Morgunblaðið - 12.06.2005, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 12.06.2005, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 2005 31 Ekkert bendir til þess að sú naflaskoðun, sem ESB mun neyðast til að hefja eftir fall stjórnar- skrárinnar, muni breyta þessu. Þótt sjávarút- vegur sé mikilvæg atvinnugrein á Íslandi verðum við að horfast í augu við að hann er jaðarmálefni í ESB og ekki eitt af þeim vandamálum, sem sjónir manna beinast að þegar þeir neyðast til að leita nýrra lausna í stað stjórnarskrárinnar. Með inn- göngu nýrra ríkja í Mið- og Austur-Evrópu, margra landluktra, í sambandið minnkar vægi hans enn. Þetta gæti breytzt ef Noregur gengi í ESB en ekkert bendir til að það sé á döfinni. Hér á landi er hópur manna, sem talar eins og Noregur geti sótt um aðild að ESB hvenær sem er. Það er ekki svo og hefur orðið ólíklegra eftir að stjórnarskráin var felld. Með sama hætti er hópur manna í Noregi, sem lætur eins og Ísland kynni að ákveða það í næstu viku að sækja um aðild að ESB. Fyrr í mán- uðinum var hér staddur norskur stjórnmálamað- ur, sem sagðist eftir samræður við íslenzka sér- fræðinga í Evrópumálum ekkert botna í því hvaðan norskir fjölmiðlar hefðu heimildir sínar um að Ísland kynni að vera á hraðri leið í ESB. Hér virðist því einhver gagnkvæm óskhyggja á ferð. Eini ljósi punkturinn í falli stjórnarskrár ESB, hvað sjávarútvegsmálin varðar, er að í III. kafla hennar er skýrt ákvæði um að sambandið hafi „al- ger yfirráð“ hvað varðar verndun auðlinda sjávar, í samræmi við sameiginlegu sjávarútvegsstefn- una. Slíkt ákvæði kynni að loka stöðunni enn frek- ar ef til aðildarviðræðna Íslands kæmi og þar af leiðandi gott að vera laus við það – en það er auð- vitað ekki útilokað heldur að það rati inn í endur- skoðaðan stofnsáttmála sambandsins. Evran Davíð Oddsson nefndi einnig evruna sem hindrun í vegi fyrir Evrópusambandsaðild Íslands. Margir ræða hins vegar um hana sem meginástæðu þess að Ísland ætti að ganga í ESB. Evran hefur haft ýmsa kosti í för með sér fyrir aðildarríki ESB, en hin gríð- arlega jákvæðu efnahagslegu áhrif hennar, sem margir spáðu, hafa látið á sér standa. Ekki er hægt að horfa framhjá því vandamáli, sem Davíð nefnir, að efnahagslegar aðstæður eru ólíkar eftir ríkjum og jafnvel héruðum innan evrusvæðisins. Fyrir nokkrum dögum kvartaði innanríkisráð- herra Ítalíu yfir því að evran gerði mönnum erfitt fyrir að taka á veikari efnahag, atvinnuleysi og versnandi samkeppnisskilyrðum. Málið hefur horft öðruvísi við út frá sjónarhóli Írlands; þar hefur efnahagslífið verið í uppsveiflu á sama tíma og lægð hefur verið í kjarnaríkjum sambandsins; hagvöxtur á árinu stefnir í að verða þrefaldur meðalhagvöxtur á evrusvæðinu. Margir Írar kvarta nú yfir því að stefna Seðlabanka Evrópu um lága vexti henti afar illa þegar hætta sé á of- hitnun hagkerfisins. Á þeim sex árum, sem liðin eru frá upptöku evrunnar, eru raunar lítil merki um aukna samleitni hagkerfa aðildarríkja Efna- hags- og myntbandalagsins, þótt hagfræðingar bendi enn á að til lengri tíma muni evran vænt- anlega ýta undir milliríkjaviðskipti og fjárfesting- ar á svæðinu. Bæði í Svíþjóð og Bretlandi, sem ásamt Danmörku standa enn utan myntbanda- lagsins, hafa margir hagfræðingar efasemdir um að upptaka evrunnar gangi upp vegna þess hve hagsveiflan í þessum löndum sé ólík þeirri á meginlandinu. Í Danmörku eru hins vegar fyrst og fremst pólitískar ástæður fyrir því að taka ekki upp evru. Á meðan þessi þrjú ríki, sem Ísland á við um 30% af utanríkisviðskiptum sínum, taka ekki upp evruna er þrýstingurinn á Ísland að endur- skoða afstöðu sína takmarkaður. Þegar óstöðugleiki eða óvissa er í gengismálum, eins og nú er hér á landi, heyrast raddir um að evr- an gæti leyst öll okkar vandamál. Þá gleymist ann- ars vegar að hagsveiflan á Íslandi er ólík því sem gerist í kjarnaríkjum ESB og hins vegar að upp- taka evrunnar er engin skyndilausn. Ekkert ríki getur fengið aðild að Efnahags- og myntbandalag- inu nema vera í fyrsta lagi aðildarríki ESB, í öðru lagi að uppfylla skilyrði Maastricht-sáttmálans um lágar ríkisskuldir, fjárlagahalla, vexti og verð- bólgu og í þriðja lagi að hafa haldið gengi sínu stöðugu gagnvart evrunni um tveggja ára skeið. Þannig er það í raun ekki evran, sem kemur hag- kerfinu til bjargar, heldur efnahags- og peninga- málastefna, sem leiðir af sér stöðugleika. Slíkri stefnu þurfa ríki að fylgja hvort sem þau eru innan eða utan Efnahags- og myntbandalagsins. Fríverzlunar- samningar Fleiri atriði koma til skoðunar, þegar metið er hvort Ísland eigi að sækja um aðild að Evrópusambandinu á næstu árum. Nú á tímum al- þjóðavæðingar viðskipta er það t.d. athyglisvert að Ísland skuli vera bæði á undan Evrópusam- bandinu og hinum EFTA-ríkjunum að hefja und- irbúning að fríverzlunarsamningum við Kína. Eins og fram kemur á forsíðu Morgunblaðsins í dag, laugardag, virðist ESB hafa meiri áhuga þessa dagana á að takmarka fríverzlun við Kína en að auka hana; sambandið setur höft á innflutning vefnaðarvöru frá Kína til að vernda störf í eigin vefnaðariðnaði. Fyrstu árin eftir að EES-samningurinn var gerður voru EFTA-ríkin taglhnýtingar ESB hvað varðaði gerð fríverzlunarsamninga; þegar ESB hafði gert samning kom EFTA á eftir og gerði eins samning. Margir töldu þá að það borgaði sig fremur að vera innan ESB en utan til að ná góðum fríverzlunarsamningum; þungi ESB í samninga- viðræðum væri miklu meiri en EFTA. Nú hefur þetta hins vegar breytzt. EFTA hefur náð forskoti á ESB hvað varðar viðræður við Kanada og ýmis Asíuríki. Grétar Már Sigurðsson, skrifstofustjóri viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, var spurður um ástæðu þessa í viðtali við Viðskipta- blað Morgunblaðsins fyrir skömmu. Hann svar- aði: „EFTA er lítill klúbbur. Þar er samráð milli aðeins fjögurra landa, en í ESB þarf miklu víðtæk- ara samráð. Við höfum verið fljót að stökkva á tækifæri, sem hafa opnazt. Við vitum líka að um leið og þessi lönd byrja að semja við ESB stoppar allt og þau einblína á þá samninga. Við reynum því að nota mjög vel þann tíma, sem við höfum til að semja áður en ESB er klárt í slaginn. Það getum við helzt af því að boðleiðirnar eru stuttar og ákvarðanatakan einföld.“ Við þetta bætist að sumum viðsemjendum finnst jafnvel EFTA of stórt; þannig vildu Kín- verjar ekki ganga til samninga við bandalagið þótt þess væri farið á leit, heldur ræða við Íslendinga eina. Íslenzka utanríkisþjónustan á auðvitað mikið í þessum árangri. Skilvirkni hennar í samningavið- ræðum, ekki sízt um viðskiptamál, hefur sýnt sig hvað eftir annað á undanförnum árum. En um leið hlýtur það að vera umhugsunarefni fyrir hina mörgu eindregnu stuðningsmenn ESB-aðildar í utanríkisþjónustunni hvort hún hefði í för með sér missi sveigjanleikans og hinna stuttu boðleiða. Félagsskapur og þjóðarhags- munir Evrópusambandið er félagsskapur, sem Ís- land á að flestu leyti samleið með vegna legu sinnar, sögu og pólitískra tengsla. Þar eru fyrir flest nánustu bandalagsríki okkar í Atl- antshafsbandalaginu og Norðurlandaráði – Nor- egur er helzta undantekningin. Samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið, ásamt Schengen- samningnum og fleiri sáttmálum við sambandið er auðvitað staðfesting þess að við eigum samleið með ESB; þessir samningar gera okkur kleift að taka þátt í stórum hluta af starfsemi bandalagsins, fyrst og fremst auðvitað innri markaðnum. Ástæðan fyrir því að við höfum ekki sótt um fulla aðild að bandalaginu er ekki að okkur mislíki félagsskapurinn, heldur hindranir, sem snerta mikilvæga þjóðarhagsmuni okkar; yfirráð yfir fiskimiðunum og samkeppnishæfni hagkerfisins. Þessi atriði vega þyngra en sá meginókostur EES-samningsins að Ísland hefur ekki sömu áhrif og aðildarríki ESB á nýja löggjöf, sem þó tekur gildi á Íslandi. Þótt Evrópusambandsríkin endurskoði sam- starf sitt og færi sambandið nær almenningi í kjöl- far höfnunar stjórnarskrárinnar í Frakklandi og Hollandi, dugir það ekki til að gera aðild aðgengi- lega fyrir Ísland. Þeir, sem vilja sækja um aðild að ESB, þurfa fyrst að finna lausnir á þeim augljósu annmörkum, sem eru á núverandi stefnu banda- lagsins í mikilvægum hagsmunamálum Íslands. „Áhugi sumra stjórnmálaleiðtoga á að gera ESB að sambandsríki – sem það er enn langt frá að vera – hefur aldr- ei verið meginrök- semd þeirra, sem telja ekki tímabært fyrir Ísland að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Aðrar hindranir eru í veginum, sem snerta beint ís- lenzka grundvall- arhagsmuni.“ Laugardagur 11. júní REUTERS Meirihluti franskra og hollenzkra kjósenda kaus „nei“ í þjóðaratkvæðagreiðslum um stjórnarskrá Evrópusambandsins. Hvaða áhrif hefur það á Íslandi?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.