Morgunblaðið - 10.05.2005, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 10.05.2005, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2005 35 DAGBÓK Félagsstarf Aflagrandi 40 | Baðþjónusta og jóga kl. 9, fótsnyrting og hárgreiðsla. kl. 13 postulínsmálun, frjáls spila- mennska. Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handa- vinna kl. 9–16.30, leikfimi kl. 9, boccia kl. 9.30, smíði/útskurður kl.13–16.30. Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og dagblöð, kl. 9–14 baðþjónusta, kl. 9– 16.45 hárgreiðslustofan opin, kl. 10–11 samverustund, kl. 11.15–12.15 matur, kl. 14–16 félagsvist, kl. 14.30–15.30 kaffi. Félag eldri borgara í Kópavogi | Brids í Gjábakka í dag kl. 13.15. Félag eldri borgara, Reykjavík | Skák kl. 13. Miðvikudagur: Göngu– Hrólfar ganga frá Ásgarði Glæsibæ kl. 10. Dagsferð 11. maí: Nesjavellir, Hellisheiði. Ekið til Nesjavallavirkj- unar. Ekið að Ljósafossi og til Hvera- gerðis. Á Hellisheiði er ekið að bor- holum Orkuveitunnar. Leiðsögn: Pálína Jónsdóttir. Skráning s. 588 2111. Félag eldri borgara Hafnarfirði | Moggi, rabb og kaffi kl. 9. Leikfimi í Bjarkarhúsinu kl. 11.30, brids kl. 13, gler kl. 13. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Karlaleikfimi kl. 13. Vorsýning fé- lagsstarfs aldraðra verður haldin 11., 12. og 13. maí kl. 14 í safnaðarheim- ilinu Kirkjuhvoli Kirkjulundi. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, kl. 10.30 létt ganga um nágrennið. Veitingar í há- degi og kaffitíma í Kaffi Bergi. Á morgun, miðvikud., ,,Kynslóðirnar dansa saman“ kl. 10.30 fer danshóp- urinn undir stjórn Helgu Þórarins í heimsókn í Fellaskóla. Félagsþjónustan Hraunbæ 105 | Kl. 9 postulínsmálun, glerskurður og hárgreiðsla, kl. 10 boccia, kl. 11 leik- fimi, kl. 12 hádegismatur, kl. 12.15 Bónus, kl. 13 myndlist, kl. 15 kaffi. Húnabúð | Aðalfundur Húnvetninga- félagsins verður haldinn í Húnabúð í kvöld kl. 20. Venjuleg aðalfund- arstörf. Stjórnin. Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa kl. 9–13 hjá Sigrúnu, kortagerð o.fl., boccia kl. 9.30–10.30, helgistund kl. 13.30 í umsjón séra Ólafs Jóhanns- sonar. Böðun virka daga fyrir hádegi. Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öllum opið. Fastir liðir eins og venju- lega. Breiðagerðiskórinn tekur lagið með Dísunum fimmtudag kl. 14.30. Vorsýning 20., 21 og 23. maí kl. 13– 16. Skemmtiatriði alla dagana. Sýn- ingin er síðan opin vikuna þar á eftir frá kl. 13 til 16. Upplýsingar í síma 568 3132. Korpúlfar Grafarvogi | Gaman sam- an, föndur og saumaskapur í Mið- garði á morgun kl. 14. Norðurbrún 1 | Kl. 9–12 myndlist, kl. 9 smíði, kl. 9–16.30 opin vinnustofa, kl. 10 boccia, kl. 13–16.30 postulíns- máling, kl. 14 leikfimi. Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á höf- uðborgarsvæðinu | Hátúni 12. Opið hús kl. 11 til kl. 14.30. Samvera, súpa, brauð og kaffi. Allir velkomnir, bingó í kvöld kl. 19. Mjög góðir vinningar. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir, kl. 9.15–15.30 handa- vinna, kl. 9.15–16 postulínsmálun, kl. 10.15–11.45 enska, kl. 11.45–12.45 há- degisverður, kl. 13–16 bútasaumur, kl. 13–16 frjáls spil, kl. 13–14.30 les- hringur, kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.45, almenn handavinna kl. 9–16, leikfimi kl. 10, félagsvist kl. 14. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Morgunsöngur kl. 9. Aðalfundur Kvenfélags Akureyr- arkirkju kl. 19.30. Áskirkja | Opið hús kl. 10–14. Kaffi og spjall. Bænastund kl. 12. Boðið upp á léttan hádegisverð. Fella- og Hólakirkja | Opið hús fyrir fullorðna í Fella- og Hólakirkju þriðju- daga kl. 13–16, spilað, upplestur, kaffi, helgistund í lokin. Garðasókn | Opið hús í Kirkjuhvoli, Vídalínskirkju á þriðjudögum kl. 13 til 16. Spilað lomber, vist og brids og rabbað. Kaffi og meðlæti kl. 14.30. Helgistund í kirkjunni kl. 16. Akstur fyrir þá sem vilja, upplýsingasími: 895 0169. Grafarvogskirkja | Opið hús fyrir eldri borgara, kl. 13.30–16. Helgi- stund, handavinna, spil og spjall. Kaffiveitingar og alltaf eitthvað gott með kaffinu. Grensáskirkja | Hvern þriðjudag er bænastund með altarisgöngu í Grensáskirkju kl. 12. Boðið er upp á fyrirbæn. Að stundinni lokinni er hægt að kaupa léttan málsverð í safnaðarheimili. Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðs- þjónusta alla þriðjudaga kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Hjallakirkja | Prédikunarklúbbur presta er í Hjallakirkju á þriðjudögum kl. 9.15–11, í umsjá sr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar héraðsprests. Bæna- og kyrrðarstund er í Hjallakirkju þriðju- daga kl. 18. Kristniboðssalurinn | Samkoma í Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58–60 miðvikudagskvöld kl. 20. Fjár- öflunarkvöld Kristniboðsflokks KFUK. „Kristur og ofsóknir“. Ræðu- maður er Guðlaugur Gunnarsson. Einsöngur og happdrætti. Kökusala. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos H ön nu n: G un na r S te in þ ór ss on / M ar ki ð / 04 .2 00 5 Þríhjól. Vönduð, létt, sterk og endingargóð. CE öryggisstaðall. Verð frá kr. 4.900 Létt, sterk og meðfærileg barnahjól með hjálpardekkjum og fótbremsu. CE öryggisstaðall. 12,5” fyrir 3 - 4 ára 14” fyrir 4 - 5 ára 16” fyrir 5 - 6 ára Walt Disney barnadót og hjálmar í miklu úrvali Barnahjól 12,5” – 3-4 ára Verð aðeins kr. 9.900 Litir: rautt eða gult Barnahjól 16” – 5-6 ára Verð aðeins kr.12.400 Litir: Bleikt, blátt eða silfur Barnahjól 20” – 6-7 ára 5 gíra, verð frá 18.400 Fleiri litir og gerðir Barnastólar Fjaðrandi stellfesting, púðar og öryggisólar. Einnig til með svefnstillingu Reiðhjólahjálmar Mikið úrval af barna reiðhjólahjálmum, einföld og örugg stilling. CE merktir 5% stgr. afsláttur. Upplýsingar um raðgreiðslur veittar í versluninni Hjólin eru afhent tilbúin til notkunar, samsett og stillt á fullkomnu reiðhjólaverkstæði. Aðeins vönduð hjól með ábyrgð. Frí upphersla fylgir innan tveggja mánaða. Barnahjól Hvergi meira úrval!i i l Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali Hálsasel - endaraðhús Vandað og vel staðsett tvílyft endaraðhús, sem skiptist m.a. í stórar stofur, 5 svefnherbergi, sjónvarpshol, baðherbergi og innb. bílskúr. Húsið hefur verið töluvert endurnýjað. Stór timburverönd er til suðvesturs. Mjög rólegt, barnvænt og skjólgott umhverfi. V. 31,5 m. 4957 Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn MENNING OFT ER rætt um stóru „béin“ í tónlistarsögunni, þ.e. Bach, Beet- hoven og Brahms en stóru „emm- in“ eru ekki sett í slíkt samhengi. Á þeim tónleikum sem hér eru til um- fjöllunar voru „emmin“ stór svo um munaði. Þegar Mozart og Mendels- sohn eiga í hlut koma fram í hug- ann orðin snillingur … skammlífur og þó? Þrátt fyrir að hvorugur þeirra næði fertugu þá fylla lífs- verk þeirra líf okkar fögnuði enn í dag og gera það ríkara. Greta Guðnadóttir einleikarinn í fiðlu- konsert Mozarts lét hafa eftir sér í efnisskránni að í konsertinum ríkti vorstemming. Þeirri stemmingu skilaði hún, stjórnandi og hljóm- sveit prýðilega til mín og raunar lenti ég lengra, því ítalska sumarið í sinfóníu Mendelssohns sendi huga minn að sólgylltri sumarströnd. Tónleikarnir hófust með þeim dramatíska og dulúðga Don Giov- anni-forleik, þar sem Mozart er á slóðum Beethovens í dýpt sin- fónískrar tjáningar. Tveir magnaðir hljómar með eftirómi í bassa vísa veginn og eftir örlítið óöryggi að loknum öðrum hljómi fylgdi verkið þeirri leið sem hreif og meira að segja gerði mann stundum hissa á að ekki væru fleiri en 37 í hljómsveitinni, svo mikill var hljómurinn. Greta hefur oft gegnt kons- ertmeistarastöðu við Sinfón- íuhljómsveit Norðurlands, en ekki komið fram áður sem einleikari í fiðlukonsert með hljómsveitinni. Í stuttu máli gegndi hún nýju hlut- verki með ágætum og greinilega ekki verra að þekkja sitt fólk, því svo var samhæfingin góð. Kadens- ur fyrsta og annars þáttar voru sannfærandi vel fluttar, sér í lagi var sú við hæga þáttinn blærík og heillandi. Annar þáttur verksins er heiðríkur eins og heiðríkt getur orðið og það komst vel til skila. Það er einkar merkilegt í lokaþætt- inum, allegro, þegar Mozart eftir angurvært og tregafullt tóntak fer út í aðra sálma, jafn- vel á sveitaball í Svarfaðardal, svona geta snillingar einir gert. Það er mörgum ráðgáta, hvers vegna í ósköpunum Mendels- sohn var ósáttur við handverk sitt á ítölsku sinfóníunni, sem hann samdi á Ítalíu tuttugu og tveggja ára gamall, því þessi sinfónía hef- ur allt frá frumflutn- ingi hennar í London 1833 verið talin und- urgóð. Merkilegt er að finna ná- lægð Brahms í úrvinnsluköflum og þó sér í lagi Mahlers í öðrum þætt- inum, pílagrímsgöngunni. Guð- mundi Óla tókst að skila þessu sin- fóníska stórvirki sem grípandi heild með þeim andstæðu tilfinningum sem í verkinu búa. Hann naut full- tingis góðra hljóðfæraleikara og vil ég þó sérstaklega nefna til sögu heillandi klarinettleik Ármanns Helgasonar og hornleik Helga Þ. Svavarssonar. Í öðrum þætti sin- fóníunnar var bassaröddin of sterk. En sumarið lifir áfram og hita- stemning var í áköfu klappinu í tónleikalok. Sinfóníuhljómsveit Norður- lands og sumarskap TÓNLIST Akureyrarkirkja Forleikur að óperunni Don Giovanni KV 527 og Fiðlukonsert nr. 3 í G-dúr, KV 213 eftir W. A. Mozart (1756-1791), ásamt Sinfóníu nr. 4 í A-dúr op. 90, Ítalska sin- fónían, eftir Felix Mendelssohn (1809- 1847). Flytjendur: Sinfóníuhljómsveit Norður- lands og Greta Guðnadóttir einleikari á fiðlu. Konsertmeistari: Una Sveinbjarn- ardóttir. Stjórnandi: Guðmundur Óli Gunnarsson. Sunnudaginn 8. maí 2005. Sinfóníutónleikar Greta Guðnadóttir Jón Hlöðver Áskelsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.