Morgunblaðið - 12.06.2005, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 12.06.2005, Qupperneq 18
18 SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ A f hverju ertu að taka myndir af þeim?“ „Er þetta kannski landsliðið?“ Þrír ljóshærðir guttar hafa ekki augun af ljós- myndaranum á hliðarlínunni. „Nei, nei.“ Ljósmyndaranum vefst tunga um tönn. „Spyrjið bara hana. Hún veit allt um málið.“ Hikandi færast þeir nær – tveir eins og einn með húfu. „Þetta er Africa-United. Þeir eru í þriðju deildinni. Það er nýbúið að gera um þá heimildarmynd. Hún verður sýnd á voða frægri kvikmyndahátíð í Tékk- landi. Kannski verða þeir frægir.“ Þróttararnir kinka allir kolli samtímis. „Það er líka eitt svolítið sérstakt. Leikmennirnir eru eiginlega allir fæddir í út- löndum. Sumir hafa kannski neyðst til að flytjast frá heimalandi sínu. Aðrir hafa kannski komið til Íslands til að vinna.“ „Af hverju kom þessi?“ Einn þremenninganna bendir á níuna. „Ég veit það ekki. En ég gæti spurt – þegar þeir teygja.“ Vinátta og góður bolti Við höldum áfram að fylgjast með upphituninni. „Ekki of hratt strákar,“ hróp- ar þjálfarinn Zico Zakaria frá Marokkó yfir leikmannahópinn. „Við eigum leik á morgun.“ Loksins kallar hann hópinn saman á miðjum vellinum. Hann talar til skiptis á íslensku og ensku. Vegna leiksins er æfingin stutt í kvöld. Strákarnir slá á létta strengi. Zico segir að Africa-United snúist um vináttu. „Ánægjan af því að vera saman og spila fótbolta skiptir mestu máli. Við erum alltaf léttari og bjartsýnni eftir æfingar,“ segir hann og bætir við að með Africa-United vilji þeir líka sýna Íslendingum fram á að innflytjendur eigi sér heilbrigð, uppbyggileg áhugamál. „Við erum ekki bara í einhverju rugli og dópi eins og sumir virðast halda.“ Leikmennirnir eru allt frá nýliðum upp í fyrrverandi atvinnumenn í fótbolta. „Þessir eru frá Serbíu, Kosovo, Marokkó, Alsír, Kólumbíu, Gíneu og Taílandi. Við erum bara með einn frá Asíu. Hann er sá eini sem sýnt hefur fótboltanum áhuga. Runi er bara 17 ára – mjög gott efni,“ segir Zico. „Hérna eru líka Tjörvi og Benni þeir eru frá …“ Benni lítur við. „Benni, þú ert útlendingur,“ kallar einn og hinir veltast um af hlátri á gervi- grasinu. „Africa-United er fyrir alla,“ heldur Zico ögn íhugull. „Ég hringi í stráka sem eru að flytja til landsins og býð þeim að koma á æfingu. Íslendingar eru alltaf velkomnir. Við erum stundum heldur fáir. Sumir eru kannski í heimalandinu, aðrir með rauða spjaldið. Þá er kannski bara b-liðið eftir.“ Nú ertu með menn víðs vegar að úr heiminum í liðinu. Hafa einhvern tíma komið upp pólitískar erjur í Africa-United? Zico á bágt með að neita því að komið hafi upp vandamál. „Já, ég hef þurft að setja menn í æfingabann. En þeir koma aftur þegar þeir eru búnir að átta sig á því hvað skiptir mestu máli – vináttan, boltinn,“ viðurkennir hann og tekur fram að um þessar mundir séu engar erjur í liðinu. „Við erum allir góðir vinir; svartir, gulir og hvítir. Fyrir utan æfingarnar hittumst við yfirleitt á kaffihúsi einu sinni í viku og borðum saman þegar við vinnum. Við æfum og hlaupum saman úti á vet- urna.“ Zico segir að liðinu hafi gengið ágætlega í sumar „Við gerðum jafntefli við Augnablik úr Kópavogi í síðasta leik. Sumarið leggst vel í Africa-United. Við spil- um á móti úrvalsliði Íslands í ágúst. Og Vodafone ætlar að styrkja leikinn,“ segir Zico. „Annars hefur okkur vantað stuðningsaðila. Fótbolti er dýr íþrótt, búning- arnir, skórnir og ferðalögin.“ Dansandi leikmaður Ekki má gleyma því að efna loforðið við þremenningana úr Þrótti þótt þeir séu horfnir á braut enda komið fram yfir lögbundin útivistartíma fólks á þeirra aldri. Nían reynist heita Cheick og koma frá Gíneu. „Pabbi rekur dansskóla í Gíneu. Hann heldur alltaf reglulega alþjóðleg dansnámskeið. Einu sinni komu Íslend- ingar á námskeiðið. Ég kynntist þeim og flutti í framhaldinu hingað. Ég hef búið á Íslandi í sex ár, kennt dans og unnið í leikskólanum Kirkjubóli í Garðabæ.“ Strákar, þá vitið þið það … Morgunblaðið/Sverrir „Teygja, teygja vel.“ Leikmennirnir hlýða þjálfara sínum í einu og öllu. „Er þetta landsliðið?“ Einn frá Kosovo, annar frá Kólumbíu, þriðji frá Gíneu, fjórði frá Taílandi. Hver eftir annan tínast leikmenn Africa-United inn á gervigrasvöll Þróttar í Laugardal. Æfingin verður stutt í kvöld – leikur á morgun. Anna G. Ólafsdóttir fylgdist með af hliðarlínunni, spjallaði við þjálfarann, leikmennina og þrjá unga Þróttara. Cheik og Zlatko bregða á leik. Þótt áhersla sé lögð á vináttu er baráttan um boltann eitilhörð. Ekki of hratt. Ekki of hægt. Annar frá hægri gætir Zico þess að leikmennirnir ofreyni sig ekki fyrir leikinn daginn eftir. Þrír Þróttarar laumast yfir gervigrasvöllinn í Laugardal.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.