Morgunblaðið - 10.05.2005, Page 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Sigríður Magn-úsdóttir fæddist
á Bæ í Reykhólasveit
22. maí 1924. Hún
lést á hjúkrunar-
heimilinu Sóltúni í
Reykjavík 29. apríl
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru
Magnús Gunnlaugur
Ingimundarson,
bóndi og hreppstjóri
á Bæ í Reykhóla-
sveit, f. 6.6. 1901, d.
13.8. 1982, og kona
hans Jóhanna Krist-
ín Hákonardóttir
húsfreyja, f. 16.8. 1901, d. 12.7.
1937. Fóstra Sigríðar var Sigríður
Guðjónsdóttir húsfreyja og ljós-
móðir, f. 19.04. 1903, d. 18.7. 1985.
Systkini Sigríðar: Lúðvík (látinn),
Arndís, Erlingur (látinn), Ingi-
mundur (látinn) og Hákon (látinn).
Hálfbræður Sigríðar samfeðra eru
Friðgeir, Laila Björk; 4) Magnús
G., 20.8. 1950, sambýliskona Sig-
urveig Lúðvíksdóttir, börn Magn-
úsar eru Aldís, Davíð Fannar (lát-
inn) og Maríanna. Langömmubörn
Sigríðar eru fjórtán og eitt langa-
langömmubarn.
Sigríður giftist 17.12. 1966 Sig-
urði Sveinssyni, f. 11.2. 1922, d.
4.9. 1994, rafvirkjameistara. Hann
var sonur Sveins Jónssonar, bónda
í Þykkvabæjarklaustri í Álftaveri,
og Hildar Jónsdóttur húsfreyju og
ljósmóður. Dóttir Sigríðar og Sig-
urðar er Sigurveig, f. 18.6. 1959,
gift Karli Guðmundssyni, börn
þeirra Sigurður, Kristján, Svein-
björg og Sveinn.
Sigríður ólst upp við almenn
sveitastörf í foreldrahúsum. Hún
stundaði nám við Húsmæðraskól-
ann á Staðarfelli, fór síðan til
Reykjavíkur þar sem hún vann á
Landspítalanum um skeið. Síðar
starfaði hún um árabil við ræst-
ingar í Langholtsskóla jafnframt
því að vera húsmóðir með mjög
stórt heimili.
Útför Sigríðar verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Ólafur og Gunnlaug-
ur. Fóstursystir Sig-
ríðar er Hulda Páls-
dóttir (látin).
Sigríður giftist 3.6.
1944 Friðgeiri Sveins-
syni kennara, f. 11.6.
1919, d. 22.5. 1952.
Hann var sonur
Sveins Hallgrímsson-
ar, bónda á Sveins-
stöðum á Fellsströnd,
og Salóme Kristjáns-
dóttur húsfreyju.
Börn Sigríðar og Frið-
geirs eru: 1) Jóhanna,
f. 17.10. 1944, gift
Gunnari Þórólfssyni, börn þeirra
Þórólfur, Kristín, sonur Jóhönnu
er Friðgeir Jónsson; 2) Hrefna, f.
28.9. 1946, gift Kjartani Hálfdán-
arsyni, börn þeirra Sigurður, Ingi-
björg, Kjartan Hrafn; 3) Salóme, f.
17.10. 1948, gift Sveini Geir Sig-
urjónssyni, börn þeirra Sigurjón,
Sigga amma var alveg frábær.
Hún var mikil kossakona, hló hátt
og af einlægni og faðmaði alla lengi
og innilega. Að koma til hennar og
Sigga afa á Hjalló var alveg ein-
stakt. Þau áttu mjög fallegt heimili
og fengu líka verðlaun fyrir garðinn
sinn. Kleinur að hætti Siggu ömmu
voru þó vörumerkið hennar. Það fór
ekki framhjá neinum þegar hún
byrjaði að baka því steikingin fór
fram í bílskúrnum, hurðin stóð opin
og kleinuilmurinn barst um allt
Kleppsholtið. Eftir að Siggi afi dó
fékk ég að koma og hjálpa henni við
baksturinn. Það var aðdáunarvert
að horfa á hana gera deigið og skera
það til með kleinujárninu. Handtök-
in svo örugg og snögg og ég gerði
mitt besta til að halda í við hana.
Skera, gata, snúa. Það var alltaf létt
stemning hjá okkur í bílskúrnum.
Við gátum hlegið okkur máttlausar
ef við sáum ólögulega kleinu koma
úr steikingarpottinum og þegar
amma fór að hlæja fóru allir í kring-
um hana að hlæja. Tala nú ekki um
þegar hún hnerraði. Það var alltaf
rosalega gaman hjá okkur frænd-
systkinunum þegar amma hnerraði.
Okkur fannst það rosalega fyndið
og reyndum mikið að leika það eftir
með öllum tilþrifum. Allar þessar
yndislegu stundir eru enn ljóslif-
andi í minningunni og ég mun varð-
veita þær minningar að eilífu.
Líf ömmu var þó ekki alltaf dans
á rósum. Það var ekki fyrr en á full-
orðinsárum að ég gerði mér fylli-
lega grein fyrir öllum þeim erfið-
leikum og sorgum sem amma gekk í
gegnum á sinni ævi og virðing mín
fyrir henni óx með hverri heimsókn
til hennar. Hjúkrunarheimilið Sól-
tún var heimili ömmu síðustu þrjú
árin. Þangað var yndislegt að koma
og heimsækja hana. Umönnunin
sem hún fékk þar var alveg einstök
og hugsað um hana af mikilli alúð
og kærleika. En nú hefur þú fengið
þína langþráðu hvíld, elsku amma
mín. Ég veit að þú ert hjá góðu fólki
núna, fólki sem vakti yfir þér í veik-
indum þínum. Guð blessi þig og
varðveiti. Þakka þér alla umhyggj-
una sem þú sýnir mér alla tíð. Ég vil
senda starfsfólki Sóltúns mínar
hjartans þakkir fyrir að hugsa
svona vel um ömmu. Hvíldu í friði,
elsku amma mín.
Þín
Kristín (Stína).
Elsku amma mín, ég þakka þér
fyrir öll árin sem við áttum saman á
Hjallaveginum og síðar á Dalbraut-
inni. Ég mun aldrei gleyma hversu
góðar vinkonur við vorum. Alltaf
var faðmur þinn opinn þegar ég
þurfti á því að halda, t.d. þegar mér
leið illa gat ég komið til þín og þú
skildir mig og gast alltaf huggað
mig. Bara með því að horfa á mig og
gefa mér smá bros eða andlits-
grettu og þá komstu mér alltaf til að
brosa.
Þegar þú brostir komstu öðrum
til að brosa, því bros þitt var svo
sérstakt. Þú lést heiminn lýsa,
blómin blómstra og sólina skína. Nú
þegar tíminn þinn er runninn upp
þá höldum við áfram að brosa, sólin
áfram skín og blómin blómstra. En
nú þegar kallið er komið og þú ert
farin, þá eigum við alltaf góðar
minningar um þig, amma mín, þær
tekur enginn frá okkur.
Sveinbjörg.
Elsku amma mín. Þegar maður
sest niður og fer að hugsa til baka
koma svo ótal margar minningar
upp í hugann. Minningar um lítinn
strákhnokka sem fann öryggi og
hlýju hjá ömmu sinni á Hjallaveg-
inum.
Þær voru margar góðar stund-
irnar sem ég átti með ykkur afa.
Alltaf var manni tekið opnum örm-
um, sama á hvaða tíma maður kom,
og fimm mínútum seinna voru
kræsingar á borðum. Þannig varst
þú, elsku amma mín. Alltaf að hugsa
um okkur barnabörnin.
Hjallavegurinn var ekki bara op-
inn okkur. Þar komu allir við þegar
þeir áttu leið hjá og á laugardögum
var húsfyllir í „grjónó“.
Heimili þitt stóð opið fyrir svo
mörgum og það var alltaf fjör við
eldhúsborðið. Þú varst yndisleg
manneskja sem tókst alltaf svo vel á
móti fólkinu þínu.
Þegar ég var ellefu ára fórum við
austur á Einarsstaði og dvöldum
þar í eina viku í blíðskaparveðri, ég,
þú, afi, Friðgeir og Sigurveig. Sú
ferð er mjög ofarlega í minning-
unni, nú þegar komið er að hinstu
kveðju.
Síðustu árin hefur heilsu þinni
hrakað mjög og það hefur verið mér
mjög erfitt að horfa upp á það. Þeg-
ar mamma hringdi í mig í vinnuna
föstudaginn 29. apríl og sagði mér
að þú værir farin þyrmdi yfir mig.
En í hjarta mínu var ég sáttur, því
að nú varstu komin til afa Sigga og
Friðgeirs. Þín verður sárt saknað,
elsku amma mín. Ég bið góðan guð
að varðveita þig, eins og þú sagðir
alltaf við mig þegar ég kvaddi þig.
Sigurður Þór Kjartansson.
Þegar ég hugsa um hana ömmu
Siggu kemur fyrst í hugann Hjalla-
vegurinn. Stórfjölskyldan hittist um
helgi og borðar saman grjónagraut.
Krakkarnir leika saman og full-
orðna fólkið spjallar um hvað á daga
þess hefur drifið. Amma Sigga átti
stóra og fallega fjölskyldu og sagði
svo alltaf: „Ég er svo rík að eiga öll
þessi börn og öll þessi barnabörn
(og barnabarnabörn).“ Sem lítill
drengur skildi maður ekki hvað
amma var alltaf að tala um og
hvernig var hægt að vera ríkur á að
eiga börn og barnabörn. Ekki var
hægt að kaupa neitt fyrir það. En
nú í seinni tíð þegar lítill drengur
verður stór og eignast sína fjöl-
skyldu og sín börn þá skilur hann
loksins hvað amma var að tala um.
Það er ekkert eins dýrmætt og fjöl-
skyldan.
Myndbrot úr eldhúsinu á Hjalla-
veginum eru ljóslifandi í minning-
unni um ömmu. Maður kom ekki í
heimsókn án þess að dregnar væru
fram svampbotnstertur með mar-
ens og rjóma á milli, sultukökur,
amma að baka flatkökur og skera út
kleinudeig með litla fólkinu og baka
kleinur. Volgar kleinur með mjólk.
Auðvitað máttu barnabörnin taka
þátt í bakstrinum. Það var partur af
öllu saman. Amma að virkja með
sér litlar hendur því margar hendur
vinna létt verk.
Amma var líka góður vinur. Hún
kunni að hlusta og gefa góð ráð.
„Ég kjafta aldrei frá,“ var hún vön
SIGRÍÐUR
MAGNÚSDÓTTIR
Kársnesbraut 98 • Kópavogi
564 4566 • www.solsteinar.is
Helluhrauni 10, 220 Hf.,
sími 565 2566,
www.englasteinar.is
Englasteinar
Fallegir legsteinar
á góðu verði
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir, tengda-
móðir og amma,
BÁRA KRISTJÁNSDÓTTIR
þroskaþjálfi,
Íragerði 12,
Stokkseyri,
lést á Landspítalanum laugardaginn 7. maí.
Útförin verður auglýst síðar.
Kristján Geir Arnþórsson,
Erla Hafliðadóttir,
Njörður Sigurjónsson, Valgerður Halla Kristinsdóttir,
Arnþór Kristjánsson,
Björn Kristjánsson,
Marta Kristjánsdóttir,
Pétur Juul Arnþórsson.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
JÓNA M. SIGURJÓNSDÓTTIR,
Skildinganesi 4,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut föstu-
daginn 6. maí.
Þórður M. Adólfsson,
Sólborg H. Þórðardóttir, Atli Karl Pálsson,
Sigurjón Þórðarson, Hrafnhildur Garðarsdóttir,
Ragnheiður M. Þórðardóttir, Jón Oddur Magnússon,
Gróa María Þórðardóttir, Baldvin Kárason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar,
SIGURBJÖRG LÚÐVÍKSDÓTTIR
frá Djúpavogi,
síðast á dvalar-
og hjúkrunarheimilinu Grund,
lést fimmtudaginn 5. maí sl.
Útför hennar verður gerð frá Fossvogskirkju
föstudaginn 13. maí kl. 15.00.
Lúðvík Jónsson,
Ragnhildur Jónsdóttir,
Erla Jónsdóttir,
Anna Jónsdóttir,
Margrét Jónsdóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
KRISTINN GUÐLAUGUR
HERMANNSSON,
Jörfalind 4,
Kópavogi,
áður til heimilis Molastöðum,
Fljótum,
lést á Landspítalanum við Hringbraut laugar-
daginn 7. maí.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 13. maí kl. 13.00.
Inga Jóna Stefánsdóttir,
Sigríður Sóley Kristinsdóttir, Bjarni Heimir Traustason,
Heiðrún Meldal Kristinsdóttir,
Selma Hrönn Kristinsdóttir, Ólafur Kári Júlíusson,
Stefán Þór Kristinsson
og barnabörn.
Minningarkort
Krabbameinsfélagsins
540 1990
krabb.is/minning