Morgunblaðið - 06.06.2005, Side 35

Morgunblaðið - 06.06.2005, Side 35
553 2075☎ JENNIFER LOPEZ JANE FONDA DIARY OF A MAD BLACK WOMAN ÓVÆNTASTA GRÍNMYND ÁRSINS MORGUNBLAÐIÐ  Fréttablaðið  SJ. blaðið  Kvikmyndir.com  Sýnd kl. 6, 8 og 10 Sýnd kl. 5.45 og 8 FRÁBÆR GRÍNMYND FRÁ LEIKSTJÓRA LEGALLY BLONDE FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA I I Í Sýnd kl. 6, 9 og 10.30 B.I 10 ÁRA 30.000 gestirá aðeins 17 dögum www.laugarasbio.is KINGDOM OF HEAVEN ORLANDO BLOOM  HL mbl l Sýnd kl. 10.20 B.I 16 ÁRA HL mbl EINSTÖK UPPLIFUN ÍSLENSK TÓNLIST Í 1000 ÁR Sýnd kl. 6  SK.dv Ó.H.T. Rás 2 Sýnd kl. 6 og 9 SJ. blaðið  Kvikmyndir.com  MORGUNBLAÐIÐ Fréttablaðið     30.000 gestir Frá framleiðendum Lock Stock & Snatch r fr l i t t Breskur glæpatryllir eins og þeir gerast bestir. Svartur húmor, ofbeldi og cool tónlist með Cult, Starsailor, FC Kahuna og Duran Duran.    Sýnd kl. 6 og 9 B.I 10 ÁRA kl. 5.40, 8 og 10.30 B.I 16 ÁRA 400 kr. í bíó!* * Gildir á allar sýningarmerktar með rauðu 30.000 gestir 30.000 gestirá aðeins 17 dögum 9. júní Nýr og betri Miðasala opnar kl. 17.00 - BARA LÚXUS   Ó.Ö.H. DV x-fm x-fm MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚNÍ 2005 35 Nýr og girnilegur uppskriftavefur á mbl.is Hráefni: 500 g hveiti 3 sléttfullar tsk. þurrger 1 sléttfull tsk. lyftiduft 4 sléttfullar msk. sykur 1 sléttfull tsk. salt 70 g smjör 2 dl mjólk, ylvolg 1 dl súrmjólk, ylvolg 1 stk. egg 4 msk. kúmen 150 g kúmenostur Finndu uppáhalds upp- skriftina þína á mbl.is Kúmen ostabrauð Aðferð: Bleytið gerið upp í volgri mjólk og látið standa í nokkrar mín. Blandið þurrefn- um saman í hrærivélarskál. Bætið ger- blöndu, súrmjólk, mýktu smjöri og eggi saman við. Hnoðið þar til deigið er laust frá skálinni. Takið deigið úr skál- inni, mótið í 2 cm þykkar sneiðar, legg- ið á smurða bökunarplötu, skerið tvær raufar í hvern hleif og látið hefast við stofuhita í 20 mín. Leggið sneið af kúmenosti ofan á hvern hleif áður en bakað er í 20 mín. við 200°C. Skvettið einum dl af vatni í botninn á ofninum þegar baksturinn hefst. Það er lengi hægt að dást að bíómenningunni íFrakklandi. Í staðarbíóinu mínu sem kennter við franska leikstjórann Alain Resnais erSin City sýnd á fyrsta degi, eins og í New York og París. Það er ekki í kot vísað í þessu þorpsbíói í Clermont l’Hérault, salurinn er stór og stólarnir góð- ir. Ég ákvað að sjá Last Days (Efstu dagar) eftir Gus van Sant, því Midi Libre, stærsta dagblaðið hér syðra, mælti sérstaklega með henni og taldi hana hafa verið fyrir borð borna í Cannes. Bandaríski leikstjórinn Gus van Sant fékk Gullpálmann í Cannes 2003 fyrir mynd sína Elephant (Fíllinn). Í Last Days byggir hann á síð- ustu dögum tónlistarmannsins Kurt Cobains, sem stytti sér aldur 27 ára, fyrir rúmum tíu árum. Hann var þá illa haldinn af geðveiki og eiturlyfjaneyslu, ný- lega flúinn af endurhæfingarstofnun. Það áhugaverða við Last Days og gallinn líka, er sá að það er reynt að nálgast hið ómögulega. Að draga upp mynd af ungum manni sem er á óræðum tilverumörkum, ekki í sam- bandi, nema kannski að einhverju leyti við náttúruna og tónlistina. Hann eigrar um skóginn og tuldrar, hann eigrar um stóra niðurnídda húsið sitt í skóginum og tuldrar. Vinir hans í húsinu skipta sér ekki af honum. Hann felur sig fyrir þeim sem leita að honum. Það eitt er víst að hann þjáist, og það er ekki sýnt með ódýrum brögðum. Hins vegar er hið raunverulega efni mynd- arinnar svo þungt og einangrun aðalpersónunnar svo mikil að farið er út í brandarakennda útúrdúra sem eiga ekki erindi. Leikstjórinn virðist hafa ofurtrú á efninu sem breytist í vantrú þegar minnst varir. Leik- stjórinn er mjög flinkur, leikararnir frábærir, þetta er falleg mynd og hún skilur eitthvað eftir sig. Hún veitir innsýn inn í sérstakan heim og það er ekki tímasóun að sjá hana, en kraftaverkið er ógert, það vantar í hana það sem gerir listaverk að listaverki. Hvað svo sem það er. Ég hef líka þá alvarlegu mótbáru við Last Days, úr því Kurt Cobain er fyrirmynd að aðalpersón- unni, að það kemur ekki fram hvað hann var flottur tónlistarmaður. Leikstjórinn velur að hafa tónlistina hans ekki í myndinni og það er skiljanlegt – en það kemur ekki heldur fram með öðrum hætti hvað þessi fyrirmynd var merkilegur listamaður. Að öll þjáningin leiddi til einhvers. Því er myndin að sínu leyti smækk- andi fyrir hann, þótt það hafi ekki verið meiningin. Hér í Suður-Frakklandi eru hitarnir gengnir í garð og nú eru byrjaðar útisetur yfir veitingum á stéttum og torgum langt fram á kvöld. Við bíófélagar fengum okkur kvöldmat í St. André de Sangonis, umferð- arhrjáðu þorpi við þjóðveginn, og nutum hávaðans af flutningabílum og litlum bílum. Túnfiskurinn okkar var veiddur í Miðjarðarhafinu sem er á næstu grösum, og steiktur úti yfir vínviðareldi. Vínviðurinn gefur gott og sérstakt bragð sem er ljúft eins og sjálfur vínvið- urinn. Og bíómyndin um síðustu daga ógæfusama tón- listarmannsins gerði betur en að endast sem umræðu- efni meðan rökkrið lagðist yfir og það sljákkaði í umferðinni á þjóðveginum. B í ó k v ö l d í C l e r m o n t l ’ H é r a u l t Nálgun við hið ómögulega Úr kvikmyndinni Last Days. Eftir Steinunni Sigurðardóttur LEIKKONAN Rachel McAdams var sigur- vegari kvöldsins á Kvikmyndahátíð MTV sem fram fór í Los Angeles á laugardaginn. Henni voru veitt verðlaun fyrir fram- úrskarandi frammistöðu leikkonu fyrir hlutverk sitt í Mean Girls og einnig fyrir besta kossinn í kvikmyndinni Notebook þegar hún kyssti Ryan Gosling. Þá fékk hún þriðju verðlaunin er allir leikarar mynd- arinnar Mean Girls voru verðlaunaðir. Kvikmyndin Napoleon Dynamite var val- in besta myndin, Leonardo DiCaprio besti leikarinn og Lindsey Lohan besta leik- konan. Tom Cruise heiðraður Leikarinn Tom Cruise var heiðraður á hátíðinni fyrir framlag sitt til kvikmynda en þetta var í fyrsta skipti sem slík við- urkenning er veitt. „Ef mér hefur tekist að skemmta ykkur eitthvað þá þakka ég ykkur fyrir að hafa leyft mér að gera það,“ sagði Cruise við það tilefni. Barnastjarnan Dakota Fanning hlaut sér- stök verðlaun fyrir tilþrif sín við að túlka hræðslu í kvikmyndinni Hide and Seek og Dustin Hoffman hlaut verðlaun fyrir bestan gamanleik í myndinni Meet the Fockers. Rachel McAdams sigurveg- ari kvöldsins á hátíð MTV Reuters Sigurvegari kvöldsins, leikkonan Rachel Mc- Adams, bregður á leik ásamt Ryan Gosling eft- ir að hafa hlotið verðlaun fyrir besta kossinn. Leikkonan Katie Holmes fylgdi ástmanni sín- um, Tom Cruise, á svið er hann tók við viður- kenningu sinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.