á nótt. At-
kvæðagreiðslur fara hins vegar
ekki fram fyrr en í kvöld, eftir eld-
húsdagsumræðurnar. Þá er stefnt
að lokaumræðum og atkvæða-
greiðslum á morgun.
Til stóð að afgreiða frumvarpið
um Ríkisútvarpið úr nefnd í gær.
Af því varð hins vegar ekki. Óvíst
er hvort það verði afgreitt úr
nefnd í dag. Samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins hefur þó
verið gengið frá breytingartillög-
um meirihluta nefndarinnar. Í
þeim er m.a. reynt að tryggja að
réttindi starfsmanna Ríkisútvarps-
ins breytist ekki með samþykkt
frumvarpsins. Þá er lagt til að
sjötta grein frumvarpsins falli á
brott, en í henni er m.a. kveðið á
um þátttöku Ríkisútvarpsins í
nýrri starfsemi.
Frumvarp um Ríkis-
útvarpið ekki afgreitt
Morgunblaðið/Jim Smart
Samflokksmennirnir Jóhann Ársælsson og Björgvin G. Sigurðsson glugga í þingskjöl undir umræðum.